Skessuhorn


Skessuhorn - 25.01.2006, Side 2

Skessuhorn - 25.01.2006, Side 2
2 MIÐVIKUD AGUR 25. JANUAR 2006 SSESSIÍHOM www.skessuhorn.is Til minnis Vib minnum á ráöstefnuna „A fleygiferð - Vesturland morg- undagsins" sem haldin verður í Viöskiptaháskólanum á Bif- röst nk. föstudag og hefst klukkan 11. Rannsóknamiö- stöö Viðskiptaháskólans á Bif- röst og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa að ráö- stefnunni sem fjallar um fram- tíð Vesturlands. Reynt veröur aö rýna inn í framtíöina, skoöa hver eru helstu tækifæri svæð- isins og jafnvel hvað beri aö varast. Ókeypis aögangur og allir velkomnir. Ve?RrhorfRr Næstu daga ráöa suðlægar áttir ríkjum meö vætu og fremur hlýju veðri. Sptvrnimj viHnnnar Viö spuröum í liöinni viku á vef Skessuhorns: „Ætlar þú á eitt eöa fleiri þorrablót í ár?" já, örugglega eöa sennilega svöruðu 55%, 8% vissu það ekki en 37% töldu þaö harla eöa mjög ólíklegt að þeir færu. í næstu viku spyrjum við: „Hefur þú áhyggjur af framtíö íslenskrar tungu?" Svaraöu án undanbragöa á www.skessuhorn. is VestlendinjTVr viRnnnar Að þessu sinni eru Vestlend- ingar vikunnar stöllurnar Vig- dís Cunnarsdóttir, félagsráðgj- ari Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga og Hildur Sæ- mundsdóttir hjúkrunarfræð- ingur hjá Heilsugæslu Grund- arfjaröar, en þær stóðu nýlega fyrir kynningar- og fræöslu- fundi um ADHD í Grundar- firði. Þarft mál sem víöar þarf aö taka upp í samfélaginu til aö hjálpa þeim sem glíma við ofvirkni og athyglisbrest í um- hverfi sínu. Andlát: Látínn er Skúli í Svignaskarði A FjórSimgsmóti Vesturlands á lidnu sumri voru gæðingamir frá Svignaskarði enn og aftur teknir til kostanna. Hér er Skúli ásamt sonardóttur sinni; Berglindi Rósu Guð- mundsdóttur sem situr stóðhestinn Þjótanda frá Svignaskarði. Ljósm. MM Skúli Kristjónsson í Svignaskarði er látinn, sjötugur að aldri. Hann fæddist og ólst upp í Svignaskarði og bjó þar alla tíð, en síðustu árin var hann búsettur í Borgarnesi á- samt Rósa Guðmundsdóttur efrir- lifandi eiginkona sinni. Skúli var búfræðikandidat frá Hvanneyri, stvmdaði fjárbúskap og hrossarækt alla tíð og var atkvæðamikill tamn- ingamaður, knapi og hrossarækt- andi. Störf hans að félagsmálum og ræktun Svignaskarðshrossanna í áratugi gerðu hann að einum þekktasta hestamanni liðinnar ald- ar. Skúli var sérlega ósérhlífinn og ötull til verka, kjarkmaður og knar- reistur þannig að efrir honum var tekið. Hann var ljúfur maður og ætíð var ástæða til að leggja við hlustir þegar hann viðraði skoðanir sínar enda rökfastur og réttsýnn og minnugur jafnt um fólk sem fénað. Þau Skúli og Rósa eignuðust þrjú börn; Guðbjörgu, Guðmund og Sigríði Helgu. Útför Skúla verður gerð frá Reykholtskirkju laugardaginn 28. janúar og hefst athöfnin klukkan 14. MM Nýir nemendagarðar byggðir á Bifröst Vonast er til að nú í vikunni verði skrifað undir samninga milli Borg- arlands og Viðskiptaháskólans á Bif- röst um byggingu næsta stóra áfanga í íbúðamannvirkjum á staðnum. Um verður að ræða ríflega 3 þúsund fer- metra byggingu þar sem í verða 42 nemendaíbúðir. Þrátt fyrir að reikn- að sé með að þessar íbúðir verði til- búnar fyrir næsta haust gerir Run- ólfur Agústsson, rektor á Bifröst ráð fyrir því að töluverður skortur á íbúðarhúsnæði verði þá enn óleyst- ur. „Við erum að bæta við öðrum ár- gangi í hina nýju félagsvísindadeild okkar og reikn- um með að nem- endum í stað- námi fjölgi um a.m.k. 50-60 næsta haust. Okkur veitti því ekki af tvöfaldri þessari aukningu til að geta annað efrirspurn eftir húsnæði á staðn- um,“ segir Run- ólfur. MM Frá Bifröst Sprenging í lóðaúthlutun á Akranesi og í Borgarbyggð Á árinu 2005 var úthlutað lóðum vmdir 279 íbúðir á Akranesi og í Borgarbyggð. Þetta er rífleg þre- földun ffá árinu 2004 en þá var út- hlutað lóðum undir 86 íbúðir í sveitarfélögunum tveimur. Þetta kemur fram í svari Ama Magnús- sonar félagsmálaráðherra á Alþingi við fyrirspurn Kjartans Olafssonar. Þingmaðurinn spurði hversu mörg- um lóðum sveitarfélög hafi úthlut- að á árunum 2000-2005. A árinu 2000 var úthlutað lóðum undir 51 íbúð á Akranesi en engri í Borgarbyggð. Árið 2001 var aðeins 13 lóðum úthlutað þar af 10 á Akra- nesi. Árið 2002 var fjöldinn 55 á Akranesi en enginn í Borgarbyggð. Árið 2003 var fjöldinn 59 á Akra- nesi en engin úthlutun í Borgar- byggð. Á árinu 2004 var úthlutað lóðum undir 86 íbúðir eins og áður sagði og í fyrra var talan 279. Frá árinu 2001 til ársins í fyrra ríflega 20 faldaðist fjöldi íbúða sem um- rædd sveitarfélög úthlutuðu lóðum undir. Þá óskaði þingmaðurinn upplýs- inga um hversu margar íbúðir hefðu verið fullgerðar sömu ár. Ekki liggja fyrir upplýsingar um árið 2005 en á árunum 2000-2004 voru 193 íbúðir fullgerðar á Akranesi, í Borgarbyggð voru 92 íbúðir fullgerðar, í Snæfells- bæ voru íbúðirnar 11 talsins og 14 á sama tíma í Stykkishólmi. HJ Vatnsveita Bæjarsveitar hugsamega undanskilin öðrum veitum Hugsanlegt er að Vatosveita Bæj- arsveitar í Borgarfirði verði að nýju afhent heimamönnum til rekstrar. Viðræður um slíkt standa yfir og er reiknað með niðurstöðum innan skamms. Forsaga málsins er sú að árið 1997 yfirtók Andakílshreppur Vatnsveitu Bæjarsveitar. Andakfls- hreppur sameinaðist síðar öðrum sveitarfélögum sem í dag mynda sveitarfélagið Borgarfjarðarsveit. Ibúar Bæjarsveitar telja að í samn- ingi sem gerður var við yfirtöku Andakílshrepps hafi skýrt verið kveðið á um að veitan yrði ekki samrekin með öðrum veitum. Engu að síður hafi slíkt verið ákveðið síð- ar og á það hefur verið bent að það hafi gerst án þess að hreyft hafi ver- ið mótmælum á sínum tíma. Að undanförnu hefur sá mögu- leiki verið ræddur að Orkuveita Reykjavíkur taki við rekstri vatos- veita í Borgarfjarðarsveit. Það hefur hreyft við nokkrum íbúum Bæjar- sveitar sem vilja taka við rekstri veitunnar að nýju og hafa verið lagðir ffam undirskriftarlistar í þá veru. Á fundi sveitarstjórnar Borgar- fjarðarsveitar á dögunum var sam- þykkt að fá nákvæma gjaldskrá fyrir alla vatnsnotkun í sveitarfélaginu svo hægt verði að meta allar breyt- ingar. Jafnfram var ákvarðanatöku um samning við Orkuveitu Reykja- víkur frestað. Linda Björk Pálsdótt- ir sveitarstjóri Borgarfjarðarsveitar segir málið í skoðun þessa dagana. Hún segir ekki loku fyrir það skot- ið að Vatosveita Bæjarsveitar kom- ist að nýju í hendur heimamanna. Það komi í ljós á næstu dögum. HJ Tugir íbúða tíl sölu í ílatahverfi Fasteignasalan Fasteignamiðlun í Reykjavík hefur auglýst til sölu byggingarétt ásamt byggingum fjölda íbúða í nýju hverfi á Akra- nesi. Um er að ræða byggingarétt og sökkla að tveimur 20 íbúða hús- um við Hagaflöt, uppsteypt 8 íbúða fjölbýlishús við Eyrarflöt, þrjú uppsteypt raðhús við Bakka- flöt og plötur undir tvö raðhús við sömu götu. I auglýsingu fasteigna- sölunnar kemur fram að áhvílandi skuldir á eignunum séu 257 millj- ónir króna og að öll þau gjöld sem greiðast vegna úthlutunar lóðanna verði innifalin í kaupverði. Starfsmaður fasteignasölunnar vildi ekki upplýsa hver seljandi væri né hvers vegna framkvæmdir þessar eru nú auglýstar til sölu í heilu lagi. Samkvæmt heimildum Skessuhorns fékk fyrirtækið Akur- hús ehf. í Reykjavík keyptan bygg- ingarrétt á umræddum lóðum á sínum tíma en ekki er víst að það fyrirtæki sé nú eigandi fram- kvæmdanna. Framkvæmdir þessar hafa nokkuð verið í fréttum und- anfarið því slælega hefur verið gengið frá nokkrum umræddra grunna og hefur það verið talið valda slysahættu. HJ Olæstir bílar AKRANES: í liðinni viku sinnti lögreglan á Akranesi alls 137 verkefnum. Þar af voru u.þ.b. 80 sem tengdust umferð- inni. Meðal annars voru 11 kærðir fyrir að aka of hratt þrátt fyrir að hálka væri á götum. Þar af ók einn á 106 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 70 km/klst eða 36 km yfir leyfðum hraða. Fær hann sekt að upp- hæð 30 þúsund. Þá var brotist inn í bifreið við Reynigrund í vikunni og stolið úr henni myndavél. Að sögn Jóns S Ola- sonar, yfirlögregluþjóns hefur nokkuð borið á innbrotum í bfla að undanförnu. Hann vill hvetja fólk til að ganga betur frá bílum sínum þegar þeir eru yf- irgefhir en allt of algengt er að þeir séu ólæstir. -mm Gauti Jóhamies- son frjálsíþrótta- maður ársins BORGARFJÖRÐUR: Gauti Jóhannesson UMSB var fyrsti Islendingurinn til að keppa á stórmóti í millivegalengdar- hlaupum í 25 ár þegar hann náði lágmarki til þátttöku á Evrópumeistaramótinu innan- húss í Madríd í 1500 m hlaupi. Þar hafnaði hann í 22. sæti af 27 keppendum. Einnig bætti hann Islandsmetið í 800 m hlaupi innanhúss þegar hann hljóp á 1:59,51 mín. Gauti átti mjög gott innanhúss tímabil í Svíþjóð á liðnu ári auk þess að keppa á Smáþjóðaleikunum í Andorra. I árslok var hann kjörinn frjálsí- þróttamaður ársins í karlaflokki og Þórey Edda Elísdóttir í kvennaflokki. -ig Meistarar í lög- fræði útskrifast BIFRÖST: Næstkomandi laugardag verða á þriðja tug nemenda útskrifaðir frá Við- skiptaháskólanum á Bifröst. Meðal annars verða útskrifaðir fyrstu lögfræðingarnir með ML gráðu, en það mun vera í fyrsta skipti sem útskrifaðir eru hér á landi nemendur frá öðrum skóla en Háskóla Islands með sambærilega menntun og þeir sem útskrifast með embættis- próf £ lögfræði frá HI. Þessi nemendur hafa stundað lög- ffæðinám á Bifröst undanfarið fjögur og hálft ár. -mm Eftírspum eftir iðnaðarlóðum BORGARBYGGÐ: Eftir- spurn eftir iðnaðarlóðum í Borgarnesi er mikið að aukast. Á síðasta fundi bæjarráðs Borg- arbyggðar voru teknar fyrir umsóknir þriggja aðila um iðn- aðarlóðir við Sólbakka í Borg- arnesi en þar er eins og kunn- ugt er skipulagt og byggingar- hæft iðnaðarhverfi með all- mörgum lóðum. Samþykkt var að úthluta tveimur lóðum, en einni afgreiðslu var frestað. Balta ehf. fékk úthlutað lóð við Sólbakka 24 og Hildigunnur Davíðsdóttir / Trémenn sóttu um og fengu úthlutað lóð núm- er 30. Frestað var ákvörðun um úthlutun lóðar númer 31 sem Halldór Haraldsson sótti um. -mm

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.