Skessuhorn


Skessuhorn - 25.01.2006, Síða 9

Skessuhorn - 25.01.2006, Síða 9
SSESSuHöKí MIÐVIKUDAGUR 25. JANUAR 2006 9 Tilboð um bankaviðsldpti bæjarstarfsmanna vekja spumingar KB-banki, íslandsbanki og bæjar- fulltrúi minnihlutans í bæjarstjóm Akraness hafa óskað eftir skýringum frá Akraneskaupstað vegna dreifi- bréfs frá Landsbanka Islands sem sent var öllum starfemönnum sveit- arfélagsins að frumkvæði þess í upp- hafi ársins. Þar er starfsmönnum boðið að banlánn geri sérstaklega vel við starfsmenn sveitarfélagsins. Bæjarfulltrúi minnihlutans telur hugsanlegt að upplýsingar sem gefh- ar hafa verið Landsbankanum brjóti gegn ákvæðum laga um persónu- vemd. Bæjarstjóri segir að aldrei megi taka frumkvæði af starfemönn- um bæjarins en telur rétt að skerpa á reglum um innkaup. Þegar starfemenn Akraneskaup- staðar fengu launaseðla sína senda í pósti í upphafi árs var auk launaseð- ilsins kort frá Landsbanka Islands á Akranesi. I kortinu sem undirritað er af Sturlaugi Sturlaugssyni útibús- stjóra, fyrir hönd starfefólks Lands- bankans á Akranesi, segir orðrétt: „A grundvelli þess að Landsbankinn á Akranesi hefur um árabil verið við- skiptabanki Akraneskaupstaðar mun Landsbankinn, að frumkvæði Akra- neskaupstaðar, nú markvisst leitast við að gera sérstaklega við starfs- menn bæjarins í öllum þeirra banka- viðskiptum og kjörum.“ Þá segir í bréfinu að í upphafi árs muni Lands- bankinn hafa samband við starfs- menn sveitarfélagsins og bjóða þeim fund hjá ráðgjafa þar sem farið verði yfir mál hvers og eins. A fúndi bæjarráðs Akraness í síð- ustu viku var lagt fram bréf frá úti- bússtjóra KB banka á Akranesi. I fyr- irsögn bréfsins er spurt hvort eðlileg vinnubrögð séu á samkeppnismark- aði. Ljóst er að útibússtjóranum er ekki skemmt. Kemur fram að með dreifibréfi Landsbankans sé öllum starfsmönnum bæjarins beint að einni bankastofium í bænum en ekki óskað tilboða frá öðrum bönkum. Með því sé verið að hygla einu fyrir- tæki. Oskað er efdr skýringum á þessari afgreiðslu mála, eins og segir í bréfinu. Þá bendir útibússtjórinn á að KB banki bjóði meðal annars lægstu vexti af íbúðalánum. Þá er spurt hvort eðlilegt þætti að bæjarfé- lagið beindi starfsmönnum sínum til einnar matvöruverslunar, eins síma- fyrirtækis eða flutningsfyrirtækis. A umræddum bæjarráðsfúndi var einnig lögð fram fyrirspum frá Guð- rúnu Elsu Gunnarsdóttur, bæjarfull- trúa Sjálfetæðisflokksins. Þar er ósk- að svara við því hvort bréf Lands- bankans hafi verið sent að ffurn- kvæði bæjarráðs eða einhverra starfsmanna bæjarins. Þá er spurt hvort bæjarráð telji það í sínum verkahring að aðstoða fyrirtæki í samkeppnisumhverfi með þessum hætti. Þá spyr bæjarfúlltrúinn hvort bæjarfélagið hafi greitt póstburðar- gjöld vegna sendingarinnar og hvaða heimildir það hafi til þess að senda einu fyrirtæki upplýsingar um launþega sína og hvaða upplýsingar hafi verið gefúar bankanum. Þá seg- ir bæjarfulltrúinn að hugsanlega brjóti þessi gjörningur gegn ákvæð- um laga um persónuvemd og sé svo er spurt hver muni bera ábyrgð á því. A fundi bæjarráðs var bæjarritara falið að svara bréfúm þessum. Þá samþykkti ráðið að fela starfshópi um innkaupamál að skoða hvort hægt sé að setja reglur um afsláttar- kjör fyrirtækja í viðskiptum við Akraneskaupstað fyrir starfsmenn kaupstaðarins og fjallað verði um málið í samráði við fulltrúa starfs- manna. Gtmnar Sigurðsson bæjarráðs- maður Sjálfstæðisflokksins lét bóka á fundinum að hann telji óeðlilega að málinu staðið en hann mmú bíða með ffekari bókun þar til bæjarritari hafi svarað fyrirspurnunum með formlegum hætti. Gunnar telur einnig eðlilegt að bankaþjónusta og tryggingar á vegum bæjarins séu boðnar út með reglulegu millibili. Guðmundur Páll Jónsson, bæjar- stjóri segir að Jón Pálmi Pálsson bæjarritari hafi haft ffumkvæði að tilboði Landsbankans til starfs- manna bæjarins. Hann segir að at- hugasemdir hafi einnig borist frá Is- landsbanka sem svarað verði á sama hátt og aðrar athugasemdir sem borist hafa vegna málsins. Aðspurður hvort ekki sé óeðlilegt að bæjarfélagið hafi ffumkvæði að slíku tilboði ffá einu fyrirtæki um- ffam önnur segir Guðmtmdur Páll að svo þurfi ekki að vera. „Það eru fordæmi fyrir því að leitað hafi verið efdr tilboðum fyrir starfsmenn sem hóps m.a. vegna tölvukaupa án þess að það hafi verið gert með almennu útboði. Bæjarritari var í góðri trú við þetta ffumkvæði sitt en það kemur í framhaldi meðal annars af sam- komulagi Landsbankans við Verka- lýðsfélag Akraness og félagsmenn þess. Mín skoðtm er sú að ffum- kvæðið verður aldrei tekið úr hönd- um starfsmannanna sjálffa en að sjálfsögðu munum við skoða hvort nauðsynlegt sé að setja reglur um framkvæmdina sem slíka til að tryggja að sem best sátt geti ríkt um þessa hluti þegar að þeir koma upp,“ segir Guðmundur Páll. HJ Nemendur á Islandi meira en 100 þúsund Haustið 2005 eru skráðir nem- endur á ffamhalds- og háskóla- stigi fleiri en nokkru sinni fyrr eða 42.200.1 ffamhaldsskóla eru skráðir 25.093 nemendur og 17.107 nemendur í háskóla. Fjöldi skráðra nemenda í námi á háskólastigi hefur tæplega tvö- faldast ffá hausti 1998 en nem- endum á fr amhaldsskólastigi hef- ur fjölgað um 24,6% á sama tímabili. Konur eru umtalsvert fjölmennari en karlar eða 24.158 (57,2%) en karlar eru 18.042 (42,8%). Hægt hefur á fjölgun nemenda í fjarnámi og fjölgaði nemendum um 2,6% á síðasta ári. Nemendum fjölgaði ein- göngu í fjarnámi á ffamhalds- skólastigi en nemendum í fjar- námi á háskólastigi fækkaði um 6,3% frá síðasta ári. Nemendur í fjarnámi eru nú tvöfalt fleiri en nemendur í kvöldskólum. Haust- ið 2005 stunda tæplega 82% nemenda nám í dagskóla, rúm- lega 12% nemenda fjarnám og 6% nemenda eru í kvöldskólum. Á skólaárinu 2005-2006 fer heildarfjöldi nemenda á Islandi á öllum skólastigum í fyrsta skipti yfir 100 þúsund. MM Sýning á myndskreytingum, frummyndum eftir Erlu Sigurðardóttur úr barnabókinni "Draumar marglyttunar" Sýningin er í anddyri Bókhlöðunnar og er opin á afgreiðslutíma safnsins Mán-fim 11-19 Fös 11-18 og lau 11-14 ) Við minnum á Sögustundir fyrir börn , 3ja - 6 ára á miðvikudögum kl. 15.00 -15.45 ^ i Munið að lánþegaskírteini eru \ ókeypis fyrir börn yngri en 18 ára! hæfileikakeppni grufinskólanna á Akranesl verður haldin á sal Grundaskóla flmmtud. 26. janúar. Húsið opnað kl. 19.*00. Keppnin hefet kl. 19:30. Keppm og bail nemendur meö Remendasíorteftií . án nemeRdaskirteini--— * nBPPm ALLIR VELKOMNIR kr. 1.000 kr. 1200 kr. SOB J Menningarsjóður Sparisjóðs Mýrasýslu Úthlutun styrkja fer fram á aðalfundi SPM Umsóknir um styrki óskast sendar til SPM, Digranesgötu 2 merktar Menningarsjóður fýrir 15. febrúar 2006. í umsókn komi fram tilefni umsóknar, fjárhæð sem sótt er um og áætlaður heildarkostnaður við verkið. Ekki verður úthlutað aftur úr sjóðnum 2006. •StSPM TIL FASTEIGNAEIGENDA í BORGARBYGGÐ Álagningu fasteignagjalda 2006 í Borgarbyggð er lokið og verða álagningarseðlar sendir til gjaldenda á næstu dögum. Gjalddagar eru fimm þ.e. 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl og 15. maí. Vanskilavextir reiknast 30 dögum eftir gjalddaga. Sérstök athygli er vakin á að Sparisjóður Mýrasýslu sér um innheimtu gjaldanna eins og undanfarin ár. Frekari upplýsingar um álagningu eru gefnar á bæjarskrifstofunni. Bæjarritari

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.