Skessuhorn - 25.01.2006, Qupperneq 15
gSESSUHÖEM
MIÐVIKUDAGUR 25. JANUAR 2006
15
Fullskipuö
kvennasveitarstjóm
Aukafundur fór fram í sveitar-
stjórn Borgarfjarðarsveitar sl.
fimmtudag. A dagskrá fundarins
var seinni umræða fjárhagsáætlun-
ar, gjaldskrá vegna sorphirðu og
sorpeyðingar og önnur mál. Fund-
ur þessi telst svosem ekki til sér-
stakra tíðinda, nema þá að vera
kynni að einu leyti. Svo bar við að
hann sátu að þessu sinni einvörð-
ungu konur og er það harla óvana-
legt í sveitarstjórnum þessa lands
ef ekki einsdæmi, þó það hafi ekki
verið kannað með vísindalegum
hætti. Við síðustu sveitarstjórnar-
kosningar voru hlutfallslega flestar
konur í sveitarstjórn Borgarfjarð-
arsveitar, eða 60%. A síðasta fundi
bar svo við að bæði Sveinbjörn
Eyjólfsson, oddviti og Bergur Þor-
geirsson, 3. maður á lista voru for-
fallaðir og sátu því tveir varamenn
fundinn fyrir þá, þær Linda B
Pálsdóttir sveitarstjóri og Guðrún
Ólafsdóttir í Bæ.
Þórvör Embla Guðmundsdóttir
er fulltrúi í sveitarstjórn. Aðspurð
um hvort ekki hefði verið ástæða í
tilefni dagsins til að færa á dagskrá
fundarins liði sem snerta kvenna-
og kvenfrelsismál sérstaklega, svo
sem ríflegar styrkveitingar til
kvenfélaganna, jafnréttisáætlun,
húsmæðraorlofsmál eða önnur
slík, sagði Þórvör Embla að senni-
lega hafi verið klaufaskapur að
gera það ekki. „Við uppgötvuðum
það ekki fyrr en fundurinn var
nánast búinn að þarna hefðum við
sennilega verið að brjóta blað í
sögu íslenskra sveitarstjórna.
Svona kærkomið tækifæri til að
vinna að framgangi sérstakra bar-
áttumála kvenna án nokkurrar af-
skipta karlpeningsins býðst líklega
sjaldan eða aldrei aftur. Hinsvegar
má ekki gleyma því að við erum
dagsdaglega öflugar konurnar og
ráðum drjúgmiklu og sennilega
meiru en karlarnir nokkurntíman
þyrðu að viðurkenna. Þannig séð
kvörtum við alls ekki,“ sagði Þór-
vör Embla að lokum.
MM
LATTU OKKUR
FÁÞAÐ
ÓÞVEGIÐ
lllOKOl
(f}rta,t(tu9 \
Efnalaugin Múlakot ehf
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 437 1930
Opnum heilsuganginn okkar med
Detox-hreinsunarhelgi 3.-5. fehrúar.
Nuddstólar - Aromatherapía -
Dagsbirtutherapía - Jacuzzi bað með
punktanuddi - 3 heitir pottar
Gisting, lífrœnt rcektað fœði, detox coctaill, dekurpakki, frœðsla.
Námskeiðshaldari: Birna Asbjörnsdótúr, starfandi hómopati og
nœringaráðgjafi hjá Maður lifandi. Einnig er hœgt að panta
höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð og/eða sjtíkranudd þessa helgi.
Gisting í2 nœtur, frceðsla og fleira: 38.500.-kr á mann.
Upplýsingar og skráning á námskeið: svana@fosshotel.is
Meðferðarpantanir í síma: 4351260.
fOttHÖTfl
Reykholt.
Slökun, vellídan og endurnœring ígóðu umhverfi.
KENíNARASAMBANIí
ÍSJAM*
Orlofshúsnæði
sumarið 2006
Stjórn Orlofssjóðs Kennarasambands
íslands óskar eftir að taka á leigu húsnæði
til endurleigu næsta sumarfyrir
félagsmenn. Bæði íbúðarhúsnæði og
sumarhús koma til greina.
Tilboð berist til skrifstofu Kennarasambands
íslands merkt "Orlofssjóður" fyrir
28. janúar nk.
Orlofssjóður Kennarasambands íslands,
Laufásvegi 81
101 Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra
Þórisdóttir í síma 595-1122,
netfang: hanna@ki.is og fax: 595-1112.
Gísli átti ákveðið tilkall
til starfs hafiiarstjóra
Stjórnarformaður Faxaflóahafha
sf. telur fyrirtækið ekki bundið af
samþykktum einstakra sveitarfé-
laga um auglýsingar á störfum og
telur að núverandi hafnarstjóri
hafi átt ákveðið tilkall til starfsins
þegar hann var ráðinn í haust. Sú
ákvörðun feli þó ekki í sér að ekki
verði auglýst næst þegar starfið
losnar.
A fundi borgarráðs Reykjavíkur
um miðjan síðasta mánuð lagði
Margrét Sverrisdóttir áheyrnar-
fulltrúi Frjálslynda flokksins í
borgarráði fram fyrirspurn um
ráðningu í starf framkvæmdastjóra
Faxaflóahafna. Fyrirspurnin var
svohljóðandi: „Var staða fram-
kvæmdastjóra Faxaflóahafna sf.
auglýst í samræmi við viðurkennd-
ar reglur opinberrar stjórnsýslu?
Ef svo var ekki, hverju sætir það?“
Svo sem kunnugt er var Gísli
Gíslason, þáverandi bæjarstjóri á
Akranesi og jafnframt hafnarstjóri
á Akranesi, ráðinn í starf ffarn-
kvæmdastjóra Faxaflóahafna þann
27. september í stað Bergs Þor-
leifssonar sem gegnt hafði starfinu
frá upphafi og áður var hann hafn-
arstjóri í Reykjavík. Faxaflóahafnir
sf. eru í eigu 10 sveitarfélaga norð-
an og sunnan Hvalfjarðar og rekur
Reykjavíkurhöfn, Grundartanga-
höfn, Akraneshöfh og Borgarnes-
höfn.
A fundi borgarráðs á fimmtudag
var lagt fram svar Arna Þórs Sig-
urðssonar formanns stjórnar Faxa-
flóahafna sf. I svari Arna Þórs
kom fram að upphaflega hafi verið
gerður tímabundinn ráðningar-
samningur við Berg, sem hafnar-
stjóri Reykjavíkurhafnar, til 1. júlí
2006. „Við ráðningu Bergs lá enn-
fremur munnlegt samkomulag
milli hans og stjórnarformanns um
að til greina kæmi að Bergur léti af
störfum fyrr en ráðningarsamn-
ingur hans segði til um, enda
myndi hann einskis missa af í rétt-
indum sínum,“ segir orðrétt í svari
Arna Þórs. Við sameiningu hafn-
anna varð að samkomulagi að
Bergur myndi áfram gegna starfi
hafnarstjóra en eins og áður sagði
varð að samkomulagi að hann léti
af því starfi 1. nóvember. Jafnframt
var ákveðið að Gísli Gíslason tæki
við starfinu án auglýsingar. „Engin
ákvæði eru í samþykktum félagsins
eða starfsreglum um hvaða aðferð
skuli viðhöfð við ráðningar. Sam-
kvæmt framangreindu eru Faxa-
flóahafnir sf. því ekki bundnar af
samþykktum einstakra sveitarfé-
laga um auglýsingar á lausum
störfum og eru ákvarðanir um
auglýsingar teknar af stjórn fyrir-
tækisins hverju sinni,“ segir í bréf-
inu en svo er bætt við „almennt
verður þó að telja rétt að mið verði
tekið af reglum viðkomandi sveit-
arfélaga við auglýsingu starfa.“
Formaður stjórnarinnar telur
mikilvægt að í starf hafharstjóra
réðist maður „með mikla reynslu
af sveitarstjórnarmálum og hafna-
rekstri ásamt því að hafa yfirgrips-
mikla þekkingu á lögum og reglu-
gerðum er varða hafnastarfsemi og
hafnamál. Ennfremur var lögð
áhersla á stjórnunarreynslu og
hæfileika,“ segir í svarinu. Var það
samdóma álit stjórnarinnar að
Gísli uppfyllti þessar kröfur afar
vel.
Að síðustu segir orðrétt í svari
Arna Þórs um ráðningu Gísla:
„Var hann jafnframt talinn eiga
ákveðið tilkall til starfsins þar sem
hann hafði áður farið með hafnar-
stjórn í hluta Faxaflóahafna.
Akvörðun stjórnar um að ráða
Gísla Gíslason til starfsins byggð-
ist á sérstökum aðstæðum við
stofnun Faxaflóahafna en felur
ekki í sér að hafnarstjórn telji að
ekki beri að auglýsa starf hafnar-
stjóra laust til umsóknar, þegar
næst verður ráðið í það.“
Margrét Sverrisdóttir segir í
samtali við Skessuhorn að ljóst sé
að ekki hafi verið ráðið í stöðuna
samkvæmt viðurkenndum reglum
opinberrar stjórnsýslu. Að hennar
mati þurfi þau sveitarfélög sem að
Faxaflóahöfhum sf. standa að sýna
gott fordæmi í rekstri sinna fyrir-
tækja.
HJ
Þorrablót
Ungmennafélög, kvenfélög, starfsmannafélög, fyrirtæki,
kórar, saumaklúbbar, aðrir klúbbar og einstaklingar.
Pantið þorramatinn tímanlega
Við bjóðum gott verð fyrir hópa! Sími: 437 2345
Cjísí^ 0f; VdlÍH[;0Æ’AíW
motel@emax.is
Akraneskaupstaður
Auglýsing um deiliskipulag á Akranesi
Tillaga að deiliskipulagi
Nýlendureits á Akranesi
Með vísan til l.mgr. 25.gr. skipulags- og byggingarlaganr. 73/1997 er hér með auglýst
eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi á Nýlendureit sem er á
óskipulögðu svæði Vesturgötu - Grenjum á Akranesi.
Skipulagssvæðið afmarkast af Sóleyjargötu til norðvesturs, Merkurteig til norðausturs,
Suðurgötu tilsuðausturs og Vitateig til suðvesturs.
Ekkert deiliskipulag hggur fyrir af þessu svæði í dag.
Tillagan byggir m.a. á því að byggja á auðri lóð um miðbik svæðisins í framhaldi af Melteig. Lóðin
er um 1809 m2 að stærð og þar er gert ráð fyrir 5 húsum með 11 íbúðum og þau númeruð við
Melteig, sem heldur áfram að vera einstefnuakstursgata í átt að Suðurgötu.
Húsin eru 2 hæðir og ris.
Auk þess eru gefnir byggingarreitir fyrir bílgeymslur þar sem henta þykir og byggingareitir fyrir
hús og bílgeymslu að Sóleyjargötu 20.
Af suðvesturhluta lóðarinnar er tekin um 50 m2 spilda fyrir aðkomu frá Suðurgötu að Melteig
16b, sem verður nú Suðurgata 31 Auk þess er lóðin Sóleyjargata 18 stækkuð um ca. 40 m2 til
einföldunar. Um leið minnkar lóð við Sóleyjargötu 20 um sömu stærð.
Meðfram Sóleyjargötu ogVitateig eru útbúin hliðarbílastæði.
Tillagan, ásamt frekari upplýsingum, liggur frammi á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs að
Dalbraut 8, Akranesi, frá 26. janúar 2006 til og með 23. febrúar 2006.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar
athugasemdir. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 9. mars 2006 og skulu þær berast
á bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð.
| Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.
" Akranesi 20. janúar 2006
ÞorvaldurVestmann
Sviðsstjóri tœkni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar
J