Skessuhorn


Skessuhorn - 01.02.2006, Side 4

Skessuhorn - 01.02.2006, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 ^kCssunuiiji Réttmæti ganga- skatts fyrir dóm? AKRANES: Akraneskaupstaður mun beita sér fyrir því fyrir dómi, ef á þarf að halda, að virð- isaukaskattur af Hvalfjarðar- göngum verði felldur niður. Deilt hefur verið um hvort skatt- heimtan sé í samræmi við samn- ing rílásins og Spalar sem rekur Hvalþarðargöngin. -mm Vinnuhópar um fjölskyldustefhu GRUNDARFJÖRÐUR: Á dögunum tóku til starfa vinnu- hópar sem ædað er að móta fjöl- skyldustefnu í Grundarfirði, sem greint hefux verið frá hér í blað- inu. Hópamir eru fimm talsins og er þeim ætlað að fjalla um þarfir einstaklinga á misjölhum aldri. Stefiit er að því að hópam- ir eigi nokkra fundi og skili nið- urstöðum á sameiginlegum fundi í febrúar. Þá taka við keflinu stýrihópur og bæjarstjóm sem sjá munu um að ljúka stefnumótun- inni. Á fyrsta fundi hópanna sem haldinn var 18. janúar mættu um 50 manns. -hj Nýtt framboð félagshyggju- fólks STYKKISHÓLMUR: Kynn- ingarfundur um félagshyggju- framboð til bæjarstjómar Stykk- ishólmsbæjar, fyrir sveitarstjóm- arkosningarnar nú í vor, var haldinn sl. mánudagskvöld. Á fundinn mættu milli 50 og 60 manns og var mikill áhugi fund- armanna á því að bjóða fram lista félagshyggjufólks, óháð flokkslínum. I upphafi fundarins vom lagðar fram hugmyndir að vinnu sem mundi vera undirbún- ingur að framboðinu. Fundar- menn sem létu í ljós áht sitt vom ánægðir með fundinn og þær hugmyndir sem lagðar vora fram. Var kosin fimm manna kosningastjóm sem mun stjórna áframhaldandi stefnumótunar- vinnu. Sami meirihluti hefur verið í Stykkishólmi nú um ára- tugaskeið, þ.e. hsti Sjálfstæðis- flokks og óháðra. Töldu þeir sem á þennan fund mættu að nú væri kominn tími til breytinga. -dsh Akurhús ekki sama og Akurshús AKRANES: í Skessuhomi í síð- ustu viku var umfjöllun um að fasteignasalan Fasteignamiðlun í Reykjavík hefði auglýst til sölu tugi íbúða í Flatahverfi sem fyrir- tækið Akurhús ehf. í Reykjavík keypti byggingarétt að á sínum tíma. Á Akranesi er starfandi Trésmiðjan Akur ehf. sem byggir hús undir nafninu Akurshús og hefur byggt hús á Vesturlandi og víðar um áratuga skeið. Rétt er að taka ffarn að þrátt fyrir lík nöfh eru fyrirtækin tvö ekki tengd á nokkum hátt. -hj Mikið um umferðarlagabrot Lögreglan á Akranesi sinnti alls 127 verkefnum og útköllum í vik- unni sem leið. 57 af þessum verk- efnum tengdust umferðinni og vom m.a. 20 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 130 km/klst hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 90. Ungur maður var færður til yfi r- heyrslu, kærður fyrir að hafa gramm af amfetamíni í fómm sín- um. Efhið er talið ætlað til eigin neyslu og málið telst upplýst. Ungur og óþolinmóður maður sem enn á effir einhverja mánuði í bílprófið var stöðvaður við akstur á númerslausum bíl. Sekt vegna þessa gæti numið 20.000 krónum. Þá var ekið á tvær kyrrstæðar og mann- lausar bifreiðar sem stóðu við heimahús. Ökumaður fór af vett- vangi án þess að aðhafast nokkuð í málinu en fannst skömmu síðar. Þessi ökumaður kvaðst hafa brugð- ið mjög við áreksturinn og væri það skýringin á því að hann yfirgaf vett- vang. Arekstur varð á Esjubraut. Þar var bifreið ekið affan á aðra og kenndi ökumaður eymsla í baki og hálsi og var fluttur á Sjúkrahús til aðhlynningar. Brotist var inn í enn eina biffeið- ina. I þetta skiptið var þó bifreiðin læst, ólíkt því sem hefur verið í ein- hverjum tilfellum undanfarið. Hliðarrúða var brotin til að komast inn í hana og var hljómflutnings- tækjum stolið. MM Abendingar fari réttar boðleiðir Nýlega kom upp mikil umræða á einum af spjallvefjum hestamanna um meinta illa meðferð á skepnum. Umræðan varð hörð og óvægin í garð málsaðila og þeirra sem eiga að hafa um málið að segja. Það skal tekið ffarn að umrætt mál átti sér ekki stað á Vesturlandi. Hliðstæð mál hafa hinsvegar komið upp á Vesturlandi á undanförnum árum og því e.t.v. ástæða til að minna á þetta ekki síst í ljósi þess að tíðarfar er erfitt fyrir útigang. I kjölfar þess- arar umræðu sendi Katrín Andrés- dóttir, héraðsdýralæknir á Suður- landi frá sér ábendingu um að þeir aðilar sem láta sig meðferð dýra varða beini ábendingum um meinta slæma meðferð þeirra í réttan far- veg, strax og gmnur leikur á um að eitthvað sé athugunarvert. Á heimasíðu Umhverfisstofnun- ar, á slóðinni: http://ust.is/Adof- inni/Frettir/nr/3179 má sjá hvaða verklagsreglur gilda um tilkynning- ar vegna gmns um illa meðferð dýra. Þeir sem telja sig þurfa að til- kynna um slíkt em hvattir til að lesa verklagsreglumar í heild sinni. I stuttu máli sagt er einfaldast og réttast að fólk snúi sér beint til við- komandi héraðsdýralæknis á því svæði sem um ræðir. Búfjáreftirlits- menn og lögregla koma sömuleiðis boðum áffam til héraðsdýralækna. „Héraðsdýralæknum ber að virða þagnarskyldu, þannig að fólk á að vera óhrætt við að koma ábending- um sínum á framfæri við okkur,“ segir Katrín Andrésdóttir. „Við eram sömuleiðis háð því að al- menningur láti okkur vita um það sem aflaga fer. Oftast er hægt að koma málum í gott lag með ffæðslu. Velferð dýra er sameigin- leg ábyrgð okkar allra,“ segir Katrín ennffemur. MM Bygging leikskóla í Grundarhrði á áædun í síðustu viku var steypt gólf- plata viðbyggingar leikskólans Sólvalla í Grandarfirði en bygg- ingarframkvæmdir hófust í haust. Það er Trésmiðja Guðmundar Friðrikssonar sem vinnur verkið. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni er viðbyggingin 173 fermetrar að stærð og mun hún hýsa vinnuherbergi starfsfólks og skrifstofu leikskólastjóra. Auk þess verður þar nýr inngangur í leik- skólann. Einnig verður elsti hluti skólans endurnýjaður að mestu leyti. Sá hluti var byggður árið 1977. Annar áfangi skólans var Verklok eru áætluð 30. júní í sum- steypa gólfplötuna fyrir 1. febrúar. hins vegar byggður árið 1992. ar og samkvæmt verkáætlun átti að Verkið er því á áætlun. HJ Dvalarheimilið Hölði fær höfðinglegan arf Hjónin Kristgeróur og Andrés Hjónin Andrés Andrésson og Kristgerður Þórðardóttir, Skaga- braut 25, arfleiddu Dvalarheimilið Höfða á Akranesi að öllum sínum eignum, íbúðarhúsi, innbúi og bankainnistæðum. Að sögn Guðjóns Guðmundssonar ffamkvæmdastjóra nemur arfurinn tugum milljóna króna. Hann rennur í gjafasjóð Höfða og verður notaður til kaupa á nauðsynlegum tækjum og búnaði sem koma mun íbúum heimilisins til góða. Guðjón segir að höfðinglegar gjafir velunnara Höfða í gjafasjóð- inn á undanfömum ámm hafi nýst mjög vel og eigi stóran þátt í því að Höfði er eitt best búna dvalarheim- ih landsins. Andrés Andrésson fæddist á Hamri í Múlasveit í A-Barðastrandasýslu 28. júm' 1925. Hann lést 22. apríl 2003. Andrés var starfs- maður Sementsverk- smiðjunnar til starfs- loka. Hann var orð- lagður völundur í höndunum og hafði að aukastarfi smíði húsgagna, rokka og fleira. Kxistgerður Þórðardóttir fæddist á Ásmundarstöðum í Rang- árvallasýslu 30. ágúst 1922. Hún lést 23. desember 2005. Kristgerður starfaði við fiskvinnslu rnn langt ára- bil. Hún var mikil hannyrðakona og nutu þeir hæfileikar hennar sín vel í dagvistinni á Dvalarheimilinu Höfða sem hún stundaði reglulega síðustu árin og líkaði vel. Guðjón segir stjóm Höfða, starfs- fólk og íbúa heimilisins minnast þessara heiðurshjóna með hlýhug og þakklæti fyrir þennan einstaka höfð- ingsskap. HJ Skipað í ráð- gjafamefnd þjóðgarðs SNÆFELLSNES: Fyrir skömmu var endurskipað í ráðgjafamefhd þjóðgarðsins Snæfellsjökuls. I nefhdina vom skipuð Arni Braga- son fulltrúi Umhverfisstofhunar, sem jafhffamt er formaður, Ohria B. Kristinsdóttir, fulltrúi Snæfells- bæjar, Skúli Alexandersson, fulltrúi Ferðamálasamtaka Snæfellsness og Kristín Huld Sigurðardóttir, full- trúi Fornleifavemdar ríkisins. -hj Gjaldstofriar lækkaðir REYKHÓLAR: Hreppsnefnd Reykhólahrepps samþykkti nýver- ið með fjóram samhljóða atkvæð- um að lækka álagningarstofn A- flokks fasteignagjalda úr 0,5% í 0,45% og B-flokks úr 1,65% í 1,5%. Jafhffamt var samþykkt að leikskólagjöld yrðu óbreytt en aðr- ar gjaldskrár sveitarfélagsins hækki um 3% þann 1. febrúar. Þá var samþykkt að athuga með hugsan- lega breytingu á sorphirðugjöld- um. -hj Óhöpp í hálkunni BORGARFJÖRÐUR: Þrjár bíl- veltur áttu sér stað í umdæmi Borgarneslögreglu í gær og sú síð- asta varð skömmu fyrir kl. 12 við Laufás á Snæfellsnesvegi. Að sögn lögreglu er mikil mildi að enginn slasaðist alvarlega. Tveir vora fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu við Laufás og er bifreiðin gjörónýt. Lögregla segir að ökumaður og farþegi biffeiðarinnar hafi sloppið ótrúlega vel. Tvær bflveltur, með stuttu millibili, áttu sér stað skömmu fyrir klukkan átta við Galtarholt á Vesturlandsvegi. Að sögn lögreglu var ökumaður ann- arrar bifreiðarinnar fluttur á heilsugæslu til aðhlynningar, en ökumaðurinn meiddist minnihátt- ar. Rekja má allar bílveltumar til hálku. Fjórir vora teknir fyrir hraðaksmr í gær. Sá sem ók hraðast mældist á 125 km hraða tmdir Hafnarfjalli. -nmt Fræðaþing landbúnaðarins RVK Fræðaþingi landbúnaðarins verður haldið dagana 2.-3. febrú- ar. Þinginu er einkum ætlað að miðla rannsókna- og þróunarstarfi í íslenskum landbúnaði og að fjalla á faglegan hátt um landbúnað og náttúraffæði. Fyrri daginn verður þingað í sal Islenskrar erfðagrein- ingar að Sturlugöm 8 og er yfir- skriftin „Nýsköpun landbúnaðar - leiðir og markmið." Seirnh dagur- inn er á Hótel Sögu þar sem verða tvær samhliða dagskrár í ráðstefnu- sölum á 2. hæð. IA sal verður fjall- að um eftírfarandi efiii: „Auðlindir; - veiði, vatn og vatnsgæði" og „Auðlindir; -veiði, vam og jarðveg- ur.“ I Ársal verður íjallað um efrir- farandi efhi: „Hagnýtar rann- sóknaniðurstöður úr búfjárrækt“ og „Hagnýtar rannsóknaniður- stöður úr jarðrækt.“ -mm WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miövikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á a& panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1000 krónur með vsk. á mánuði en krónur 900 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr. SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 alla virka daga Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@ske$suhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Fréttaritari: Bryndís Gylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún Björk Fribriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.