Skessuhorn


Skessuhorn - 01.02.2006, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 01.02.2006, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 2006 agjasgranfMBKi Sigríður Asta Olgeirsdóttir þenur hér raddböndin. Söngkeppni Oðals Nú er lokið söngkeppnum Óðals í bæði eldri og yngri árgöngum. Margri tóku þátt og var Óðal troð- fullt af gestum bæði kvöldin sem keppnin fór ffam. Það var Martha Lind Róbertsdóttir sem stóð uppi sem sigurvegari í eldri flokki og Sigríður Asta Olgeirsdóttir í yngri flokki. Magnús Sigurðsson var kos- inn bjartasta vonin. MM/ Ljósm: TÞ Heiðursnemandi í Hraðbraut Ungur Dalamaður, Gísli Rúnar Guðmimdsson ffá Ytri-Fagradal á Skarðsströnd var nú nýverið valinn á heiðurslista Menntaskólans Hraðbrautar. A þennan lista eru valdir þeir nemendur sem einkum hafa skarað fram úr í námsárangri, auk þess að stunda námið af elju og jákvæðni. Þetta skólaár voru 13 nemendur valdir á hstann, 7 á fyrra ári en 6 af seinna ári. Gísli Rúnar útskrifaðist úr Grunnskólanum Tjarnarlundi síðastliðið vor með ágætiseinkunn. TGS Iðar allt aflífií Grundarfirði Á meðfylgjandi myndum sem Sverrir Karlsson, sérlegur ljós- myndari Skessuhorns, tók í Grund- arfirði í liðinni viku sést að þar sem víðast hvar annarsstaðar á Vestur- landi iðar allt af lífi þessa dagana. Þetta á við hvort heldur sem komið var við á höfninni þar sem bátar og stærri skip voru að landa afla eða ofar í bæjarfélginu þar sem verið var að taka grunna fyrir íbúðir eldri borgara. MM Afhverjii kristilegt uppeldi? Að gera það sem gott er fyrir bömin Góðvild og agi, festa og stjórn eru orð sem lýsa eiginleikum þeirra biblíulegu hugtaka sem fjallað er um í Mík 6.8. Nýjustu rannsóknir á foreldrahlutverkinu sýna hversu mikilvægu hlutverki stuðningur og agi gegna eigi börn að verða í góðu jafnvægi og tilfinningalega heil. Með stuðningi er átt við hlýju, ást- úð og að börn búi við þá tilfinningu að þau eigi sér samastað og þannig birtist virðing foreldranna fyrir börnunum. Stjórn eða agi lýtur að því að foreldrar setji börnum sinu mörk, að þau búi við röð og reglu og búi yfir nægum sjálfsaga til þess að þau geti lært að virða sjálf sig og aðra. Reglurnar eiga að vera fáar, afleiðingarnar skýrar og þeim fylgt eftír ef barnið brýtur af sér. Margir hafa séð barnfóstruna, Super Nanny, í sjónvarpsþætti sem Stöð tvö sýnir, en þar aðstoðar hún for- eldra við uppeldið og virðist fara létt með það. Á heimilum þar sem festu og góðvild er að finna aukast líkurnar á því að barn tileinki sér gildi foreldranna. Þannig munu börnin einnig öðlast siðferðilegan þroska sem svarar til aldurs þeirra, sýna samfélagslega ábyrgð og öðr- um umhyggju í samskiptum sínum við þá. Að gæta hjarta bams Rannsóknir staðfesta það sem foreldrar og kennarar vita nú þegar: Að andlegt líf barna er virkt. Þau trúa því að Guð skipti máli fyrir líf þeirra. Kristur heiðraði börn sér- staklega og kenndi okkur ýmislegt varðandi andlegan þroska þeirra, sjá Mt 18. 2-5; og í MK 9.36,37,41 voru lærisveinarnir að ræða hver yrði mestur í himnaríki þá sagði Jesús; „hver sem tekur við einu slíku barni í mínu nafni, tekur við mér, og hver sem tekur við mér, tekur ekki aðeins við mér, heldur og við þeim er sendi mig.“ Kristur staðfesti það að böm trúa og hægt er að rækta þessa trú með því að veita börnum það tilfinn- ingalega öryggi sem er á færi um- hyggjusamra foreldra. Þegar börn- tmum er gert það ljóst hversu dýr- mæt þau em í augum foreldranna mun það auka skilning þeirra á því hversu dýrmæt þau era í augum Guðs. Viðhorf til eða framkoma við barn sem veldur annað hvort til- finninglegum eða líkamlegum skaða hlýtur að leiða tíl þess að það á erfitt með að treysta Guði. Afleið- ingarnar geta verið ævilöng barátta við að skilja hinn fullkomna kær- leika Guðs eða ást á maka. Það að reyna náð Guðs og lækningu, for- dómalaust umhverfi og leiðsögn þjálfaðra ráðgjafa hefur gert mörg- um það kleift að takast á við slíka reynslu. Hvernig hefur samband þitt við himneska hirðinn áhrif á það hvernig þú gætir þinnar hjarðar? Hvaða breytingar viltu gera á ffam- komu þinni við barn þitt eða börn sem þú býrð eða vinnur með? Yngri meðlimimir í fjölskyldu Guðs „Börnin ykkar em yngstu með- limirnir í fjölskyldu Guðs. Þau em bræður ykkar og systur sem ykkur hefur verið treyst fyrir af Föðurn- um og það er verk ykkar að þjálfa þau og mennta fyrir himininn.“- Ellen G. White, Child Guidance, bls. 251. Foreldrar sem lærisveinar Kristur bauð fylgjendum sínum að fara um allan heim og gera menn að lærisveinum. Sjá Mt 28.18-19. Sá nefnist lærisveinn sem fylgir kenningum meistara síns. Jh 8.31. Slíkur lærisveinn verður til þegar hann deilir með öðrum sannindum Krists á þann hátt að áheyrandinn meðtekur boðskapinn. Foreldrar í hlutverki lærisveinaþj álfara Fjölskyldan er eðlilegasti vett- vangur þess að framkvæma tilskip- anir Krists. Foreldrar hafa þá skyldu að leiða börn sín til Krists og bjóða þeim að gerast lærisveinar hans. Báðar skilgreiningarnar, hvað það er að þjálfa lærisveina og vera lærisveinn eiga við um kristileg heimih. Heimilið er sá vettvangur sem hefur mest áhrif á líf barna og þar meðtaka þau sannindin og gildin sem þar em í hávegum höfð. Það er einnig innan fjölskyldunnar sem börnin reyna fyrst kærleika og það að sýna öðmm kærleika. Kærleiks- ríkt samband við foreldra sem sann- lega elska Krist, og sýna öðmm þessa elsku, auka líkumar á því að barn muni vaxa úr grasi elskandi Krist og aðra. Slík börn hafa til- hneigingu til að eiga meiri vel- gengni að fagna við uppeldi eigin barna og bera árangursríkan vimis- burð frammi fyrir þeim sem verða á vegi þeirra. Veltu því fyrir þér hvers vegna það er mikilvægara að ala börn upp í trú á fullkominn frelsara en að ala upp fullkomin börn? (Verð að við- urkenna að ég þekki hvorki full- komin börn né foreldra :)) Andlegt uppeldi á heimilinu Það að rétta trú áfram til næstu kynslóðar em ekki nákvæm vísindi. Jafnvel sérstaklega guðræknir og umhyggjusamir foreldrar skilja að ffamlag þeirra er takmarkað. Þegar æskan þroskast velur hún sér val- kosti sem endurspegla gildi hennar. Kristnir foreldrar vilja að börn þeirra búi við valffelsi en óttast stundum að börnin velji sér ekki skynsamlegan og ábyrgan kost. I Orðskviðunum em unglingar þrá- beðnir um að læra af þeim sem eldri era, að leggja til hliðar ungæðis- háttinn, tilfinninguna fyrir því að vera ósigranlegir og eigin skilning - og láta Guð stjórna lífi þeirra. Engu að síður leggja Orðskviðirnir áherslu á frjálsan vilja mannsins og reynir sífellt að fanga huga og hjarta unga fólksins svo það kjósi vilja Guðs ffam yfir eigin. Nýlegar rannsóknir hafa sýnt ffam á neikvæðar afleiðingar þess að foreldrar sýni börnum sínum litla, raunvemlega athygli (oft að- eins nokkrar sekúndur á dag) og að börn eyði miklum tíma fyrir ffaman sjónvarp og tölvur. Hvað geta for- eldrar gert til að breyta þessu? Er svarið fólgið í stimdum þar sem virk samskiptí era á milli foreldra og barna? Hvernig geta foreldrar keppt við hátæknileikföng, sjónvarp eða annað sem stelur dýrmætum tíma sem ella mætti nota tíl betri hluta? Aðlaðandi vitnisburður I Orðskviðunum 22. 6 stendur „ffæð þú sveirúnn um veginn, sem hann á að halda, og á gamals aldri mtm hann ekki af honum víkja.“ Foreldrar fyllast oft kvíða ef börnin hafna trú þeirra. Halda að sonurinn eða dóttirin hafi misst áhugann á andlegum málum af því þeir stóðu sig ekki í uppeldishlutverkinu. I stað þess að leggja mikla siðferði- lega byrði varðandi ffamtíð barns- ins (hún er á ábyrgð uppkomins barns) gefur orðskviðurinn tíl kynna þá hugsun að heilbrigt við- horf til andlegra mála, sem þroskast á barnsaldri, hafi tilhneigingu til að fylgja einstaklingnum þegar hann kemst á fullorðinsárin. Alda Baldursdóttir Höfundur er kennari við Fjöl- brautaskóla Snæfellinga og lögreglu- maður. Sinnir einnig TTT starfi í Stykkishólmi. Heimild: Tekið saman úr Bibltulexíum e. Ronald M. Flowers. 1. ársfjórðungur 2006. Fjölskyldur innan fjölskyldu Guðs.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.