Skessuhorn


Skessuhorn - 01.02.2006, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 01.02.2006, Blaðsíða 7
ákiðaumn. MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 2006 7 áfomiar að loka sinni á Akranesi Frá Stykkisbólmi Efling óskar eftir samstarfi Slykkishólmsbæjar Síminn verslun Síminn hf. stefhir að því að loka verslun sinni á Ákranesi og gangi það eftir mun það hafa áhrif á störf fimm starfsmanna fyrirtækisins. I bí- gerð er samningur við Pennann um að fyrirtækið sinni sölu á þjónustu Símans á Akranesi. Ekki er ljóst á þessari stundu hvort og þá hvenær verslunin á Akranesi lokar né hver verður fjöldi starfs- manna fyrirtækisins á Vestur- landi að loknum þessum brejtingum. A föstudaginn tilkynnti Síminn um talsverðar breyt- ingar á starfsemi fyrirtækisins á landsbyggðinni. Fyrirtækið mun á næstunni loka verslunum sínum á Akranesi, Sauðárkróki, Selfossi, Vestmannaeyjum og í Reykjanesbæ. Affam mun fyrirtækið reka verslanir á Isafirði, Akureyri og Egilsstöðum auk Reykjavíkur. Að sögn Evu Magnúsdóttur, upp- lýsingarfulltrúa Símans eru hér að- eins um áform að ræða en ekki end- anlega ákvörðun. Gangi þessi áform hins vegar efdr munu þær snerta fimm starfsmenn fyrirtækisins á Akranesi. Hún segir að einxun þeirra hafi þegar verið boðið annað starf hjá fyrirtækinu og öðrum hafi verið boðið starf hjá öðru fyrirtæki. Auk þess séu 10 störf laus hjá Símanum sem viðkomandi starfsmenn geti sótt tun og fyrirtækið mimi nota næstu daga til að finna starfmönn- unum ný störf eins og hægt er. Eva segir ekki ákveðið hvenær verslunin á Akranesi loki en það verði ekki fyrr en nýr endursöluaðili hafi tekið við og búið verði að hnýta alla lausa enda. I því sambandi hefur Penninn verið nefndur en ekki sé búið að ganga ffá samningum þar um. Aðspurð segir Eva ekki liggja ljóst fyrir hversu margir starfsmenn fyrir- tækisins verða efdr þessar breyting- ar á Akranesi og á Vesturlandi í heild. Athygli vekur að þrátt fyrir að Penninn sé með verslanir til dæmis á Isafirði og á Akureyri verða verslan- ir ekki lagðar niður þar. Eva segir segir það ákvörðim fyrirtækisins að ísafjörður, Akureyri og Egilsstaðir verði svokallaðir kjamastaðir fyrir- tækisins á landsbyggðinni en það útiloki ekki ffekara samstarf við Pennann á þeim stöðum þó svo að Súninn verði nú með verslun þar áffam. Sjálfvirknivæða vefinn í staðinn Síminn hefur undanfarið boðið viðskiptavinum margar nýjungar og má þar nefna svokallað ADSL sjón- varp. Því vaknar sú spuming hvort þjónusta fyrirtældsins verði ásættan- leg á Vesturlandi eftir áformaðar breytingar. Eva segir Símann vera með endursöluaðila í mörgum byggðarlögum á Vesturlandi og það fyrirkomulag hafi reynst ágætlega. Bráðlega muni Akranes bætast í þann hóp. „Við ætlum okkur að efla enn ffekar samstarf með endursölu- aðilum sem selja breitt vömffamboð Símans. Auk þess hef- ur þjónustuvefurinn okkar verið sjálfvirkni- væddtu- enn ffekar og við búumst við að við- sldptavinir okkar nýti sér hann í enn meira mæli en áður. Þá hefur orðið allt að fjórföldun í notkun á vefverslun Símans að tmdanfömu. Séu keyptar vörur í vefversltm, þá bjóðum við ókeypis heimsendingar- þjónustu. Vð reynum einnig að bjóða betra verð á vefnum heldur en í verslunum okkar. Margs konar þjónusta er að færast yfir á Netið og sífellt er unnið að því að sjálfvirkni- væða þjónusmferla Símans. Vð lít- um til þeirra fyrirtækja sem vel hef- ur tekist til í sjálfvirknivæðingu eins og til dæmis bankakerfisins, flugfé- laga og ferðaþjónustuaðila. Hjá þessum fyrirtækjum er veitt ffábær þjónusta á vefnum og í gegnum síma. Þannig sparar það viðskipta- vinum okkar einnig sporin að þurfa ekki að fara á staðinn. Þá ber þess að geta að Uthringiver Símans er sífellt að auka starfsemi sína til að sinna núverandi og nýjum viðsldptavin- um,“ segir Eva Magnúsdóttir. HJ Efling, félag atvinnulífsins í Stykkishólmi stóð fyrir félagsfundi í liðinni viku þar sem tillögur að fyrirhugaðri breytingu á starfsemi félagsins vom kynntar. Markmiðið með breytingunum er að efla starf- semi Eflingar og felast þær í meg- inatriðum í að leggja niður 50% stöðu ffamkvæmdastjóra, sem hef- ur haft aðstöðu í Egilsenshúsi, og færa vinnuna inn í ráðhúsið þar sem 3 starfmenn ráðhússins munu skipta með sér starfi ffamkvæmda- stjóra. Stjórn Eflingar mun halda starfi sínu áffam í óbreyttri mynd og ætl- ar að sinna enn ffekar hugmynda- vinnu og eftirfylgni verkefna og hugmynda Eflingar. Breytinga er einnig að vænta hjá upplýsingamið- stöð ferðamála á Stykkishólmi en rekstur hennar hefur verið í hönd- um Eflingar undanfarin ár. Fyrir- hugað er að gera þjónustusamning við ferðaþjónustuaðila sem gæti tekið að sér starfsemi upplýsinga- miðstöðvarinnar og þykja Sæferðir efnilegur kostur. Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar sagði í samtali við Skessuhorn að tillögur Efling- arfólks verði lagðar til atkvæða- greiðslu á næsta aðalfundi félagsins í febrúar. Aðspurð um hvort samn- ingaviðræður við Sæferðir, um reksmr upplýsingamiðstöðvarinnar væru hafnar, segir Erla allt velta á þeirri ákvörðun sem tekin verður á aðalfundinum og ffamhaldið muni skýrast þegar sú niðurstaða hggur fyrir. f»| Síminn’ Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld febrúar sun mán þri miö fim «s lau 1 vetur býður Landsbankinn viðskiptavinum sinum vandaða fjármálafræðslu á fimmtudagskvöldum. 1 □ 3 4 Viö hefjum leikinn á umfjöllun um efnahagsmál og fjárfestingatækifæri. J® Auk fyrirlestranna fá fundargestir tækifæri til að varpa fram spurningum og ræða við sérfræðinga bankans. l 5 6 7 8 □ 10 11 Efnahagsmál í upphafi árs i Sérfræðingur greiningardeildar Landsbankans fer yfir þróun efnahagsmála á nýliðnu ári og horfur á árinu 2006. i 12 13 14 15 16 17 18 Fyrirlesari: Björn Rúnar Guðmundsson. 1 Hvar liggja fjárfestingatækifærin? 1 19 20 21 22 ö 24 25 Sérfræðingur i eignastýringu fer yfir liðiö ár og ræðir um hvar fjárfestingatækifæri einstaklinga á veröbréfamarkaði 2 kunna að liggja á nýju ári. Farið verður yfir kosti og galla mismunandi fjárfestingakosta og rætt um hvernig landið 1 26 27 28 liggur fyrir fjárfestingar einstaklinga. Fyrirlestrarnir hefjast kl. 20:00 á eftirfarandi stööum: ................................ ...................\ 2. febrúar- Útibú Landsbankans á Akranesi ....................................................> 9. febrúar - Vesturbæjarútibú, Hagatorgi 23. febrúar - Árbæjarútibú, Kletthálsi 1 Skráning fer fram á www.landsbanki.is og I Þjónustuveri bankans i síma 410 4000. Allar nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara er að finna á www.landsbanki.is viku fyrir hvern fyrirlestur. i boði er kaffi og veitingar. Fundargestir verða leystir út með litilli gjöf. Starfsfölk Landsbankans I lk — Landsbankinn tumki aih.i 1 4 ■ 10 ' \YVVA :,UV-riU"\ ••

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.