Skessuhorn


Skessuhorn - 01.02.2006, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 01.02.2006, Blaðsíða 15
ÆgfctejiiHWMBW MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 2006 15 Ásmundur við skrifborðið í berbergi sínu. Þar vinnur hann að hinum ýmsu verkefnum enda afnógu að taka þegar áhugamálin eru mörg. einasti vinnudagur eins og launin eru svo margþætt. Til dæmis hitti ég einu sinni hjón með börn og þau segja mér að ég hafi tekið á móti þeim öllum og gengið vel, það var yndisleg tilfinning. Það er heldur varla hægt að vinna nánar með ein- staklingnum, hvorki líkamlega né andlega, á þessari stóru stund í lífi hvers og eins,“ segir Jónína þakklát. „Eg ætlaði mér alltaf að vinna til ársins 2002, því þá hefði ég átt 40 ára starfsafmæli, en ég hreinlega gat það ekki, líkami minn leyfði mér það ekki. Eg hætti að vinna 2001 og einbeitti mér að ná eigin heilsu aftur. Þegar maður þarf að taka verkjalyf til að geta farið fram- úr rúminu á morgnana, til að geta farið til vinnu eða bara sinna verk- um sínum, þá er mikið að.“ A þeim tíma hafði Jónína farið í gegnum fjórar mjaðmaaðgerðir og þjáðist af slitgigt sem fylgdu miklir verkir auk annarra kvilla. „Það voru Aloe Vera efnin sem hjálpuðu mér, en þau eru algjörlega unnin úr náttúr- unni. I dag hleyp ég um, svona eins og ég get.“ Aloe vörurnar sönnuðu fyrir Jónínu lækningamátt sinn og er hún sjálfstæður dreifingaraðili þeirra í dag. Verkefnin óþrjótandi Þau sitja ekki auðum höndum hjónin. Asmundur hefur setið við skriftir að undanförnu. Hann hjálpar Jónínu með þýðingar og rekstur starfsemi hennar og er auk þess mikill áhugamaður um sögu og ættffæði. Jónína hefur alla tíð gripið í handavinnu af öllum gerð- um og er hún síður en svo að slaka á í þeim efnum núna. Einnig vinn- ur hún hörðum höndum að dreif- ingu Aloe Vera varanna og miðlar þekkingu sinni um lækningamátt þeirra og heilbrigði. Þau hjón segja lífið yndislegt og segjast njóta tímans eftir að þau hættu að vinna til hins ýtrasta. „Hver dagur er yndislegur, verk- efhin eru svo mörg og svo margt skemmtilegt hægt að gera,“ segja þessi lífsreyndu og yndislegu hjón að lokum. BG -*■ Utflutningur á öryggissokkum firá Trico Sokka- og textilframleiðandinn Trico ehf. á Akranesi hefur nýver- ið hafið útflutning á öryggissokk- um. Um er að ræða mjög sérstæða vöru sem hefur alfarið verið þróuð hjá fyrirtækinu. „Sokkarnir hafa kosti sem lýsa sér í einstakri eld- vörn og mjög lágri hitaleiðni. Eig- inleikar þeirra koma í veg fyrir bruna af völdum málmslettna, loga eða hita af sérhverjum toga. Sokk- arnir eru einnig mjög sterkir og endingargóðir. Efnið sem notað er í þá hrindir frá sér vökva og heldur hitastigi húðarinnar í jafn- vægi sem gerir sokkana einstaklega þægilega,“ segir Helga Viðarsdótt- ir, framkvæmdastjóri Trico. Gæði sokkanna eru mjög mikil og segir Helga það ástæðu þess að tekist hefur að gera samninga við Alcan álver í Bretlandi og slökkvi- lið Kaupmannahafnar um kaup á þeim. Kaupmannahafnar slökkvi- liðsmenn sjá einnig um að útvega öðrum starfsmönnum borgarinnar sokkana. „Nýlega barst okkur einnig fyrirspurn um sokkana frá álveri í Suður Kóreu og hafa sýnis- horn verið send þangað. Það er ekki algengt að vara á borð við sokka sé framleidd á Islandi og seld erlendis, hvað þá til Asíu. Trico hefur í gegnum árin lagt mikla áherslu á vöruþróun, gæði og vönduð vinnubrögð. Til að mynda hafa öryggissokkar Trico verið prófaðir hjá viðurkenndri rannsóknarstofnun í Frakklandi, de Textile de France og stóðust sokkarnir hæsta stig staðalsins EN 533. Þessir erlendu samningar eru mjög þýðingarmiklir fyrir Trico. Þeir gefa sokkunum vissan gæða- stimpil sem er nauðsynlegur fyrir markaðssetningu á viðkomandi vöru og styrkja ennfremur stoðir Trico,“ segir Helga. Oryggissokkar Trico henta öll- um þeim sem vinna í lokuðum skóm allan daginn svo sem flestum iðnaðarmönnum og við aðstæður þar sem hætta af völdum hita af sérhverjum toga er fyrir hendi. Öryggissokkamir frá Trico á Akranesi. Göngufólk og annað útivistafólk hefur einnig verið mjög hrifið af sokkunum. Helstu viðskiptavinir Trico hérlendis eru Alcan á Is- landi, Norðurál og Islenska Járn- blendifélagið. MM Vilja reisa risatjald í Borgamesi Bæjarráð Borgarbyggðar hefur vísað ósk Hlauparans ehf., um leyfi til að reisa 4.000 fermetra tjald í Borgarnesi, til umhverfis- og skipu- lagsnefndar. í bréfi sem Hlauparinn ehf. sendi bæjarráði kemur fram að óskað er eftír lóð undir tjaldið og eru nefndir sem hugsanlegir staðir Seleyri, við golfvöllinn eða á Oldu- hrygg ofan Borgar. I tjaldinu hyggst félagið reka 600-1.000 metra langa go-kartbraut. I bréfinu kemur fram að félagið eigi tjaldið nú þegar klárt til uppsetningar. Er óskað eftír um 12 þúsund fermetra svæði en meira svæði gefi mögu- leika á ffekari afþreyingu. Þá segir að auk akstursbrautar- innar eigi að bjóða upp á sýningar- hald og aðrar uppákomur á svæðinu og hafa fjölbreytta afþreyingu fyrir ferða- sem og heimamenn. Þá segir að yfir vetrarmánuðina verði braut- in opin um helgar og hægt verði að stunda þar aðrar íþróttagreinar svo sem golf, tennis og knattspyrnu. Þá er nefnt að aðstaða þessi getí skap- að fjögur til níu ársverk í sveitarfé- laginu. HJ -fclRABA KAfis HANDVERKSBAKARÍ * Digranesgötu 6 - Borgamesi - sími: 437 2020 Tilboð föstudag - laugardag - sunnudag: Fjölkornabrauð 199 kr. - verð áður 298 kr. Pistasiuhringur 320 kr.- veró áðuF480 kr. i..._______Heiaartilbod: -----—"■“'Nýbökuð rúnstykki 2 fyrir 1 frá kl 9:00 -12:00 Opnunartími: Mánudaga til föstudaga kl. 9:00 -l 8:00 Laugardaga og sunnudaga 9:00 -l 6:00 Starf okkar eflir þitt starf Jfé Í^VINNUEFTIRLITIÐ Stillholt 18 - 300 Akranes - simi 431 2670 - fax 431 2025 Netfang: vesturland@ver.is - Heimasíöa: www.vinnueftirlit.is Vinnueftirlitið óskar að ráða eftirlitsmann til starfa á Vesturlandi Helstu verkefni eru: • Vinnuvéla- og tækjaeftirlit • Eftirlit með aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi í landbúnaði • Fræðsla, sbr. ákvæði laga nr. 46/1980 um aðbúnað hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Menntunar og hæfniskröfur: • Staðgóð tæknimenntun, t.d. vélfræði- eða iðnmenntun I • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi sem þessu • Góð framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum | • Reynsla í tölvunotkun æskileg. i Um er að ræða 100% starf með staðsetningu á Akranesi. Æskilegt s er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfsþjálfun fer fram við upphaf starfs. Laun eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Vinnueftirliti ríkisins, Stillholti 18, 300 Akranesi fyrir 15. febrúar nk. Umsóknareyðublað er ekki notað. Nánari upplýsingar um starfið fást hjá Guðjóni Sólmundssyni umdæmisstjóra, skrifstofu Vinnueftirlitsins á Akranesi, s. 431 2670 og 892 7593, (gsol@ver.is), Hauki Sölvasyni deildarstjóra vinnuvéladeildar og Þórunni Sveinsdóttur deildarstjóra þróunar- og eftirlitsdeildar, s. 550 4600. v________________________________________________________________/

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.