Skessuhorn - 15.03.2006, Page 24
24
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006
g£!SSUli@&æ!
.»
Sítt hár
ogstrípur
Svava Hrund GuSjónsdóttir og Elva Björk Ævarsdóttir á hárgreiðslustofunni Hárstíl.
Það er hluti af undirbúningi
margra fermingarbarna að fara í
hárgreiðslu á fermingardaginn. Þær
Svava Hrund Guðjónsdóttir og
Elva Björk Ævarsdóttir á hár-
greiðslustofunni Hárstíl á Akranesi
hafa góða reynslu í að taka á móti
fermingarbörnunum og gera þau
fín fyrir stóru stundina.
Fíngert skraut
Þær stöllur segja einfaldleikann
vera í tísku í fermingargreiðslunum
í ár. „Þetta er ládaust í dag. Hárið
er kannski liðað gróflega með
krullujámi og tekið upp til hliðar.
Skrautið er fíngert, til dæmis era
alls konar perlur vinsælar, en ekki er
mikið um blómin sem einu sinni
voru algeng." Það er líka mikið um
náttúrulegar skreytingar eins og
fléttur í hárið. „Það má eiginlega
segja að þetta sé bara eins og hár-
tískan er í dag. Það er greinilega
vinsælla að vera með sítt hár núna
og þá helst nokkuð liðað og þetta
sést líka á fermingargreiðslunum.“
Þær Elva og Svava segja að yfírleitt
komi svipað margar stúlkur til
þeirra í greiðslu frá ári til árs, en
aftur á móti sé munur milli ára á því
hvað mikið er lagt í greiðslurnar.
Fermingarstúlkur hafa líka mis-
munandi skoðanir á sínum greiðsl-
um. „Sumar stelpurnar eru harðá-
kveðnar áður en þær koma til okkar
og eru alveg búnar að mynda sér
skoðun á því hvernig þær vilja hafa
hárið, en svo eru þær sem leyfa okk-
ur að ráðleggja þeim og svolítið að
ráða.“ Þær stöllur á Hárstíl segjast
alltaf gera prufugreiðslur. „Eg hef
alla vega aldrei greitt fermingar-
greiðslur öðruvísi en að hafa prufu
fyrst. Eg held að það sé venjan, þó
að það sé sennilega allur gangur á
því,“ segir Svava.
Strákar og strípur
Það eru í miklum meirihluta
stúlkur sem koma á hárgreiðslustof-
urnar á fermingardaginn en strák-
arnir eru þó líka að hressa upp á út-
litið fyrir viðburðinn. „Strákamir
eru að koma svona viku fyrir ferm-
ingu í klippingu eða smá snyrtingu.
Það er líka svolítið um það að þeir
láti setja í sig ljósar strípur. Svo sjá
þeir að mestu um hárið sjálfir á
fermingardaginn, en það kemur þó
fyrir að við fáum þá hingað og setj-
um þá einhver mótunarefni í hárið.“
Það er minna um litanir hjá
stúlkunum. „Það er yfirleitt falleg-
ast að hafa hárið bara náttúrulegt
og á það við um heildarútlit stelpn-
anna líka. Hafa þær sem eðlilegast-
ar og ekki fara út í neinar öfgar.“
Fermingardagurinn er gleðistund
og því ávallt skemmtilegt að fá að
fylgjast með. „Það er mjög gaman
að greiða fermingarbörnunum. Það
er oftast svolítið stress í þeim og
þau eru auðvitað misjafnlega
spennt. Það er þó alltaf mikil
ánægja að fá að vera með þeim á
þessum dögum,“ segja þær Svava og
Elva að lokiim. GG
K 1 M i ' r r, , $. ...í P' " >v ; - l'ði
1 ■ \ fl
1
Dœmi um fermingargreiöslumar í ár.
Þau lásu til úrslita sl. miövikudagskvöld. Verðlaunahafamir eru sitjandi jýrir miðju.
Urslit í Stóru upplestrar-
keppniuni á Akranesi
Lokahátíð Stóru upplestrar-
keppninnar var haldin í Vinaminni
á Akranesi sl. miðvikudag. Þetta er
í áttunda skipti sem keppnin er
haldin á Akranesi. 11 keppendur frá
grunnskólum bæjarins mættu til
leiks en áður hafði farið fram und-
ankeppni meðal nemenda 7. bekkja
Grundaskóla og Brekkubæjarskóla.
Séra Eðvarð Ingólfsson hóf sam-
komtma með ávarpi þar sem hann
fjallaði um íslenskuna bæði út ffá
vönduðum upplestri og rituðu
máli. Keppendur lásu síðan kafla úr
bók Kristínar Steinsdóttur „Út í
bláinn," lásu ljóð eftir Birgi Svan
Símonarson og að lokum ljóð að
eigin vali. Nokkrir nemendur sem
stunda nám við Tónlistarskólann
fluttu tónlistaratriði. Kynnir á há-
tíðinni var Guðbjörg Arnadóttir,
fulltrúi Samtaka móðurmálskenn-
ara.
Dómnefnd beið síðan það erfiða
hlutverk að velja þrjá bestu lesarana
en allir þeir sem í úrslit komust lásu
sérlega vel bæði ritað og bundið
mál. I fyrsta sæti varð Hafdís Ingi-
marsdóttir 7. GB í Grundaskóla,
Hugrún Eva Haraldsdóttir 7. HE í
Brekkubæjarskóla varð í öðru sæti
og Katla Rún Baldursdóttir 7. GB í
Grundaskóla varð í þriðja sæti.
Þorkell Logi Steinsson, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Akraness afhenti
verðlaunahöfunum peningaverð-
laun. Allir keppendur fengu auk
þess bók í viðurkenningaskyni frá
Eddu. Einnig fengu Elvar Jónsson
og Sigrún Eva Asmundsdóttir verð-
laun fyrir myndskreytingu
boðskorts. MM
Að undimtun lokinnifu. Kristín Björg Arnadóttir frá SSV, Halldóra Hreggviásdóttir
framkvœmdastjóri Alta, Runólfur Guðmundsson form. hafnarstjómar, Guómundur
Smári Guðundsson frá Guðm. Runólfssyni hf, Jóhann Ragnarsson Fisk - Seafood, Þórð-
ur Magnússon Djúpakletti, Jökull Helgason byggingafulltrúi, Björg Agústsdóttir bæjar-
stjóri og Sigurborg Kr Hannesdóttir starfsmaður Alta í Grundarfirði.
Vistvænn sjávar-
útvegur í samvinnu við
háskólann í Lundi
Nokkur helstu sjávarútvegsfyrir-
tækin í Grundarfirði, Grundar-
fjarðarbær og Grundarfjarðarhöfn,
hafa tekið höndum saman um verk-
efni þar sem ætlunin er að meta
stöðu og mögulegar lausnir varð-
andi umhverfismál fyrirtækjanna.
Meistaranemendur ffá Alþjóðlegu
umhverfisstofnuninni við Lundar-
háskóla eru nú á vorönninni að
vinna verkefni með fyrirtækjunum
og munu fjórir nemendur ásamt
kennara vera í Grundarfirði í lok
mars. Sérstaklega er horft á frá-
veitumál og líffænan úrgang frá
sjávarútvegsfyrirtækjunum.
Þau fyrirtæki sem aðild eiga að
verkefninu eru Djúpiklettur ehf.,
Fisk - Seafood hf., Guðmundur
Runólfsson hf., Soffanías Cecilsson
hf. og Sægarpur ehf. Ráðgjafarfyr-
irtækið Alta tekur þátt í mótun
verkefnisins og átti að því ffum-
kvæði. SSV þróun og ráðgjöf
leggja einnig til aðstoð starfsmanns
við verkefnið.
Að sögn Sigurborgar Kr. Hann-
esdóttur starfsmanns Alta í Grund-
arfirði byggir verkefnið á þeim
skilningi að umhverfismálin séu
sameiginlegt verkefni. Grundar-
fjörður sé leiðandi byggðarlag á
Vesturlandi á sviði sjávarútvegs og
hafnaraðstöðu og því eigi heima-
menn þá metnaðarfullu sýn að hér
verði öll umgengni um auðlindir
sjávar til fyrirmyndar.
GK