Skessuhorn


Skessuhorn - 02.08.2006, Síða 2

Skessuhorn - 02.08.2006, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 Ný lögreglu- samþykkt Dóms- og kirkjumálaráðu- neytdð hefur staðfest nýja lög- reglusamþykkt fyrir Akranes- kaupstað og hefur hún verið auglýst í Stjórnartíðindum lög- um samkvæmt. Bæjarstjórn samþykkti fyrr á árinu að fela starfshópi að skila inn tillögum um nýjar reglur og var hópur- inn skipaður fulltrúum frá Akraneskaupstað þeim Jóni Pálma Pálssyni, bæjarritara og Þorvaldi Vestmann, sviðsstjóra og fulltrúum frá sýslumannin- um á Akranesi þeim Áslaugu Rafnsdóttur, sýslufulltrúa og Jóni S. Olafssyni lögregluvarð- stjóra. Skilaði starfshópurinn tillögum sínum til bæjarstjórn- ar sem hefur samþykkt lög- reglusamþykktina og ráðuneyt- ið nú staðfest eins og fyrr greinir. Hægt er að nálgast lögreglulsamþykktina í heild sinni á vef Akraneskaupstaðar. MM Ttl mtnnis Skessuhorn minnir alia þá er leggja land undir fót um helg- ina að fara varlega í umferð- inni, spenna bflbeltin, aka á löglegum hraða og að sjálf- sögðu að hafa góða skapið með í för. Góða Verslunar- mannahelgi! Vechvrhorfijr Spáð er fremur vætusömu en hlýju veðri vestan- og sunnan- lands um helgina en annars- staðar á landinu verður úr- koma minni eða engin. Eftir helgi er spáð vestlægri átt með skúrum víðast hvar. Spivrniruj vihijnnar í síðustu viku var spurt á skessuhorn.is; „Ætlar þú á útihátíð um Verslunar- mannahelgina?" Tæplega 83% svarenda ætla ekki á úti- hátíð um helgina, rúmlega 11 % ætla sér að halda á útihá- tíð en rúmlega 6% svarenda vita ekki hvort þeir fara eða ekki. í næstjj viku spyrjum við: „Á að hœkka viðurlög við hraðaksturs- brotum?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is VestlendiníjiAr vikijnnar Skessuhorn útnefnir að þessu sinni Einar Örn Thorlacius, frá- farandi sveitarstjóra Reykhóla- hrepps sem Vestlending vikunnar. Hann hefur nú verið ráðinn sveitarstjóri Hvalfjarð- arsveitar og valinn úr hópi fjörutíu umsækjenda. Mannaráðningar framundan hjá Borgarbyggð Ríflega 30 umsóknir bárust um alls fimm störf sem Borgarbyggð auglýsti fyrir nokkru. Um er að ræða nýtt stöðugildi markaðs- og menningarfulltrúa, umhverfisfull- trúa og starf á tæknideild auk af- greiðslufulltrúa á bæjarskrifstofur og stöðu skólastjóra grunnskólans á Varmalandi. Að sögn Páls S Brynjarssonar bæjarstjóra bárust ríflega 30 umsóknir um þessi störf. Unnið hefur verið úr umsóknum á undanförnum dögum og á byggða- ráðsfundi í dag, miðvikudag mun skýrast nánar hvenær ráðið verður í þau. I aðdraganda sameiningar sveit- arfélaganna sem sameinuð voru í Borgarbyggð var ákveðið að nokkrar starfsstöðvar verða til húsa í Reykholti. Öllum starfs- mönnum sem hjá sveitarfélaginu unnu fyrir kosningarnar í vor voru boðin störf hjá sveitarfélaginu. Að sögn Páls liggur fyrir að í Reyk- holti verður starf skrifstofumanns við innheimtu og reikningagerð, starf umhverfisfulltrúa, þjónustu- fulltrúi dreifbýlis og einnig kemur til greina að nýtt starf markaðs- og menningarfulltrúi verði þar stað- sett. MM Nýr Saxhamar kominn til Rifs Feðgamir Savar Friðþjófsson útgeríarmaður og Friðþjófur Savarsson skipstjóri í brúnni á nýja Saxhamri. Saxhamar, nýtt rúmlega 200 rúmlesta fiskiskip kom til Rifs- hafnar sl. föstudag. Það er útgerð- arfélagið Utnes ehf sem er að stækka við sig og endurnýja skip, sem einnig bar nafnið Saxhamar og Utnes ehf. eignaðist nýsmíðað árið 1969. Nýi Saxhamar hét áður Sjöfn EA frá Grenivík og eigendur voru Oddgeir ísaksson og fleiri. Kaupandinn, Sævar Friðþjófsson útgerðarmaður, er einn af frum- herjum útgerðar í Rifi og hefur stundað þaðan útgerð í um hálfa öld. Hann segist aðspurður vera mjög ánægður með kaupin, skipið sé búið að róa á Breiðafirðinum í áraraðir þannig að hann hafi þekkt vel til þess. „Þetta hefur verið happafley það ég best veit. Við vissum að við vorum að eiga við- skipti við gott fólk þannig að við slóum til þó að skipið væri ekki nýtt,“ segir Sævar. Hann segir að það sé galli hve lítið er um að menn kaupi sér nýsmíðar, mun al- gengara sé að menn endurnýi skipakost sinn með gömlum skip- um. „Þessi reynsla sem menn eign- uðust á sínum tíma að byggja skip er að hverfa úr landi. Það er líka áhyggjuefni þegar kemur að við- haldi skipanna, ekki síst þegar spennan er jafnmikil á vinnumark- aðnum og raun ber vitni.“ Utnes er fjölskyldufyrirtæki. Sonur Sævars, Friðþjófur, verður skipstjóri og í áhöfninni eru einnig tengdasonur og dóttursonur hans. Bókhaldari og fjármálastjóri er svo Helga Hermannsdóttir, eiginkona Sævars. MM/KÓP Nýr Saxhamar kemur til heimahafnar. Kvikni í olíuflutningabíl verður hann látinn brenna Undanfarið hefur nokkuð borið á umræðu um eldsneytisflutninga í Hvalfjarðargöngunum. Þessi um- ræða er reyndar ekki ný af nálinni heldur jafhgömul göngunum. Bæj- arráð Akraness hefur nokkrum sinnum fjallað um málið og sam- þykkt áskoranir á dómsmálaráð- herra um að banna bensín-, olíu- og gasflutninga um göngin. Þann 10. apríl árið 2003 setti lögreglu- stjórinn í Reykjavík nýjar reglur um flutningstakmarkanir í göngunum og gilda þær enn. Samkvæmt þeim eru e 1 d n sncyti s fl u tn i n ga r bannaðir frá kl. 15 til klukkan 22 mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimtn- daga, frá klukkan 10 til 1 eftir mið- nætti og frá klukkan 7 til 1 eftir miðnætti á laugardögum og sunnu- dögum. Einnig er kveðið á um sér- stakar takmarkanir í tengslum við hátíðir s.s. páska ög hvítasunnu og verslunarmannarhelgi. Ljóst er að tugir bensínflumingabfla fara um göngin á hverri viku. I því ljósi er fróðlegt að skoða viðbragðsáætlun Hvalfjarðarganga sem tók gildi í maí árið 2004. Þar er m.a. fjallað um vatnsþörf og slökkvigetu í göngunum. Þar er miðað við að vatn takmarkist við vatnsbirgðir Slökkviliðs Akraness, 16.000 lítra. Samkvæmt útreikn- ingum sem fram koma í viðbragðs- áætliminni er gert ráð fyrir að með góðri nýtingu ætti að vera hægt að slökkva eld í 2-3 fólksbflum, hins- vegar sé hæpið að vatnið dugi til að slökkva eldinn í smárútu og hið sama segir um stóra rútu. Athyglis- vert er að lesa það sem segir um bruna í vöruflutningabíl: „Miðað við vatnsmagn, útbúnað og aðstæð- ur til slökkvistarfa verður að teljast nær útilokað fyrir slökkvilið að ráða niðurlögum slíks elds í göngunum. Væntanlega er ráðlegast fyrir slökkvilið að láta þennan eld brenna þar til mesti krafturinn er farinn úr honum og ráðast svo til atlögu þegar afl eldsins hefur minnkað það mikið að slökkvilið telji möguleika á að ráða niðurlög- um hans.“ Itrekað skal að þetta á við venjulegan vöruflutningabfl. í áætluninni er einnig að finna viðbrögð við þremur mismunandi stigum bruna í göngunum og þar er fjallað um bruna olíuflutningabfls eða bfls með eldfimum efimm. I áætluninni kemur fram að ekki skuli setja blásara í gang fyrr en ljóst er að verulega hafi dregið úr afli eldsins. Síðan segir: „Vegna að- stæðna í göngum og vamsöflunar á staðnum er ómögulegt að slökkva eld af því afli sem hér um ræðir fyrr en hann hefur hjaðnað verulega.“ Eitt af því sem varað er við í slíkum bruna er hrunhætta úr bergi vegna mikils hita. Það er því ljóst að áætlanir Al- mannavarna, Spalar og slökkviliða gera ráð fyrir því að ekki sé hægt að ráða við bruna eldsneytisflutninga- bfls í Hvalfjarðargöngum, heldur verði að leyfa honum að brenna út þar til hann verður viðráðanlegur. Það má því spyrja hve dýru verði sú ráðstöfun að keyra eldsneyti í gegn- um Hval fjarðargöngi n gemr verið greidd ef slys ber að höndum? -KÓP Leiðrétting I síðasta tölublaði Skessuhorns var sagt að Akraneskaupstaður hefði verið dæmdur til að greiða eigendum Skagavers bæmr. Hið rétta er að niður- staða dómskvaddra matsmanna er sú að Akranesbær skuli greiða bæmr, en enginn dómur hefur fallið í málinu. Er beðist velvirðingar á þessari ónákvæmni í orðalagi. -kóp Amarhreiðrum spillt BREIÐAFJÖRÐUR: Varp í fjórðungi arnarhreiðra hér á landi misfórst í vor, samkvæmt upplýsingum frá Fuglavernd- unarfélagi íslands. Fyrst og fremst er um að kenna kaldri veðrátm í maí en einnig eru taldar líkur á að varpi nokkurra arna hafi vísvitandi verið spillt. Um þrjátíu arnarungar hafa komist upp árlega undanfarin ár og hefur arnarstofninn því styrkst verulega og hefur þannig ríflega þrefaldast á sl. 40 árum. Þremur arnarhreiðrum í Breiðafirði var spillt í sumar og á það sinn þátt í því að arnar- varp í ár er eitt það lakasta und- anfarin mtmgu ár að því 'er talið er. -mm Lýst eftir rúðu- brotsvörgum AKRANES: Mikið hefur verið um að rúður hafi verið bromar að undanfömu í byggingum á Akranesi. Lögregla hefur fengið 6 slík mál inn á sitt borð á undan- fömum tveimur vikum. Aðallega hafa rúður verið bromar í vinnu- skúmm og þá venjulega allar rúður í skúrunum. Vitað er um geranda í einu tilfellanna en það tilfelli virðist ekki tengjast hin- um. Biður lögreglan á Akranesi þá sem hafa einhverja vimeskju eða upplýsingar um málin að hafa samband. Hér er mn um- talsvert tjón að ræða og mikils- vert að upplýsa hver eða hverjir hafa verið að verki. -so Fíkniefriapar áferð BORGARNES: Par sem var akandi á leiðinni í gegntun hér- aðið, og var stöðvað í eftirliti lög- reglunnar í Borgamesi í vikunni sem leið, reyndist vera með kannabisefni og amfetamín í fór- um sínum. Nokkur töf varð því á ferðalagi þeirra á meðan máhð var upplýst og höfðu þau trúlega ekki gert ráð fyrir því að þurfa að gista í fangaklefa í Borgamesi á leiðinni. Týri, fíkniefnahundur lögreglunnar í Borgamesi kom að góðum notum við þetta mál en hann þefaði uppi efhin. -so Skila jákvæðu búi HVALFJARÐARSVEIT: Á fundi hreppsnefndar Hvalfjarð- arsveitar sl. mánudag var kynnt niðurstaða ársreiknings Innri Akraneshrepps fyrir árið 2005. Þar kemur fram að rekstramið- urstaða sveitarfélagsins var já- kvæð um 1,5 milljónir króna á ár- inu en skv. fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 6,7 m.kr tapi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok var 300 milljónir króna. -mm

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.