Skessuhorn - 02.08.2006, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006
MOdl áræðni og kraftur í fólkinu í Grundarfirði
Guðmundur Ingi Guðlaugsson
tekur við starfi bæjarstjóra Grund-
aríjarðar þann 1. september næst-
komandi. Blaðamaður Skessu-
horns hitti Guðmund á hátíðinni Á
góðri stundu í Grundarfirði, þar
sem hann nýtti tækifærið til að
kynnast mannlífinu við skemmti-
legar aðstæður. „Það er sérstaklega
gaman að koma hingað um þessa
helgi,“ segir Guðmundur. „Að
hitta fólk við þessar aðstæður er al-
veg frábært. Það er gaman að
kynnast þessari samkeppni á milli
hverfanna, sem er þó í mesta bróð-
erni. Hér er samkeppni um bestu
skreytinguna og allt mannlífið ein-
kennist af gleði og fjöri.“
Guðmundur hefur starfað sem
sveitarstjóri í Rangárþingi ytra síð-
ustu 16 árin og stendur því á
nokkrum tímamótum í lífí sínu.
Flumingarnir leggjast mjög vel í
hann. „Við hjónin vorum orðin
nokkuð rótgrónir Sunnlendingar,
höfum búið á Hellu, Selfossi, í
Hveragerði auk nokkurs tíma í
Reykjavík,“ sagði Guðmundur.
„Við ákváðum hinsvegar fyrir
nokkru síðan að breyta til eftir
þetta kjörtímabil, börnin eru flog-
in úr hreiðrinu og við vildum prufa
eitthvað nýtt. Þegar ég sá að Björg
ætlaði að hætta sem bæjarstjóri hér
ákvað ég að láta slag standa og
sækja um. Það gekk síðan sem bet-
ur fer eftir.“ Guðmundur Ingi seg-
ir að hann hafi alls ekki ætlað sér
að starfa áfram í sveitarstjórnar-
málum. Eftir 16 ára setu sem sveit-
arstjóri hafi hann langað að breyta
til og verið opinn fyrir öllu. Hins
vegar hafi staðan á Grundarfirði
heillað hann svo að hann ákvað að
sækjast eftir henni og halda sig
innan sveitarstjórnargeirans áfram.
Gatnagerð og
hafnarframkvæmdir
Guðmundur segir að hann hafi
ekki haft bein tengsl við Grundar-
fjörð eða Snæfellsnes áður en hann
sótti um. Hinsvegar hafi hann oft
ferðast um svæðið og heillast af
náttúrufegurð þess. Það sé einnig
eftirtektarvert hve mikil áræðni og
kraftur sé í fólkinu þar. „Það er
spennandi að fá tækifæri til að taka
þátt í þeirri uppbyggingu sem er í
gangi hér. Það er kraftur í mannlíf-
inu í þessu byggðarlagi. Fólkið
sækir fram og ég hlakka til að fá að
taka þátt í mannlífinu með íbúum
hér.“
Guðmundur segir mörg spenn-
andi mál vera í farvatninu, en verk-
efni bæjarstjórnar liggi nokkuð
ljóst fyrir. Nefna megi lögn dreifi-
kerfis fyrir hitaveitu í Grundar-
firði, en í tengslum við hana sé fyr-
irhugað að leggja í malbikunarátak
í bænum og vonandi takist að hefja
það í ágúst. Þá er ætlunin að mal-
bika malargötur og laga slæma
kafla víða um bæinn. Það sé hluti
af verkefnum tengdum umhverfis-
málum, en ætlunin sé að vinna að
því að gera bæinn fegurri. Guð-
mundir Ingi segir að höfnin sé
hjarta bæjarins og undirstaða at-
vinnulífsins. Lagt var í landfyll-
ingu fyrir nokkru til að bæta að-
stæður á hafnarsvæðinu. Það sé
grundvöllurinn fyrir því að auka
hafnsækna starfsemi sem smiti um
leið út frá sér í atvinnulífið allt.
Það sé svo aftur undirstaða þess að
mannlíf blómstri. Fyrihugað er að
gera nýja bryggju á næsta ári aust-
an við svokallaða Litlu bryggju
sem er orðin ansi slæm. Vinna við
verkið er þegar hafin og búið að
reka niður stálþil. Eins er verið að
leggja nýju götu meðfram höfn-
inni, Hafnarbraut, sem á að taka
við þungaumferð tengdri hafnar-
starfseminni.
Fjölgun umfnim
landsmeðaltal
Af öðrum verkefnum sem
framundan eru nefnir Guðmundur
skjólbeltaræktun fyrir ofan bæinn.
Ætlunin sé að reyna að slá aðeins á
sunnanáttina sem kemur oft í æði
skæðum streng niður fjallið. Þá sé
verið að koma upp útvistarsvæði í
Hönnugili og sé notað efni sem til
fellur við framkvæmdir í bænum til
að móta það. Stærsta einstaka
verkefnið sé þó bygging nýs
íþróttahúss og sundlaugar.
Þá segir Guðmundur að vert sé
að nefna almenna uppbyggingu í
bæjarfélaginu. „Á síðasta ári var 20
lóðum úthlutað og var mikil ásókn
í þær. Hér hefur verið fjölgun íbúa
síðustu ár og má nefna að á árabil-
inu 1990-2005 fjölgaði íbúum hér
um 20%, sem er nokkuð yfir
landsmeðaltali. Gott starf hefur
verið unnið hér í skipulagsmálum
og er ljóst að við munum kapp-
kosta að halda því áfram.“ Guð-
mundur Ingi nefnir vinabæjar-
tengslin við Paimpol sem dæmi um
skemmtilegt verkefni sem verið er
að vinna að í sveitarfélaginu. „Það
er ekki víða sem tengslin sem
mynduðust fyrr á öldum á milli er-
lendra sjómanna og íbúa við sjáv-
arsíðuna eru ræktuð jafn vel og
hér. Eg þekkti Paimpol helst sem
kex áður en ég kom hingað, en
beinakex sem sjómennirnir hafa
væntanlega verið með var kallað
Pampolakex. Það er mjög gaman
að sjá hve vel hefur tekist til að
endurnýja tengslin og rækta ný.“
Það er bjart yfir Guðmundi þeg-
ar hann horfir til framtíðarinnar í
Grundarfirði. Mörg verkefni bíða
nýs bæjarstjóra og er ljóst að hann
mun ekki sitja aðgerðarlaus. Fyrsta
verkefnið snýr þó að hans eigin
búsetumálum. „Það er verið að
reisa hús sem við munum geta flutt
inn í upp úr áramótum. Hins veg-
ar verðum við einhvern veginn að
brúa bilið þangað til og við erum
að vinna að því með hjálp góðra
manna,“ sagði Guðmundur Ingi að
lokum. KÓP
---------------^-----------------------
Bæjarhátíðin „A góðri stundu“ tókst vel
Bláa höndin í bláa hverfinu.
Ljósm. SK
Um helgina var hátíðin Á góðri
stundu í Grundarfirði haldin í ní-
unda sinn. Á milli tvö og þrjú þús-
und manns sóttu bæinn heim og er
það fjölgun ffá því í fýrra. Fjöl-
breytt skemmtiatriði voru á
boðstólum, hverfin kepptu í skák,
hljómsveitir spiluðu, keppt var í
fjallahjólakeppninni Jökulsháls-
tryllinum og í dorgveiði auk þess
sem kraftajötnar leiddu saman hesta
sína. Það sem bar hæst var þó bær-
inn sjálfur, en hann skartaði sínu
fegursta. Ibúar höfðu lagt sig ffam
um að skreyta hús sín og umhverfi
og myndaðist skemmtileg keppni á
milli hverfa um skreytingar. Bæn-
um var skipt niður í fjögur hverfi;
gult, rautt, grænt og blátt og
reyndu íbúar hvers hverfis að slá
öðrum við í litadýrð svo ekki mátti
á milli sjá hver hefði vinninginn.
Strax þegar inn í bæinn var kom-
ið blasti litadýrðin við, gular veifur
og borðar út um allt. Einn húsráð-
andi hafði gengið svo langt að mála
gulan broskall á þakið sitt. Þetta er
ekki eina dæmið um að menn gangi
langt í skreytingum á hátíðinni. I
fyrra hífði einn íbúi rauða hverfisins
bíl upp á þak húss síns og fyrir
nokkru hlóð íbúi græna hverfisins
jeppabiffeið sína með fagurgrænum
torffistum.
Málaðir trúðar og nornir á stult-
um gengu um hafnarsvæðið þar
sem mesti mannfjöldinn var. Yfir
öllu var afslöppuð stemning, fólk
rölti um, spjallaði saman yfir veit-
ingum, naut skipulagðrar dagskrár
og leyfði krökkunum að fara í leik-
tækin. Það var við hæfi að félags-
málaráðherra heyrðist syngja sinn
fræga smell „Traustur vinur“ úr há-
tölurum skemmtitækjanna; vináttan
sveif yfir vötnum og gleðin skein af
hverju andliti.
Veðrið setti nokkurt strik í reikn-
inginn hjá skipuleggjendum en
töluverð rigning var seinnipart
föstudags og á laugardagsmorgun.
Ur því rættist þó og þrátt fyrir að
einhver atriði þyrfti að færa til fór
allt vel fram. Sólin skein eftir há-
degi á laugardaginn þegar hápunkt-
ur hátíðarinnar rann upp og íbúar
hverfanna gengu fylktu liði undir
litum síns hvefis niður að haftiar-
svæði. Þar sameinuðust hverfa-
skrúðgöngurnar í einn litríkan hóp
og dansað var á bryggjuballi ffam
eftir kvöldi.
KÓP
Hápunkturinn frá
finuntudegi til sunnudags
Jónas Víðir Guðmundsson
framkvæmdarstjóri Á góðri
stundu í Grundarfirði hafði í
mörg horn að líta um helgina.
Fjöldi gesta lagði leið sína í bæinn
og þurffi að sjá um að allt skipulag
gengi eftir. „Þetta hefur verið
stórglæsilegt og er búið að takast
mjög vel þó ég segi sjálfur frá,“
segir Jónas. „Það hafa verið fleiri
en í fyrra þrátt fyrir að veðurguð-
irnir hafi aðeins verið að stríða
okkur.“ Rigning setti nokkuð strik
í reikninginn og þurfti m.a. að
færa Jökulshálstryllinn nær bæn-
um, flytja tónleika tmgra hljóm-
sveita til og hnika ýmsu öðru.
„Skráð dagskrá hefur farið nokkuð
úr skorðum en það lætur ekki
nokkur maður á sig fá.,“ segir
Jónas. I tengslum við hátíðina var
rekin sérstök útvarpsstöð, Utvarp
Grundarfjörður. Utsendingum
hennar lauk klukkan 15 á laugar-
dag þar sem ekki nokkur maður
fékkst til að sitja lokaður inni í
herbergi og missa af fjörinu niður
í bæ.
Spurður um hver hafi verið há-
punktur hátíðarinna svarar Jónas
því til að það sé einfalt mál. „Há-
punkturinn byrjaði á fimmtudags-
kvöldið og endaði um leið og dag-
skrá lauk á sunnudeginum. Þetta
ar allt jafhskemmtilegt og gekk al-
veg ótrúlega vel.“ Jónas sagði að
það sem menn hefðu helst rætt um
að þyrfti að gera fyrir næstu hátíð
væri að fá Ijósmyndara til að
mynda bæinn úr flugvél til að
fanga stemninguna. Það er óhætt
að taka undir það að miðað við
litadýrðina væru þær myndir
áhugaverðar.
-KÓP