Skessuhorn - 27.03.2007, Side 11
*á£S»úDíöiaKI
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2007
11
Hvalljarðarsveit leiðréttir
bæjarstjóra Akraness
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
hefur vakið athygli bæjarstjóra
Akraness á því að Hvalfjarðarsveit
hefur aldrei veitt umsögn um veg-
línu yfir Grunnafjörð. Fullyrti
Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri
Akraness, í bréfi sem hann sendi
ríkisstjórn, þingmönnum Norð-
vesturkjördæmis, sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar og sveitarstjórn
Borgarbyggðar að öll aðliggjandi
sveitarfélög hafi margsinnis veitt
jákvæða umsögn um veglagning-
una. Sveitarstjóm samþykkti að
fela sveitarstjóra, Einari Erni
Thorlacius, að vekja athygli bréf-
ritara á að þetta væri ekki alls kost-
ar rétt.
Einar Örn sagði í samtali við
Skessuhorn að hann skildi ekkert í
því að menn hefðu ekki haft samráð
tun máhð áður en öllum þessum
aðilum var sent bréf. Tvö af þeim
fjóram sveitarfélögum sem mynda
Hvalfjarðarsveit, Leirár- og Mela-
hreppur og Skilmannahreppur
gerðu ráð fyrir veglínunni í skipu-
lagi sínu. Það skipulag fékkst hins
vegar aldrei staðfest, vegna veglín-
unnar. Sveitarfélagið Hvalfjarðar-
sveit hefur hins vegar aldrei gefið
umsögn um vegalagninguna. Einar
Örn segir að Hvalfjarðarsveit hafi
ekki mótað sér stefnu um málið,
það sé í réttum farvegi og í meðferð
umhverfis- og náttúruverndar-
nefndar.
KÓP
Fánarönd á framleiðslu
íslenskra garðyrkjubænda
íslenskir garðyrkjubændur hafa
ákveðið að merkja allar vörur sínar
með íslensku fánaröndinni. Er
þetta gert til þess að neytendur eigi
auðveldara með að átta sig á hvaða
vörar eru íslenskar og hverjar ekki.
Stór hluti íslensks grænmetis,
kartaflna og afskoiinna blóma er
nú þegar merktur fánaröndinni, og
í vor verða íslenskar garðplönmr
einnig merktar á þennan hátt. „Við
viljum auðvelda neytendum að
velja sér vörur með þeim eiginleik-
um og gæðum sem íslensk ffam-
leiðsla hefur,“ segir Þórhallur
Bjarnason garðyrkubóndi á Lauga-
landi og formaður Sambands garð-
yrkjubænda. „Það sem hér er rækt-
að er aðlagað að íslenskum aðstæð-
um og íslenskir garðyrkjubændur
eru stoltir af þeim gæðum sem þeir
geta boðið. En það er fyrst og síð-
ast neytandans að velja þá vöru sem
hann telur besta og við viljum
hjálpa til við það,“ segir Þórhallur.
MM
Snjólaug Guðmundsdóttir
fékk heiðursstyrk
Snjólaug Guðmundsdóttir fékk
úthlutað heiðursstyrk Menningar-
sjóðs Borgarbyggðar sl. fimmtudag
og fór úthlutun fram við hátíðlega
athöfn í Landnámssetrinu, á 140
ára afmæli Borgarness. Sigríður
Björk Jónasdóttir, formaður merrn-
ingamefndar Borgarbyggðar, sagði
við það tilefiii að Snjólaug hefði
skarað fram úr í sínu starfi og haft
mikil og jákvæð áhrif á menningar-
líf í sveitarfélaginu. Hún hefði um
árabil starfað að listsköpun og
handverki og hefði unnið ötullega
að framgangi íslensks handverks og
hönnunar og stuðlað að vexti og
viðgangi þess í héraðinu. Borg-
firska lopapeysan væri afrakstur
eins slíks verkefnis sem Snjólaug
hefði komið að.
Snjólaug er menntaður vefnaðar-
kennari ffá Mynd- og handíðaskóla
Islands og hefur að auki sótt ýmis
námskeið, t.d. í tóvinnu, þæfingu
ullar, útskurði, bókagerð og vatns-
litun. Þá hefur hún haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í mörg-
um samsýningum. Frá 1986 hefur
Snjólaug að mestu starfað að hand-
verki og listíð og haldið fjölmörg
námskeið í flókagerð og vefnaði á
vinnustofu sinni sem hún starffækir
á Brúarlandi.
Menningarsjóður Borgarbyggðar
var stofiiaður í Borgamesi 22. mars
1967 í tilefhi af 100 ára verslunaraf-
mæli staðarins, en starfar nú á öllu
svæði Borgarbyggðar. Stofnfé
sjóðsins var ein milljón króna sem
greidd var af Borgarneshreppi árin
1968-1977. Tekjur sjóðsins eru ár-
legt framlag bæjarsjóðs Borgar-
byggðar, vextir, áheit, minningar-
gjafir og aðrar gjafir til menningar-
mála.
KÓP
Breytíngar á starfsemi skólaskjóls í Borgamesi
Hafinn er undirbúningur að
breytingum á starfsemi og húsnæði
skólaskjóls í Borgarnesi og jafn-
framt skoðun á íþróttaskóla fyrir öll
böm í sveitarfélaginu Borgarbyggð.
Bjöm Bjarki Þorsteinsson, forseti
sveitarstjórnar sagði í samtali við
Skessuhorn að hópur fólks innan
stjórnsýslunnar væri að skoða fram-
tíðarhúsnæði fyrir skólaskjólið,
breytingar á rekstarfyrirkomulag-
inu þannig að í boði yrði heildags-
skóli, þar sem óhefðbundin kennsla
færi fram að loknum venjubundn-
um skóladegi.
I hópnum eru auk Bjarka, for-
maður fræðslunefndar Finnbogi
Rögnvaldsson, Indriði Jósafatsson
æskulýðsfulltrúi og Asthildur
Magnúsdóttir fræðslufulltrúi. „Það
sem við viljum gera er að horfa til
framtíðar, hvað varðar stærð og
starfsemi. Núverandi húsnæði
skólaskjólsins er óhagkvæmt og
einhverra breytinga er þörf. Við
erum að horfa á þá lóð jafnvel til
byggingar eða einhverjar breyting-
ar á því húsnæði sem hýsir leikskól-
ann við Skallagrímsgötu. Einnig er
verið að athuga með íþróttaskóla,
sem yrði þá til boða allsstaðar í
sveitarfélaginu, ekki bara í Borgar-
nesi. Við höfum þá stefhu að leitast
við að jafha þjónustuna um allt
sveitarfélagið og þetta yrði liður í
því,“ sagði Björn Bjarki Þorsteins-
son.
BGK
Góð eign með glæsilegu útsýni
Glæsilegt 166 m2 tveggja hæða hús ásamt 40 m2 bílskúr,staðsett
innst í botnlanga. Efri hæð, öll með nýju parketi, þrjú
svefnherbergi, baðherbergi, sjónvarpshol og vinnukrókur. Góðar
svalir með fallegu útsýni, m.a. yfir golfvöllinn. Neðri hæð, stofa,
baðherbergi, eldhús, þvottahús og herbergi og geymsla (hægt
að nýta sem herbergi) Gengið út á stóra verönd úr stofu. Hús
og bílskúr (þak og veggir)málað að utan sumarið 2005. Flestir
ofnar í húsinu endurnýjaðir. Búið að tengja Ijósleiðara.
Nánari upplýsingar á Fasteignamiðlun Vesturlands.
Fasteignamiðlun Vesturlands ehf.
Kirkjubraut 40, 300 Akrancs
Sími 431 4144 Bréfsimi 431 4244
GSM 8464144
Soffía S. Magmísdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Ný þjónusta Bókasafiis
Akraness
Lánþegar hjá Bókasafni Akraness
eru vinsamlegast beðnir að athuga
að ff á og með 1. apríl næstkomandi
fá þeir sem hafa skráð netfangið sitt
hjá bókasafninu allar tilkyrmingar
um vanskil sendar í tölvupósti. Þeir
sem eru ekki með netfang skráð hjá
safninu fá áfram sendar tilkynning-
ar í venjulegum pósti. Starfsfólk
bókasafnsins biður lánþega sína að
hafa eftirfarandi í huga:
Er netfang þitt rétt ?
Lest þú tölvupóstinn þinn reglu-
lega? - Ef ekki þá er betra að ekkert
netfang sé skráð!
Er bamið þitt skráð með net-
fang?
Er betra að þitt netfang sé skráð
í stað netfangs barnsins?
Allar frekari upplýsingar veitir
starfsfólk bókasaíhsins í síma 433
1200. Einnig er hægt að senda
tölvupóst á netfangið
bokasafh@akranes.is
('fréttatilkynning)
Jörfagleði Dalamanna
í apríl
Héraðshátíð Dalamanna, Jörfa-
gleði, var endurvakin árið 1977 og
eru því 30 ár frá því að þessi menn-
ingarhátíð var haldinn á nýjan leik
eftir langt hlé. Frá áramótum hefur
nefnd unnið að skipulagningu
Jörfagleði sem verður haldin dag-
ana 18. - 22. apríl nk. Nú verður
bryddað upp á nýjung í tengslum
við Jörfagleðina og er fyrirhugað
að halda markaðsdag í björgunar-
sveitarhúsinu í Búðardal á laugar-
deginum.
Jörfagleði Dalamanna er æði
forn hátíð og þótti með áhugaverð-
ari samkomum sem fáir vildu missa
af. „Kirkjumenn og embættismenn
voru ekki sérstaklega hrifnir af
hegðun manna á þessum samkom-
um og þeirra síst Björn sýslumaður
Jónsson sem afstýrði Jörfagleðinni
fyrst 1695. Mikið var drukkið á
þessum samkomum og Jörfagleðin
varð afar fjölmenn þegar Staðar-
fellsgleðin í Dalasýslu var úr sög-
unni seint á 17. öld. Til Jörfa kom
fólk langt að, frá Skógarströnd og
Hrútafirði auk Dalasýslu. Sumt
vinnufólk fékk meira að segja að
hafa það í samningum sínum að
það hefði leyfi til að fara þangað.
Má segja að þessar samkomur hafi
verið svipaðar og nútíma Acid
House veislur í Bretlandi,“ segir í
samantekt um Jörfagleði á Vísinda-
vefnum.
Ber að geta þess að Jörfagleðin
nú til dags er fjölskylduvæn menn-
ingarhátíð og hentar öllum aldur-
hópum, enda fjölmargt áhugavert í
boði. Undibúningur hefur gengið
vel og styttist óðum í að fullmótuð
dagskrá líti dagsins ljós, að sögn
Herdísar E. Gunnarsdóttur for-
manns undirbúningsnefndar.
BT