Skessuhorn - 27.03.2007, Síða 22
22
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2007
úuiáaunu^. S
Saga úr flæSarmdlinu. Salka Vdlka ogAmaldur, Þórdís og Guóleifur; ífj'órunni viö Vesturgötuna.
Wake me up
á árshátíð NFGB
Nemendafélag Grunn-
skólans í Borgarnesi
frumsýndi í gærkvöldi
rokksöngleikinn „Wake
me up,“ eftir Hallgrím
Helgason í Oðali.
Nemendur úr 8,- 10. bekk
hafa undanfarið unnið
hörðum höndum við
undirbúning og æfmgar
ásamt leikstjóranum
Arnoddi Magnúsi Danks.
Astæða er til að hvetja alla
sem vettlingi geta valdið að fara og klukkan 17.00 og 20.00, fimmtudag
sjá skemmtilega sýningu unga klukkan 20.00 og föstudaginn 30.
fólksins. Aðrar sýningar verða sem mars 17.00 og 20.00.
hér segir: í dag, miðvikudag MM
Þátttakendur í syningunni.
Salka Valka í fiskvimisluhúsi
á Skaganum
Leikfélag Akraness frumsýnir
Sölku Völku miðvikudaginn 4.
apríl. Um viðamikla sýningu er að
ræða, en vel á þriðja tug manns
kemur að uppsetningunni. Helstu
hlutverk eru í höndum Þórdísar
Ingibjartsdóttin sem leikur Sölku,
Guðleifs Rafns Einarssonar sem
leikur Arnald, Sigtryggs Karlssonar
sem leikur Steinþór og Guðbjargar
Amadóttur sem leikur Sigurlínu.
Þá er Ólína Jónsdóttir í hlutverki
Tobbu truntu, en Olína er
leikhúsgestum á Akranesi að góðu
knnn þó nokkuð sé um liðið síðan
hún steig síðast á svið með
leikfélaginu. Leikstjórn er í
höndum Ingu Bjarnason. Bjarni
Þór Bjarnason myndlistarmaður
hannar leikmynd og Smári Jónsson
er smiður ásamt því að leika í
sýnigunni. Þá er tónlist í höndum
Fanneyjar Karlsdóttur sem verður á
sviðinu allan tímann með nikkuna.
Skessuhorn hitti þau Þórdísi og
Guðleif að máh í gær.
Sifjaspell og Sölkugata
Aðspurð hvers vegna þetta verk
hefði orðið fyrir valinu sögðu þau
að Salka Valka væri hluti af íslensku
mannlífi og það væri stórbrotið
verk. ,Annars kom Inga leikstjóri
með hugmyndina því að hún sá að
hún hafði hér afbragðs Sölku í
Þórdísi," segir Guðleifur. Þórdís
dregur úr mikilvægi sínu og minnir
á að verkið hafi skíra skírskotun í
samtímann. I því sé mikil umræða
um félagshyggju sem eigi vel við
pólitískt landslag í dag. Þá henti
það hópnum vel þar sem hlutverkin
séu mjög fjölbreytt, allt frá 10 ára
krökkum upp í ríflega sjötugt fólk.
„Þá hefur verið mikil umræða
síðustu ár um sifjaspell og
hræðilegar afleiðingar þess. Verkið
snertir einnig á því efni og á því
fullt erindi til nútímans,“ segir
Þórdís. Þá benda þau á sem dæmi
um það hve Salka Valka skipar
stóran sess í þjóðinni að í
Helgafellshverfi í Mosfellsbæ verði
að finna Sölkugötu og fleiri götur
sem heiti eftir kvenpersónum
Halldórs Laxness.
Þórdís hefur lengi leikið með
leikfélaginu og verið virk í starfi
þess síðustu árin. Guðleifúr hefúr
hins vegar ekki leikið í sýningum
þess síðan 1994. Hann segir það
hafa verið sjálfsagt mál að stíga
aftur á svið hjá félaginu. „Dísa
hringdi í mig og bað mig um að
leika Arnald og það er vandi vel
boðnu að neita.“ Þau segja að
töluvert sé um að eldri félagar séu
að koma aftur til starfa við félagið
og nefna Ólínu því til sönnunar.
Hæfileg blanda gamalreyndra og
nýrri félaga komi að sýningunni.
Líf Sölku Völku
Inga Bjarnason leikstjóri vann
leikgerð verksins, í samvinnu við
leikhópinn. Byggði hún hana á
leikgerð Hilmars Jónssonar
annarsvegar og Stefáns
Baldurssonar og Þorsteins
Gunnarssonar hinsvegar. Þórdís og
Guðleifur segja að í þessari leikgerð
sé meira lagt upp úr lífi Sölku
Völku en í hinum tveimur. I
leikgerð Stefáns og Þorsteins hafi
verkalýðsbaráttan verið í forgrunni
og í leikgerð Hilmars hafi
ástarsagan verið þungamiðjan. Nú
sé augum hins vegar beint að lífi
Sölku og því sé leikgerðin nú að
nokkru frábrugðin hinum tveimur.
Tvö leikhús á einu ári
Leikfélag Akraness hefur nú inni
í gamla Arctic húsinu við
Vesturgötu, fyrir ofan HM
pípulagnir. Bæjarfélagið leigir
húsið fyrir hönd leikfélagsins og
gildir leigusamningurinn til 2008
„og vonandi lengur,“ segja Þórdís
og Guðleifúr. Það er kannski við
hæfi að setja Sölku Völku upp í
gömlu fiskvinnsluhúsi, enda á sagan
sér stað í litlu sjávarþorpi þar sem
lífið er saltfiskur. Leikfélagið hefur
hins vegar staðið í ströngu við að
gera húsið sýningarhæft, en þetta er
í annað sinn á einu ári að félagið
þarf að koma upp sýningaraðstöðu.
Leikfélagið var áður með aðstöðu
við Suðurgötu og hefur nú þurft að
standsetja nýtt hús ffá grunni. Þau
Guðleifur og Þórdís segja
hinsvegar að húsið sé mjög gott og
henti vel fyrir sýningar. Þar sé mun
meiri nálægð en t.d. í Bíóhöllinni,
en húsið tekur um 70 manns í sæti.
Leikfélag Akraness mun sýna
Sölku Völku alls tólf sinnum og því
munu Akurnesingar og
nærsveitarmenn fá færi á að sjá
verkið, sem er hluti af íslenskri
klassík. Samhliða sýningunni
verður opnuð myndlistarsýning
með verkum Magnúsar
Tómassonar í húsinu. Magnús er
bæjarbúum að góðu kunnur, en
hann er m.a. höfnndur verksins
Grettistaks sem stendur fyrir
ffaman Dvalarheimilið Höfða.
KÓP
Soðin skinka áfiram í
Músfktílraunum
Hljómsveitin Soðin skinka frá
Hvanneyri keppti í síðustu viku á
þriðja undankvöldi Músíktilrauna
og fór áffam á flestum greiddum
atkvæðum úr sal. Hún mun því
Stefiiumót
Útflutningsskrifstofa íslenskrar
tónlistar stendur fyrir stefnumóti
Péturs Ben og Teits föstudaginn
30. mars nk. í Fossatúni.
Söngvaskáldin tvö halda tónleika
kl. 21. Teitur, sem er ffá Færeyjum
hefur átt alþjóðlegri velgengni að
fagna undanfarin þrjú ár. Hann er
á Islandi í tilefni af Atlantic Music
Event sem fram fer á NASA í
Reykjavík á laugardaginn. Þar
spilar hann með samlöndum
sínum. Það er Steinar Berg sem
sér um tónleikana í Fossatúni og
hefur veg og vanda að
skipulagningu stefnumótsins.
Frekari upplýsingar eru á
www.steinsnar.is
(fréttatilkynning)
keppa á úrslitakvöldi tilraunanna
sem fer fram í Hafnarhúsi
Listasafns Reykjavíkur
laugardaginn 31. mars.
Hljómsveitin hefur verið starfandi
síðan í febrúar 2006. Hana skipa:
Orri Sigurjónsson gítar, Gunnar
Ingi Friðriksson hljómborð,
Hjörvar Agústsson bassi, Einar
Orn Guðnason söngur, Jónas
Hauksson trommur og Hermann
S. Björgvinsson gítar.
KÓP
í Fossatúni
Pétur Ben.
Eldri borgarar með opið hús
Félag aldraðra í Borgarfjarðar-
dölum ætlar að standa fyrir opnu
húsi í félagsheimilinu Brún í
Bæjarsveit um páskahátíðina, þ.e. á
skírdag, föstudaginn langa og
laugardaginn fyrir páska. Þar
verður sýning, dagskrá og kaffi.
Húsið opnar klukkan 14 alla
dagana og vilja aldraðir koma því á
ffamfæri að allir eru velkomnir að
kíkja í heimsókn.
('fréttatilkynning)
Æskan á Vesturlandi
Skátastarf endurvakið í Dölunum
Fyrir þrjátíu árum var stofnað
skátafélagið Stígandi í Búðardal og
starfaði þá um nokkurt skeið. Anna
Margrét Tómasdóttir hefur verið
virk í skátahreyfingunni um langt
skeið og hefur meðal
annars haldið utan um
skátastarf á Akranesi
meðan hún starfaði þar
og bjó. Hún er
forstöðumaður
Ungmenna- og
tómstundabúðanna á
Laugum í Sælingsdal og
er því búsett í hjarta
Dalabyggðar. „Skátar
hafa þann sið að geyma
ýmsa hluti tengda
starfinu í kistum og fann
ég í einni slíkri kistu skinn með
áletrun skáta sem stofnuðu félagið
Stíganda árið 1977,“ segir Anna
Margrét í samtali við Skessuhom.
„Eg fékk ábendingu um kistu í
heimahúsi og tvær kistur í
kjallaranum í Dalabúð og sagt að þar
væri eflaust eitthvað sem mér fyndist
fróðlegt. Við nánari skoðun kom í
ljós að þarna vom skátakistur sem
höfðu meðal annars geymt
hnútaspjöld, fána og skinn með
áletrun, í um þrjátíu ár,“ sagði Anna
ennfremur.
Það má segja að með opnun
skátakismnnar hafi starfsemi
Stíganda verið hleypt af stað á nýjan
leik. Undanfarið hafa áhugasamir
foreldrar og börn unnið ötullega að
því að byggja upp skátastarf í
Dalabyggð með leiðsögn Onnu.
Mikill áhugi er fyrir skátastarfi í
Dalabyggð og em nú mtmgu börn í
öðmm til fjórða bekk grunnskólans í
Búðardal í skátaflokki. Einnig hefúr
verið stofnaður flokkur með tíu
stúlkum úr fimmta til sjöunda bekk.
„Tíu drengir hafa áhuga á að stofha
flokk en sem stendur vantar
flokksforingja til að halda utan run
hópinn," segir Anna.
Þrjátíu börn virk í skátastarfi þykir
gott, sérstaklega í ljósi þess að alls
em um áttatíu börn í samfélaginu í
Dölum á „skátaaldri.“ Það styttist því
í að um helmingur barna í öðrum til
sjöunda bekk sé virkur í skátastarfi í
Dalabyggð ef fram fer sem horfir.
Dalabyggð er eitt víðfemasta
skólaumdæmi landsins og um langan
veg að fara fýrir börn til og frá skóla.
Því hefur verið reynt að tengja
skátastarfið sem mest við starfsemi
skólans. „Það er unnið að því í
samvinnu við skólayfirvöld á
staðnum að fá aðstöðu innan veggja
skólans fyrir skátastarfsemina á næsta
ári,“ segir Anna. Hún segir að stefnt
sé að því með formlegum hættd að
endurvekja skátastarf í Dalabyggð í
upphafi Jörfahátáðar á sumardaginn
fyrsta, sem ber upp á fimmtudaginn
19. apríl. Fyrirhugað er að börn í
hinu endurvakta skátafélagi
Stíganda, muni rita nafn sitt með
viðhöfn á leður sem síðar verður
komið á vegg. Það er vel við hæfi þar
sem skátahreyfingin leikur stórt
hlutverk þann dag og er starfsemi
skáta í raun samofin þeim viðburði á
landsvísu.
BT/ljósm. AMT