Fréttir - Eyjafréttir - 08.03.2012, Síða 2
2
Fréttir /Fimmtudagur 8. mars 2012
Átta tíma vistun hjá dagforeldri kostar 66.000 til 78.000 kr. á mánuði: -
Niðurgreiðslur tíðkast víða
Engin almenn niðurgreiðsla hér - Lagt okkur fram um að vera í fremstu
röð í þjónustu við barnafjölskyldur, segir fræðslu- og menningarráð
íslandsmót skákfélaga:
Enginn
vildi tefla
við Sigurð
Áss
BÖRN Á LEIKSKÓLANUM Sóla Anna Rós tekur sem dæmi að niðurgreiðslur til foreidra í Reykjavík
fyrir 8 tíma gæslu á dag séu 37.000 krónur en 50.680 fyrir einstæða og öryrkja og ef báðir foreldrar eru í
námi, 37.512 fyrir annað foreldri í námi. í Hafnarfirði er greitt niður um 29.640 krónur til foreldra í sam-
búð en 38.664 fyrir einstæða og foreldra í námi.
Anna Rós Hallgrímsdóttir skrifaði
bréf sem birtist í Fréttum, um leik-
skóla- og dagforeldramál, fyrir hönd
forelda sem eiga börn fædd 2011.
Þar fjallar hún m.a. um að tími sé
kominn til að endurskoða niður-
greiðslu til dagforeldra í bænum. I
öðrum sambærilegum sveitarfé-
lögum niðurgreiði langflest sveitar-
félög daggæslu við níu mánaða
aldur bams eða við lok fæðingar-
orlofs en í Vestmannaeyjum við 18
mánaða aldur.
Þá vísar hún til þess að þegar 5 ára
deild var kynnt hafi það verið gert
með þeim hætti að flest böm ættu að
komast inn á leikskóla við 18
mánaða aldur. Sú hafi ekki orðið
raunin og í bréfmu kemur fram að
miklu geti munað á barni sem
verður 18 mánaða í september og
barni sem verður 18 mánaða í
október en það síðamefnda byrjar
jafnvel hálfu ári seinna á leikskóla.
Því finnst foreldmm eðlilegt að böm
sem em ekki komin á leikskóla um
18 mánaða aldur greiði sama gjald
hjá dagforeldrum og fyrir leikskóla-
pláss.
Önnur sveitarfélög greiða
niður við 9 mánaða aldur
Anna Rós segir foreldrana hafa
valið sveitarfélög af handahófí til
samanburðar, en þessi sveitarfélög
hefja niðurgreiðslur við 9 mánaða
aldur, fyrir hjón og fólk í sambúð og
við 6 mánaða aldur fyrir einstæða
foreldra og skólafólk.
Sem dæmi tekur hún niðurgreiðslur
til foreldra í Reykjavík en fyrir 8
tíma gæslu á dag er greitt niður um
37.000 krónur en 50.680 fyrir ein-
stæða og öryrkja og ef báðir for-
eldrar em í námi, 37.512 fyrir annað
’foreldri f námi. í Hafnarfirði er
greitt niður um 29.640 krónur til
foreldra í sambúð en 38.664 fyrir
einstæða og foreldra í námi.
Anna Rós tekur einnig Árborg sem
dæmi en niðurgreiðsla fyrir 8 tíma
og meira 27.000 kr. Á Akranesi er
niðurgreiðslan 5000 krónur á klst.
en verður mest 40.000 krónur.
Anna Rós nefnir fleiri dæmi og til
samanburðar þá kostar vistun fyrir 8
tíma hjá dagforeldrum hér í Eyjum
66.000 til 78.000 krónur fram að 18
mánaða aldri og aðeins einstæðir
foreldrar og þeir sem stunda óláns-
hæft nám fái niðurgreiðslu fyrir 6
mánaða bam. Hún bendir líka á að
hjá flestum þessum sveitarfélögum
sé niðurgreiðslan hærri en hér í
Eyjum.
„Við höfum heyrt þau svör að
Vestmannaeyjabær vilji frekar halda
leikskólagjöldum niðri og geti þess
vegna ekki líka breytt niðurgreiðslu-
reglum sínum. Það er auðvitað mjög
jákvætt að halda niðri leikskóla-
gjöldum en við viljum samt benda á
að í þeim sveitarfélögum sem við
skoðuðum em leikskólagjöld mjög
sambærileg og hér í Eyjum. Fimm
af þeim em með lægri gjöld en hér
og hæsta gjaldið er á Fljótsdals-
héraði og þá munar 3467 krónum.
Það er þess vegna krafa okkar að
þetta mál verði tekið upp og kjör
barnafjölskyldna í Vestmannaeyjum
verði sambærileg og í öðrum
sveitarfélögum á landinu."
Ekki verið stefna bæjarins
hingað til að breyta þessu
Fréttir leituðu til Jóns Péturssonar,
framkvæmdastjóra fjölskyldu- og
fræðslusviðs, og var hann m.a.
annars spurður út í samanburðinn
sem kemur fram í greininni sem
hann sagði standast að megninu til.
„Það hefur ekki verið stefna
bæjarins hingað til að breyta þessu
heldur áherslan verið að taka á
gjaldskrám leikskóla með því að
lagfæra hana og fjölga leikskóla-
plássum.
Er það rélt að 18 mánaða börn fá
ekki leikskólapláss eins og staðan er
í dag?
„Markmið bæjarins er að öll böm
18 mánaða og eldri 1. september ár
hvert komist inn á leikskólann að
hausti. Á þessu skólaári náðum við
inn börnum niður í 16 mánaða aldur.
Börnin eldast og önnur flytja í
bæinn. Inntökur á leikskólann eru
aðallega að vori eða hausti og minna
um að þau komist inn á leikskóla í
millitíðinni í eins miklum mæli og
áður.“
Er inni í myndinni að nýta þann
sparnað sem áætlaður er við útboð
á rekstri Sóla til að auka niður-
greiðslur til dagforeldra?
„Það er ákvörðun pólitískra full-
trúa,“ sagði Jón og fræðslu- og
menningarráð tók málið fyrir á
fundi á þriðjudag.
Plássum í leikskólum
bæjarins fjölgað um 35
I fundargerð ráðsins segir að mikil-
vægt sé að vanda vel til verka þegar
reglur á niðurgreiðslum til dagfor-
eldra séu endurskoðaðar. „Þó niður-
greiðslur sumra sveitarfélaga séu
þærri en gerist í Eyjum þá er kostn-
aður dagforeldra einnig mishár eftir
sveitarfélögum. Vestmannaeyjabær
styður einstæða foreldra með því að
niðurgreiða frá upphafi vistunar hjá
dagforeldri. Eins fá foreldrar bama
hjá dagforeldri systkinaafslátt fyrir
önnur böm sín á leikskólum bæjar-
ins.“
Þá segir í bókun ráðsins að Vest-
mannaeyjabær hafi lagt sig fram um
að vera meðal fremstu sveitarfélaga
hvað varðar þjónustu við barna-
fjölskyldur. „Frá árinu 2009 hefur
leikskólaplássum í leikskólum
bæjarins fjölgað um 35 og rekstar-
kostnaður aukist um 60 milljónir.
Árið 2010 voru barnafjölskyldur
hvað ánægðastar í Vestmannaeyjum
samkvæmt könnun Capacent, árið
2011 var létt undir með barn-
mörgum fjölskyldum þegar inn-
heimtureglum dagvistunargjalda var
breytt þannig að 3. barn í vistun og
umfram fengi þjónustuna gjald-
frjálsa.
Árið 2012 var farið af stað með
íþróttaakademíu við Grunnskóla
Vestmannaeyja, Vestmannaeyjar eru
næstódýrasta sveitarfélagið hvað
varðar heildarkostnað foreldra fyrir
skóladagvistun grunnskólanemenda
með hressingu og hér er frítt í sund
fyrir öll börn með lögheimili í
sveitarfélaginu undir 18 ára aldri. Á
sama tíma hefur hlutfall menntaðra
leik- og grunnskólakennara aukist
til muna í Vestmannaeyjum og því
sífellt faglegra og metnaðarfyllra
starf sem fer fram inni á uppeldis-
stofnunum sveitarfélagsins.
Niðurgreiðslur vegna daggæslu-
kostnaðar hafa ekki verið endur-
skoðaðar síðan í október 2008. Því
leggur ráðið til að umræddar reglur
fari í endurskoðun haustið 2012.“
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir I
gudbjorg @ eyjafrettir. is.
Á íslandsmóti skákfélaga um
helgina, sem fram fór á Selfossi
kom upp sú óvanalega staða
þegar C sveit Taflfélags Vest-
mannaeyja mætti C sveit Tafl-
félagsins Hellis úr Reykjavík, að
á þriðja borði sat Sigurður Áss
Grétarsson hjá Siglingastofnun
fyrir Helli.
Sigurður hefur mikið verið í
fréttum vegna starfa sinna í
tengslum við Landeyjahöfn. Nú
voru góð ráð dýr, því enginn
Eyjamaður fékkst til að tefla við
kappann, samkvæmt heimildum
Frétta. Settist enginn móti honum
og sigraði því Sigurður Áss
örugglega í sinni viðureign.
Fráveita
Vestmannaeyja:
Set ehf.
með lægsta
tilboðið
Á síðasta fundi framkvæmda- og
hafnarráðs voru opnuð tilboð í
efni vegna lagnar fráveitu út frá
Eiðinu.
Þrjú tilboð bárust og þrjú
frávikstilboð. Set ehf. bauð
22.623.026 íslenskar krónur í
verkið og frávikstilboð upp á
25.603.384 krónur. Adolf Bjama-
son/Hallingplast bauð 772.710
norskar krónur og Adolf
Bjarnason frávikstilboð upp á
100.000 evrur. Osn ehf.
30.701.609 krónur og frávikstil-
boð upp á 113.870 evmr.
Ráðið samþykkti eftir yfirferð
tilboða að tilboð Set ehf. sé
hagstæðast og felur fram-
kvæmdastjóra að ganga til
samninga við Set ehf. á Selfossi
sem átti hagstæðasta tilboðið í
samræmi við útboðsgögn og fól
framkvæmdastjóra framgang
málsins.
Sex Eyjastelpur í
Ungfrú Suðurland
Sex Eyjastúlkur taka þátt í keppninni Ungfrú Suður-
land, sem mun fara fram á Hótel Selfossi föstudaginn
30. mars næstkomandi. Þetta eru þær Sara Rós
Einarsdóttir, Guðrún María Guðbjömsdóttir, Þóra Fríða
Ólafsdóttir, Þórhildur Ósk Stefánsdóttir, Amey Lind
Helgadóttir og Eva Dögg Davíðsdóttir. Alls taka 15
stúlkur þátt í keppninni víðs vegar af landinu.
Aðrar sem taka þátt í keppninni heita Bryndís Hera
Gísladóttir, Alexandra Rut Kristinsdóttir, Monika
Jónsdóttir, Jóhanna Mjöll Tyrfingsdóttir, Heiðrún
Helga Ólafsdóttir, Una Rós Sævarsdóttir, Guðrún
Thelma Þorkelsdóttir, Bylgja Sif Jónsdóttir og Sandra
Silfá Ragnarsdóttir.
STÚLKURNAR sem taka þátt í keppninni í ár.
Útgefandi: Eyjasýn elif. 480378-0549 - Vestmannaeyjnm. RitstjórL' Ómar Garðarsson.
Blaðamenn: Gnðbjörg Signrgcirsdóttir og Júlíus Ingason. ÁljyTgðarmcuji: Ómar Garðars-
son & Gísli Valtýsson.
Prentrinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjnm. Aðsetnr ritstjómar: Strandvegi 47.
Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjafrettir.is.
Veffang: http/Avww.eyjafrettir.is
ERÉ'lTIK koma út alla fimmtndaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig i lansasölu á Kletti,
Tvistinum, Toppnnm, Vöruval, Hcrjólfi, Flughafnarversluninni, Kiómmni, ísjakanmn,
verslun 11-11 og Skýlinu í Friðarhöfn.. FRÉTTlR eru prentaðar i 2000 eintökum.
FRÉTTUt eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentim, hljóðritun,
notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.