Fréttir - Eyjafréttir - 08.03.2012, Page 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 8. mars 2012
Eyjamaður vikunnar:
Vil að rokk og popp
heyrist meira í kirkjunni
Eyjamaður vikunnar er Gísli Stefánsson.
Úr bloggheimum:
Áhöfnin á Álsey VE bloggar:
Isfélagið
stækkar á
Þórshöfn
Við vorum komnir
á Þórshöfn um
miðnætti mánu-
dagskvöld og rétt
eftir hádegi þriðju-
dag var búið að
landa og við lagðir
af stað. Norður-
leiðin er farin enda færist loðnan
hratt og núna vestur með landinu,
var flotinn á veiðum í gær út af
Garðskaga. Við emm sem stendur
(kl 9:00) úti af Isafirði og ættum
við að geta verið á miðunum í
kvöld (miðvikudag) fer auðvitað
eftir hvernig veður við emm að fá í
restina af þessu stími, hvort þar
muni draga úr ferðahraðanum, en
við emm að detta inn í smá brælu.
þá er bara að vona að veður og
veiði verði í svaka stuði í kvöld.
Stefnan er tekin á að landa þessum
næsta túr í hrognakreistingu.
Þorsteinn reið á vaðið í þeim efnum
og er væntanlega á leið til Eyja
með fyrsta farminn sem verður
kreist úr hjá ísfélaginu í ár. Júpíter
landaði í gær í vinnslu í Eyjum um
850 tonnum og þá er Sigurður á
miðunum og líklega Guðmundur
líka.
í þessu stutta stoppi á Þórshöfn
rölti ég út í Samkaup í smá kost-
leiðangur, tók ég myndavélina með
og smellti nokkmm myndum í
leiðinni af þeim framkvæmdum
sem núna em nýhafnar á vegum
ísfélagsins. En þar em jarðvegs-
framkvæmdir í fullum gangi fyrir
nýjum húsakosti ísfélagsins. Húsa-
kosti sem mun svo verða til þess að
auka frystigetu félagsins á Þórs-
höfn. Það á ekkert að hanga við
þetta, en það er áætlun uppi um að
hægt verði að byrja að frysta sfld
og væntanlega makrfl í þessum
nýju húsakynnum í byrjun ágúst á
þessu ári, 2012. Svo það er ekki
bara I Eyjum sem Isfélagið er að
framkvæma á fullu til að bæta
landvinnsluna. Þetta verða að telj-
ast góðar fréttir á Þórshöfn og í
Vestmannaeyjum sem ber að fagna
og auðvitað á landinu öllu því með
þessum framkvæmdum fylgja
aukin umsvif, atvinna og tekjur í
okkar þjóðarbú. Svo það verður
gaman að fylgjast með þessu verki
og sjá þetta komast upp og ennþá
betra þegar afköstin munu svo
aukast síðar í sumar. Eg læt fljóta
með þessari færslu nokkrar myndir
teknar í gær á þessu athafnasvæði
og vonandi fleiri myndir síðar á
næstu stigum á þessari framkvæmd.
Læt þetta þá duga héðan frá Álsey
á fullu stími á leið okkar á loðnu-
miðin. Bestu kveðjur, Kristó
http://alseyve2.123. is/
Gísli Hjartarsvon bloggar um
leikaraskap í knattspymu:
Góður punktur
Víðir
Þetta er svo sann-
arlega mál sem
taka má á. Afar
sérstakt að hlusta
stundum á t.d. Sky
þegar menn fara að
tala um að ef að
leikmaður hefði
látið sig detta þá hefði hann fengið
víti og svo framvegis og svo er
leikmönnum hrósað fyrir það að
standa í lappimar, rétt eins og það
sé ekki normið. - það má svo sann-
arlega herða róðurinn í baráttunni
gegn leikaraskap í boltanum, innan-
lands sem utan. Já, og varðandi
þetta með lesturinn. Ekki láta þér
bregða þó greinar þínar séu lesnar
reglulega í Englandi.
http.V/fosterinn. blog. is
Á sunnudaginn var Æskulýðsdagur
Þjóðkirkjunnar en deginum var
fagnað í Landakirkju með U2-
messu á sunnudagskvöldið. Leik-
húsbandið sá um tónlistina en þau
Birkir Högnason, Sísí Ástþórs,
Sindri Freyr Guðjónsson og Gísli
Stefánsson sungu lög írsku sveit-
arinnar. Gísli er jafnframt æsku-
lýðsfulltrúi Landakirkju og er
Eyjamaður vikunnar að þessu sinni.
Nafn: Gísli Stefánsson.
Fæðingardagur: 12. júní 1987.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Eiginkonan yndislega
er Kristín Sjöfn Ómarsdóttir, dóttir
hinnar dásamlegu Svövu í Stakkó
og dætumar era Andrea Inga 8 ára
og Guðný Rún 3 ára.
Draumabíllinn: HAHAHA...
bflar.. .pffff.
Uppáhaldsmatur: Flest allt hefur
náð að komast í uppáhald á ein-
hverjum tímapunkti. Ætli það sé
samt ekki lambalæri bemaise svona
á tyllidögum.
Versti matur: Eg læt þorramatinn
vera.
Uppáhalds vefsíða: www.there-
cordingrevolution.com.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Þessa dagana em Foreign
Monkeys að koma mér í besta
skapið. Ný plata í vinnslu.
Aðaláhugamál: Tónlist og þá
sérstaklega gítarinn og upptökur og
svo náttúrulega æskulýðsmál.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Jesú kallinn væri flott að hitta.
Hefði nú líka vilja hitta Hendrix.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Heimaklettur í sumar-
blíðu.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Robin van Persie og
Arsenal.
Ertu hjátrúarfullur: Já mjög.
Ég þakka Herði Óskars kœrlega
fyrir áskorunina. Hann kom
skemmtilega á óvart í síðustu viku
með góðri uppskrift og ekki get ég
verið minni maður. Ég œtla að
bjóða upp á fljótlegar vertíðarboll-
ur, svona í tilefni loðnuvertíðar og
Snickers-ís í eftirrétt.
Fljótlegar vertíðarbollur
1 pakki nautahakk (700-800gr)
1 pk Ritzkex
1 pk púrrulaukssúpa
2egg
Ritzkexið mulið niður. Allt
hráefnið er sett saman í skál, litlar
bollur búnar til og steiktar.
Sósa:
1 flaska Hunt’s chillisósa
'á peli rjómi
Og rifsberjahlaup eftir smekk
Allt hráefnið er sett saman í pott og
soðið saman. Bollumar settar út í
og látnar malla í 13 til 20 mínútur.
Snickers-ís
4 eggjarauður
100 gr púðursykur
1 tsk vanilludropar
5 dl ijómi
Og Snickers
Stundum eins og versti heiðingi.
Stundar þú einhverja hreyfmgu:
Jább, hamast í ræktinni á morgnana
Uppáhaldssjónvarpsefni: Super-
natural eins og staðan er núna
Af hverju U2 í Landakirkju:
Þetta konsept hefur verið notað
víða um landið og mér datt í hug að
blanda þessu saman við Æsku-
lýðsdaginn. Hann hefur ekki verið
nógu vel sóttur undanfarin ár og
það hefur vantað ferska vinda í
kirkjuna. Ég er fylgismaður þess
að rokk og popp heyrist meira í
kirkjunni.
Er hægt að spila hvaða tónlist
sem er í messu: Já, það finnst mér.
Eins lengi og hún hefur rétta
boðskapinn.
Varstu sáttur með kvöldið:
Himinlifandi. Hefði ekki getað
gengið betur.
Þeytið eggjarauðumar og púður-
sykurinn mjög vel saman. Bætið
vanilludropunum saman við. Þeytið
rjómann og bætið honum varlega út
í með sleif. Setjið í form og frystið.
Verði ykkur að góðu!
Verða fleiri poppmessur á næst-
unni: Já, emm strax byrjaðir að
hugsa næsta skref. Stefnan er að
setja í aðra messu í vor.
Hvernig gengur æskulýðsstarf
Landakirkju: Mjög vel. Fyrst á
haustin erum við með um 150-170
þátttakendur yfir vikuna sem er ein-
staklega gott. Fjöldinn jafnast svo
út og em um 100 krakkar sem
koma í kirkjuna vikulega. Einnig
emm við með starf fyrir fatlaða
sem er nánast einstakt á landsvísu.
Eitthvað að lokum: Ég vil þakka
öllum sem létu sjá sig á sunnu-
dagskvöldið fyrir komuna. Það er
okkur mikilvægt að geta gefið til
baka fyrir þann frábæra stuðning
sem við höfum fengið undanfarin
ár frá Eyjamönnum í gegn um
okkar árlegu jólatónleika.
Ég vil skora á Björn Brimar, verk-
smiðjustjóra ísfélagsins, og óska
eftir því að hann komi með eins og
eina fermingarveislu svona rétt
fyrir vertíðarlok. Þannig að allar
húsmœður Vestmannaeyja geti séð
hvernig alvöru kokkar fara að.
Matgozðingcir vikunnar:
Fljótlegar vertíðarbollur
og Snickers-ís í eftirrétt
Matgæðingur vikunnar er Pétur Fannar Hreinsson.
Kirkjur bozjarins:
Landakirkja
Fimmtudagur 8. mars
Kl. 10. Mömmumorgunn í
Safnaðarheimilinu. Samvera for-
eldra með ungum börnum sínum.
Kl. 11-12. Viðtalstímar presta
Landakirkju alla virka daga. Sr.
Kristján, 856 1592, vaktsími 488
1508.
Kl. 20. Æfing, Kór Landakirkju.
Kitty Kovács, organisti og kórstjóri.
Kl. 20. Opið hús í KFUM&K-
heimilinu hjá Æskulýðsfélagi
Landakirkju. Gísli.
Föstudagur 9. mars
Kl. 13. Æfing hjá Litlum
lærisveinum og Stúlknakómum.
Nýir félagar velkomnir. Kitty og
Gísli.
Sunnudagur 11. mars
Kl. 11. Bamaguðsþjónusta með
miklum söng, sögum og leikþætti.
Bamafræðarar, fermingarböm og
prestur.
Kl. 14. Föstuguðsþjónusta 3.
sunnudag í föstu. „Sælir em þeir
sem heyra Guðs orð og varðveita
það.“ (Lk. 11) Fermingarböm lesa
úr Heilagri Ritningu. Kór Landa-
kirkju. Organisti Kitty Kovács.
Prestur sr. Kristján Bjömsson.
Kaffisopi eftir guðsþjónustu.
Kl. 20. Fundur í Æskulýðsfélagi
Landakirkju í Safnaðarheimilinu.
Mánudagur 12. mars
Kl. 11-12. Viðtalstími presta alla
virka daga. Vaktsími 488 1508 alla
daga.
Kl. 19.30. Tólf spora andlegt
ferðalag. Vinir í bata.
Þriðjudagur 13. mars
Kl. 12.45 og 14.40. Fermingar-
fræðsla.
Kl. 14. ETT, kirkjustarf 11-12 ára.
Miðvikudagur 14. mars
Kl. 13.30. STÁ, kirkjustarf 6-8 ára.
Kl. 14.40. Fermingarfræðsla.
Kl. 15. NTT kirkjustarf 9-10 ára.
Hvítasunnu-
kirkian
Fimmtudagur 8. mars
Kl. 20:00 Bænastund með brauðs-
brotningu.
Föstudagur 9. mars
Kl. 17:30 Krakkafjör.
Sunnudagur 11. mars
Kl. 13:00 Samkoma, ræðumaður
Vörður Traustason, forstöðumaður
Ffladelfíusafnaðarins í Reykjavík,
félagar úr mótorhjólaklúbbnum
„Trúboðamir“ verða gestir okkar
og taka þátt í samkomunni, lifandi
lofgjörð.
Mánudagur 12. mars
Kl. 20:00 Kvennasamvera.
Verið hjartanlega velkomin.
Aðventkirkjan
Laugardaginn 10. mars
Kl. 11:00 Samkoman hefst með
Biblíufræðslu fyrir böm og full-
orðna. Efnið er aðgengilegt öllum á
vef kirkjunnar á www.adventistar.is
Kl. 12:00 Guðsþjónusta. Þóra
Sigríður Jónsdóttir prédikar. Allir
hjartanlega velkomnir.
Sími hjá safnaðarpresti er 8662800,
netfang thora@adventistar.is.