Fréttir - Eyjafréttir - 08.03.2012, Page 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 8. mars 2012
Erfiður vetur en ekki einsdæmi
Það sem af er hefur veturinn verið
með þeim leiðinlegri ef miðað er við
síðustu ár og jafnvel áratugi. Snjór
var yfir í Vestmannaeyjum í nóvem-
ber og desember og þá tóku við
umhleypingar sem ekki sér fyrir
endann á. Stöðugar sunnan- og
suðvestanáttir með mikilli ölduhæð
hafa gert sjómönnum erfitt fyrir.
Veðrið hefur líka haft áhrif á sam-
göngur á sjó, landi og í lofti.
Þegar rætt var við Oskar Sigurðs-
son í Stórhöfða á miðvikudags-
morguninn sagði hann þunga öldu
við Eyjar og suður í hafi spáði 17
metra ölduhæð. „Það er með því
mesta,“ sagði Oskar. „Mér finnst að
þessi vetur sé ekkert einsdæmi en
það eru orðin ár og jafnvel áratugir
síðan við höfum fengið annan álíka.
Það hlýtur að vera erfitt að sækja
sjóinn. Urkoma frá því í desember
og fram í mars er með því mesta
sem mælst hefur,“ sagði Oskar. Það
staðfesta upplýsingar frá Pálma syni
hans sem nú stendur veðurvaktina í
Stórhöfða. Hann sagði að metúr-
koma hefði verið í Vestmannaeyjum
í janúar og Trausti Jónsson, veð-
urfræðingur, segir að 19 lægðir hafi
gengið yfir landið dagana 29 í
febrúar.
„Útsynningurinn hefur verið mjög
þrálátur en það hafa engin met verið
slegin í vindhraða. Ég hélt að hann
yrði hvassari á þriðjudagskvöldið
þegar kröpp lægð nálgaðist landið.
Meðalvindur var þá 30 metrar og
mesta hviða fór upp í 38.7 m. En
ATLI Aðalsteinsson slær á 17. teig með brimskaflinn í bakgrunni. Mynd Óskar Pétur.
meðalvindur hefur aldrei farið yfir
40 m í vetur.
Pálmi, sem tók við af föður sínum
2088, er fjórði ættliðurinn í Stór-
höfða. Áður hafði Óskar staðið
vaktina, fyrst með föður sínum en
frá 1965 til 2008 var hann ábyrgur
fyrir veðurathugnum. Núna tekur
hann eina athugun á sólarhring en
kíkt er á veðrið átta sinnum á
sólarhring.
Séra Kristján fylgist með við-
ræðum við Evrópusambandið
-Skipaður af utanríkisráðherra í samráðshóp - Fá aðgang að öllum gögnum
þá umræðu erfiða. Hitt er líka ljóst að spil-
að hefur verið glæfralega með fjárhagslegt
sjálfstæði þjóðarinnar með ábyrðgarleysi í
banka- og viðskipalífi og útrásarruglið hefur
verið okkur dýr skóli og mikill skaði.
Deiliskipulag ísfélags
við FES Strandvegi:
Tankar
ekki yfir
25 metra
Á fundi framkvæmda- og skipu-
lagsráðs fór Sigurður Smári
Benónýsson, skipulags- og bygg-
ingafulltrúi, yfir innsendar til-
lögur að deiliskipulagi á athafna-
svæði fiskimjölsverksmiðju Is-
félagsins, FES.
Líka þær umsagnir sem borist
hafa vegna deiliskipulagstillög-
unnar sem eru frá Siglinga-
stofnun, Fomleifavemd og Heil-
brigðiseftirliti Suðurlands.
Ráðið samþykkti fyrir sitt leyti
tillöguna en leggur áherslu á að
hæð tanka fari ekki yfir 25 m.
hæð. Þá tekur ráðið fram að
stækkun viðlegukants austan
Nausthamarsbryggju, samkvæmt
deiliskipulagstillögu, er ekki á
framkvæmdaáætlun hafnarinnar.
Málefni smábáta
til umræðu
Fyrir ráðinu lá erindi frá 3H
vegna sorphirðugjalda Bravo VE
160. Óskað var eftir því að
gjaldið verði endurskoðað.
Ráðið kvaðst ekki geta orðið
við erindinu en um er að ræða
annars vegar grunngjald sem lagt
er á öll fyrirtæki í rekstri sem
hljóðar upp á 25.798 kr/án VSK á
ári, óháð hvaða starfsemi fer
fram.
Hins vegar er um að ræða sorp-
gjald skv. gjaldskrá Vestmanna-
eyjahafnar sem hljóðar upp á
1.331 kr/án VSK á mánuði fyrir
báta undir 10 BRT.
Jafnframt samþykkti ráðið að
boða eigendur smábáta sem nýta
flotbryggjur til fundar innan
skamms þar sem farið verður yfir
hagsmunamál sem varða báða
aðila þar á meðal sorpmál og flot-
bryggjur.
Séra Kristján Bjömsson hefur verið
skipaður í samráðshóp í tengslum
við samningaviðræður um aðild
Islands að Evrópusambandinu.
Tuttugur og fimm einstaklingar af
öllu landinu em í hópnum, skipaðir
af utanríkisráðherra.
í tilkynningu frá utanríkisráðuneyt-
inu kemur fram að með hópnum sé
lögð áhersla á að styrkja enn frekar
þátttöku ólíkra einstaklinga og þjóð-
félagshópa í aðildarviðræðunum og
tryggja að Islendingar fái hlutlægar
upplýsingar um Evrópumálin. Við
val í hópinn var sérstök áhersla lögð
á kynjajafnvægi, jafnvægi milli
landshluta, höfuðborgarsvæðis og
dreifbýlis sem og andstæð sjónar-
mið í Evrópumálum.
„Helstu hagsmuna- og félagasam-
tök á íslandi eiga nú þegar beina
hlutdeild í samningaviðræðunum
við Evrópusambandið í gegnum
fulltrúa sína í þeim tíu samninga-
hópurn^ sem starfa með samninga-
nefnd Islands en í þeim starfa tæp-
lega 200 manns,“ segir í tilkynning-
unni.
Séra Kristján sagði í samtali við
Fréttir að fyrsti fundur hafi verið
haldinn í síðustu viku. „Ég reyndar
komst ekki á fundinn en mér líst vel
á að starfa með Salvöru Nordal, for-
manni, og þessum breiða hópi.
Hlutverk okkar verður að fylgjast
með samningaviðræðunum og þegar
fram í sækir verðum við til samráðs
við samninganefndina. Við fylgj-
umst með gangi samninganna í
gegnum ráðherra og aðalsamninga-
mann íslands, Eyjamanninn Stefán
Hauk Jóhannesson, en þau gera
okkur grein fyrir gangi viðræðnanna
og við munum svo meta það hvernig
og hvort samningsmarkmið eru að
nást í viðræðunum. Þegar fram í
sækir kemur einnig í hlut þessa sam-
ráðshóps að vinna að kynningu
þessa stóra máls.“
Ertu fylgjandi inngöngu Islands í
ESB eða á móti?
„Ja, það er nú það,“ svaraði
Kristján hlæjandi. „I raun og veru
er þetta ekki alveg svo einfalt því
mér líst ekki illa á samningsmark-
miðin. Hins vegar er það mitt mat
núna að það sé mjög hæpið að
Island nái öllum sínum markmiðum
í viðræðunum. Ef þau nást, eru
vissulega margir kostir fyrir Island
innan ESB en það er algjörlega
fráleitt að semja af sér varðandi t.d.
stjóm sjávarútvegs og stöðu íslensks
landbúnaðar. Ég hef verið algjörlega
á móti aðild að ESB vegna spum-
ingarinnar um fullveldi Islands og
bjartrar framtíðar okkar sem sjálf-
bært land hvað varðar orkumál,
landbúnað og sjávarútveg.
Það vantar að vísu verulega á að
almenningur tengi sig við fisk-
veiðarnar, sem gerir þá umræðu
erfiða. Hitt er líka ljóst að spilað
hefur verið glæfralega með fjárhags-
legt sjálfstæði þjóðarinnar með
ábyrgðarleysi í banka- og viðskipa-
lífi og útrásarruglið hefur verið
okkur dýr skóli og mikill skaði.“
Næsti fundur hópsins er um miðjan
mars en þeir 25 sem eru í hópnum
starfa í sjálfboðavinnu. „Það er gott
að vera sjálfboðaliði vegna stöðu
okkar gagnvart samninganefndinni,
ráðherra og ríkisstjóm, en það er
líka gefandi að fá að vinna þegn-
skylduvinnu í þessu stóra máli
þjóðarinnar," sagði Kristján.
Auk formannsins, Salvarar Nordal,
eru Guðni Th. Jóhannesson, sagn-
fræðingur, og Ágúst Sigurðsson,
lektor Landbúnaðarháskóla íslands,
varaformenn. Aðrir í hópnum em
m.a. Aðalheiður Héðinsdóttir, for-
stjóri Kaffitárs, Aldís Hafsteins-
dóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, Ari
Teitsson, bóndi og fyrrverandi for-
maður Bændasamtaka Islands, Ást-
hildur Sturludóttir, bæjarstjóri í
Vesturbyggð, Björgólfur Jóhanns-
son, forstjóri Icelandair Group,
Björn Snæbjörnsson, formaður
verkalýðsfélagsins Einingar Iðju,
Guðrún Lárusdóttir, útgerðarmaður
og framkvæmdastjóri Stálskipa,
Hanna Katrín Friðriksson, forstöðu-
maður viðskiptaþróunar Icepharma,
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, for-
maður Landssambands eldri borg-
ara, Kári Jónasson, fyrrverandi
fréttastjóri RÚV, Knútur Rafn
Ármann, ferðaþjónustu- og garð-
yrkjubóndi, Friðheimum, Kolbrún
Halldórsdóttir, leikstjóri og forseti
Bandalags íslenskra listamanna,
Kristján Björnsson, sóknarprestur í
Vestmannaeyjum, Lilja Dögg
Jónsdóttir, hagfræðingur og fyrr-
verandi formaður stúdentaráðs
Háskóla fslands, Margrét Pála Ól-
afsdóttir, leikskólakennari og for-
stöðumaður Hjallastefnunnar, Marta
Miijam Kristinsdóttir, háskólanemi
og formaður AUS, alþjóðlegra ung-
mennaskipta, Peter Weiss, forstöðu-
maður Háskólaseturs Vestfjarða,
Ragnar Arnalds, fyrrverandi al-
þingismaður og ráðherra, Sigríður
Halldórsdóttir, prófessor á heil-
brigðisvísindasviði Háskólans á
Akureyri, Stefán Þór Helgason,
háskólanemi og fyrrverandi varafor-
maður stúdentaráðs Háskóla íslands
og Stefán Bogi Sveinsson, lög-
fræðingur og forseti bæjarstjómar
Fljótsdalshéraðs.
Júlíus Ingason I
Julius @ eyjafrettir.is