Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 08.03.2012, Page 9

Fréttir - Eyjafréttir - 08.03.2012, Page 9
Fréttir / Fimmtudagur 8. mars 2012 10 Skemmtilegir og skapandi dagar í FÍV Eins og Emma rekur hér í viðtal- inu við hliðina, var nóg um að vera á Skapandi dögum í Fram- haldsskólanum í Vestmanna- eyjum í síðustu viku. Þegar blaðamaður renndi við, bæði á miðvikudag og fimmtudag, var líf og fjör í skólanum, tónlistin ómaði frá tónlistarhópnum og í loftinu var angandi matarlykt frá matarhópnum. Skapandi dagar hétu áður Opnir dagar og þar áður Opin vika en áherslu- breytingin nú er af hinu góða. Nú fá nemendur einingu ef þeir taka þátt og eins og Emma segir, þá skapa þau meira nú en áður. Skapandi dögum lauk svo með árshátíð skólans, sem var haldin síðastliðið föstudagskvöld í Höllinni. Arshátíðin bar þess greinileg merki að áherslubreyt- ing hefur orðið á Skapandi dögum því árshátíðin í ár var afskaplega glæsileg. Nemendur mættu allir í sínu fínasta og starfsfólk skólans fjölmennti einnig, sem er alltaf ánægjulegt. Einsi kaldi sá um matinn af sinni alkunnu snilld og skemmtiatriðin voru ágæt. Atriði tónlistar- hópsins stóð þó upp úr en hópurinn flutti fjögur lög og gerði það hreint frábærlega og sýndi að í Framhaldsskólanum er mjög hæfileikaríkt ungt fólk. Auk þess voru sýnd myndbönd, ljósmyndir og svo var óvænt skemmtiatriði þegar drengja- bandið Boyschool Drama kom fram. Hápunkturinn var svo verðlaunaafhending en ekki voru reyndar allir sáttir við verðlaunin sem þeir fengu, sem er að mörgu leyti skiljanlegt. En allt er þetta gert í gamni og enginn gekk sár frá. Árshátíðinni lauk svo með fjörugu balli þar sem Gummi Tóta, DJ Henok og hljómsveitin Agent Fresco héldu uppi stuðinu langt fram á nótt. Herra ogfrúFÍV, knattspyrnumennirnir Kjartan Guðjónsson ogSóley Guðmundsdóttir. GunnarKarl Haraldsson tók sérfrífrá endurhæfingu ogskaust á árshátíð FÍV en með honum á myndinni er Grímur Sölvason. Rósa Sólveig Sigurðardóttir ogRakel Hlynsdóttir voru flottar í útvarpinu. Drengjasveitin Boyschool Drama tók sig vel út og strákarnir í bandinu voru flottir, þangað til þeirfóru að syngja. Skemmtilegt atriði þar sem gert var grín að væmnum drengjasveitum. Hjörtur Friðriksson verður fulltrúi FÍV í Söngvakeppni framhaldsskólanna Kristín Sólveig Kormáksdóttir ogHaukur Jónsson sáu til þess að enginn fór svangur út, ekki einu sinni þau sjálf. Arna Hlín Ástþórsdóttir var ekki alveg viss með deigið. Árshátíðarhópi Skapandi daga tókst vel upp. Þau sáu um aðfæra Höllina í árshátíðarbúning en þema árshátíðarinnar í ár vargamlar bíómyndir. Aníta Marý málaði þessa flottu mynd afBob Marley.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.