Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 08.03.2012, Page 11

Fréttir - Eyjafréttir - 08.03.2012, Page 11
Fréttir / Fimmtudagur 8. mars 2012 11 PÉTUR JÓHANN OG ÞORSTEINN - Við Pétur erum ólíkir en miklir félagar og þetta smellur ágætlega saman, segir Þorsteinn. Pétur Jóhann og Þorsteinn í Höllinni á föstudaginn: Eins og að standa ofan á snjóskriðu -Krafturinn er svo mikill, segir Þorsteinn um sal sem er í hláturskrampa - Spenntur að koma til Eyja Pétur Jóhann Sigfússon og Þor- steinn Guðmundsson verða með uppistand í Höllinni næsta föstu- dagskvöld, 9. mars. Þeir félagamir hafa verið með skemmtunina Steini, Pési og gaur á trommu, í Gamla bíó undanfarið, auk þess sem þeir hafa sýnt uppistandið á Akureyri. Og nú liggur leiðin til Eyja en þeir félagar skemmtu hér fyrir um það bil tveimur árum, fylltu þá Höllina og það má alveg búast við svipaðri stemningu núna. „Við erum búnir að vera með þetta uppistand í Gamla bíó frá því í haust, erum komnir upp í tuttugu sýningar og vorum með tvær sýningar á Akureyri um þar síðustu helgi,“ sagði Þorsteinn þegar Fréttir náðu tali af honum á þriðjudag en þá var hann staddur á Isafirði og hafði skemmt menntskælingum í hádeginu. „Þetta er hreint og tært uppistand. Við Pétur skiptumst á að koma fram og milli atriða sér Helgi Svavar Helgason, tónlistarmaður, um að hrista upp í liðinu og er með trommusett sem hann hefur sér- hannað fyrir bakið á sér og labbar um með það. Þið Pétur Jóhann hafið áður skemmt saman íEyjurn? „Ég var að skemmta hjá ykkur fyrir ári og svo vorum við Pétur Jóhann að skemmta saman fyrir tveimur eða þremur árum síðan. Þetta er auðvitað nýtt prógramm og öðruvísi. Þetta er efni sem við unnum hvor í sínu lagi og við höfum safnað í sarpinn, þetta eru brandarar og pæling um lífið og tilveruna. Við Pétur erum ólíkir en miklir félagar og þetta smellur ágætlega saman. Við breyttum heilmiklu þegar við skemmtum á Akureyri og sýningin þróast svolítið eftir stöðunum sem við skemmtum á, fólkinu og svo því sem er að gerast í þjóðfélaginu hverju sinni þó svo að kjaminn sé sá sami,“ sagði Þorsteinn og var því næst spurður hvort það væri mikill munur á því hvar hann væri að skemmta. „Það er alltaf munur og margir þættir spila þar saman. Það er munur á því að skemmta klukkan átta eða ellefu að kvöldi, á fimmtu- degi eða laugardegi og svo fram- vegis. Það hefur alltaf verið góð stemning hjá okkur og við höfum ekki lent í neinum vandræðum með salinn. Því fleiri sem eru í salnum því meira gaman fyrir áhorfendur og þegar salurinn fer af stað og er í hláturskrampa þá er það svo auð- velt fyrir okkur. Það er eins og að standa ofan á snjóskriðu, krafturinn er svo mikill og það hefur gerst nokkrum sinnum í þessari sýn- ingu,“ sagði Þorsteinn og var spenntur að koma til Eyja og skemmta Eyjamönnum í Höllinni en uppistandið byrjar klukkan átta. Guðbjörg Sigurgeirsdóttir I gudbjorg @ eyjafrettir. is Þær voru flottar konurnar sem mættu í kaffi í Vinaminni í vikunni, allar rauðklæddar. Þetta eru konur sem starfað hafa á Sjúkrahúsinu og hittast reglulega og viðhalda þannig tengslum. s Björn Asgeir sigurvegari í Eldvarnagetrauninni Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna efndi til árlegs eld- vamaátaks í nóvember 2011. Öll átta ára böm hér í Eyjum komu á slökkvistöðina og voru frædd um eldvamir og öryggismál og þeim síðan gefinn kostur á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni 2011. Góð þátttaka var í Eldvamagetrauninni, sem einnig birtist í barnablaði Morgunblaðsins. Nöfn 33 bama víðs vegar af landinu hafa verið dregin úr innsendum lausnum. Eitt bamanna var héðan úr Eyjum, Bjöm Asgeir Kristjánsson. Hann mætti á slökkvistöðina til að taka við viðurkenningu og verðlaunum 3. mars 2012. „Við í Slökkviliði Vestmannaeyja viljum þakka öllum 8 ára bömum í Eyjum fyrir veitta aðstoð í eldvömum á hcimilum," segir í fréttatilkynn- ingu frá Slökkviliði Vestmannaeyja en því stýrir Ragnar Baldvinsson. Frekar rólegt hjá lögreglu: Skemmdarverk við Landakirkju Rólegt var hjá lögreglunni í síðustu skemmtistöðum bæjarins enda mikil vinna til sjós og lands. Eitthvað þurfti þó lögreglan að aðstoða fólk vegna ölvunará- stands. Einn þurfti aðstoða við að komast undir læknishendur þar sem sauma varð hann en hann hafði dottið og skorið sig illa á augabrún. Tilkynnt var um að skemmdir á ljóskösturum á lóð Landakirkju um helgina. Sparkað hafði verið í þá og gler og pemr brotnar. Þeir sem geta gefið upplýsingar um geranda eru beðnir að láta lögregluna vita. viku og frekar fámennt á Matreiðslumaður Norðurlanda 2012: Gísli Matthías meðal keppenda Gísli Matthías Auðunsson, sem ætlar að opna veitingastað í Magnahúsinu, keppir fyrir hönd Islands um titilinn Matreiðslumaður Norðurlanda 2012. Keppnin verður í Heming í Danmörku þriðjudaginn 20. mars. Fimm matreiðslumenn frá öllum Norðurlöndunum keppa auk þess sem hvert land sendir nema eða svein sem ekki er orðinn 23 ára á keppnisdag. Gísli Matthías Auðunsson er 22 ára matreiðslumaður en hann lærði fræði sín á tímabilinu 2008 og útskrifaðist í desember 2011 í Turninum í Kópa- vogi hjá frænda sínum Sigurði Gíslasyni, en Stefán Ingi Svansson er meistari hans. Af Eyjar.net. Vaxtasamningur Suðurlands: Styrkir til eflingar nýsköpun og samkeppnishæfni Vaxtarsamningur Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrk til upp- byggingar klasa og framgangs rannsóknar og þróunar á sviði matvæla, ferðaþjónustu og iðnaðar á Suður-landi. Óskað er eftir umsóknum um sam- starfsverkefni í það minnsta þriggja fyrirtækja sem tengjast nýsköpun með skýrri verðmætasköpun. Starfsvæði Vaxtarsamnings Suðurlands markast af Hellisheiði í vestri og eystri mörkum Sveitarfélagsins Horna- fjarðar. Gerð er krafa til þess að verkefnin styðji atvinnulíf og samfélag svæðisins. I boði eru 30 milljónir. Mótframlag verkefnisins þarf að vera að lágmarki 50%. Verkefni þar sem fyrirtæki og stofnanir koma saman og vinna að rannsóknum, þróun og fræðslu njóta alla jafna forgangs. Að auki verður horft til þess að verkefnið skili ábata og störfum út í samfélagið. Af Eyjar.net.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.