Fréttir - Eyjafréttir - 08.03.2012, Qupperneq 14
14
Fréttir / Fimmtudagur 8. mars 2012
Anægjulegt stefnumót við Laxness
-I boði Sólveigar Unnar, Kittyar Kovács, Astu Steinunnar og Balázs Stankowsky
LISTAFÓLKIÐ sem gladdi gesti í Vinaminni á föstudagskvöldið, Ásta Steinunn, Sólveig Unnur, Balázs og Kittý.
yj
Það er ekki sjálfgefið að ekki stærri bær en
Vestmannaeyjar geti teflt fram listafólki í þeim
klassa sem tróð upp í Vinaminni þetta kvöld.
Sólveig Unnur er frábær söngkona, sama hvar
í tónlist hún tyllir niður fæti, Kittý og Balázs eru
líka sannkölluð himnasending fyrir okkur og
góð viðbót við tónlistarflóru Vestmannaeyja.
Halldór Laxness er ekki að þvælast
fyrir manni dags daglega, af sem
áður var þegar Nóbelsskáldið
gnæfði yfir allt og alla í íslensku
þjóðfélagi. Var það bæði verðskuld-
að og minna verðskuldað enda
afköstin ótrúleg sem er ávísun á
misjöfn gæði. Það var því gaman
að fá tækifæri til þess á föstudags-
kvöldið að rifja upp gömul kynni á
veitingastaðnum Vinaminni.
Ég geri ráð fyrir að íslandsklukk-
an sé ennþá kennd í skólum og
kannski Sjálfstætt fólk þannig að
þráðurinn slitni ekki. Góðs viti er
að Heimsljós var jólaleikrit Þjóð-
leikhússins og gengur enn.
Þetta stefnumót við karlinn í Vina-
minni var skemmtilegt uppbrot á
hversdagsleikanum. Það var reynd-
ar ljóðskáldið Laxness en ekki rit-
höfundurinn sem þama var í boði
þriggja kvenna og eins karls sem
kom inn á lokasprettinum.
Viðfangsefnið var lög við ljóð
Laxness og þar voru mættar Sól-
veig Unnur Ragnarsdóttir, söng-
kona, Kitty Kovács, hljómborðs-
leikari og Ásta Steinunn Ástþórs-
dóttir sem rakti ævi Halldórs og
sagði frá tilurð ljóðanna. Það var
svo í síðustu lögunum sem Balázs
Stankowsky mætti með fiðluna.
Ég segi það núna og á vonandi
eftir að segja það oft; það er ekki
sjálfgefið að ekki stærri bær en
Vestmannaeyjar geti teflt fram
listafólki í þeim klassa sem tróð
upp í Vinaminni þetta kvöld. Og
það verður aldrei ofsagt að Sólveig
Unnur er frábær söngkona, sama
hvar í tónlist hún tyllir niður fæti,
Kittý og Balázs em líka sannkölluð
himnasending fyrir okkur og góð
viðbót við tónlistarflóru Vest-
mannaeyja.
Skilningurinn var til staðar
En það þarf meira til en að syngja
og spila á hljóðfæri, tilfinning og
skilningur á því sem flutt er þarf
að vera til staðar, eigi allt að ganga
upp. Og það vantaði ekki hjá lista-
fólkinu þetta kvöld. Sólveig Unnur
og Kittý náðu líka einstaklega vel
saman og leyndi sér ekki að mikil
vinna lá að baki.
Framlag Ástu Steinunnar var líka
frábært og hefur kostað mikla
vinnu. Allt þetta hleypti huganum á
flug og rifjaði upp stundir með
Halldóri sem ná langt aftur enda
mamman Laxnessaðdáandi mikill.
Og vissulega hafði hann áhrif,
kom manni niður á jörðina í við-
horfi til persónanna í Islendinga-
sögunum með Gerplu. Dró mann í
gegnum dekksta kaflann í sögu
þjóðarinnar í Islandsklukkunni þar
sem Jón Hreggviðsson tók hlut-
skipti sínu af æðruleysi með hæfi-
legri blöndu af kaldhæðni sem
kannski er sá eiginleiki sem varð til
að bjarga íslensku þjóðinni í gegn-
um það helvíti á jörð sem Island
var fyrir ekki svo löngu síðan.
Og ekki var hún falleg myndin
sem dregin er upp í Sjálfstæðu fólki
þar sem Bjartur í Sumarhúsum reið
ekki feitum hesti frá samskiptum
sínum við íhaldið, kaupfélagsvaldið
og óblíða náttúru. Ástandið var
skelfilegt hjá almenningi fyrir réttri
öld þegar sagan gerist. Þá var málið
að drepast ekki úr hor og rétt eins
og aðrar skepnur hírðist fólkið í
torfkofum sem var hinn dæmigerði
íslenski sveitabær. Það sem kallað
er kreppa í dag verður hálf hjákát-
legt í þeim samanburði og þeir sem
sjá þennan tíma í ljóma vaða villur
vegar.
Gaf út sína fyrstu bók 17
ára
Allt kemur þetta líka fram í kvæð-
um hans sem hafa kveikt neista hjá
íslenskum tónskáldum sem hafa
samið tónperlur sem sumar eru
með því besta í íslenskum tónbók-
menntum.
„Halldór Kiljan Laxness átti
gríðarlega viðburðaríka ævi. Ekki
verður hægt að fara í gegnum öll
þau ár sem hann lifði eða öll þau
verk sem eftir hann liggja hér í
kvöld enda yrðum við þá héma til
morguns. En reynt verður að stikla
á stóru um ævi hans og verk og svo
hvetjum við ykkur að sjálfsögðu til
þess að lesa hans frábæru bækur og
skáldverk," sagði Ásta Steinunn en
Halldór Laxness fæddist þann 23.
apríl 1902. Hann gaf út fyrstu bók
sína, Bam náttúmnnar, 1919 þá
aðeins 17 ára gamall.
Of langt mál yrði að telja upp það
sem flutt var þetta kvöld en allt
small þetta saman, Ásta Steinunn
náði að segja sögu Laxness þannig
að úr varð heildstæð mynd af
manninum Halldóri Killjan Lax-
ness sem kom ótrúlega víða við.
Áður hefur verið minnst á framlag
tónlistarfólksins sem heillaði gesti í
Vinaminni þetta kvöld. Þekktustu
lögin em, Hvert örstutt spor eftir
Jón Nordal sem er úr leikritinu
Silfurtúnglið sem var fmmsýnt
1954.
Ekki vom allir sáttir við kveðskap
Halldórs og þegar Uglingurinn í
skóginu birtist voru viðbrögðin þau
að, Halldór var sviptur skáldalaun-
um. Við það samdi Jórunn Viðar
frábært lag. Sagði Halldór að það
hefði orðið sitt dýrasta kvæði.
Maístjaman er eitt kunnasta ljóð
Halldórs og sinn þátt í því á frábært
lag Jóns Ásgeirssonar og það var
lokalagið þetta kvöld utan upp-
klappslagsins.
Þar með lauk frábærri kvöldstund
þar sem undirritaður naut frábærs
félagsskapar tveggja stelpna, Freyju
á Nýlendu og Steinunnar Einars
myndlistarkonu.
Helga Jóns og Amór, sem eiga og
reka Vinaminni, eiga heiður skilið
fyrir framtakið. Og eftir því sem
mér skilst er veislunni ekki lokið
því eftir em tónleikar þar sem lög
við ljóð Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi og Tómasar Guðmunds-
sonar verða tekin fyrir. Tilhlökk-
unarefni. Omar Garðarsson I
omar@ eyjafrettir. is
Kröftug æsku-
lýðsmessa
Það var sleginn óvenjulegur tónn
í Landakirkju á æskulýðsdegi
þjóðkirkjunnar á sunnudaginn.
Þar hljómuðu lög U2 sem með
öllum sínum trúarlegu tilvitnun-
um eiga yel heima í kirkju.
Leikhúsbandið, Gísli Stefáns-
son, Birgir Nfisen og Högni
Hilmisson ásamt söngvumnm
Sísí Ástþórsdóttur, Birki Högna-
syni og Sindra Frey Guðjónssyni
fluttu lögin sem var raðað upp
eins og í venjulegri messu, Éimm
fyrir predikun og tvö á eftir.
Þama hljómuðu lögin Wake Up
Dead Man, Sunday Bloody Sun-
day, All I Want Is You, Still
Haven’t Found, Pride (In the
Name of Love) fyrir predikun og
One og With or Without You að
henni lokinni.
Gísli var þama í tveimur hlut-
verkum, sem tónlistarmaður og
æskulýðsfulltrúi Landakirkju.
Flutti hann bráðskemmtilega
predikun þar sem hann lagði
áherslu á að kirkjan er vettvangur
fyrir ungt fólk. Krakkar úr Æsku-
lýðsfélaginu lásu úr ritningunni
og séra Guðmundur Öm þjónaði
fyrir altari.
Gestir vom 126 og kunnu að
meta það sem þama var boðið
upp á.
KRAKKAR úr Æskulýðsfélagi Landakirkju lásu upp úr Ritningunni.