Fréttir - Eyjafréttir - 08.03.2012, Page 15
Fréttir / Fimmtudagur 8. mars 2012
15
Skák: íslandsmót skákfélaga
B-sveitin í 2. deild
- A-sveitin í þriðja sæti og C-sveit áfram í 3. deild
PÁLL Magnússon, útvarpsstjóri og Karl Gauti Hjaltason tefldu hlið
við hlið fyrir hönd C-sveitar Taflfélags Vestmannaeyja.
íþróttir
Knattspyrna:
Tryggvi frá í
3-6 mánuði
íþróttamaður ársins í Vestmanna-
eyjum, knattspyrnumaðurinn
Tryggvi Guðmundsson þarf að
taka sér hvfld frá knattspyrnu-
iðkun næstu þrjá til sex mánuðina
að því að fram kemur á Vísi.is.
Þar segir að Tryggvi hafi fengið
svokallaðan bláæðarblóðtappa í
kálfann og þurfi að taka sér hvfld.
Hann muni því ekki spila knatt-
spymu fyrr en í júní, jafnvel ekki
fyrr en í september.
„Ég var búinn að vera slæmur
aftan í kálfanum og hef ekkert
skánað þrátt fyrir mikla sjúkra-
þjálfun. Þá fór ég í ómskoðun þar
sem tappinn kom í ljós,“ sagði
Tryggvi í samtali við Vísi.is en
Tryggvi segist vera kominn á
blóðþynningarlyf.
Elísa í byrjun-
arliði íslands
Elísa Viðarsdóttir, leikmaður ÍB V,
var í fyrsta sinn í byrjunarliði
íslenska kvennalandsliðsins í
knattspyrnu, þegar liðið lék gegn
Kína í Algarve Cup í Portúgal.
Elísa hafði áður komið inn á sem
varamaður gegn Þýskalandi og
Svíþjóð en Elísa stóð sig svo vel í
leiknum gegn Kína að hún hélt
sæti sínu í byrjunarliðinu í næsta
leik, gegn Dönum. Systir hennar,
Margrét Lára var einnig í byrjun-
arliðinu gegn Kína en þurfti að
draga sig úr hópnum vegna
meiðsla, í leiknum gegn Dönum.
Guðmundur
til reynslu hjá
Hoffenheim
Guðmundur Þórarinsson, leik-
maður ÍBV er þessa dagana
staddur hjá þýska úrvalsdeildar-
liðinu Hoffenheim. Guðmundur
fór út á mánudaginn og mun
dvelja hjá liðinu í um viku þar
sem hann reynir að heilla forráða-
menn félagsins.
Guðmundur hefur verið í ÍBV í
rúmt ár og lék yfirleitt sem
sóknartengiliður síðasta sumar. f
æfingaleikjum í vetur hefur hann
hins vegar verið í hlutverki
vamartengiliðs og staðið sig vel í
því hlutverki. Guðmundur kom
til ÍBV frá Selfossi og á að baki
20 landsleiki með U-17, U-19 og
U-21 árs landsliðum íslands.
Getraunir hjá KFS:
9 milljón króna
vinningur
Sex aðilar sem tippa hjá Hjalta
Kristjánssyni, getraunastjóra og
þjálfara KFS, duttu heldur betur í
lukkupottinn um helgina. Seðill
sem þeir sameinuðust um reyndist
vera með 13 rétta en aðeins tveir
seðlar á landinu náðu því. Vinn-
ingurinn var tæpar 9 milljónir en
það var Hjalti sjálfur sem tippaði
fyrir hópinn.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta
sinn sem 13 réttir koma upp á
seðli hjá KFS. Alls gerðist það
tólf sinnum á síðasta ári en vinn-
ingurinn nú er sá langstærsti sem
hefur komið til félagsins. Þeim
sem vilja styrkja KFS er bent á að
getraunanúmer félagsins er 904.
Um helgina lauk íslandsmóti
skákfélaga, en seinni hluti þess
var haldinn á Selfossi. Taflfélag
Vestmannaeyja sendi þrjár sveitir
til leiks og tefldi A-sveitin í efstu
deild, en þar hefur félagið verið í
toppbaráttu um langt skeið. B- og
C- sveitirnar voru í 3. deild sem er
næstneðsta deildin.
Skemmst er frá því að segja að A-
sveitin lenti í þriðja sæti með 34
vinninga af 56 mögulegum af þeim
8 sveitum sem keppa í efstu deild.
Lokastaðan í 1. deild
1. Taflfélag Bolungarvíkur 42,5
vinninga, 12 stig.
2. Taflfélagið Hellir 35 vinninga 8,
stig.
3. Taflfélag Vestmannaeyja 34 vinn-
inga, 10 stig.
A-sveit TV í seinni hlutanum var
skipað eftirtöldum: Jon Ludvig
Hammer (2615), Helgi Ólafsson
(2523), Henrik Danielsen (2521),
Sebastian Maze (2500), Ingvar
Jóhannesson (2333), Kristján
Guðmundsson (2277), Þorsteinn
Þorsteinsson (2237) og Bjöm Ivar
Karlsson (2231).
Árangur Björns Ivars Karlssonar
vakti athygli en hann hlaut 6 vinn-
inga úr 7 skákum en Helgi Ólafsson
náði einnig góðum árangri, 4,5
vinninga í 6 skákum.
í 3. deild var háð mikil barátta og
var B-sveit Taflfélags Vestmanna-
eyja í toppbaráttunni, en C-sveitin
sem var nýkomin upp í deildina háði
baráttu um að halda sæti sínu þar.
Alls keppa sextán sveitir í deildinni
og var hart barist um öll sæti.
Að lokum fór þannig að B-sveitin
sigraði í deildinni og teflir því í 2.
Á morgun, föstudag, tekur
kvennalið ÍBV á móti efsta liði N1
deildarinnar, Fram, í Eyjum.
Leikurinn hefst klukkan 18:00 en
ÍBV er í harðri baráttu um þriðja
sæti deildarinnar. Sigur gegn
efsta liðinu myndi hjálpa Iiðinu
gífurlega í þeirri baráttu.
ÍBV lagði FH að velli í síðustu viku
19:20 en þrátt fyrir að FH sé neðst í
deildinni, var leikurinn Jafn og
spennandi allan tímann. IBV varð
þó fyrir áfalli þegar leik var lokið
því annar dómari leiksins ákvað þá
að gefa Ivana Mladenovic, línu-
manni ÍBV, rautt spjald fyrir litlar
sakir. Samkvæmt heimildum Frétta
var dómgæslan í leiknum afar léleg
og sagði Mladenovicic: „Good ref-
eree“ og klappaði fyrir dómaranum
eftir að lokaflautið gall. Það sem
verra er, leikmaðurinn fær leikbann
þar sem um var að ræða svokallað
rautt spjald með skýrslu, sem þýðir
umsvifalausteinnleikíbann. Sömu
heimildir herma að forsvarsmenn
ÍBV hafi mótmælt dómnum harð-
lega en leikbannið var staðfest á
þriðjudag.
Mörk IBV: Ester Óskarsdóttir 8,
Drífa Þorvaldsdóttir 3, Grigore
Ggorgata 3, Marian Tbojovic 2,
Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 1,
Hildur Dögg Jónsdóttir 1, Ivana
Mladenovic 1, Aníta Elíasdóttir 1.
Stuðningurinn skiptir máli
En leikurinn gegn Fram verður
vafalaust erfiður, ekki síst þar sem í
liðið vantar línumanninn sterka sem
hefur spilað vel í undanförnum
deild að ári. C-sveitinni tókst svo
með naumindum að forða sér frá
falli. Það er því ljóst að á næsta ári
verður Taflfélagið með sveitir í
öllum deildum íslandsmótsins, en
þeim árangri hefur félagið aldrei
náð fyrr.
Lokastaðan í 3. deild
1. Taflfélag Vestmannaeyja B-sveit
30, 5 vinninga, 12 stig.
2. Taflfélag Garðabæjar A-sveit
30,5 vinninga, 11 stig.
3. Selfoss A-sveit 24,5 vinningar,
10 stig.
Taflfélag Vestmannaeyja C-sveit 20
vinningar, 5 stig.
Með B sveitinni tefldu þeir Björn
Freyr Björnsson (2164), Bjami
leikjum. „Jú þetta verður erfitt,
sérstaklega þar sem við höfum ekki
línumanninn okkar. En við getum
alveg unnið þær, ég trúi því,“ sagði
Ester Óskarsdóttir í samtali við
Fréttir. „HK er búið að hjálpa okkur
aðeins í þessari baráttu um 3. sætið
með því að tapa en við verðum samt
að halda okkar striki og vinna alla
þá leiki sem við getum. Við getum
alveg unnið Fram en þá þurfum við
góðan stuðning áhorfenda, sem hafa
verið frábærir í allan vetur.“
Ætlar sér í lokahópinn
Ester var í vikunni valin í 19 manna
æfingahóp íslenska A-landsliðsins í
handbolta en íslenska liðið leikur
Hjartarson (2093), Ægir Páll Frið-
bertsson (2194), Nökkvi Sverrisson
(1933), Tómas Veigar Sigurðarson
(1938), Sverrir Unnarsson (1928),
Kjartan Guðmundsson (1993),
Andri Valur Hrólfsson og Mikael
Starosta.
Sverrir Unnarsson gerði sér lítið
fyrir og vann allar sjö skákir sínar en
sonur hans, Nökkvi fékk 5 vinninga
af 7. Þá fékk Tómas Veigar 6 af 7
mögulegum vinningum.
í C-sveitinni tefldu þeir Óli Á.
Vilhjálmsson, Lúðvík Bergvinsson,
Páll Ammendrup, Daði Steinn
Jónsson, Kristófer Gautason, Stefán
Gíslason, Gunnar Salvarsson, Óli
Hermannsson, Páll Magnússon og
Karl Gauti Hjaltason.
heima og heiman gegn Sviss í lok
mánaðarins. Ester hefur ekki áður
verið valin í landsliðshóp Islands.
„Jú, þetta kom skemmtilega á óvart
en mér fannst ég auðvitað eiga þetta
skilið. En þetta hefur verið draumur
lengi, að komast að í landsliðinu en
þetta er 19 manna æfingahópur sem
verður svo skorinn niður í 16 leik-
menn fyrir leikina úti. Ég auðvitað
ætla mér að komast í lokahópinn en
samkeppnin er hörð. Ætli við séum
ekki þrjár eða fjórar sem erum að
berjast um skyttuhlutverkið en svo
gæti þjálfarinn líka notað mig sem
leikstjórnanda. Ég get allavega
spilað báðar stöðumar,“ sagði Ester.
íþróttir
Handbolti:
Öruggur
sigur á botn-
liðinu
Karlaliði ÍBV urðu ekki á nein
mistök gegn botnliði 1. deildar-
innar í handbolta, Fjölni, þegar
liðin áttust við í Eyjum um síðustu
helgi. Eyjamenn vom sterkari
allan tímann og unnu sannfærandi
sigur 28:18 eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 14:8 ÍBV í vil.
Magnús Stefánsson var at-
kvæðamikill í sóknarleik IBV og
þá átti Einar Gauti Ólafsson góða
innkomu inn í lið IBV. Einar
Gauti hefur verið frá vegna
meiðsla í allan vetur en mætti
sterkur til leiks og skoraði fjögur
mörk á síðustu tíu mínútum
leiksins. Nú er þremur umferðum
af fjómm lokið í 1. deildinni og
fimm leikir eftir. Eins og sjá má á
stöðunni eiga Eyjamenn enn
möguleika á að ná þriðja sætinu
en annað sætið er eins og er full
langsótt, hvað þá það efsta. Það
gæti verið gott að enda í þriðja
sæti þar sem liðin í öðru og þriðja
sæti mætast í umspilinu um laust
sæti úrvalsdeild í vor og hins
vegar næstneðsta liðið í úrvals-
deild og liðið í fjórða sæti.
Heimaleikjaréttur ÍBV í um-
spilinu virðist því vera úr sögunni.
Næsti leikur ÍBV er gegn ÍR á
útivelli á laugardag en strákamir
taka svo á móti Selfossi í Eyjum á
þriðjudag.
Mörk ÍBV: Magnús Stefánsson
7, Pétur Pálsson 5, Einar Gauti
Ólafsson 4, Theodór Sigurbjörns-
son 4, Grétar Þór Eyþórsson 4,
Sigurður Bragason 2, Brynjar
Karl Óskarsson 1, Vignir Stefáns-
son 1.
Varin skot: Kolbeinn Amarson
11, Haukur Jónsson 4.
1. deild karla
ÍR 15 10 3 2 446:399 23
Víkingur 15 10 1 4 395:350 21
Stjaman 15 8 2 5 431:399 18
ÍBV 15 8 0 7 415:393 16
Selfoss 15 4 4 7 389:383 12
Fjölnir 15 0 0 15 298:450 0
Framundan
Fimmtudagur 8. mars
Kl. 21:00 Víkingur R.-ÍBV
Lengjubikar karla, fótbolti.
Föstudagur 9. mars
Kl. 17:50 Haukar 1-ÍBV
4. flokkur karla, AB, handbolti.
Kl. 20:00 Fylkir-ÍBV
2. flokkur kvenna, fótbolti.
Laugardagur 10. mars
Kl. 11:00 Breiðablik-ÍBV
Meistaraflokkur kvenna, fótbolti.
Kl. 13:00 ÍBV-Fram
N1 deild kvenna, handbolti.
Kl. 13:00 ÍR-ÍBV
1. deild karla, handbolti.
Kl. 12:00 Afturelding-ÍBV
5. flokkur karla, ABCD, fótbolti.
Kl. 13:30 Fylkir-ÍBV
4. flokkur kvenna, handbolti.
Kl. 14:00 KA 1-ÍBV
3. flokkur karla, handbolti.
Kl. 14:00 Stjarnan-ÍBV
2. flokkur karla, fótbolti.
Kl. 15:00 HK-ÍBV
4. flokkur karla, AB, handbolti.
Kl. 15:30 FH 2-ÍBV
3. flokkur kvenna, fótbolti.
Sunnudagur 11. mars
Kl. 13:00 ÍBV-Selfoss
4. flokkur kvenna, handbolti.
Kl. 13:00 ÍBV-Grótta
5. flokkur kvenna, AB, fótbolti.
Kl. 16:00 Fjölnir-ÍBV
2. flokkur kvenna, fótbolti.
Þriðjudagur 13. mars
Kl. 19:30 ÍBV-Selfoss
1. deild karla, handbolti.
I\I1 deild kvenna: FH - ÍBV 19:20
Getum vel unnið Fram
- Segir Ester Óskarsdóttir sem var valin í landsliðið í vikunni
ESTER Óskarsdóttir á ferðinni í leik gegn HK á dögunum.