Morgunblaðið - 31.05.2019, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is
Upptökutæki
Þér er í lófa
lagið
að taka upp
!
Kiðlingar, lömb, folöld og annað
ungviði eru óræk merki þess að það
sé komið sumar. Það var líf og fjör í
Árbæjarhjáleigu þar sem kiðling-
arnir skoppuðu um í sumarblíðunni
og folaldsmerarnar gættu að af-
kvæmunum. Systkinin Áslaug
María og Vilhelm Bjartur Eiríks-
börn koma daglega á bæinn þar
sem mamma þeirra, Hekla K. Krist-
insdóttir, rekur tamningastöð. Þar
er líka fé og geitur - fjórar full-
orðnar huðnur og tveir kiðlingar.
„Geitur eru mjög skemmtilegar,
ég átti ekki von á að þær væru
svona skemmtilegar. Ég er líka
nokkuð viss um að þær eru skyn-
samar,“ sagði Kristinn Guðnason,
bóndi í Árbæjarhjáleigu. Hann
sagði geitfjárrækt vera að breiðast
út. Ullin er nýtt og kjötið en víða
halda menn geitur til mjólkurfram-
leiðslu, enda þykja geitur þurftalitl-
ar og mylknar. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Móðurást Folaldið vék ekki langt frá merinni og hún passaði vel upp á það.
Það er líf og fjör í sveitinni
Hrossahlátur Merarnar gaumgæfðu ljósmynd-
arann og sýndu ýmis svipbrigði. Nokkrar voru ný-
búnar að kasta og gættu þær vel að folöldunum.
Sumarið er komið á Suðurlandi