Morgunblaðið - 31.05.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2019
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
• Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun
• Tilbúið til matreiðslu á 3-4 mínútum
• Afkastamikið og öflugt
• Mjög góð hitastýring á kolum
• Ytra byrði hitnar ekki
• Færanlegt á meðan það er í notkun
• Auðvelt að þrífa
• Má fara í uppþvottavél
• Taska fylgir
• Mikið úrval aukahluta
STÓRSNIÐUGT GRILL
Í GARÐINN, Á PALLINN EÐA Í FERÐALAGIÐ
Í KÖLN
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Þriðja árið í röð eiga Íslandsmeist-
ararnir í handknattleik karla þess
kost að taka þátt í Meistaradeild
Evrópu í handknattleik á næstu leik-
tíð. Íslendingar eru í 17. sæti af 42
þjóðum á styrkleikalista Handknatt-
leikssambands Evrópu, EHF, fyrir
keppnistímabilið 2019/2020 sem gef-
inn hefur verið út og dreift hefur ver-
ið til fjölmiðla í tengslum við úr-
slitahelgi Meistaradeildar Evrópu
sem fram fer í Köln um helgina.
Með tilliti til góðs árangurs ís-
lenskra karlaliða í Evrópumótum fé-
lagsliða á undanförnum árum hefur
Ísland hækkað um þrjú sæti frá síð-
asta ári, úr tuttugasta í sautjánda.
Árangur þriggja síðustu keppnis-
tímabila er talinn til stiga. Íslensk fé-
lagslið hafa gert það gott á síðustu
árum og þess vegna styrkist staða
Íslands verulega.
Eins og áður segir hefur Ísland
styrkt stöðu sína frekar en hitt sem
rennir styrkari stoðum undir að Ís-
landsmeistarar karla eigi að minnsta
kosti þátttökurétt í undankeppni
Meistaradeildarinnar en 27 þjóðir
eiga rétt á að minnsta kosti einu sæti
í forkeppni Meistaradeildar eða
beinu sæti í riðlakeppninni þar sem
28 lið taka þátt, reyndar fleiri en eitt
lið frá sterkustu handknattleiks-
þjóðum Evrópu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins ríkir óvissa um hvort Ís-
landsmeistarar Selfoss taki slaginn
og taki þátt í undankeppni Meist-
aradeildarinnar í haust. Gull og
grænir skógar og peningar á trján-
um í stað laufa fylgja ekki þátttöku í
Meistaradeildinni í handknattleik.
Þvert á móti. Gríðarlegur kostnaður
fylgir henni, ekki síst ef liðum tekst
að komast í riðlakeppnina. Talið er
að kostnaðurinn geti hlaupið á 10-20
milljónum króna, hið minnsta, ef lið
kemst í riðlakeppnina sem stendur
yfir frá hausti og fram yfir áramót.
Þess utan þarf að reiða fram trygg-
ingu fyrir þátttökunni upp á 25.000
evrur, nærri 3,5 milljónir króna. Til
viðbótar er hvorugt keppnishúsið á
Selfossi löglegt til leikja í Meistara-
deildinni. Það þýðir að ef Selfoss
kæmist í aðalkeppnina þá yrði liðið
að leika alla sína heimaleiki í Laug-
ardalshöll, sem þótt ólögleg sé er
eina íþróttahöllin á Íslandi sem lafir
innan leyfiskerfis EHF, en á undan-
þágu eins og margoft hefur komið
fram.
Hvorki Valur sem varð Íslands-
meistari 2017 né ÍBV sem vann tit-
ilinn fyrir ári létu slag standa að taka
þátt í Meistaradeild Evrópu eða í
forkeppninni. Kostnaður þótti of
mikill til þess að hægt væri að rétt-
læta þátttöku. Ekki er reyndar loku
fyrir það skotið nú að Selfoss geti
komist hjá þátttöku í forkeppni
Meistaradeildarinnar vegna þess
hversu ofarlega Ísland er á styrk-
leikalista EHF fyrir komandi tíma-
bil.
Legið er undir feldi
Eftir því sem Morgunblaðið kemst
næst liggja þó forráðamenn Selfoss
undir feldi. Þeir verða að ákveða sig
fyrir mánudaginn 3. júní hvort þeir
taki slaginn í Meistaradeildinni eða
ekki. Sennilegt er að Selfoss taki að
minnsta kosti þátt í EHF-bikarnum
en til þeirrar keppni geta Íslend-
ingar hugsanlega sent tvö lið.
Heimildir Morgunblaðsins herma
ennfremur að FH hafi í sigtinu að
senda karlalið lið sitt til keppni í
EHF-bikarnum en FH á rétt á því.
Valsmenn velta fyrir sér að gera at-
lögu að Áskorendakeppninni sem
þeir komust í undanúrslit í fyrir
tveimur árum. Einnig mun vera
áhugi hjá Val að senda kvennaliðið til
leiks í EHF-keppni kvenna. Valur
varð þrefaldur meistari á nýliðinni
leiktíð í kvennahandboltanum.
Framarar eru sagðir velta þátttöku
fyrir sér í EHF eða í Áskorenda-
keppninni í kvennaflokki. Kvennalið
ÍBV og Hauka sem einnig eiga rétt á
að sækja um þátttöku í Evrópu-
keppni félagsliða munu ekki velta
þeim kosti fyrir sér eftir því sem
næst verður komist.
Ólíklegt er að Selfoss geri
atlögu að Meistaradeild
Ísland styrkir stöðu sína Kostnaður fælir frá Valur hyggst senda tvö lið
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Evrópukeppni? Íslandsmeistararnir á Selfossi eiga þess kost að taka þátt í Evrópukeppni á næsta tímabili.
Ágúst Elí Björgvinsson, landsliðsmarkvörður í hand-
knattleik, varð í gær sænskur meistari með liði sínu
Sävehof. Þrátt fyrir að lenda 1:2 undir í úrslitarimmunni
gegn Alingsås tókst Sävehof að hafa betur, 3:2, og vann
tvo síðustu leikina. Sigurinn kom vafalaust mörgum á
óvart þar sem liðið hafnaði í 7. sæti í deildakeppninni.
Ágúst Elí átti stóran þátt í sigrinum í oddaleiknum
sem fram fór á heimavelli Alingsås en lokatölurnar urðu
27:20. Hann stóð sig virkilega vel í síðari hálfleik, ein-
mitt þegar Sävehof tókst að slíta sig frá andstæðing-
unum eftir jafnan fyrri hálfleik. Ágúst fékk mikið hrós
fyrir frammistöðu sína hjá dagblaðinu Aftonbladet.
Frammistaða Ágústs var athyglisverð, meðal annars fyrir þær sakir að
hann varð fyrir meiðslum í fjórða leiknum en þau reyndust ekki nógu al-
varleg til að halda honum frá keppni.
Ágúst fór til Svíþjóðar þegar hann yfirgaf FH síðasta sumar og byrjar
því ferilinn í atvinnumennsku með glæsibrag. kris@mbl.is
Ágúst Elí sænskur meistari
Ágúst Elí
Björgvinsson
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hafði
leikið 2⁄3 af fyrsta hringnum á Opna
bandaríska meistaramótinu í golfi
þegar blaðið fór í prentun í gær-
kvöldi. Mótið fer fram í S-
Karólínuríki og tímamunurinn því
talsverður.
Ólafía hafði leikið tólf holur á
tveimur yfir pari og var í 65. sæti af
150 keppendum. Hún hóf leik á 10.
teig og var á höggi undir pari eftir
sex holur. Góð byrjun en hún fékk
þrjá skolla eftir það. Skor Ólafíu er
að finna á mbl.is/sport/golf.
Ólafía var á
tveimur yfir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
65. sæti Ólafía Þórunn var fyrir of-
an miðjan hóp keppenda.
Svíþjóð
Alingsås – Sävehof ...............................20:27
Ágúst Elí Björgvinsson varði 8 skot í
marki Sävehof.
Sävehof vann úrslitarimmuna samtals
3:2 og er sænskur meistari.
Danmörk
Undanúrslit:
GOG – Skjern ....................................... 28:25
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 2 mörk
fyrir GOG.
Björgvin Páll Gústavsson varði 1 skot í
marki Skjern. Tandri Már Konráðsson
skoraði ekki fyrir liðið.
GOG sigraði 2:1 samtals og leikur til úr-
slita um danska meistaratitilinn.
Smáþjóðaleikar
Konur:
Lúxemborg – Ísland............................. 48:76
Karlar:
Svartfjallaland – Ísland ....................... 92:86
Argentína
8-liða úrslit:
Córdoba – Regatas............................... 96:85
Ægir Þór Steinarsson gaf 3 stoðsend-
ingar fyrir Regatas.
Staðan er 2:0.
Það er óhætt að
segja að drama-
tíkin hafi verið í
fyrirrúmi þegar
Magni og Hauk-
ar gerðu 1:1 jafn-
tefli í 1. deild
karla í knatt-
spyrnu, Inkasso-
deildinni, á
Grenivíkurvelli í
gær. Eftir
markalausan fyrri hálfleik kom
Kristinn Þór Rósbergsson heima-
mönnum í Magna yfir fljótlega eftir
hlé og allt virtist stefna í fyrsta sig-
ur Magna í sumar.
Í uppbótartíma var Bjarni Aðal-
steinsson í liði Magna sendur í
sturtu með rautt spjald og fljótlega
á eftir jafnaði Daði Snær Ingason
fyrir Hauka og tryggði 1:1 jafntefli.
Magni er enn á botninum eftir
fimm leiki, nú með tvö stig, en
Haukar eru með þrjú stig í 10. sæti.
Dramatík
á Grenivík
Daði Snær
Ingason