Morgunblaðið - 31.05.2019, Side 32

Morgunblaðið - 31.05.2019, Side 32
JULBO SPORTGLERAUGU Opið virka daga frá kl. 10-18 og á laugardögum frá kl. 11-16 NÝTT! Julbo er franskt gæðamerki sem býður úrval af útivistar- og íþróttagleraugum. Eyesland . Grandagarði 13 . sími 510 0110 . www.eyesland.is SHIELD Fjallagleraugu fyrir kröfuharða. Henta vel fyrir fjallahjól, náttúruhlaup og klifur. Högghelt brúnt polariazed gler sem dökknar úr ljósbrúnu yfir í mjög dökkt gler til að verja augun fyrir endurkasti frá snjó og vatni. CHAM Jöklagleraugu með leðurhlífum. Högghelt grátt gler og spegill, til að verja augun fyrir endurkasti frá snjó og vatni. AEROSPEED Stærst í Aero línunni. Ná hátt upp og henta því vel á racerhjólum. Glerið dökknar í sól, frá glæru gleri í dökkgrátt. Ekki næm fyrir hita/kulda og með móðu- og kámuvörn. AEROLITE Mjög nett og létt umgjörð. Sérstaklega hönnuð fyrir hlaupara. Dökknar í sól frá ljósbleiku yfir í brúnt. Skerpir sérstaklega vel á litum í umhverfinu ásamt því að vernda augun vel. AERO Létt og sérstakelga vel hönnuð til að taka á sig vind. Dökknar í sól úr ljósgulu yfir í brúnt. Hentar sérstaklega vel í grænu umhverfi, náttúruhlaupi og fjallahjólreiðum. Reggísveitin Hjálmar leggur nú land undir fót og heldur í tónleika- ferð um landið. Mun hún hafa við- komu á fimmtán stöðum og tilefnið er útgáfa nýrrar plötu. Ferðalagið hefst með tónleikum í kvöld í Al- þýðuhúsinu í Vestmannaeyjum og lýkur 30. júní með tónleikum í Bæj- arbíói í Hafnarfirði. Miðasala og dagskrá má finna á tix.is. Hjálmar halda í tón- leikaferð um landið FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 151. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Það verður við ramman reip að draga hjá íslenska landsliðinu í handknattleik kvenna í umspils- leikjunum tveimur við spænska landsliðið þar sem bitist verður um keppnisréttinn á heimsmeistara- mótinu sem fram fer í Japan í nóv- ember og desember á þessu ári. Fyrri leikur liðanna verður í Malaga í kvöld. »25 Mikilvægur leikur hjá íslenska landsliðinu ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Íslenski dansflokkurinn (Íd) frum- sýndi fyrir viku dans- og tónverkið AIÕN eftir Ernu Ómarsdóttur, list- dansstjóra flokksins, og Önnu Þorvaldsdóttur, tónskáld í Gauta- borg. Gestir tóku verkinu fagn- andi og erlendir fjölmiðlar hafa farið fögrum orðum um sýninguna sem í tilkynningu er sögð hafa slegið í gegn. AIÕN verður sýnt á Íslandi 1. apríl á næsta ári og verð- ur það Sinfón- íuhljómsveit Ís- lands sem flytur það með dans- flokknum í Eldborg. Dans- og tónverki Ernu og Önnu afar vel tekið Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Góður söngur verður gjarnan enn betri með undirleik og þegar Mar- grét Bóasdóttir, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, var spurð hvort hún gæti ekki að- stoðað við að koma gömlu pí- anói úr dánarbúi í góðar hendur hafði hún sam- band við fangels- isyfirvöld á Hólmsheiði, sem þáðu gjöfina með þökkum. Forsaga máls- ins er sú að kona hringdi á Biskupsstofu fyrir skömmu og sagði að í dánarbúi móður sinnar, Ástu Magnúsdóttur, væru orgel og píanó, sem hún hafði óskað eftir að færu á góðan stað þar sem einhver kynni að meta þau. „Erindinu var beint til mín og svo vildi til að ekki alls fyrir löngu fór ég með Kvennakór Háskóla Íslands í fangelsið á Hólmsheiði, þar sem við héldum tónleika fyrir fanga,“ segir Margrét. Ekkert hljóðfæri hafi verið á staðnum og því hafi hún stungið upp á því að píanóið, sem danska fyrirtækið Herm. N. Pet- ersen & Søn framleiddi, færi þang- að. Tónlistarfólk velkomið Halldór Valur Pálsson, forstöðu- maður fangelsanna á Hólmsheiði og Litla-Hrauni, segir að gjöfin komi sér vel. Á hátíðardögum kirkjunnar sé messa og fangelsispresturinn hafi oft með sér hljóðfæraleikara og margir bjóðist til að vera með tón- listarflutning í fangelsinu. „Það hef- ur staðið okkur fyrir þrifum að hafa ekki verið með hljóðfæri á staðn- um,“ segir hann. Grundvallar- hljóðfæri eins og píanó skipti sköp- um. Að sögn Halldórs er ekki síður mikilvægt að geta boðið föngum upp á afþreyingu, sem brýtur upp rútínuna. „Píanóið hjálpar okkur mikið,“ segir hann og bendir á að til dæmis hafi verið fangakór á Litla- Hrauni og erfitt sé að halda úti slík- um kór án hljóðfæris. „Víða er vel- viljað fólk sem hugsar til okkar,“ segir hann og þakkar öllum fyrir hugulsemina. „Píanóið verður stillt á næstunni og ég hef boðist til þess að skipu- leggja vígslutónleika með fangels- isyfirvöldum,“ segir Margrét. Hún bendir á að kórastarf á Íslandi sé mjög blómlegt og kórar séu dugleg- ir að fara á heimili aldraðra og sjúkrahús en ekki sé víst að kór- félagar átti sig á því að þeir séu vel- komnir í fangelsin. „Ég vil því láta það berast til kóra og annarra að hugsa fyrir því á næsta starfsári að það gæti mælst vel fyrir ef þeir bjóðast til þess að heimsækja fang- elsin og syngja.“ Haukur Guðlaugsson, fyrrverandi söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, kom því til leiðar að fangelsið á Kvía- bryggju eignaðist píanó og sr. Gunnar Björnsson hafði milligöngu um að koma píanói á Litla-Hraun. „Ekki er oft hægt að láta aðra njóta gjafmildi alls ókunnugs fólks, en svona „miðilsstarf“ litar hversdag- inn, sem er að öðru leyti ágætur, og það er alltaf ánægjulegt að geta lagt gott til,“ segir Margrét. Morgunblaðið/Eggert Á réttum stað Halldór Valur Pálsson, forstöðumaður fangelsisins á Hólmsheiði, við píanóið í fangelsinu. Fangelsið besti staðurinn  Fangelsið á Hólmsheiði fékk píanó að gjöf úr dánarbúi  Margrét Bóasdóttir sá um að koma því í góðar hendur Margrét Bóasdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.