Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Qupperneq 12
VIÐTAL
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.5. 2019
Á
rið er 1983.
Ólánlegur unglingur liggur í
fleti og nennir fáu. Í kassettu-
tækinu snýst snælda með upp-
tökum úr Lögum unga fólksins.
Það eina sem letipúkinn í rúminu nennir að gera
er að teygja höndina að kassettutækinu til að
ýta á takkann til að spóla til baka þegar laginu
lýkur. Að hlusta á sama lagið aftur og aftur er
best í heimi. Já, og fletta nýjasta Bravo-blaðinu
þar sem hljómsveit, skipuð fimm Bretum frá
Birmingham, prýðir allflestar síðurnar.
Hljómsveitin heitir Duran Duran og lagið er
Hungry Like the Wolf. Veggina prýða plaköt og
myndir sem hafa verið klipptar út úr Bravo-
blöðum, á einu plakatinu stendur Simon Le Bon
söngvari sveitarinnar hvítklæddur, í blárönd-
óttum bol. Gleiður með krosslagða arma, blásið
hár, sítt að aftan og rautt ennisband horfir hann
tregafullum augum beint inn í unglinga-
herbergið í Norðurbænum í Hafnarfirði.
36 árum síðar.........
Árið er 2019.
„Viltu taka símaviðtal við Simon Le Bon?,“
spyr Orri Páll Ormarsson vinnufélagi minn á
Morgunblaðinu. „Ehhhh.. voru fyrstu við-
brögð.“ Síðan: „Ertu að djóka í mér?“
Eftir að hafa fengið fullvissu frá Orra um að
ekki væri um spott og spé að ræða, heldur væri
þetta tilboð borið fram í fullri alvöru, Sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins hefði verið boðið að
taka einkaviðtal við Le Bon og hann vissi að ég
hefði talsvert dálæti á Duran Duran, þáði ég
boðið með þökkum.
En ekki hvað.
Því að þegar tækifæri gefast til að láta
draumana rætast þá grípur maður þau. Og und-
irbýr sig eins og maður mögulega getur þegar
manni býðst viðtal við átrúnaðargoð unglings-
áranna (og aðeins lengra fram eftir aldri) með
tveggja klukkustunda fyrirvara.
Mér var uppálagt að hringja í fjölmiðlafull-
trúa Le Bons klukkan 14:20. Sem ég gerði og
eftir að við höfðum kynnt okkur og hún fengið
að vita nánari deili á mér gaf hún mér samband.
Ég byrjaði á því að kynna mig og spyrja
hvort ég væri að tala við herra Le Bon. „Já, svo
sannarlega ertu að því,“ svaraði fjörleg rödd á
hinum enda línunnar. Þetta var býsna kunn-
ugleg rödd, enda sú hin sama og sem söng Girls
on Films, The Reflex, Hungry Like the Wolf,
View to a Kill og fjölmörg önnur klassísk popp-
lög.
„Og hvernig hefurðu það svo í dag?“ var
næsta spurning blaðamanns sem reyndi af alefli
að muna helstu kurteisisreglur um leið og hjart-
að barðist ótt og títt.
Er ég í alvörunni að tala við hann? Getur
þetta verið?
„Ég hef það alveg frábært,“ svarar Simon.
„Mikið er gaman að tala við þig á svona fal-
legum degi, Anna.“
Simon Le Bon sagði nafnið mitt!
Samræðurnar hófust á sígildan hátt; við töl-
uðum um veðrið. Kannski hefur einhver sagt
honum að Íslendingar gjörsamlega elska að tala
um veðrið. „Sólin skín hérna í London, þetta er
fyrsti sólardagurinn sem ég upplifi í ár í London
og vá, hvað það er hlýtt,“ segir söngvarinn kát-
ur.
Blaðamaður leit út um gluggann á ritstjórn-
arskrifstofunni og sá bara rigningu og gráma.
„Hér á Íslandi rignir, en vonandi færðu betra
veður þegar þú kemur til okkar í sumar.“
„Það þykir mér leitt að heyra, en það er ynd-
islegt hér í London. Algjörlega dásamlegt.“
Margir glöddust þegar spurnir bárust af því
að Duran Duran ætlaði að halda tónleika á Ís-
landi í sumar.
„Mikið er gaman að heyra það. Ég hlakka
gríðarlega mikið til.“
Hvers vegna?
„Það er frábært að halda tónleika á Íslandi.
Ég kom til ykkar fyrir 14 árum og veit allt um
það,“ segir Simon.
Ég var gestur á þeim tónleikum og tek undir
það að tónleikarnir í Egilshöll sumarið 2005 hafi
verið sérlega vel heppnaðir. Ég segi síðan Sim-
on að Duran Duran eigi fjölmennan og dyggan
aðdáendahóp hér á landi og að í honum sé fólk á
öllum aldri. Það gleður hann mjög. „Vá, það er
frábært! Ég vissi það ekki, stundum heldur
maður að flestir okkar aðdáendur hafi fylgt
okkur síðan á 9. áratugnum. Það er gaman að
heyra að það hafi bæst í aðdáendahópinn.“
Nýt þess að vera rokkstjarna
Tónleikarnir, sem verða hér á landi í sumar, eru
ekki hluti af eiginlegri og skipulagðri tónleika-
ferð, heldur ákváðu meðlimir sveitarinnar að
fara þangað sem þá langaði til að fara og bjóða
heimamönnum upp á tónleika. Simon segir að
sveitin verji talsverðum tíma í upptökustúdíói
þessa dagana, en félagarnir hafi verið orðnir
óþreyjufullir eftir að komast út á meðal fólks,
eins og hann orðaði það og því hafi verið brugðið
á þetta ráð. „Já, við erum bara að velja vandlega
þá staði sem við viljum fara á. Við fengum gott
tilboð frá Íslandi, okkur var sagt að við ættum
fjölda aðdáenda þar. Það var kominn tími til að
við færum þangað aftur. Svo við sögðum: Já!
Förum þangað!“
Á 9. áratugnum voruð þið vinsælasta hljóm-
sveit heims.... „Ó, já, heldur betur,“ skýtur við-
mælandinn inn í. Er það þung byrði að bera, að
vera tengdur svona sterkt við tímabil sem var
fyrir meira en 30 árum? Kemur þetta í veg fyrir
framþróun sveitarinnar?
„Nei, ég myndi ekki segja það. Auðvitað
nutum við þessarar gríðarlegu velgengni á
þessum tíma. En við erum listamenn, við erum
tónlistarmenn og þetta er langtímaverkefni
hjá okkur. Að fá nýjar hugmyndir, að semja
nýja tónlist – það er okkar starf.“
Ætlum ekki að
spila Wham-lög!
Simon Le Bon, söngvari Duran Duran er fullur tilhlökkunar yfir fyrirhuguðum tónleikum
sveitarinnar hér á landi í júní. Hann lofar stuði fram á nótt, hyggst ekki spila lög með
Wham á tónleikunum og ætlar að halda áfram að skemmta þangað til hann dettur niður.
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is
Duran Duran sveitin var
stofnuð árið 1978.
Myndin er tekin á tónleikum Duran Duran í Las Vegas í Nevada í febrúar síðastliðnum.
Ferill Le Bon spannar hátt í fjóra áratugi. Hann segir það vera forréttindi að skemmta fólki.
Á 9. áratugnum prýddu plaköt með myndum af Duran Duran veggi margra unglingaherbergja.
Tónlist er svo stór hlut iaf lífi mínu og hefur alltaf verið, segir Simon Le Bon í viðtalinu.