Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Qupperneq 13
19.5. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Ferill þinn nær yfir næstum því 40 ár....
„Já, það er rétt. Ég gekk til liðs við sveitina
sumarið 1980, það eru næstum því 40 ár síðan.
Og tíminn hefur liðið svoooooo hratt,“ segir
Simon og hálfpartinn æpir síðustu orðin til
áhersluauka.
Já, er það? Hafa þessi ár liðið svona hratt?
„Já, tíminn flýgur þegar maður skemmtir
sér. Og vá, hvað ég hef skemmt mér.“
Hvað viðheldur áhuganum á því að vinna við
tónlist?
„Það eru nokkrar ástæður. Í fyrsta lagi elska
ég tónlist. Hún er svo stór hluti af lífi mínu og
þannig hefur það alltaf verið. Þegar maður er
farinn að vinna við þetta, þá er eiginlega ekkert
annað starf sem kemur til greina. Svo nýt ég
þess að vera sem mest með félögum mínum í
hljómsveitinni, við erum mjög, mjög, alveg sér-
staklega góðir vinir. Við gerum okkur grein fyr-
ir því að við sköpum miklu betri tónlist saman
en hver í sínu lagi. Og svo elska ég þennan lífs-
stíl! Ég nýt þess í botn að vera rokkstjarna!
Fjölskylda mín nýtur þess líka heldur betur að
ég sé rokkstjarna,“ bætir Simon skellihlæjandi
við og í bakgrunni heyrast hávær hlátrasköll.
„Heyrirðu í þeim? Þau eru með mér hérna í
bílnum. Og þeim finnst ég enn býsna fyndinn
eftir öll þessi ár!“ Og hláturinn heldur áfram,
bæði í bíl Le Bon fjölskyldunnar sem var á ferð í
London og á ritstjórnarskrifstofu Morgun-
blaðsins í Hádegismóum í Reykjavík. Blaða-
maður spyr áhyggjufullur hvort Simon sé nokk-
uð að keyra og tala í símann á sama tíma. „Nei,
auðvitað ekki,“ er svarið. „Miklu ábyrgari ein-
staklingur en ég situr á bak við stýrið.“
Heldurðu með Duran eða Wham?
Tónlist Duran Duran er gjarnan skilgreind sem
nýrómantík, tónlistarstefna sem naut mikillar
hylli á fyrstu árum 9. áratugarins. Meðal ann-
arra hljómsveita sem vinsælar voru á þessum
tíma voru Spandau Ballet, Culture Club, Euryt-
hmics, Ultravox og margar fleiri.
Að sögn Simons stilltu fjölmiðlar, einkum
tónlistartímarit, Duran Duran upp sem keppi-
nauti, jafnvel óvini, annarra vinsælla hljóm-
sveita á þessum tíma aðallega Spandau Ballet
og Culture Club. „Það var fullyrt að það væri
ekki hægt að hlusta á bæði Duran Duran og
Culture Club, það yrði að velja á milli. Þetta var
bara kjaftæði! Sögur, sem voru búnar til í þeim
tilgangi einum að selja fleiri blöð. Reyndar vor-
um við mjög góðir vinir flestra sem voru fram-
arlega í tónlist á þessum tíma. Við vorum góðir
vinir allra í Culture Club, í Spandau Ballet og
Wham. Á meðan ekkert okkar tók þetta alvar-
lega, þá skipti þetta engu máli, við vissum öll
betur. Þegar ég lít til baka núna, þá myndi ég
segja að við hefðum frekar verið í samkeppni
við U2 og The Police. Já, og INXS.“
Þú minntist á Wham. Hérna á Íslandi skipt-
ust unglingar á 9. áratugnum í tvær fylkingar;
annaðhvort varstu í Duran Duran hópnum eða
Wham hópnum. Þetta var tekið mjög alvar-
lega....
„Já, því skal ég
trúa,“ segir Simon
hlæjandi.
Sumir skilgreina sig
jafnvel ennþá á þess-
um forsendum, komnir
á fimmtugsaldur....
„Vá!, þetta er svaka-
legt,“ segir Simon. „Hvorum hópnum tilheyrðir
þú?“ Nú Duran Duran, auðvitað! „Yes!,“ hrópar
hann upp. „Ég vissi það.“
Er í besta starfi í heimi
Simon Le Bon er eldri en tvævetur í brans-
anum. Hann gekk til liðs við Duran Duran árið
1980 en sveitin hafði þá verið starfandi í tvö ár
og í henni, voru auk Le Bon, þeir John Taylor,
Roger Taylor, Nick Rhodes og Andy Taylor. Sá
síðastnefndi yfirgaf sveitina síðan árið 2006.
Er þetta ennþá jafn skemmtilegt? Að fara
upp á svið, semja tónlist og taka hana upp?
„Já. Eins og ég sagði áðan; mér líkar vel að
vera stjarna, ég nýt þess að vera á sviði. Mér
finnst ég vera í dásamlegu starfi, besta starfi í
heimi. Við, sem erum skemmtikraftar og lista-
menn, erum í forréttindastöðu; við fáum að
standa frammi fyrir fólki og láta því líða betur,
láta því líða betur með sjálft sig. Og þetta get ég
– þrátt fyrir mína takmörkuðu hæfileika,“ segir
Simon og fjölskyldan skellir upp úr.
Hefur það einhverntímann gerst á þessum 40
árum að þú hafir tapað gleðinni? „Ég hef aldrei
tapað lífsgleðinni. En ég hætti að finna fyrir
þeirri gleði, sem ég fann áður fyrir þegar ég fór
inn í stúdíó að taka upp. En þetta var fyrir
nokkru síðan, í kringum árið 2000. Ég missti
sannarlega þessa gleði þá,“ segir Simon dapur.
En þú endurheimtir gleðina, er það ekki?
spyr blaðamaður hughreystandi.
„Já, og það gerðist þegar sveitin kom saman
aftur. Þá kom gleðin aftur til mín.“
Þú segir að þú og félagar þínir í Duran Duran
þeir Roger Taylor, John Taylor og Nick Rho-
des, séuð afar nánir vinir. Einhverjum gæti þótt
það teljast til tíðinda eftir allan þennan tíma
saman, þegar ýmislegt hlýtur að hafa gengið á.
„Ég held að það sé fyrst og fremst vegna gagn-
kvæmrar virðingar. Í byrjun var heilmikil sam-
keppni á milli okkar, það verður að segjast eins
og er. Við vorum alltaf
að keppa um hitt og
þetta; hver gat gert
mest af þessu eða
hinu. En núna, þegar
við erum allir orðnir
eldri og höfum fengið
að vera samferða
svona lengi, höfum við
áttað okkur á því að enginn skilur okkur jafn vel
og við í bandinu. Við höfum gengið í gegnum svo
margt saman og það hefur gert okkur nánari
hver öðrum.“
Það verður stuð langt fram á nótt!
Tónleikar Duran Duran hér á landi í sumar
verða haldnir í Laugardalshöll þriðjudaginn 25.
júní.
Spurður hverju tónleikagestir megi búast við
svarar Simon stutt og laggott: „Það verður stuð
langt fram á nótt!“
Hann segir að á dagskrá verði sambland af
eldri og nýrri lögum. Eitthvað verði um lög af
nýjustu plötu Duran Duran, Paper Gods, sem
kom út árið 2015 og fékk feikifína dóma. Platan
fór m.a. á topp 5 listann í Bretlandi og þar með
komst sveitin í þann fámenna hóp hljómsveita
sem hafa náð plötum sínum í efstu fimm sæti
breska vinsældalistans fjóra áratugi í röð.
„Líklega verða um 30% laganna ný og restin
verður sambland vinsælla og sígildra laga.
Kannski komum við ykkur á óvart – hver veit!“
Er eitthvert lag sem þið munuð alls ekki
spila?
„Já – kannastu við lagið Wake me up before
you go go? Við ætlum sko ekki að spila það,“
segir Simon og hlær dátt. „Og ekki nein lög með
þessari hljómsveit.“
(Þess skal getið að umrætt lag er frá árinu
1984 og er með hljómsveitinni Wham.)
Hvert er uppáhaldslagið þitt með Duran
Duran? „Vá, þetta er erfið spurning. Mér finnst
alltaf skemmtilegt þegar við komum fram með
nýtt lag sem smellpassar með þeim eldri. Eitt
þannig lag er Pressure [af plötunni Paper
Gods]. Það er eitthvað sérstakt við þetta lag.
Eins Notorious [frá árinu 1986], þessi lög fara
einhvernveginn beint inn í sálina á mér.“
Langar til að dvelja á Íslandi
Sjáið þið félagarnir í Duran Duran fyrir ykkur
að halda áfram fram á elliár? Er markmiðið að
verða eins og The Rolling Stones sem hafa verið
að í 60 ár eða svo? „Við höldum áfram þangað til
við dettum niður; það er planið okkar. Hvað
annað ætti ég svosem að gera? Hanga heima og
vera konunni minni til ama?“
Í bakgrunni heyrist hrópað „Nei... ekki gera
það,“ og síðan er hlegið. Simon útskýrir þetta
neyðaróp og segir að það sé komið frá eiginkonu
sinni, Yasmin Le Bon, sem grínist með að hún
megi ekki til þess hugsa að hann verði meira
heima við en þegar er. „En hún meinar þetta
ekki,“ segir hann skellihlæjandi.
Þess má geta að Yasmin Le Bon er fyrrver-
andi fyrirsæta sem nú starfar m.a. við hönnun.
Sagan segir að Simon hafi séð mynd af henni á
forsíðu tímarits árið 1984 og orðið ástfanginn
við fyrstu sýn. Þau giftu sig ári síðar og eiga
þrjár dætur og eitt barnabarn.
Ætlið þið að dvelja eitthvað á Íslandi, annað-
hvort fyrir eða eftir tónleikana?
„Kannski verðum við í nokkra daga. Ég hafði
ekki tækifæri til þess síðast þegar við heimsótt-
um landið, en ég held að ég gæti fundið mér
margt skemmtilegt að gera á Íslandi. Svo er svo
fallegt þarna – ég hef verið að horfa á Ófærð í
sjónvarpinu – landslagið sem maður sér í þátt-
unum er magnað, ég hef aldrei séð annað eins.“
Er eitthvað sem þú vilt segja við íslenska
aðdáendur Duran Duran?
„Come on Iceland! Get yourself ready! Duran
Duran is coming to town and it’s gonna be an all
night party!“
Við skulum leyfa þessum ummælum að halda
sér á ensku.
’Við höldum áfram þangað tilvið dettum niður; það erplanið okkar. Hvað annað ætti égsvosem að gera? Hanga heima og
vera konunni minni til ama?