Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Side 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Side 15
19.5. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 „Frá og með þeim degi urðum við ævinlega að bera þetta spjald á okkur. Númerið var tengt nafni okkar og var þetta hugsað til þess að ef við fyndumst látin að þá væri hægt að senda númerið okkar til London og fá úr því skorið hver við værum.“ Gerðuð þið ykkur grein fyrir afleiðingunum ef þið næðust? Vissuð þið hvað fangabúðir Þjóðverja þýddu? „Já, við vissum það. Við vissum allt um fangabúðir Þjóðverja og hvað þær voru hræði- legar. Einn daginn var ráðist inn á fund strákahópsins í andspyrnuhreyfingunni í Eidsvoll, sem við unnum með, einn þeirra var mjög góður vinur minn. Þeir voru allir hand- teknir, 19 manns. Þeir voru sendir í fangabúð- irnar hræðilegu Sachsenhausen, og upplifðu þar skelfilega hluti. Þeir sem komu til baka voru breyttir menn og urðu aldrei samir. Ég er afskaplega þakklát fyrir að við stelpurnar skyldum ekki líka vera teknar en sú hætta var alltaf fyrir hendi.“ Heiðursmerki frá konungi Minni og vinkonur hennar reyndu ýmislegt meðan á stríðinu stóð til að reyna að hjálpa en því varð ekki alltaf auðveldlega við komið. Í nokkurra kílómetra fjarlægð frá Eidsvoll geymdu Þjóðverjar rússneska fanga. „Brauð var af afar skornum skammti en okkur langaði að reyna að koma brauði til fanganna rússnesku á deginum þeirra, 1. maí. Við útbjuggum böggla handa föngunum, með brauði í og fórum að fangelsinu og notuðum auðmjúkar okkar fínustu þýsku við vörðinn. Hann mundaði byssuna og horfði á okkur; „Es kostet ein Kopf“ (það kostar höfuðið). Ég mun aldrei gleyma þessu augnatilliti og því sem hann sagði, ekki þótt ég verði hundrað ára, þótt það sé nú stutt þangað til.“ En stríð er aldrei svart og hvítt. Þegar því lauk voru víða þjáningar. Einnig í fangabúð- unum þar sem Rússum hafði verið haldið. „Við sem höfðum verið þjálfaðar í and- spyrnuhreyfingunni fórum þangað til að hjúkra þeim og gefa þeim að borða því margir þeirra voru dauðvona menn, svo illa voru þeir farnir eftir vistina. Þeir voru flestir miklir sjúklingar og það var ekki hægt að senda þá bara út á guð og gaddinn. Þeir sem sinnt höfðu fangavarðastörfum voru oft sjálfir fangar. Í búðum nálægt Eidsvoll hafði rússneskur mað- ur í slíkri stöðu farið illa með fangana og voru þeir honum afar reiðir sem og nokkrum Pól- verjum sem höfðu aðstoðað hann. Einn daginn höfðu fangarnir náð sér niðri á þeim; drepið Rússann og Pólverjana að því er virtist. Minni kom á staðinn og var sú sem bjargaði lífi tveggja Pólverjanna. Þeir sem komu að þeim höfðu gengið að því gefnu að þeir væru látnir og létu þá óafskipta. Minni hins vegar greindi lífsmark og kallaði til lækna og var þeim bjargað. Minni segir þetta þá hræðilegustu stund sem hún hafi upplifað í stríðinu, aðkom- una að Rússanum og Pólverjunum. „Fræknasta hetja andspyrnuhreyfingar- innar var Max Manus en frægt er þegar hann sökkti þýska herskipinu Donau. Vinkona syst- ur minnar var hans nánasti aðstoðarmaður en þeir voru teljandi á fingrum annarrar handar sem vissu um dvalarstað hans. Svoleiðis varð það að vera Ég minnist þess með mikilli gleði þegar Noregskonungur og krónprinsinn sneru heim úr útlegð frá Bandaríkjunum og Bretlandi og norska þjóðin tók á móti þeim í Ósló. Þeim var ekið upp að höllinni og þar fór Max Manus fremstur í flokki. Þetta var ógleymanleg stund.“ Sjálf tók Minni á móti heiðursmerki frá norska kónginum eftir stríðið en þeir sem störfuðu í andspyrnuhreyfingunni fengu slík heiðursmerki.“ Þórbergur Þórðar kenndi íslensku Eftir stríð tók nýr kafli við í lífi Minni og mikl- ar annir tóku við. Hún sinnti verslun og fyrir- tæki fjölskyldunnar en afi hennar hafði kennt henni margt er sneri að því að reka fyrirtækið. Hún var útskrifuð úr máladeild í menntaskóla og auðheyrilegt að hún er mikil málamann- eskja. Hún hafði alla tíð spilað á píanó, verið í námi og spilað á tónleikum fram að stríði, þeg- ar fólk hafði um allt annað að hugsa en fara á tónleika en hún spilaði þó heima á flygil sem amma hennar hafði gefið henni pening fyrir. Það var mikill léttir að geta loks dregið gluggatjöldin frá og notið þess að fara út eftir myrkur en meðan Noregur hafði verið her- numinn, í fimm ár, hafði öllum verið bannað að fara út eftir myrkur, sem var oft klukkan fjög- ur á veturna. Þá mátti ekki sjást ljóstíra frá húsinu af hræðslu við loftárásir. Bak við þykk myrkvunartjöld var oft það eina sem hægt var að gera að spila. Og Minni tók aldrei í spil eftir að stríðinu lauk, fegin að vera laus við það. Minni sinnti ýmsu því er sneri að fjölskyld- unni og passaði mikið fyrir systur sína sem var enn í sérnámi í læknisfræðinni en eiginmaður hennar var sömuleiðis í sérnámi í læknisfræði. Minni fór svo til Ósló til að mennta mig meira í viðskiptum svo hún gæti tekið við fyrirtækinu af fullum krafti þegar lífið breyttist. Það var þá sem Minni kynntist íslenskum manni í gegnum sameiginlega kunningja þeirra. Með honum, Ólafi Gunnarssyni sál- fræðingi, fluttist hún til Íslands og eignaðist tvö börn, Kari sérkennara og Snorra lækni. Minni og Ólafur skildu eftir nokkurra ára hjónaband. Minni hóf þá fljótlega störf á dag- blaðinu Vísi og starfaði þar alla ævi. Fyrst sem gjaldkeri og varð síðar skrifstofustjóri þar sem hún hélt utan um alls konar verkefni, svo sem öll samskipti við prentsmiðjuna. Í starfi sínu á Vísi fór af henni orð sem hörkuduglegs og útsjónarsams starfskrafts, með mikið vit á útreikningum. „Hún kunni sko að telja pen- inga“ sagði einn starfsmaður Morgunblaðsins um hana og eflaust muna þeir eldri í fjölmiðla- stétt eftir henni. Voru ekki mikil viðbrigði að koma til Ís- lands? „Jú, vissulega var þetta stundum erfitt. Nýtt umhverfi, fólk og tungumál en ég fór gjarnan á sumrin til Noregs.“ Blaðamaður bendir henni á að hún tali sérlega góða ís- lensku. Hún segir Þórberg Þórðarson rithöf- und hafa tekið að sér að kenna henni sem og Gunnar Dal en þeim kynntist hún í gegnum eiginmann sinn. „Þórbergur kom til mín að kenna mér og fékk hjá mér norska súpu í skiptum. Honum fannst þetta svo ægilega góð súpa og ég signdi mig, sagði honum ekki að þetta væri pakka- súpa frá Noregi. Hann fór með mér á sunnudögum með börnin í göngutúr í kringum Tjörnina og það var mikil hjálp í því. Hann var mjög trúfastur í vináttu okkar og hjálpaði mér með börnin en þau voru ekki gömul þegar ég skildi.“ Þegar þú horfir yfir lífið, Minni, 97 ár, hvað er þér efst í huga? „Ég er sú í ættinni sem hefur lifað lengst, amma mín varð 92 ára og systir mín 96 ára og þóttu hafa lifað lengi. Mér finnst þetta ægilega mörg ár. En þegar ég horfi til baka þá eru það börnin mín tvö, sem eru vel gerð og myndar- leg, sem mér finnst mest um vert.“ Minna tók við heiðursmerki frá kon- ungi fyrir störf sín í andspyrnuhreyf- ingunni. Í bakgrunni hanga málverk af ömmu hennar og afa og faðir hennar er á myndinni lengst til vinstri. Morgunblaðið/Hari Minni með börnunum sínum og nýstúdentunum Snorra og Kari en sjálf var hún þá 30 ára stúdent frá máladeild. ’ Ef við hefðum stöðugt veriðað hugsa um að við værum íhættu þá hefði enginn gert neitt,maður leyfði sér ekki að hugsa of mikið um það og við vorum hörð af okkur. Við urðum bara að harka af okkur Systurnar Kari og Minni ásamt föðurömmu sinni, Mina Kalslæg, sem var þeim skjól og hald í lífinu ásamt föðurafa þeirra Carl Martin.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.