Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2019, Síða 32
SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2019
TRATTO model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
SAVOY model V458
L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 330.000,-
L 223 cm Leður ct. 10 Verð 469.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
STAN model 3035
L 206 cm Áklæði ct. 86 Verð 359.000,-
L 206cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-
„Kaffihúsið Prikið er með góðan fastakúnnahóp en þó er
einn miðbæjarkarakter og fastagestur sem sker sig
ávallt úr hópnum. Það er ljúfmennið Helgi Hafnar sem
mætir á Prikið daglega með bros á vör, allir keppast um
að faðma hann því hann hefur einstaklega kærleiksríka
nærveru.“
Þetta segir Magnea B. Valdimarsdóttir sem vinnur
nú að heimildarmynd um Helga og leitar eftir
stuðningi á Karolina Fund til að fjármagna verkefnið.
Að sögn Magneu virðist Helgi þrífast vel á rútínu, sest
alltaf á sama stað (sem hann hefur gert áratugum sam-
an), fær alltaf sama bolla og með bros á vör spjallar hann
við unga sem aldna, ferðamenn, pönkara og heimspek-
inga. „Miðbærinn og Prikið væru ekki eins skemmtileg
án Helga sem er krydd í tilveruna og mikill viskubrunn-
ur um sögu eins fyrsta kaffihúss Reykjavíkur.“
Helgi Hafnar
afslappaður á
sínum stað.
Ljósmynd/Ómar Sverrisson
Mynd um Helga á Prikinu
Söfnun er hafin á Karolina Fund vegna heimildarmyndarinnar Helgi á Prik-
inu eftir Magneu B. Valdimarsdóttur. Hún fjallar um mikinn lífskúnstner.
„Um kl. 10 sl. föstudagskvöld, er
fólk í húsasamstæðu einni hér í
bænum leit út um gluggana hjá
sér, sá það hvar stúlka stóð á
náttkjólnum uppi á handriðinu á
svölunum á annarri hæð, og
ruggaði fram og aftur. Stóð hún
þar góða stund og var augljóst
að hún gekk í svefni. Loks sást
hvar kona kom út um svaladyrn-
ar að baki henni, laumaðist aftan
að henni og greip hana niður.“
Þessa ótrúlegu frétt mátti lesa
í Morgunblaðinu fyrir réttum
sextíu árum, 20. maí 1959.
„Þannig hagar til í þessari
húsasamstæðu,“ sagði enn-
fremur í fréttinni, „að húsin eru
byggð utan um stórt opið svæði,
en svalirnar á öllum húsunum
snúa þangað út. Sáu því fjöl-
margir stúlkuna standa þarna á
svalahandriðinu í stuttum nátt-
serk, og gátu ekkert aðhafst til
að koma í veg fyrir að hún dytti,
þar eð of hættulegt þótti að
kalla til hennar og vekja hana
snögglega. Sem betur fer varð
ekki slys að þessari svefngöngu.“
Á sömu blaðsíðu var greint frá
því að lögregla hefði fært í „kjall-
arann“ tvo áfengissjúklinga sem
fundust ósjálfbjarga úti á götu.
Af einhverjum ástæðum höfðu
þeir ekki farið að fyrirmælum
lækna þegar þeir tóku inn lyfseð-
ilsskyld lyf sem þeir höfðu fengið
við óbærilegum skjálfta.
GAMLA FRÉTTIN
Svefnganga
á svölum
Stórhættulegt getur verið að ganga í svefni úti á svölum, sérstaklega á efri
hæðum. Svalirnar á myndinni tengjast fréttinni þó ekki með beinum hætti.
Morgunblaðið/Golli
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
P!nk
söngkona
Klemens Nikulásson Hannigan
söngvari
Billy Idol
söngvari