Morgunblaðið - 24.06.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 24.06.2019, Síða 1
M Á N U D A G U R 2 4. J Ú N Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  146. tölublað  107. árgangur  HAGMÆLTA KONAN GUNNA SKÁLDA EGGJA- SÖFNUN Í LÁTRABJARGI MIÐLAR AF 40 ÁRA RITHÖFUNDAR- REYNSLU BRÆÐRABANDIÐ 10 EINAR KÁRASON 10MAGNEA INGVARSDÓTTIR 11 A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Lokanir samsvara deild  Meira dregið úr starfsemi Landspítala í sumar en á síðasta ári  18-20 rýmum færra í júlí en í fyrra  Skortur á starfsfólki við hjúkrun er sagður helsta ástæðan Landspítalinn dregur ávallt úr starfsemi sinni yfir hásumarið. Þá dregur úr reglulegri starfsemi, svo sem skipulögðum aðgerðum og með- ferðum, en einnig vegur skortur á starfsfólki við hjúkrun þungt. Sá skortur veldur því að draga þarf meira úr starfseminni en stjórnend- ur hefðu óskað. Mest dregur úr starfsemi deilda á lyflækningasviði en á móti kemur að hægt er að halda fleiri rýmum opnum á skurðlækn- inga- og flæðisviði en á síðasta ári. „Sumarið verður því áskorun í þessu tilliti, nú sem áður,“ skrifaði Páll Matthíasson, forstjóri Landspítal- ans, í nýjasta föstudagspistli. „Við höldum áfram að reyna að halda rýmum opnum, alveg fram á síðustu stundu,“ segir Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður for- stjóra. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fleiri rýmum verður lokað á deild- um Landspítalans í sumar en á síð- asta ári en erfiðleikatímabilið stend- ur yfir í styttri tíma en áður. Frá 8. júlí og fram á verslunarmannahelgi er 18-20 rýmum færra í notkun en á sama tíma í fyrra. Svarar munurinn til þess að heilli deild sé lokað frá síð- asta ári. Júlí erfiður » 536 til 544 rými eru opin á sjö daga deildum Landspít- alans frá 8. júlí og fram á versl- unarmannahelgi. » Er það 18-20 rýmum færra en á sama tíma fyrir ári. MMeiri lokanir deilda ... »4 Göngugarpur skoðar gamla og nýja tímann þar sem hann stendur á listaverkinu Þúfu eftir Ólöfu Nordal. Innsiglingarviti við Reykjavíkurhöfn minnir á gamla tíma en litrík Harpan er tákn nútímans. Í baksýn gnæfir tignarleg Hallgrímskirkja. Eftir langan sólarkafla hefur þykknað upp og vænta má að gróðurinn sem þyrstir í vökvun fagni nokkrum dropum. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Grænasta grasið í borginni  Hratt gengur að reisa nýtt og fullkomið gagnaver við Korputorg. Þar verður frágangur og öryggi þannig að mun fullnægja þörfum kröfuhörðustu viðskiptavina og myndi þurfa meiriháttar hamfarir til að trufla starfsemina. Fram til þessa hafa íslensk gagnaver einkum verið nýtt til raf- myntaframleiðslu og segir Þor- steinn Gunnarsson skýringuna einkum vera þá að Ísland vanti betri tengingar við umheiminn. Með aukinni bandvídd munu gagna- ver hér á landi geta boðið fjöl- breyttari þjónustu og verið mjög samkeppnishæf enda rekstrar- kostnaður tölvuskáps á bilinu 30- 70% lægri í Reykjavík en í helstu borgum Evrópu. »12 Breyttar forsendur með meiri bandvídd Morgunblaðið/Styrmir Kári Gagnaver Nýtt ver rís nú við Korputorg. „Hann var hár fyrsti vinningurinn í fiskeldislottóinu og það stingur í augu að þetta fyrirtæki skuli eitt standa uppi með allar tölur sínar réttar en verðmæti þessara leyfa á uppboðsmarkaði í Noregi gæti numið rúmlega 30 milljörðum,“ segir Óðinn Sigþórsson, sem sat í starfshópi sjávarútvegsráðherra um stefnumörkun í fiskeldi. Óðinn vísar í ummælum sínum til þess að með breytingum á fiskeldislögum sem samþykkt voru á þriðjudaginn hafi Arctic Fish fengið að halda í gildi umsókn um hátt í 20.000 tonn á meðan sum fyrirtæki tapi öllum umsóknum sínum og önnur fyrir- tæki haldi lægri umsóknum í gildi. Óðinn segir þetta á skjön við niður- stöðu starfshóps ráðherra um stefnumörkun í fiskeldi sem vildi að annaðhvort yrðu allar umsóknir að teljast gildar eða allar að falla nið- ur. »4 Breytingar á fiskeldis- lögum ósanngjarnar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fiskeldi Ný fiskeldislög virðast fara frekar illa í flest fyrirtæki í fiskeldi.  Fjölskyldu- hjálp Íslands þarf að loka í sumar vegna fjárskorts og er það í fyrsta skipti í þau 16 ár sem samtökin hafa starfað sem eng- in aðstoð verður yfir sumarið. Ás- gerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskyldu- hjálpar, segist bera kvíðboga fyrir hönd skjólstæðinga sinna í sumar. Talsvert er um að efnaminni for- eldrar leiti til hjálparstofnana til að fá aðstoð til að borga sumarnám- skeið og íþróttaferðir, að sögn Vil- borgar Oddsdóttur hjá Hjálpar- starfi kirkjunnar. »6 Fyrsta sumar- lokunin í 16 ár Hjálparstarf Marg- ir þurfa aðstoð. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti, segir ákjósanlegt að skóladagur unglinga myndi hefjast klukkan 10, jafnvel 11. Hún segir að unglingar verði seinna syfjaðir en fullorðnir og því þyrftu unglingar að sofa til a.m.k. 9 eða 9.30 á morgnana. Margir skólar hefja kennslu síðar en klukkan átta á morgnana og eru ýmsar ástæður fyrir því. Í Álftanes- skóla hefst kennsla á þremur mis- munandi tímum vegna byggingar- framkvæmda og til að létta á umferð í Garðabæ byrja skólar þar á mis- munandi tímum. Í Grunnskóla Vestmannaeyja mun skóladagurinn hefjast klukkan 8.10 í stað 8 frá og með haustinu. Anna Rós Hallgrímsdóttir, skóla- stjóri skólans, segist vonast eftir meiri ró í skólabyrjun með þessari breytingu. »14 Framhaldsskólar byrji ekki fyrr en kl. 10 eða 11 Morgunblaðið/Golli Vaknaðir Nemendur í Fjölbraut í Breiðholti mættir í fablabtíma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.