Morgunblaðið - 24.06.2019, Page 4

Morgunblaðið - 24.06.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án f i 595 1000 fyr ir . AGUAMARINA y 6. ÁGÚST Í 7 NÆTUR COSTA DEL SOL Frá kr. 140.228 Íslensk fararstjórn, taska og handfarangur innifalið. BÓKAÐU SÓL ALLUR PAKKINN Vinsælasta hótel Heimsferða í áraraðir Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Óðinn Sigþórsson, sem sat í starfs- hópi sjávarútvegsráðherra um stefnumörkum í fiskeldi, er ósáttur við nýgerðar breytingar á fiskeld- islögum. Óðinn segir það sérstaka stöðu að miða gildi umsókna við að frummats- skýrsla hafi verið lögð fram. „Það var fjallað mikið um lagaskil í starfshópnum þegar ákveðið var að leggja til uppboðskerfi á svæðum sem ekki hafa verið burð- arþolsmetin. Það var niðurstaðan eftir ítarlega skoðun að annaðhvort yrðu allar umsóknir að teljast gildar eða allar að falla niður. Eitt yrði yfir alla að ganga,“ segir Óðinn sem tel- ur rökstuðninginn sem fram kemur í nefndaráliti með lögunum varla halda vatni. Hann segir að kostn- aður fyrirtækja vegna vinnu við um- hverfismat sé aukaatriði í þessu máli. Fyrirtækin hafi verið búin að helga sér svæði með matsáætlunum á grundvelli þágildandi laga og í því séu fólgin gríðarleg verðmæti. Inn í það ferli sé nú gripið með afturvirk- um hætti. Eftir að lögin voru sam- þykkt sé staðan sú að eitt fyrirtæki, Arctic Fish, haldi gildum umsóknum sem slagi hátt í 20 þúsund tonn og standi uppi með pálmann í hönd- unum. Hár fyrsti vinningur „Hann var hár fyrsti vinningurinn í fiskeldislottóinu og það stingur í augu að þetta fyrirtæki skuli eitt standa uppi með allar tölur sínar réttar en verðmæti þessara leyfa á uppboðsmarkaði í Noregi gæti num- ið rúmlega 30 milljörðum. Það gefur augaleið að verðgildi umrædds fyrirtækis eykst gríðarlega. Það er augljóst að Alþingi var að úthluta gríðarlegum verðmætum til ein- stakra fyrirtækja með því að lög- festa þessa leið á meðan önnur fyrir- tæki halda lægri umsóknum í gildi og sum tapa öllum umsóknum sín- um,“ segir Óðinn sem í viðtali við Morgunblaðið í lok maí sagði óheppilegt að aðstoðarmaður sjáv- arútvegsráðherra væri mágur fjár- málastjóra Arctic Fish. Óðinn segist eiga von á að átökin um fiskeldið muni aðeins harðna eft- ir lagabreytinguna enda hafi ekkert samráð verið haft við þá sem vilja vernda villtu laxastofnana. Það hafi verið ásetningur ráðherra að veikja áhættumat erfðablöndunar frá því að drög að frumvarpi hans komu fram. Saumað að vísindamönnum „Mér sýnist að með lagabreyting- unum hafi sjávarútvegsráðherra náð því takmarki með dyggum stuðningi formanns atvinnuveganefndar. Nú liggur fyrir að búið er að sauma verulega að vísindamönnum Haf- rannsóknastofnunar með nýjum ákvæðum um mótvægisaðgerðir. Ég fæ ekki betur séð en að ein mótvæg- isaðgerðin sé að nú eigi að leita að eldislöxum í ánum og fjarlægja þá,“ segir Óðinn sem bendir á að sú sviðsmynd sem dregin sé upp í lög- unum sé í ósamræmi við mark- miðsákvæði fiskeldislaga sem eigi að vera til verndar villtum laxastofn- um. Nú skuli Hafrannsóknastofnun leggja fram nýja tillögu að áhættu- mati með haustinu og það liggi í eðli nýrra fyrirmæla í lögunum að sú til- laga eigi að taka mið af mótvæg- isaðgerðum sem væntanlega eigi að auka magn frjórra laxa sem hafa má í sjókvíum. Þessar mótvægisaðgerð- ir eigi væntanlega að tryggja að heimilað verði að setja norska laxinn niður í Ísafjarðardjúpi. Ofan á allt þetta eigi svo að setja nefnd vísinda- manna sem ráðherra skipi, sem gefa eigi álit og gera tillögur til ráðherra vegna vinnu vísindamanna Hafrann- sóknastofnunar við gerð áhættu- matsins. Með þessu sé ráðherrann kominn með puttana í vísindin og næsta vers í leikritinu verði eflaust að fela norsku Hafrannsóknastofn- uninni hlutverkið. Frekar sáttir hjá Háafelli „Við erum að fara yfir stöðuna, hvar við stöndum, en miðað við hvernig aðrir túlka sína stöðu erum við frekar sáttir,“ segir Kristján G. Jóakimsson, verkefnisstjóri hjá Háafelli hf. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins virðist Háafell halda 6.800 tonna umsókn við breyt- ingarnar á fiskeldislögunum. Krist- ján segir að margt hafi verið gagn- rýnivert í frumvarpinu en nú séu lögin orðin að veruleika og unnið verði út frá því. Kristján segir já- kvætt að menn skyldu koma sér saman um mótvægisaðgerðir í sam- bandi við áhættumatið. Hann segir að Háafellið muni halda áfram að vinna að leyfi fyrir eldi eins og fyrir- tækið hafi gert undanfarin níu ár. Gæti stefnt í átök vegna fiskeldislaga Óðinn Sigþórsson  Verðmæti eldisleyfa Arctic Fish gæti numið 30 milljörðum  Háafell hélt 6.800 tonna leyfisumsókn  Niðurstaða starfshóps að annaðhvort skyldu allar umsóknir teljast gildar eða allar falla niður Ljósmynd/Helgi Bjarnason Fiskeldi Breytingar á lögum um fiskeldi koma mismunandi við fyrirtækin. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Landspítalinn dregur meira úr starf- semi sinni í sumar en áður. Í júlí- mánuði og fram yfir verslunar- mannahelgi eru 15-20 fleiri legurými lokuð en á sama tíma í fyrra. Helsta ástæðan er skortur á starfsfólki til af- leysinga við hjúkrun sjúklinga. Landspítalinn dregur ávallt úr starfsemi sinni yfir hásumarið. Þá dregur nokkuð úr reglulegri starf- semi, svo sem skipulögðum aðgerð- um og meðferðum, en einnig vegur skortur á starfsfólki við hjúkrun þungt. Sumarið verður áskorun Í nýjasta föstudagspistli Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítal- ans, sem birtur er á vef spítalans kemur fram að flest bráðalegurými eru á skurðlækningasviði, flæðisviði og lyflækningasviði. Gert sé ráð fyrir færri opnum legurýmum en áður á lyflækningasviði en skurðlækninga- svið og flæðisvið muni bæta við sumaropnun. „Heildarniðurstaðan er sú að nokkuð færri rými verða opin hjá okkur í sumar í 2-3 vikur um hásum- arið og ræður þar mannekla, fremur en annað. Sumarið verður því áskor- un í þessu tilliti, nú sem áður,“ skrifar Páll í pistli sínum. Vandræði í styttri tíma Samkvæmt upplýsingum frá Önnu Sigrúnu Baldursdóttur, aðstoðar- manni forstjóra Landspítalans, eru fleiri legurými lokuð í júlí og fram í byrjun ágúst í ár en á síðasta sumri. Hins vegar eru færri rými lokuð fyrir og eftir þann tíma en árið 2018. Anna Sigrún segir að lokanirnar séu meiri yfir hásumarið í ár en standi yfir í styttri tíma en í fyrra. Þegar litið er á heildina eru 536 til 544 rými opin á deildum sem opnar eru alla daga vikunnar, frá 8. júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Er það 18-20 rýmum færra en á sama tímabili fyrir ári. Lokanirnar dreifast ekki jafnt yfir. Þannig dregur mest úr starfsemi á stórum deildum eins og á lyflækn- ingasviði. Anna Sigrún segir að hægt hafi verið að draga úr afleiðingum þess með breyttu verklagi og með því að halda fleiri rúmum í notkun á skurðlækningasviði og flæðisviði. Hún bendir á að þetta sé sérstaklega mikilvægt á flæðisviði þar sem öldr- unarlækningadeildir spítalans eru. Ekki þurfi þá að senda sjúklinga það- an á aðrar deildir spítalans í eins miklum mæli og annars hefði verið. Þá tekur hún fram að gott samstarf sé við sjúkrahúsin í nágrannabyggð- um. Þau reyni eftir bestu getu að taka við sjúklingum frá Landspítalanum. Enn verið að reyna Ástæðan fyrir því að loka þarf fleiri rýmum en áður er skortur á starfs- fólki við hjúkrun, eins og fram kemur í pistli forstjórans. Anna Sigrún segir að þótt gera megi ráð fyrir því að þetta verði brekka muni starfsfólk spítalans geta unnið samkvæmt þeirri áætlun sem lögð hefur verið upp. Og þau eru ekki hætt að vinna í málunum. „Við höldum áfram að reyna að halda rýmum opnum, alveg fram á síðustu stundu,“ segir Anna Sigrún. Meiri lokanir deilda en í styttri tíma  18-20 færri rúm í notkun á Landspítala í júlí en í fyrra Morgunblaðið/Hari Áskoranir Páll Matthíasson forstjóri segir að sumarið verði áskorun. Lokanir á Landspítala » 1. júlí verður 91 rými lokað, 133 8. júlí og 137 15. júlí. Mestu lokanirnar verða 22. og 29. júlí þegar 141 rými verður lokað á deildum Landspítalans. 5. ágúst verða 103 rými lokuð, álíka mörg og á síðasta ári. » Minni lokanir voru á síðasta ári, frá 8. júlí og fram á versl- unarmannahelgi: 1. júlí voru 118 rými lokuð, 114 8. júlí, 120 15. júlí og 122 22. og 29. júlí. 5. ágúst voru 102 rými lokuð. Nefnd um eftirlit með lögreglu hef- ur komist að þeirri niðurstöðu að Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri hefði getað vikið lög- reglumanni tímabundið úr starfi ár- ið 2011 á meðan lögreglurannsókn á hendur honum fyrir meint kynferð- isbrot gegn þremur ungum stúlkum stóð yfir. Þetta kom fram í kvöld- fréttum RÚV í gær og einnig er fjallað um málið á vef Mannlífs. Rannsókn á meintum brotum lög- reglumannsins leiddi ekki til ákæru og hann er enn í starfi hjá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu. Halldóra Baldursdóttir, móðir einnar af stúlkunum þremur sem kærðu lögreglumanninn, kvartaði til nefndar um eftirlit með störfum lög- reglu sökum þess að lögreglumað- urinn var ekki leystur frá störfum á meðan málin voru til rannsóknar og einnig undan vanköntum sem hún taldi vera á rannsókninni. Hún kall- ar eftir því að ríkislögreglustjóri segi af sér vegna málsins. Málið var meira en ár í vinnslu hjá nefndinni, sem hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að lagalega hefði ríkislögreglustjóra verið heimilt að leysa lögreglumanninn tímabundið frá störfum. Nefndin sá þó ekki til- efni til þess að senda ríkislög- reglustjóra tilmæli eða aðhafast frekar í tilefni af erindi Halldóru, samkvæmt því sem fram kemur á vef Mannlífs. Niðurstaða nefndarinnar er á skjön við yfirlýsingu sem ríkislög- reglustjóri sendi frá sér vegna fjöl- miðlaumfjöllunar um málið í maí í fyrra, en þá ítrekaði hann að ekki hefði verið lagaheimild fyrir því að setja lögreglumanninn til hliðar, þar sem embættið hefði ekki fengið að sjá rannsóknargögn málsins. Hefði mátt víkja lög- reglumanni úr starfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.