Morgunblaðið - 24.06.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.06.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 2019 MANDUCA BURÐARPOKINN Manduca burðarpokinn er hannaður með það markmið að leiðarljósi að barn geti viðhaldið M-stellingu fóta og mjaðma. Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Talsverður erill hefur verið í sumar hjá þeim hjálparsamtökum sem veita tekjulágum aðstoð. Fjölskyldu- hjálp Íslands mun loka í sumar í fyrsta skipti síðan starfsemi samtak- anna hófst og mikið er leitað eftir að- stoð til að greiða sumarnámskeið fyrir börn. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur lokaði starfsstöð sinni í síðustu viku og verður hún opnuð aftur í byrjun ágúst, að sögn Önnu H. Pétursdótt- ur, formanns nefndarinnar. „Við höfum alltaf lokað yfir sumarið, starfsemin er rekin með sjálfboða- liðum og þeir fara í sumarfrí á þess- um tíma,“ segir Anna. Hún segir að talsvert hafi verið um beiðnir um að koma til móts við kostnað við sumar- námskeið barna. Nefndin tekur þátt í slíkum kostnaði, hátt í 50 börn hafa fengið slíkan styrk í sumar og er há- marksupphæð styrksins 40 þúsund krónur. Fyrsta sumarlokunin í 16 ár „Við höfum einfaldlega ekki tök á að vera með opið fyrir matarúthlut- anir í sumar. Til þess þyrftum við meira fé,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskyldu- hjálpar Íslands, en lokað verður hjá samtökunum frá 1. júlí til 1. sept- ember. Það verður fyrsta sumarlok- unin í 16 ára sögu Fjölskylduhjálpar. Að sögn Ásgerðar Jónu veitir Fjölskylduhjálpin hátt í 900 matar- gjafir á mánuði og er aðstoðin m.a. fjármögnuð með framlögum, söfn- unum og flóamörkuðum í Reykjavík og Reykjanesbæ sem verða opnir í allt sumar. Hún segir að svipaður fjöldi hafi sótt um aðstoð hjá sam- tökunum í sumar og í fyrra og auk mataraðstoðar er m.a. veitt aðstoð til lyfjakaupa. „Við fáum talsvert af fyrirpurnum um aðstoð við sumar- námskeið, en við höfum ekki veitt slíka styrki,“ segir Ásgerður Jóna. Hún segist bera kvíðboga fyrir hönd skjólstæðinga sinna þann tíma sem sumarlokunin mun standa yfir. „Þeir sem leita til okkar gera það ekki sér til gamans og að sjálfsögðu hefðum við viljað hafa opið í allt sum- ar.“ Hjálparstarf kirkjunnar veitir margvíslega aðstoð, m.a. matarað- stoð í formi inneignarkorta í mat- vöruverslunum, og að sögn Vilborg- ar Oddsdóttur félagsráðgjafa, sem stýrir innanlandsstarfi samtakanna, eru færri beiðnir um slíka aðstoð á sumrin en á öðrum tímum árs. „Ef ég bara vissi af hverju það er,“ segir Vilborg. „Ég hef unnið hér í 15 ár og þetta hefur alltaf verið svona.“ Hjálparstarf kirkjunnar aðstoðar líka foreldra við að greiða sumar- námskeið fyrir börn sín og segir Vil- borg að ekki sé um að ræða fasta upphæð, heldur sé hvert og eitt til- vik metið fyrir sig. Einnig rekur hjálparstarfið sumarbúðir fyrir börn og foreldra í tekjulágum fjölskyld- um, þær voru haldnar fyrr í þessum mánuði og þar nutu 16 fjölskyldur dvalarinnar, að sögn Vilborgar. „Það verður líka sífellt algengara að fólk biðji okkur um aðstoð til að greiða ferðir barna á íþróttamót,“ segir Vil- borg. Hún segir að samsetning þess hóps sem til samtakanna leitar hafi breyst talsvert undanfarin ár. „Ís- lendingum hefur fækkað en útlend- ingum sem eru í lægstlaunuðu störf- unum hefur aftur á móti fjölgað. Sumir segja okkur að það sé verið að lækka starfshlutfall þeirra, við það lækka launin en kostnaður við leigu og mat lækkar ekki,“ segir Vilborg. Margir leita til hjálparsamtaka  Fjölskylduhjálp þarf að loka í sumar vegna fjárskorts  Margir þurfa aðstoð til að borga sumar- námskeið og íþróttaferðir  Fleiri útlendingar og færri Íslendingar leita til Hjálparstarfs kirkjunnar Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is ,,Það er aðallega lokunin á Hverfis- götu sem gerir það að verkum að við þurfum að afhenda vörur fyrr á dag- inn. Rúntur sem áður tók 30 mínútur tekur nú 45 til 50 mínútur. Við aðlög- um okkur aðstæðum og viðskiptavin- irnir fá sínar vörur hvernig sem ástandið er,“ segir Jón Valgeir Tryggvason, dreifingarstjóri Garra. Morgunblaðið greindi frá því á fimmtudag að kaupmenn í miðbæ Reykjavíkur þyrftu sumir hverjir að sækja vörur sjálfir vegna erfiðleika birgja við að komast um verslunar- götur í miðbænum. ,,Það væri fínt ef allur Laugaveg- urinn væri opinn til kl. 12, a.m.k. á meðan framkvæmdir við Hverfis- götu eru í gangi,“ segir Jón Valgeir og bætir við að bílstjórar hans kvarti yfir því að breyting á akstursstefnu á Laugavegi hafi skyndilega skollið á með tilkynningu um það á einu litlu skilti. Jón Valgeir segir að margir bílar keyri nú í ranga átt og það tefji fyrir, auk þess sem keyra þurfi upp Klapparstíg, beygja þar og keyra svo annan hring til þess að komast í næstu götu. Umferðarþungi eykst árlega Að sögn Jóns Valgeirs eru bíla- leigubílar stórt vandamál á svæðinu í kringum Skólabrú og Austurvöll en þar leggi bílstjórar þvers og kruss sem bæti ekki ástandið þar sem sex til sjö flutningabílar séu að reyna að komast að fyrirtækjum með vörur. Ingólfur Þorsteinsson, rekstrar- stóri vörudreifingar hjá Flytjanda, segir að heilt yfir gangi vörudreifing í miðbænum vel. Vissulega finni bíl- stjórar fyrir þrengslum og lokunum. En allt sé gert til þess að viðskipta- vinurinn fái vörurnar sínar. ,,Við sjáum um dreifingu í margar verslanir og veitingastaði. Við byrj- um kl. sjö á morgnana í miðbænum og reynum að vera búnir með dreif- ingu þar fyrir kl. 11,“ segir Ingólfur sem bætir við að umferðarþungi aukist með hverju ári. Gunnar Sigurgeirsson, aðstoðar- forstjóri Ölgerðarinnar, segir að bíl- stjórar fyrirtækisins hafi ekki lent í neinum vandræðum að koma vörum til viðskiptavina og allir séu sáttir. Þegar framkvæmdir standi yfir á götum í miðbænum finni bílstjórar leiðir til að koma vörunum til skila. Birgjar aðlaga sig breyttum aðstæðum í miðborginni  Bílaleigubílar vandamál  Viðskiptavinir fá sínar vörur Margir gæddu sér á ís í góðviðrinu á Laugavegi í gær en bjart var að mestu og skýjað með köflum í Reykja- vík. Aukin úrkoma virðist vera í kortunum fyrir íbúa vestan til á landinu næstu daga miðað við veður síðustu vikur, en rigning hefur verið í sjaldséð á höfuðborgar- svæðinu það sem af er sumri. Íslendingar eru þó þekkt- ir fyrir að vera mikil ísþjóð og láta veðurfar yfirleitt ekki halda aftur af sér þegar ís er annars vegar. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson „Ísgæðingar“ gengu um Laugaveg Íslendingar gæða sér gjarnan á ís á sunnudögum, sama hvernig viðrar Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík- isráðherra hefur ákveðið að verja þrettán milljónum króna til UN Free & Equal, verkefnis sem skrif- stofa mannréttindafulltrúa Samein- uðu þjóðanna heldur utan um til að vinna að útbreiðslu réttinda hinseg- in fólks í heiminum. Þetta kemur fram í frétt á vef ráðuneytisins. Þar kemur fram að réttindi hinsegin fólks hafi verið meðal helstu áhersluþátta Íslands í mannrétt- indaráði Sameinuðu þjóðanna síðan landið var kjörið til setu í ráðinu. Ísland bar til dæmis upp fleiri til- mæli sem snertu réttindi hinsegin fólks en nokkurt annað ríki. Á vef utanríkisráðuneytisins er haft eftir Guðlaugi að með fjár- framlaginu og áframhaldandi áherslu á réttindi hinsegin fólks í mannréttindaráðinu muni landið leggja sitt af mörkum til að breyta því að hinsegin sambönd teljist enn glæpur í meira en þriðjungi heims. Fjárframlagið er í samræmi við nýja stefnu Íslands í þróunarsam- vinnu fyrir árin 2019-2023, sem Al- þingi samþykkti í maí, og nýja skýrslu utanríkisráðuneytisins þar sem mörkuð er sú nálgun að allt starf Íslands í þróunarsamvinnu sé miðað að mannréttindum. rosa@mbl.is 13 milljónir til stuðnings hinsegin réttindum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.