Morgunblaðið - 24.06.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 2019
TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
alnabaer.is
Stjórnvöld létu á dögunum gerakönnun um viðhorf almenn-
ings til utanríkismála. Þar kemur
fram að langflestir telja að hag-
sæld Íslands byggist á alþjóðlegri
samvinnu og utanríkisviðskiptum
og verður að teljast ánægjulegt,
en ekki sjálfgefið, að skilningur sé
á mikilvægi alþjóðaviðskipta, eða
viðskipta
yfirleitt.
Þákem-
ur fram
að fólk
er al-
mennt jákvætt í garð EES-
samningsins, sem kemur ekki á
óvart þar sem hann hefur í meg-
inatriðum reynst vel þann aldar-
fjórðung sem hann hefur verið í
gildi.
Athygli vekur einnig að efa-semdirnar um EES-samning-
inn lúta helst að framsali á full-
veldi og að honum fylgi óþarfa
regluverk. Þetta eru þekkt
áhyggjuefni og mikilvægt fyrir
stjórnvöld að gæta vel að þeim.
Ennfremur var spurt hvortsvarendur væru jákvæðir eða
neikvæðir gagnvart Evrópusam-
bandinu. Þar kom fram að fólk
var almennt heldur jákvætt í garð
sambandsins og notuðu einhverjir
ESB-miðlar tækifærið og slógu
þessum „stórtíðindum“ upp.
Þeir gerðu hins vegar lítið úrþví að töluvert fleiri eru and-
vígir inngöngu í ESB en fylgjandi.
Sú afstaða er í samræmi við af-stöðuna til viðskiptafrelsis,
fólk vill geta átt viðskipti við út-
lönd en það vill ekki láta ráða-
menn í Brussel gerast ráðamenn
hér.
Rökrétt afstaða
almennings
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ilmolíur, sem eiga að fæla frá lúsmý, seld-
ust upp í þeim tveimur apótekum sem voru
opin á höfuðborgarsvæðinu um helgina.
Annar varningur gegn mýinu seldist
sömuleiðis vel.
Í samtali við mbl.is í gær sagði starfs-
maður Lyfju að „allir væru að spyrja um
eitthvað svona“ og átti þar við vörur sem
fæla lúsmýið frá. Sterakrem, ofnæmistöfl-
ur, fælandi úði, lavenderolía og tea-tree ol-
ía, krem til að bera á sig eftir bit og bólgu-
eyðandi lyf, er meðal varnings í þessum
flokki og lauslega reiknað hafði þriðji hver
maður sem heimsótti Lyfju í Lágmúla um
helgina verið á höttunum eftir þessum
vörum.
Frá Apótekaranum fengust þær upplýs-
ingar að margir hefðu keypt öfluga fælu
sem inniheldur sérstök efnasambönd sem
eiga að bægja mýinu frá. snorrim@mbl.is
„Lúsmýsvarningur“ víða uppseldur
Íslendingar kaupa sterakrem, ofnæmis-
töflur, ilmolíur og úða gegn lúsmýinu
Morgunblaðið/Eggert
Lúsmý Hjá flestum er
það heldur óvelkomið.
„Mér heyrist, miðað við umræðuna,
að fólk sé jákvæðara í ár en hefur
verið,“ segir María Gestsdóttir,
varaformaður Íbúasamtaka Laugar-
dals, spurð um upplifun íbúa Laug-
ardals af Secret Solstice-tónlist-
arhátíðinni sem haldin var um
helgina en talið er að um tólf þús-
und manns hafi verið á hátíðinni í
gær. Sjálf var María gestur á hátíð-
inni og skemmti sér stórkostlega að
eigin sögn.
Umgengni til fyrirmyndar
María segir umgengnina hafa
verið til fyrirmyndar yfir hátíðina.
Hún bendir á að veðuraðstæður hafi
verið töluvert betri í ár en í fyrra en
þá olli rigning því að grasið kom illa
út eftir hátíðina.
„Ég hef tekið eftir því sjálf á há-
tíðinni að það er fólk í gulum vest-
um að taka til allan tímann sem mér
finnst mjög ánægjulegt,“ segir
María. „Þeir sem búa næst hátíð-
inni verða auðvitað fyrir mestri
truflun vegna hávaða svo maður á
eftir að heyra hvað fólk segir eftir
hana. En mér sýnist á öllu að hátíð-
arhaldarar hafi hlustað á athuga-
semdir fólks og séu virkilega að
reyna að bæta sig.“
Helga Sigrún Sigurjónsdóttir,
varamaður í stjórn íbúasamtakanna,
tekur undir með Maríu og segir að
hún hafi upplifað almenna ánægju
með hátíðina í ár. Hún vísar í Face-
book-hópinn „Langholtshverfi -
104“ þar sem rúmlega hundrað at-
hugasemdir voru settar við færslu
þar sem spurt var um upplifun íbúa
á svæðinu af Secret Solstice. „Þar
voru allir bara rosa kátir og ánægð-
ir nema einn,“ segir Helga og hlær.
Velgengnin lygasögu líkust
Jón Bjarni Steinsson, upplýsinga-
fulltrúi Secret Solstice-hátíðarinnar,
segir það lygasögu líkast hversu vel
hafi gengið. Hann segir að veðrið
hafi verið gott og að samstarfið við
lögregluna og frístundamiðstöðina
hafi gengið frábærlega. Segir hann-
umgengnina á svæðinu hafa verið til
fyrirmyndar en hátíðarhaldarar
réðu breska fyrirtækið Greenbox,
sem sérhæfir sig í þrifum á hátíð-
um, til að halda svæðinu hreinu.
Auk þess segir hann að Reykjavík-
urborg hafi ráðið fyrirtækið
Hreinsitækni til að þrífa svæðið fyr-
ir utan hátíðina. Jón segist ekki vita
til þess að nein kvörtun hafi borist
vegna hátíðarinnar í ár. „Þegar það
er svona gott veður eru bara allir
sáttir,“ segir hann. rosa@mbl.is
Jákvæðni ríkir í
garð Secret Solstice
Veit ekki til þess að nein kvörtun hafi borist