Morgunblaðið - 24.06.2019, Page 12

Morgunblaðið - 24.06.2019, Page 12
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Nýtt gagnaver er að rísa á Korpu- torgi og mun verða bæði það full- komnasta og öruggasta á landinu. Af lýsingum Þorsteins Gunnarssonar að dæma væri það heljarinnar áskorun fyrir Ethan Hunt og félaga úr Mis- sion: Impossible-myndunum að ætla að laumast þangað inn óboðnir. „Gagnaverið fullnægir ströngustu kröfum, og er í öryggisflokknum Tier III N+1 sem þýðir m.a. að öll aðföng eru tvöföld og tekur varakerfi við ef aðalkerfi bilar: rafmagnslagnir eru tvöfaldar, ljósleiðarar sömuleiðis, all- ur tölvubúnaður og kæling einnig, og ekkert sem getur truflað eðilega starfsemi gagnaversins nema meiri- háttar hamfarir,“ útskýrir Þorsteinn en hann er stjórnarformaður Reykja- vik DC sem byggir gagnaverið í sam- starfi við Reiknistofu bankanna, Opin kerfi, Vodafone og Korputorg. Er raunar líka búið að hugsa fyrir hamförunum: „Korputorg er 40 metra yfir sjávarmáli svo að ekki er hætta á flóðum. Að auki er jarðfræði svæðisins þannig að gagnaverið er ut- an sprungu- og skjálftasvæða og eng- in hætta á að gosvirkni geti orðið til þess að hraun renni um þetta svæði. Þá liggja gagna- og rafmagnsstofn- brautir landsins í gegnum Korpu- torg, þar er aðgengi að þremur óháð- um tengibrautum grunn-raforku- kerfisins og einnig aðgengi að nokkrum óháðum ljósleiðarastrengj- um.“ Verður gagnaverið líka rammgirt og vaktað allan sólahringinn, mynda- vélar í hverju horni og strangar regl- ur um hverjum verður hleypt þar inn. Jafnvel þegar inn í gagnaverið er komið er það stúkað af og aðgangs- stýrt að innan svo að gestir geta að- eins nálgast þann vélbúnað sem þá snertir. Gagnaverið á Korpuorgi er ekki fyrsta Tier III-gagnaverið á Íslandi, en það fyrsta á höfuðborgarsvæðinu. Þorsteinn bendir á að staðsetning gagnaversins auki á öryggið, með mörgum rafmagns- og ljósleiðara- tengingum, en auk þess felist sam- keppnisforskot í því að gagnaverið hafi aðgang að mikilli orku og að stutt sé fyrir tæknimenn viðskiptavina að fara þegar huga þarf að vélbúnaði. „Það tekur 10-15 mínútur fyrir fyrir- tæki í Reykjavík að gera mann út af örkinni til að kíkja á tölvustæðu hjá okkur, en um 45 mínútur að komast í gagnaverin úti á Reykjanesi. Þegar upp koma vandamál í viðkvæmum tækjabúnaði getur þessi tímamunur skipt máli, auk þess sem styttri ferða- tími minnkar kostnað. Hefur mark- aðurinn því lengi kallað eftir gagna- veri í þessum flokki á höfuðborgar- svæðinu, en meðal þeirra sem gera kröfu um Tier III-öryggi eru fjár- málafyrirtæki, stjórnvöld, heilbrigð- isstofnanir og raunar allir þeir sem vinna með viðkvæm og dýrmæt gögn.“ Bíða betra sambands við útlönd Til glöggvunar fyrir lesendur þá má áætla að mikill meirihluti gagna- vera á Íslandi rati í öryggisflokkinn Tier I og eru þau fyrst og fremst not- uð til rafmyntaframleiðslu. Þorsteinn segir þetta skýrast af því að gagna- tengingar Íslands við umheiminn hafi til þessa ekki verið nægilega góðar fyrir annars konar gagnaveraþjón- ustu, auk þess sem rafmyntaframleið- endur hafi uppgötvað að lágur orku- kostnaður geri Ísland að heppilegum stað til að láta tölvur mjatla út bitcoin og öðrum rafmyntum. „Stjórnvöld hafa þegar byrjað undirbúningsvinnu við nýja gagnatengingu frá Íslandi til Írlands og mikilvægt að það verkefni tefjist ekki og lagning hefjist helst innan tveggja ára. Þar með verður komin sú bandvídd sem þarf fyrir fjöl- breyttari þjónustu gagnavera fyrir erlenda viðskiptavini og yrði t.d. minni töf á tengingunni frá Korpu- torgi til London en yfir til Luleå þar sem Svíar hafa verið að koma upp sín- um gagnaverum.“ Um leið og tengingar við umheim- inn batna skapast kjöraðstæður fyrir rekstur gagnavera eins og þess sem verður á Korputorgi, og það á sama tíma og þörfin fyrir reikniafl og gagnavörslu fer bara vaxandi: „Ef við tökum sem dæmi kostnaðinn við að reka 20 kW tölvuskáp þá er hann í dag á bilinu 30-70% lægri á Íslandi en í helstu borgum Evrópu, og eftir því sem skáparnir verða orkufrekari, þá hækkar þessi tala,“ segir Þorsteinn. „Margt í rekstrarumhverfi íslenskra gagnavera hefur verið í ólestri undan- farinn áratug, en miðað í rétta átt með bættri löggjöf og öflugri innviðum, svo að núna er kominn hárréttur tími til að sækja inn á þennan markað.“ Möguleikarnir verða til með betri tengingu Morgunblaðið/Styrmir Kári Hagkvæmt Þorsteinn segir 30-70% ódýrara að reka öflugan tölvuskáp í Reykjavík en í helstu borgum Evrópu.  Innan skamms mun hágæða gagnaver hefja starfsemi á Korputorgi  Með því að auka bandvídd tenginga við umheiminn eykst forskot íslenskra gagnavera 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 2019 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga www.alno.is Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á 24. júní 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.78 125.38 125.08 Sterlingspund 158.09 158.85 158.47 Kanadadalur 94.61 95.17 94.89 Dönsk króna 18.899 19.009 18.954 Norsk króna 14.561 14.647 14.604 Sænsk króna 13.289 13.367 13.328 Svissn. franki 127.03 127.73 127.38 Japanskt jen 1.1603 1.1671 1.1637 SDR 173.04 174.08 173.56 Evra 141.11 141.89 141.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.3201 Hrávöruverð Gull 1388.35 ($/únsa) Ál 1777.0 ($/tonn) LME Hráolía 64.86 ($/fatið) Brent Tveir fundir sem haldnir verða í vikunni gætu orðið til þess að Fiat Chrysler og Renault freisti þess á ný að ljúka við samruna bíla- risanna tveggja. WSJ greinir frá að hluthafar Nissan muni á þriðjudag greiða at- kvæði um róttækar breytingar á stjórn félagsins. Verði breyting- arnar samþykktar munu ut- anaðkomandi stjórnarmenn verða í meirihluta og væntir Renault þess að það muni breyta viðhorfi Nissan til samrunans. Nissan á 15% hlut í Renault og hefur lengi verið helsti samstarfsaðili franska bílasmiðsins. Þá munu Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Shinzo Abe Japansforseti hittast á leiðtoga- fundi G-20 ríkjanna í Osaka í viku- lok. Er hugsanlegt að forsendur mögulegs samruna verði skýrari eftir fund þeirra, en það voru eink- um afskipti franskra stjórnvalda sem fengu FCA til að slíta samruna- viðræðunum í byrjun mánaðarins. ai@mbl.is Kunna að endurræsa viðræður  Þróun í málum FCA og Renault ● Verð rafmynt- arinnar bitcoin hef- ur hækkað nokkuð skarplega að und- anförnu og rauf á föstudag 10.000 dala múrinn, í fyrsta skipti síðan í mars í fyrra. Var gengið komið upp í 11.000 dali strax á laugardag en leitaði aftur niður á við á sunnudag. Gengi bitcoin náði hámarki 17. desem- ber 2017 og kostaði þá 19.783 dali. Raf- myntin lækkaði hratt eftir það og náði jafnvægi við 6.000-7.000 dala bilið undir lok síðasta sumars og lækkaði síðan enn frekar í lok síðasta árs. Kostaði bitcoin á bilinu 3.000-4.000 dali fram í byrjun apríl en tók þá að hækka hratt á ný. Wall Street Journal segir styrkingu bitcoin m.a. skrifast á aukna jákvæðni í garð rafmynta og er skemmst að minn- ast þess að Facebook kynnti í síðustu viku áætlanir sínar um að setja í loftið rafeyrinn líbru. Hyggja markaðs- greinendur að ef líbran nær mikilli út- breiðslu gæti hún greitt leiðina fyrir al- menna notkun rafmynta. ai@mbl.is Bitcoin aftur á uppleið Skot Bitcoin hækkar hratt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.