Morgunblaðið - 24.06.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 2019
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
COMPONIBILI
Hirslur 3ja hæða – fleiri litir
Verð frá 18.900,-
STELTON Kertastjaki
Verð 23cm 8.990,-
17cm 7.990,-
KARTELL BOURGIE
Borðlampi – fleiri litir
Verð frá 39.900,-
Vandaðar
brúðargjafir
RITZENHOFF
Vínglös
Verð frá 2.550,-
IITTALA ALVAR AALTO
Vasi 22 cm
Verð 18.950,-
ALESSI
Ávaxtakarfa
Verð 17.900,-
KAY BOJESEN
Ástarfuglar
Verð 14.990,-
HOLMEGAARD
Kertalukt grá
Verð frá 9.990,- stk.
ARCHITECTMADE
DISCUS FUGL
Verð frá 5.990,-
IITTALA TOOLS
Eldfast mót
Verð frá 37.900,-
ROSENTHAL TREND
Matar- og kaffistell
Fallegt og stílhreint
Allir sem gera gjafalista hjá okkur fá kaupauka að verðmæti 15% af öllu því sem keypt er af gjafalistanum.
Yfirmaður eþíópíska hersins, Seare
Mekonnen, var á laugardag skotinn
til bana af lífverði sínum. Stuttu áður
hafði háttsettur embættismaður í
Amhara-héraði einnig verið veginn.
Svo virðist sem árásirnar tvær hafi
verið samstilltar.
Að sögn fréttaveitunnar AFP
réðst drápssveit (e. hit squad) inn á
fund háttsettra embættismanna í
Amhara og skaut þar forseta héraðs-
stjórnarinnar og ráðgjafa hans. Lét-
ust þeir síðar af sárum sínum. Þá
slasaðist héraðssaksóknarinn einnig
alvarlega.
Tilraun til valdaráns
Í samtali við fjölmiðla sagði Bil-
lene Seyoum, talskona stjórnvalda,
að um væri að ræða tilraun til valda-
ráns og að henni hefði veitt forystu
Asaminew Tsige, yfirmaður öryggis-
mála í Amhara, sem í fyrra var leyst-
ur úr fangelsi eftir nærri áratug á
bak við lás og slá vegna valdaráns-
áætlunar árið 2009.
Nokkrum klukkustundum síðar
lést Seare Mekonnen, eins og áður
segir, ásamt eldra skyldmenni sem
var í heimsókn á heimili Mekonnen
eftir að hafa verið skotinn af lífverði
sínum. Lífvörðurinn hefur verið
hnepptur í varðhald en áðurnefndur
Asaminew gengur enn laus.
Trúa ekki á þöggun eða morð
Forsætisráðherrann Abiy Ahmed
hefur frá því að hann tók við embætti
í fyrra fengið lof fyrir að hafa lagt sig
fram um að losa um járngreipar for-
vera sinna. Því hefur hins vegar ver-
ið tekið illa af sumum.
Í sjónvarpsútsendingu á landsvísu
í gærmorgun klæddist Ahmed ein-
kennisfatnaði hersins og talaði til
þjóðar sinnar. „Fólkið í Eþíópíu trúir
ekki á þöggun, morð eða að krefjast
valda með því að úthella blóði
bræðra sinna og systra,“ sagði hann.
Tveir háttsettir
voru vegnir
Drápssveit á fundi embættismanna
AFP
Í sjónvarpsútsendingu Ahmed tal-
ar til þjóðar sinnar í gærmorgun.
Yfir 8.000 tóku þátt í hinni árlegu Gleðigöngu í Kænu-
garði, höfuðborg Úkraínu, sem gengin var í gær. Fólk-
ið veifaði regnbogafánum og þjóðfána Úkraínu og að
sögn skipuleggjenda reyndu mótmælendur úr hópi
hægri öfgamanna og meðlima rétttrúnaðarkirkjunnar
að trufla gönguna, m.a. með því að halda uppi fánum
með áletrunum þar sem samkynhneigð var fordæmd.
Nokkur fjöldi var handtekinn fyrir að efna til óeirða.
AFP
Ástin blómstraði í skugga mótmæla
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Íbúar Istanbúl í Tyrklandi gengu að
kjörkössunum í gær í öðrum borgar-
stjórakosningum á einungis þremur
mánuðum. Aftur var það Ekrem
Imamoglu úr stjórnarandstöðu-
flokknum CHP, keppinautur Binali
Yildirim, fulltrúa Réttlætis- og þró-
unarflokks (AKP) Recep Tayyip Er-
dogans Tyrklandsforseta, sem bar
sigur úr býtum og er Imamoglu því
nýr borgarstjóri Istanbúl. Eins og
greint var frá í Morgunblaðinu í vor
voru kosningar um borgarstjóraemb-
ættið ógiltar og ákveðið að blása til
nýrra kosninga eftir að Imamoglu
sigraði í kosningunum. Ástæðan sem
þá var gefin var að kosningin hefði
verið mörkuð af spillingu og ýmsum
annmörkum. Hins vegar segja
stjórnmálagagnrýnendur að Erdog-
an forseti hafi einfaldlega ekki sætt
sig við að láta af hendi stjórnina í Ist-
anbúl.
Vill vinna með forsetanum
Um 54% kjósenda höfðu hakað við
nafn Imamoglu þegar 99% atkvæða
höfðu verið talin í gærkvöld. „Það var
ekki einn hópur eða flokkur, heldur
öll Istanbúl og Tyrkland sem unnu
þessar kosningar,“ sagði Imamoglu í
sigurræðu sinni í gær. Þá sagðist hann
einnig vera tilbúinn til að vinna náið
með Erdogan Tyrklandsforseta og
sagði: „Herra forseti, ég er reiðubúinn
til að starfa í sátt og samlyndi með þér.
Ég óska hér með eftir að fá að funda
með þér eins fljótt og auðið er.“
Andstæðingur Imamoglu, áður-
nefndur Binali Yildirim, hafði viður-
kennt ósigur þegar 95% atkvæða voru
talin í gær og fyrir lá að Imamoglu
myndi taka borgarstjórastólinn. „Ég
óska honum til hamingju og óska hon-
um góðs gengis,“ sagði Yildirim.
Imamoglu borgarstjóri Istanbúl
Flokkur Erdogans Tyrklandsforseta tapaði aftur 54% atkvæða fóru til stjórnarandstöðuflokksins
AFP
Nýr borgarstjóri Ekrem Imamoglu heldur sigurræðu sína í gær.
„Hann kann að
meta pólitíska
dómgreind og
einstakt hug-
rekki Donalds
Trump og mun af
virðingu við
þessa eiginleika
gaumgæfa stór-
fenglegt innihald
bréfsins.“ Á
þennan hátt
greindi ríkisfréttastofa Norður-
Kóreu frá því að Kim Jong-un, leið-
toga landsins, hefði nýverið borist
bréf frá Donald Trump Bandaríkja-
forseta. Ríkisdagblaðið Rodong
Simnun birti mynd af leiðtoganum
á forsíðu sinni um helgina þar sem
hann las bréf Trumps.
Nokkur þíða varð í samskiptum
ríkjanna tveggja þegar leiðtogarnir
hittust á fundi í Singapúr í fyrra.
Fundur þeirra í Hanoi í Víetnam í
vetur, þar sem m.a. átti að semja
um leiðir til þess að afkjarnorku-
vopnavæða Norður-Kóreu, þótti lít-
inn árangur bera og virtist allt vera
komið í sama farveg og áður. Yang
Moo-jin, prófessor við háskólann í
Norður-Kóreu, segir í samtali við
AFP að bréfið sýni að leiðtogarnir
hafi vilja til að bæta samskiptin.
Fékk stórfenglegt
bréf frá Trump
Bréf Kim Jong-un
les bréf Trumps.
NORÐUR-KÓREA
Enn bólar ekkert
á nýrri ríkis-
stjórn í Dan-
mörku, tæpum
þremur vikum
eftir að Danir
gengu að kjör-
borðinu þann 5.
júní. Sjö klukku-
stunda fundi
fjögurra flokka,
undir stjórn
Mette Frederiksen, formanns Jafn-
aðarmannaflokksins, lauk í gær án
árangurs. Flokkarnir eru, auk
Jafnaðarmanna, Radikale Venstre,
Einingarlistinn og Sósíalíski þjóð-
arflokkurinn.
Frederiksen sagði við danska
ríkisútvarpið eftir fundinn að sér
virtist að flokkunum bæri ekki mik-
ið á milli, sem allir eru skilgreindir
á vinstri væng stjórnmálanna. „En
það eru nokkur atriði sem lögð var
mikil áhersla á í kosningabarátt-
unni og við þurfum að ná sam-
komulagi um; velferðarmál, mál-
efni barna og umhverfismál,“ sagði
hún.
„Við erum áfram tilbúin til að
gefa Frederiksen tækifæri,“ sagði
Morten Østergaard, formaður
Radikale Venstre, eftir fundinn.
Stjórnarmyndunar-
viðræður enn í gangi
Stjórn Frederik-
sen er bjartsýn.
DANMÖRK