Morgunblaðið - 24.06.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.06.2019, Blaðsíða 14
SVIÐSLJÓS Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Ég myndi vilja byrjaskóladaginn hjá ungling-um kl. 10 eða jafnvel 11,en svo langt eru umræð- ur ekki komnar,“ segir Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, skóla- meistari Fjölbrautaskólans í Breið- holti. Hún bendir á að taka verði með í umræðuna að unglingar verði seinna syfjaðir en fullorðnir og fái því sjaldnar nægan svefn. Ef allt væri eðlilegt þyrftu unglingar af líkamlegum ástæðum að sofa til kl. 9 eða 9.30 á morgnana. Guðrún Hrefna segir að sé ætlunin að bæta skólastarf þurfi kennarar að hafa meiri tíma til þess að tala saman. Með því að kennarar mættu fyrr en nemendur fengist gullið tækifæri til skipu- lagningar. Margir grunn- og fram- haldsskólar hafa seinkað byrjun skóladags af ýmsum ástæðum. Grunnskóli Vestmannaeyja, GRV, ætlar að hefja skóladaginn næsta vetur kl. 8.10 í stað 8 sem til- raunaverkefni næsta skólaár. Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri GRV, segir að fáir skólar á landinu hefji kennslu kl. 8. Gallar og kostir þess að breyta upphafstíma kennslu í GRV hafi verið vandlega skoðaðir og vonast hún til þess að með seinkuninni verði meiri ró í byrjun skóladags, nemendur nýti sér ókeypis hafragraut og álag vegna umferðar minnki á mesta álagstímanum. Anna Rós segir að skólinn verði opnaður fyrir nem- endur 7.45 og skólaliðar verða þá til taks. Hún telur að með breyt- ingunum gefist tækifæri til stuttra tilkynningafunda með starfs- mönnum og ef vel takist til sé ekki loku fyrir það skotið að seinka enn frekar byrjun skóladags hjá ungl- ingastiginu. Minnkandi álag á heimilum Hrefna Sigurjónsdóttir, fram- kvæmdastjóri Heimilis og skóla, segist finna fyrir áhuga foreldra á því að seinka byrjun skóladags á morgnana og almennt sé ánægja hjá foreldrum þar sem slíkt fyrir- komulag sé. Hún segir að seinkun á byrjun skóladags komi ungling- um sérstaklega vel og foreldrar tali um minnkandi álag á heimilum. Í Garðabæ byrja skólar á mis- munandi tímum. Ástæðurnar eru margvíslegar, t.d. byrjar skólinn á Álftanesi á þremur mismunandi tímum á meðan byggingarfram- kvæmdir standa þar yfir. Flataskóli og Garðaskóli eru við sama umferð- arsvæði og til að létta á umferðinni byrja þeir sinn á hvorum tímanum. „Það sama má segja um Fjöl- brautaskólann í Garðabæ og Hofs- staðaskóla sem eru hlið við hlið,“ segir Katrín Friðriksdóttir, deildar- stjóri skóladeildar Garðabæjar. Hún segir að nú sé unnið úr könn- un sem gerð var meðal foreldra og nemenda um viðhorf þeirra til þess að seinka byrjun skóladags hjá nemendum á unglingastigi. Engar ákvarðanir hafi verið teknar, enda sé einungis verið að kanna viðhorf þessara hópa sem innlegg í frekari umræðu. Samkvæmt upplýsingum frá Kópavogi hefjast allir skólar þar í bæ, nema Kópavogsskóli, á bilinu 10 mínútur yfir átta til hálfníu. Fyrstu skólarnir eru opnaðir kl. 7.30 fyrir nemendur en engin þjón- usta er í boði svo snemma dags nema í Hörðuvallaskóla þar sem yngri börn koma síðar en aðrir nemendur. Frá 2013 hafa unglingar í Álfhólsskóla og Vatnsendaskóla mætt kl. 8.30 sem er seinna en aðr- ir nemendur skólanna gera. Vill byrja skóladag unglinga eftir kl. 10 Morgunblaðið/Eggert Vellíðan Nemendur í Háteigsskóla skemmta sér. Margt bendir til þess að hugsanlega sé betra að hefja skóladag síðar á morgnana en verið hefur. 14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Svo virðist semtilraunirstjórnar- andstöðunnar í Venesúela til þess að koma frá völdum hinum ólöglega kjörna forseta landsins, Nicolas Maduro, hafi ratað í öngstræti um sinn. Skrifast það ekki síst á að her- inn hefur til þessa ekki snúist á sveif með Juan Guaido, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, heldur haldið tryggð við Maduro. Enginn skyldi þó ætla, að ástandið í landinu sé að komast aftur á eðlilegt ról. Íbúar lands- ins búa við sult og seyru, raf- orkukerfið er komið að fótum fram og skömmtun er á helstu nauðsynjavörum vegna óstjórn- ar Maduros og chavistanna. Áætlað er að um þrjár milljónir manna, um einn tíundi af íbúa- fjölda landsins, séu nú á flótta vegna ástandsins. Það segir meira en mörg orð, að olíuframleiðsla landsins er nú innan við helmingur af eft- irspurninni innanlands. Vene- súela, sem ætti ef allt væri með felldu að vera einn helsti olíu- útflytjandi heimsins, flytur því inn olíu og skammtar hana með þeim afleiðingum að sums stað- ar þarf fólk að bíða í biðröð í tvo sólarhringa til að fá bensín. En hvar fær Maduro-stjórnin fjármagn til þess að flytja inn olíu, borga hermönnum laun og viðhalda fantatökum sínum á samfélaginu? Ein vísbending kom í síðustu viku, þegar The Wall Street Journal greindi frá því, að seðlabanki landsins hefði náð að selja hluta af gullforða sínum til fyrirtækis í Úg- anda. Gat blaðið upplýst að tvær sendingar, með samtals nær sjö og hálfu tonni af gullstöngum, hefðu farið til landsins í mars síðastliðnum. Sumar stangirnar báru stimpil sem staðfesti upprunann. Áætlað er að markaðsvirði þessara stanga sé meira en 300 milljónir bandaríkjadala, eða sem nemur hátt á fjórða tug milljarða íslenskra króna. Það bætist við fyrri sölur seðla- bankans á gullforðanum, en áætlað er að bankinn hafi náð að selja að minnsta kosti 73 tonn af gulli frá lokum ársins 2017 fram til febrúar á þessu ári. Markaðsvirði þess alls er um þrír milljarðar bandaríkja- dala. Salan á gullforðanum sýnir, að tekjumöguleikar Maduro- stjórnarinnar eru að skreppa saman, og má segja að bruna- útsalan á síðustu eigunum sé hafin. Spurningin er hvort þetta síðasta hálmstrá muni duga Maduro og sósíalistum hans til þess að halda í sín illa fengnu völd. Líklegasta niðurstaðan er sú, að þetta verði helst til þess að framlengja um sinn þá áþján sem almenningur í Venesúela má búa við, og að skellurinn, þegar hann að endingu kemur, verði þeim mun erfiðari fyrir þá sem þurfa að endurreisa Vene- súela úr öskustó sósíalismans. Valdhafar í Vene- súela eru farnir að grípa til örþrifaráða} Brunaútsalan hafin Það vakti athygliþegar Xi Jinp- ing, forseti Kína, ákvað að heimsækja Kim Jong-un, ein- ræðisherra Norður- Kóreu, í lok síðustu viku en það er í fyrsta sinn í 14 ár sem leið- togi Kínverja sækir hina óþægu bandamenn sína á Kóreuskag- anum heim. Fyrir þeirri löngu bið er rík ástæða því í millitíðinni hefur Norður-Kórea komið sér upp kjarnorkuvopnum og látið ófriðlega gagnvart öðrum ríkj- um. Að endingu fengust Norður-- Kóreumenn aftur að samninga- borði um framtíð gjöreyðing- arvopna þeirra, en það var ekki síst vegna þess að Kínverjar tóku óvænt þátt í refsiaðgerðum gegn Norður-Kóreu, þrátt fyrir að þeir beittu sér reyndar um leið til þess að þær yrðu mildari en ella hefði orðið. Með þeirri aðstoð tókst þó að setja á aðgerðir sem bitu nóg til þess að Kim Jong-un féllist á sögulegar viðræður, fyrst við Moon Jae-in, forseta Suður- Kóreu, og svo við Donald Trump Bandaríkjaforseta. En þrátt fyr- ir að þær viðræður hafi í fyrstu lofað góðu, hefur virst sem enn sé of mikill meiningar- munur milli aðila til þess að hægt sé að gera ráð fyrir að kjarnorkudeilan við Norður- Kóreu leysist á næstunni. Viðskiptadeilur Bandaríkj- anna og Kína fléttast svo inn í þetta og talið er að Kínverjar muni vilja nota deiluna við Norð- ur-Kóreu sem nokkurs konar vogarstöng í samskiptum sínum við Bandaríkjastjórn. Heimsókn- in nú þykir einnig senda skila- boð, þar sem áætlað er að Xi fundi með Trump á ráðstefnu G20-ríkjanna í þessari viku. Í gær bárust svo fregnir af því að Trump hefði sent Kim bréf sem sá síðarnefndi hefði verið af- ar ánægður með og ríkisútvarpið í Norður-Kóreu sagði hann „velta af alvöru fyrir sér áhuga- verðu efni þess“. Þetta eru fyrstu jákvæðu fréttirnar af málefnum Norður- Kóreu í langan tíma og gætu ver- ið vísbending um að eitthvað fari að þokast á ný. Þegar einræðis- herra eins og Kim á í hlut er þó sjálfsagt að taka öllu með mikl- um fyrirvara. Kim og Xi nálgast á ný og þá sendir Trump bréf til Kim} Ljósglæta? Í byrjun árs fól ég Embætti land- læknis að gera aðgerðaáætlun til að draga úr sykurneyslu landsmanna. Embættið hefur nú skilað aðgerða- áætlun í 14 liðum sem lúta meðal annars að heilsueflandi samfélögum, skólum og vinnustöðum, aukinni heilbrigðisfræðslu á öllum skólastigum, eflingu heilsugæslunnar með heilsueflandi móttökum, hollara matar- framboði í íþróttamannvirkjum og að því að hafa hærri álögur á sykurríkum mat en lægri álögur á ávöxtum og grænmeti. Á ríkis- stjórnarfundi í síðustu viku var ákveðið að skipa starfshóp sem verður falið að innleiða aðgerðaáætlun Embættis landlæknis. Í stjórnarsáttmála kemur fram að skoða eigi beitingu efnahagslegra hvata til eflingar lýðheilsu. Í minnisblaði Embættis landlæknis sem lagt var fram í ríkisstjórn fyrir rúmu ári kemur fram að embættið leggur áherslu á að lýðheilsusjón- armið verði höfð til hliðsjónar þegar kemur að því að beita efnahagslegum hvötum þannig að þeir virki sem forvarnaraðgerð og verði til að bæta heilsu Íslendinga. Aðgerðaáætlunin er í samræmi við þessar áherslur embættisins á forvarnir og beinir sjónum að áhrifaþátt- um heilsu í lífsstíl fólks eins og mataræði, hreyfingu og svefni. Á Íslandi, samanborið við önnur norræn lönd, er mest neysla á sykruðum gos- drykkjum og sykurríkum vörum. Sykraðir gos- og svaladrykkir vega þyngst í sykur- neyslu hér á landi en rúmlega þriðjungur (34%) af viðbættum sykri í fæði landsmanna kemur úr þessum vörum. Verð á gos- drykkjum er lágt á Íslandi og lækkaði enn frekar þegar vörugjöld voru afnumin í byrj- un árs 2015. Er það andstætt þeirri þróun sem á sér stað í vestrænum löndum þessi misserin. Þá hefur ítrekað komið fram að hlutfall of feitra er hátt á Íslandi og neysla á sykur- ríkum vörum eykur líkur á offitu og tann- skemmdum og mikil neysla á sykruðum gos- og svaladrykkjum getur auk þess aukið líkur á sykursýki af tegund 2. Í nýrri skýrslu frá WHO kemur fram að það sé vax- andi vísindalegur grunnur fyrir því að vel skipulagðir skattar á matvæli, ásamt fleiri aðgerðum, geti verið áhrifarík leið til að bæta neysluvenjur. Það er mín skoð- un að skattlagning ætti að vera ein af forgangs- aðgerðum stjórnvalda til að fyrirbyggja langvinna sjúk- dóma. Svandis Svavarsdóttir Pistill Drögum úr sykurneyslu Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Fjölbrautaskólinn í Breiðholti fékk hvatningarverðlaun Heilsueflandi framhaldsskóla, Gulleplið 2019, fyrir fram- úrskarandi heilsueflingarstarf. Á vef Embættis landlæknis kemur fram að FB hafi mark- visst unnið að því að taka upp þætti sem taldir eru skipta hvað mestu máli til að bæta svefnvenjur nemenda. FB stuðlaði m.a. að fræðslu og samstarfi við heimili um góð- ar svefnvenjur, áhrif svefns á dægursveiflur, líkams- starfsemi, frammistöðu og heilsu og líðan. Frá 2015 hef- ur skólabyrjun verið kl. 8.30 og í skoðun er hvort seinka eigi henni enn frekar. Eftir skólaböll er frí í fyrsta tíma og nemendum sem eiga erfitt með að vakna er gefinn kost- ur á að hefja skóladaginn klukkan 9.50. FB fékk Gull- eplið 2019 HVATNINGARVERÐLAUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.