Morgunblaðið - 24.06.2019, Síða 23

Morgunblaðið - 24.06.2019, Síða 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 2019 Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG ER EKKI MEÐ TÖSKU!” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera hvatvís. HEI, MÝSLA, HVAÐ SYNGUR? KEMUR ÞÉR EKKI VIÐ, HLUNKUR MÝS ERU UPPSTÖKKAR ÞEGAR ÞÆR HAFA EKKI FENGIÐ MORGUNOSTINN ÉG HEF VERIÐ MEÐ HRÆÐILEGAN HÖFUÐVERK TIL LANGS TÍMA … ÞÚ ÞARFT AÐ HITTA LÆKNI! NEI … ÉG ÞARF AÐ HITTA SKILNAÐARLÖGFRÆÐING! TOLLUR „EN HVORKI HIRÐMENN KONUNGS NÉ RIDDARAR GÁTU GERT FRAMBÆRILEGA EGGJAKÖKU.” „Helsta áhugamál mitt síðustu 25 árin hefur verið endurbætur og upp- bygging Amtmannshússins á Arnar- stapa og nýbygginga þar í hópi góðra vina. Amtmannshúsið er nú komið í eigu annarra og verkefninu lokið. Við hjónin stefnum nú að því að koma okkur upp aðstöðu á yndis- legum stað á Mýrunum í Borgar- byggð.“ Fjölskylda Eiginkona Stefáns er Guðrún Ingibjörg Gunnarsdóttir, f. 6.12. 1948, myndlistarmaður og leið- sögumaður. Foreldrar hennar eru Gunnar Ólafsson, f. 20.7. 1921, fyrr- verandi framkvæmdastjóri, og Dýr- leif Hallgríms, f. 16.5. 1923, hús- móðir. Þau eru búsett í Reykjavík. Börn Stefáns og Guðrúnar eru 1) Stefán Gunnar, f. 4.8. 1970, umhverf- ishagfræðingur. Maki: Sigríður Ólafsdóttir, f. 7.10. 1970, arkitekt. Börn: Snorri Steinn, f. 30.8. 1995, háskólanemi, og Ágústa Sól, f. 3.10. 1998, háskólanemi; 2) Valtýr, f. 18.7. 1975, barnalæknir. Maki: Edda Mar- grét Guðmundsdóttir, f. 7.7. 1975, sálfræðingur. Börn: Guðjón Gunnar, f. 22.1. 1999, nýstúdent, Helga, f. 15.11. 2005, grunnskólanemi, Guð- mundur Valur, f. 23.8. 2007, grunn- skólanemi, og Stefán Albert, 17. 3. 2017, leikskólanemi. Systkini Stefáns eru Kjartan Thors, f. 14.7. 1945, jarðfræðingur; Kristín Thors, f. 3.2. 1948, förðunar- fræðingur, og Björn Thors, 3. 9. 1950, yfirmaður tæknideildar á Morgunblaðinu. Foreldrar Stefáns voru hjónin Björn Thors, f. 28.2. 1923, d. 26.3. 1997, blaðamaður á Morgunblaðinu, og Helga Valtýsdóttir, f. 22.9. 1923, d. 24.3. 1968, leikkona. Stefán Thors Björn Thors blaðamaður hjá Morgunblaðinu Ágústa Björnsdóttir húsmóðir í Reykjavík Björn Jensson menntaskólakennari í Rvík Henriette Louise Henriksdóttir (Svendsen) húsmóðir í Rvík Thor Jensen framkvæmdastjóri í Rvík Margrét Þorbjörg (Kristjánsdóttir) Jensen húsmóðir í Rvík Kjartan Thors framkvæmdastjóri í Reykjavík Kristín Thors húsmóðir í Reykjavík Thor Vilhjálmsson rithöfundur Örnólfur Thorsson forsetaritari Guðmundur Andri Thorsson alþingismaður og rithöfundur Hulda Valtýsdóttir blaðamaður Kristín Gunnarsdóttir fv. blaðamaður Hulda Stefánsdóttir prófessor við Listaháskóla Íslands Björn Thors tæknimaður Björn Thors leikari Stefán Stefánsson skólameistari Menntaskólans á Akureyri Steinunn Frímannsdóttir húsmóðir á Akureyri Valtýr Stefánsson ritstjóri Morgunblaðsins Jón Kristján Antonsson bóndi á Arnarnesi Kristín Jónsdóttir listmálari í Reykjavík Guðlaug Helga Sveinsdóttir bóndi á Arnarnesi í Eyjafi rði Úr frændgarði Stefáns Thors Helga Valtýsdóttir leikkona í Reykjavík Ingólfur Ómar Ármannssonskrifaði mér og sagðist hafa ort kvæði undir sömu hrynjandi og „Fyrr var oft í koti kátt“. Þannig væri mál með vexti að hann ætlaði að flytja þetta á Jónsmessu- skemmtun svona að gamni sínu. Ljóðið er í anda gömlu góðu dag- anna, – og létt og leikandi leyfi ég mér að bæta við. Fyrr var oft í koti kátt komu margir saman, þá var skrollað, dansað dátt, að dömum hent var gaman. Réði galsi ríkjum þar reisn var yfir mönnum, kneyfað öl úr krúsum var og kveðin ljóð í hrönnum. Nætursumbl við glaum og glys gladdi margan segginn, oft var farið afsíðis út við hlöðuvegginn; örmum vafði halur hrund, hugljúf sungu kvæði, yndisblíðan ástarfund áttu þar í næði. Glumdi hlátur gjarnan þá gleðin brann á vörum, taumlaus vífin tryllt af þrá tóku að fækka spjörum. Eftir mikið þjark og þjór og þrotlaust næturgaman, oft úr böndum fjörið fór fírum lenti saman. Eftir sigurinn á Tyrkjum orti Helgi R. Einarsson: Til sólar þeir varla sáu hjá sundunum fagurbláu. Fyrst elti’ okkur lánið við erfum ei ránið. Loks í því Danirnir lágu. Pétur Stefánsson orti á Leir og ekki að ástæðulausu: Þurrkur magnast, skorpnar skinn, skraufaþurr er hlíðin. Drífðu þig nú Drottinn minn að demba regni á lýðinn. Og enn yrkir hann og er mýkri á manninn: Visnað hefur gróður grænn, gerast raunir harðar. Elsku Drottinn vertu vænn og vökvaðu plöntur jarðar. Friðrik Steingrímsson er vantrúaður eins og fleiri Mývetn- ingar: Trauðla Drottinn trú ég sinni tuði þínu Pétur sæll, varla nokkuð átt þar inni, ekki dugar þessi væll. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Gamalt ljóð í nýjum búningi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.