Morgunblaðið - 24.06.2019, Page 24

Morgunblaðið - 24.06.2019, Page 24
HM 2019 Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Heimsmeistaramót kvenna í knatt- spyrnu stendur nú sem hæst og um helgina urðu Þýskaland, Noregur, England og Frakkland fyrstu liðin til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum mótsins. Það sem hefur skyggt á spennandi leiki og góð til- þrif á mótinu er hins vegar mynd- bandadómgæslan. Hún hefur verið vægast sagt umdeild á meðal knatt- spyrnuáhugafólks, en náði sennilega nýjum hæðum þegar leikmennirnir sjálfir létu óánægju sína í ljós inni á vellinum eins og gerðist í 16-liða úr- slitunum í gær. England vann þá 3:0-sigur á Ka- merún í 16-liða úrslitunum. Annað mark Englands í uppbótartíma fyrri hálfleiks, sem fyrst var dæmt ógilt vegna rangstöðu, var látið standa eftir að myndbandsupptökur voru skoðaðar. Leikmenn Kamerún neit- uðu að taka miðju í kjölfarið, en loks var hægt að halda leik áfram. Þegar mark var svo dæmt af Kamerún í upphafi síðari hálfleiks tafðist leik- urinn lengi vel þar sem róa þurfti leikmenn niður vegna bræði. Kamerún er þó ekki úr leik vegna myndbandadómgæslu og þó hegð- unin innan vallar hafi ekki verið til fyrirmyndar þá undirstrikaði hún vandræðin sem hafa verið í gangi á mótinu vegna þessarar tækni. Að lokum er það alltaf mannsaugað sem tekur lokaákvörðunina. Þó nú sé hægt að horfa oftar á atvikin eiga mistökin sér enn stað. Myndbandið bjargaði Maríu María Þórisdóttir og lið Noregs verða mótherjar Englands í átta liða úrslitunum, en María komst heldur betur í hann krappan þegar Nor- egur vann Ástralíu eftir vítakeppni. Í venjulegum leiktíma var í fyrstu dæmt víti á Maríu fyrir að hafa handleikið boltann, að því er virtist, og beið hún með öndina í hálsinum á meðan atvikið var skoðað gaumgæfi- lega af dómara leiksins á mynd- bandi. Að lokum var dómnum snúið við, boltinn sagður hafa farið í öxlina á Maríu og fögnuðurinn var á við sigur í leiknum. Leikur Frakka og Brasilíu fór einnig í framlengingu, en ekki þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni þar sem fyrirliðinn Amandine Henry skoraði um miðbik framlenging- arinnar og tryggði 2:1-sigur. Þjóð- verjar voru svo ekki í vandræðum með Nígeríu og unnu 3:0 sigur, en Frakkar og Þjóðverjar þurfa að bíða eftir leikjum dagsins til þess að kom- ast að því hvaða lið bíða þeirra í átta liða úrslitunum. Ósættið braust út á vellinum  Myndbandadómgæslan hefur stolið senunni á HM á röngum forsendum AFP Gleði og sorg England fagnar marki gegn Kamerún í 16-liða úrslitunum í gær. Jeannette Yango og liðsfélagar sýndu óánægju með dómgæslu í verki. 24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 2019 Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐ ÞÉR AÐ KOSTNAÐAR- LAUSU Ertu að byggja eða þarf að endurnýja gamla glerið? Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem reynist vel við íslenskar aðstæður. Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS Ameríkubikarinn A-riðill Perú – Brasilía ......................................... 0:5 Casemiro 12., Firmino 19., Everton 32., Al- ves 53., Willian 90. Bólivía – Venesúela ................................. 1:3 Justiniano 82. – Machís 2., 55., Martínez 86. Lokastaðan: Brasilía 7, Venesúela 5, Perú 4, Bólivía 0. B-riðill Katar – Argentína ................................... 0:2 Martínez 4., Agüero 82. Kólumbía – Paragvæ .............................. 1:0 Cuéllar 31. Lokastaðan: Kólumbía 9, Argentína 4, Paragvæ 2, Katar 1. C-riðill Ekvador – Síle.......................................... 1:2 E. Valencia 26. – Fuenzalida 8., A. Sánchez 51. Rautt spjald: Achiller (Ekvador) 89. Staðan: Síle 6, Úrúgvæ 4, Japan 1, Ekvador 0. Bandaríkin Portland Thorns – Utah Royals............. 0:0  Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn með Portland.  Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn með Utah. Staða efstu liða: Washington Spirit 18, Ut- ah Royals 17, Portland Thorns 16, North Carolina Courage 13, Houston Dash 13.  Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnu- kylfingur úr Leyni, hafnaði í 54. sæti á taílenska meistaramótinu sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Valdís fór í gegnum niðurskurð- inn á föstudag og þriðji hringur á laugardag var hennar besti þar sem hún lék á höggi undir pari. Á loka- hringnum skemmdi fyrsta holan allt fyrir henni, þar sem hún fékk fjórfaldan skolla, en lék svo hinar holurnar á höggi undir pari. Valdís fékk tæpar 1.300 evrur í verðlaunafé og fór upp um tvö sæti og í það 65. á stigalista mótsins. Ein hola fór illa hjá Valdísi Ljósmynd/LET Taíland Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir lék vel um helgina. Þýska liðið Alba Berlín, sem Martin Hermannsson leikur með, fór illa að ráði sínu í þriðja úrslitaleiknum við Bayern München um þýska meistaratitilinn í körfuknattleik í gær. Eftir að hafa verið yfir allan leikinn glutraði Alba niður forskoti sínu í fjórða leikhluta þar sem lið Bayern tryggði sér framlengingu og vann að lokum 93:88. Bayern vann þar með einvígi lið- anna í úrslitunum 3:0 og titilinn annað árið í röð. Martin skoraði sjö stig fyrir Alba og hefur nú lokið sínu fyrsta tímabili með liðinu. Martin sá á eftir titlinum Ljósmynd/Eurocup Þýskaland Martin Hermannsson var öflugur með Alba á tímabilinu. Það voru þau Saga Traustadóttir, GR, og Rúnar Arnórsson, GK, sem stóðu uppi sem sigurvegarar á Ís- landsmótinu í holukeppni sem fram fór á Garðavelli á Akranesi um helgina. Saga vann þá sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í holukeppni eftir sigur í bráðabana gegn Ragn- hildi Kristinsdóttur, sem bar sigur úr býtum í fyrra. Saga fékk fugl á fyrstu holu bráðabana og tryggði sér þar með titilinn. „Mér líður rosalega vel. Ég er bú- in að bíða eftir þessu. Mér leið mjög vel fyrir mótið og hafði góða til- finningu,“ sagði Saga sigursæl. Hulda Clara Gestsdóttir vann svo Amöndu Guðrúnu Bjarnadóttur í leiknum um þriðja sætið. Rúnar sigraði Ólaf Björn Lofts- son í úrslitaleiknum og varði þar með titilinn frá því í fyrra, en Rún- ar var þremur holum yfir þegar tvær voru eftir og tryggði sér þar með titilinn. Hann átti nokkuð skrautlegt mót því golfsettið hans skilaði sér ekki frá útlöndum fyrr en eftir fyrsta keppnisdag og hóf hann því leik með eldra setti. Jóhannes Guðmundsson vann leikinn um þriðja sætið við Arnór Inga Finnbjörnsson í bráðabana. Fyrsti Íslandsmeistaratitill Sögu en Rúnar vann aftur Ljósmynd/GSÍ Meistarar Saga Traustadóttir og Rúnar Arnórsson með sigurlaun sín. Perla Ruth Al- bertsdóttir, landsliðskona í handknattleik, hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram. Hún kem- ur til liðsins frá uppeldisfélagi sínu Selfossi, en hún var marka- hæsti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð þegar Selfyssingar féllu úr deildinni. Perla er 23 ára gömul og hefur verið lykilmaður á Selfossi síðustu ár, en hún er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað í horni og á línunni. Þá á hún að baki 21 lands- leik fyrir Ísland og hefur í þeim skorað 34 mörk, en hún var meðal annars með liðinu sem tapaði fyrir Spáni í umspili um sæti á HM fyrr í mánuðinum. sport@mbl.is Perla Ruth tekur slaginn með Fram Perla Ruth Albertsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.