Morgunblaðið - 24.06.2019, Qupperneq 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 2019
Norðlingabraut 8
110 Reykjavík
S: 530-2005
Bíldshöfði 16
110 Reykjavík
S: 530-2002
Tryggvabraut 24
600 Akureyri
S: 461-4800
&530 2000
www.wurth.is
Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur
Arvada flísjakki
• 100% prjónað pólýester
• Einstaklega þægilegir og flottir
flísjakkar með hettu og vösum
• Til í gulum og bláum lit
• Stærðir: XS - 3XL
Vnr: 1899 312
Verð: 8.900 kr.
Bambus sokkar
• 80% bambus/17% pólýamíð/3% teygju-
efni, mjög þægilegir og mjúkir
• Draga úr ólykt og þú svitnar mun minna
• 5 pör í pakka
• Stærðir: 39 - 42 og 43 - 46
Vnr: M451 044
Verð: 4.990 kr.
(5 pör í pakka)
Pepsi Max-deild kvenna
Þór/KA – KR............................................. 2:2
ÍBV – Valur............................................... 1:3
Staðan:
Valur 7 7 0 0 26:4 21
Breiðablik 6 6 0 0 18:4 18
Þór/KA 7 4 1 2 13:13 13
ÍBV 7 3 0 4 13:11 9
Stjarnan 6 3 0 3 5:8 9
Selfoss 6 2 0 4 6:12 6
HK/Víkingur 6 2 0 4 4:10 6
Fylkir 6 2 0 4 6:15 6
KR 7 1 1 5 7:17 4
Keflavík 6 1 0 5 8:12 3
2. deild kvenna
Leiknir R. – Hamrarnir ........................... 1:3
Völsungur – Sindri ................................... 3:2
Staðan:
Völsungur 5 5 0 0 12:6 15
Grótta 5 3 1 1 11:3 10
Fjarð/Hött./Leikn. 4 2 0 2 12:4 6
Álftanes 4 2 0 2 11:5 6
Hamrarnir 4 2 0 2 6:7 6
Sindri 4 1 0 3 4:12 3
Leiknir R. 6 0 1 5 2:21 1
HM kvenna í Frakklandi
16-liða úrslit
Þýskaland – Nígería................................ 3:0
Popp 20., Däbritz (víti) 27., Schüller 82.
Þýskaland mætir Svíþjóð eða Kanada í
átta liða úrslitum á laugardag.
Noregur – Ástralía .................................. 1:1
Herlovsen 31. – Kellond-Knight 83. Rautt
spjald: Kennedy (Ástralíu) 104.
Noregur vann í vítakeppni, 4:1, og mætir
Englandi í átta liða úrslitum á fimmtudag.
England – Kamerún................................ 3:0
Houghton 14., White 45., Greenwood 58.
England mætir Noregi í átta liða úrslit-
um á fimmtudag.
Frakkland – Brasilía ............................... 2:1
Gauvin 52., Henry 106. – Isa 63.
Frakkland vann eftir framlengingu og
mætir annaðhvort Spáni eða Bandaríkjun-
um í átta liða úrslitum á föstudag.
KNATTSPYRNA
Knattspyrna
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deild:
Nettó-völlur: Keflavík – Stjarnan....... 19.15
Würth-völlur: Fylkir – Selfoss ............ 19.15
Kópavogsv.: Breiðabl. – HK/Víkingur 19.15
1. deild karla, Inkasso-deild:
Rafholts-völlur: Njarðvík – Haukar ... 19.15
Í KVÖLD!
0:1 Ásdís Karen Halldórsdóttir 3.
1:1 Stephany Mayor 9. (víti)
1:2 Katrín Ómarsdóttir 49.
2:2 Karen M. Sigurgeirsdóttir 88.
I Gul spjöldBirna Kristjánsdóttir (KR).
MM
Katrín Ómarsdóttir (KR)
ÞÓR/KA – KR 2:2
M
Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA)
Karen M. Sigurgeirsd. (Þór/KA)
Þórdís Hrönn Sigfúsd. (Þór/KA)
Ásdís Karen Halldórsdóttir (KR)
Birna Kristjánsdóttir (KR)
Guðmunda Brynja Óladóttir (KR)
Grace Maher (KR)
Dómari: Sigurður H. Þrastarson, 9.
Áhorfendur: 204.
AKUREYRI/EYJAR
Baldvin Kári Magnússon
Arnar Gauti Grettisson
Það voru tvö svekkt lið sem gengu
af velli á Akureyri í gær þegar
Þór/KA og KR gerðu 2:2 jafntefli í
Pepsi Max-deild kvenna í knatt-
spyrnu. Þór/KA spilaði ekki vel í
gær en náði þrátt fyrir það að
bjarga stigi þegar langt var liðið á
leikinn. Fram að því benti ekkert
til þess að heimaliðið næði að
brjóta vörn KR á bak aftur.
KR-ingar spiluðu leikinn gríðar-
lega vel og var þetta án efa þeirra
besta frammistaða í sumar. Katrín
Ómarsdóttir spilaði frábærlega og
það sama má segja um aðra
sóknarleikmenn KR. Liðið skapaði
sér nóg af færum til að skora og
hélt boltanum vel. Það er því gríð-
arlega svekkjandi fyrir Vest-
urbæjarliðið að þessi frammistaða
hafi ekki skilað sér í þremur stig-
um sem liðið þarf sárlega á að
halda. Liðið hefur farið illa af stað
í sumar og er aðeins með fjögur
stig eftir sjö umferðir. Þessi
frammistaða ætti að gefa góð
fyrirheit fyrir komandi leiki.
Heimaliðið má vera svekkt með
sína frammistöðu. Liðið fékk fín
færi í fyrri hálfleik til að komast
yfir en nýtti þau ekki. Jafnteflið
þýðir það að Þór/KA liðinu mis-
tekst að stytta bilið í Breiðablik
og Val sem eru fyrir ofan í deild-
inni. Akureyrarliðið virðist ekki
hafa burði til þess að taka þátt í
toppbaráttunni af fullri alvöru eins
og liðið hefur gert undanfarin tvö
ár.
Valskonur enn með fullt hús
Það er fátt sem fær stöðvað
Valskonur og eru þær enn með
fullt hús stiga eftir sjö leiki og 3:1
sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum í
gær. Emma Kelly kom ÍBV
snemma yfir, en eftir að Valur
komst yfir var sigurinn þó ekki
innsiglaður fyrr en með þriðja
markinu rétt fyrir leikslok.
Það er ekki langt síðan Vals-
konur komu til Eyja og unnu ÍBV
7:1 í bikarkeppninni, en þá var
Valsliðið mun betra og ÍBV átti
ekki séns. Það var allt annað að
sjá Eyjakonur í þessum leik, en
þær voru sterkari á vellinum í
fyrri hálfleik með Cloé Lacasse
fremsta í flokki. Hún fékk íslensk-
an ríkisborgararétt á dögunum
sem er mikill fengur fyrir íslenska
knattspyrnu og var hún heiðruð
fyrir leik.
Valskonur undirstrikuðu mikinn
styrk í þessum leik því þær sýndu
alls ekki sína bestu frammistöðu
og voru nokkrir lykilmenn liðsins
ekki alveg í takti. Samt mæta þær
til Vestmannaeyja og vinna sigur.
Það er alltaf styrkleikamerki á liði
að þó svo að það spili ekki sinn
besta leik sigli það samt sem áður
þremur stigum í hús.
KR missti bráð-
nauðsynleg stig
Þór/KA hefur ekki burði fyrir topp-
baráttu Valur þurfti ekki stjörnuleik
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Markaskorari Katrín Ómarsdóttir mundar skotfótinn gegn Þór/KA í gær.
1:0 Emma Kelly 4.
1:1 Hlín Eiríksdóttir 39.
1:2 Sjálfsmark 45.
1:3 Margrét Lára Viðarsdóttir 85.
I Gul spjöldSigríður Lára Garðarsdóttir
og Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari
(ÍBV), Fanndís Friðriksdóttir, Margrét
Lára Viðarsdóttirog Hlín Eiríksdóttir
(Val).
ÍBV – VALUR 1:3
M
Cloé Lacasse (ÍBV)
Emma Kelly (ÍBV)
Helena Jónsdóttir (ÍBV)
Guðný Árnadóttir (Val)
Hlín Eiríksdóttir (Val)
Margrét Lára Viðarsdóttir (Val)
Mist Edvardsdóttir (Val)
Sandra Sigurðardóttir (Val)
Dómari: Arnar Þór Stefánsson, 5.
Áhorfendur: 135.
Þýskaland
Þriðji úrslitaleikur:
Bayern München – Alba Berlín .......... 93:88
Martin Hermannsson skoraði sjö stig og
gaf tvær stoðsendingar með Alba Berlín.
Bayern München vann einvígið 3:0.
Íslendingar voru í eldlínunni á Evr-
ópuleikunum í Minsk. Sveinbjörn
Iura keppti í -81 kg flokki í júdó og
fór beint í 32ja manna úrslit þar
sem hann mætti Ivaylo Ivanov frá
Búlgaríu. Sveinbjörn tapaði á ipp-
on, en Ivanov vann silfur.
Ásgeir Sigurgeirsson keppti í 10
m loftbyssu, fékk 565 stig og hafn-
aði í 32. sæti af 36 í undan-
keppninni.
Á laugardag datt Eowyn Marie
Alburo Mamalias úr leik í bogfimi
en vakti mikla athygli enda yngsti
keppandinn í greininni.
Tapaði fyrir
silfurhafanum
Ljósmynd/ÍSÍ
Júdó Sveinbjörn Iura gegn Ivaylo
Ivanov á Evrópuleikunum í gær.
Aðeins tvö stig skilja efstu fimm lið-
in að í 1. deild karla í knattspyrnu,
Inkasso-deildinni, en 8. umferð lauk
um helgina. Þórsarar eru á toppn-
um með 16 stig eftir markalaust
jafntefli við Keflavík, en Víkingur
Ólafsvík missti af tækifærinu að
jafna Þórsara eftir að hafa tapað
heima fyrir Fram, 1:0.
Framarar eru nú komnir fyrir of-
an Ólafsvíkinga í 5. sætið með 14
stig. Grótta er sömuleiðis með 14
stig eftir öruggan 4:1-sigur á
Magna, sem situr í botnsætinu með
fimm stig. yrkill@mbl.is
Allt í hnút í
efri hlutanum
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Jafntefli Jóhann Helgi Hannesson,
Þór, skallar að marki Keflavíkur.