Morgunblaðið - 24.06.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 2019
Smiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is
Loftpressur af öllum
stærðum og gerðum
SKRÚFUPRESSUR
Mikð úrval af aukahlutum
10. UMFERÐ
Jóhann Ingi Hafþórsson
Andri Yrkill Valsson
Kristófer Kristjánsson
Kristján Jónsson
Stefán Stefánsson
Baldvin Kári Magnússon
KR vann verðskuldaðan 2:1-sigur á
FH á útivelli í 10. umferð Pepsi
Max-deild karla í fótbolta í gær-
kvöldi. Með sigrinum fór KR aftur
upp fyrir Breiðablik og í toppsætið.
Frammistaða KR var heilt yfir
mjög góð og þá sérstaklega í fyrri
hálfleik. Gestirnir réðu lögum og
lofum og gátu FH-ingar verið fegn-
ir að munurinn í hálfleik var aðeins
eitt mark. Spilamennska FH batn-
aði í seinni hálfleik, en alltaf voru
KR-ingar líklegri til að taka þrjú
stig með sér heim í Vesturbæinn og
sú varð raunin.
Liðin eru að ganga í gegnum and-
stæður. KR-ingar vinna hvern leik-
inn á fætur öðrum en FH hefur ekki
unnið deildarleik síðan 20. maí. Það
sást, því KR-ingar voru með mikið
sjálfstraust og spiluðu boltanum
skemmtilega á milli sín. FH-ingar
virkuðu hræddir. Mennirnir sem
ráða í Kaplakrika hljóta að spyrja
sig hvort það hafi verið mistök að
ráða Ólaf Kristjánsson í staðinn fyr-
ir Heimi Guðjónsson. Lið eru alveg
hætt að óttast FH, líka á útivelli.
Sumarið í fyrra var vonbrigði og nú
gengur enn verr. KR er hins vegar
komið til að vera í baráttunni um Ís-
landsmeistaratitilinn.
johanningi@mbl.is
Kaflaskiptir Blikar við toppinn
Breiðablik gat tyllt sér í topp-
sætið í rúman sólarhring eftir 3:1-
sigur á botnliði ÍBV á laugardag.
Leikurinn kórónaði svolítið sumarið
hjá Eyjamönnum til þessa, því eftir
að hafa verið sterkari aðilinn í fyrri
hálfleik varð klaufagangur þeirra til
þess að Blikar náðu að jafna rétt
fyrir hlé sem gaf þeim blóðið á tenn-
urnar sem þurfti til þess að útkljá
dæmið.
Blikar voru langt frá því að vera
sannfærandi framan af leik. Þeir
voru mistækir í vörninni, undir í
baráttunni á miðjunni og sóknin var
bitlaus. Þegar leið á leikinn komu
hins vegar tæknileg gæði leik-
manna í ljós á meðan Eyjamenn
reyndu að halda í baráttuna. Taflið
snerist þá við, Blikarnir tóku yfir og
unnu verðskuldaðan sigur.
Jonathan Hendrickx spilaði sinn
síðasta leik með Blikum og það
verður áhugavert að sjá hvernig
þeir grænklæddu munu takast á við
brotthvarf hans. Davíð Ingvarsson
er bráðefnilegur og stóð sig mjög
vel í bakverðinum í þessum leik en
spurning hvort honum verði treyst
til þess að sækja titilinn. Eyjamenn
voru sjálfum sér verstir en sýndu
lengi vel hvað í þeim býr. Hakan var
þó fljót að síga niður í brjóst þegar
á móti blés. yrkill@mbl.is
Stjarnan braut Fylkismenn
Fylkismenn höfðu lítið að gera í
hrammana á Stjörnumönnum í
Garðabæ. Heimamenn tóku dug-
lega á gestunum í síðari hálfleik og
unnu sannfærandi 5:1-stórsigur
þar sem Alex Þór Hauksson og
Hilmar Árni Halldórsson léku á als
oddi.
Það virtist þó allt annar leikur
vera í uppsiglingu fyrsta hálftím-
ann. Fylkismenn mættu til leiks af
krafti, þjörmuðu vel að heima-
mönnum og hleyptu þeim varla yfir
miðju. Þrátt fyrir þessa yfirburði
var staðan jöfn í háfleik, 1:1, en það
var í síðasta sinn sem Árbæingar
sáu til sólar í Garðabænum. Ævar
Ingi Jóhannesson kom Stjörnunni
yfir strax eftir hlé, Alex Þór bætti
við sannkölluðu draumamarki af 25
metrum á 69. mínútu og Hilmar
Árni rak smiðshöggið á sigurinn
með tveimur mörkum undir lokin.
Eftir aðra eins frammistöðu í síðari
hálfleik veltir maður því fyrir sér
hvort Stjörnumönnum takist loks
að blása lífi í tímabilið en slitrótt
gengi þeirra í upphafi móts hefur
ekki verið ýkja merkilegt.
Þá var ekki sjón að sjá Fylkisliðið
eftir hlé. Árbæingar hafa nú fengið
á sig átta mörk í síðustu tveimur
leikjum og er það áhyggjuefni
hversu snögglega leikskipulag
KR mikið
sterkara í
Kaplakrika
Blikar fengu toppsætið rétt lánað
Spútniklið Skagamanna gefur eftir
Einvígi Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði
FH, og Tobias Thomsen, markaskorari FH.
Pepsi Max-deild karla
Breiðablik – ÍBV....................................... 3:1
ÍA – HK..................................................... 0:2
Valur – Grindavík ..................................... 1:0
Stjarnan – Fylkir...................................... 5:1
KA – Víkingur R....................................... 3:4
FH – KR.................................................... 1:2
Staðan:
KR 10 7 2 1 19:10 23
Breiðablik 10 7 1 2 22:11 22
ÍA 9 5 1 3 15:12 16
Stjarnan 10 4 3 3 17:16 15
KA 9 4 0 5 13:13 12
Fylkir 9 3 3 3 15:16 12
FH 9 3 3 3 15:17 12
Valur 10 3 1 6 16:16 10
Víkingur R. 9 2 4 3 15:17 10
Grindavík 9 2 4 3 7:9 10
HK 9 2 2 5 10:12 8
ÍBV 9 1 2 6 8:23 5
Inkasso-deild karla
Víkingur Ó. – Fram................................. 0:1
Helgi Guðjónsson (víti) 8.
Grótta – Magni......................................... 4:1
Pétur Theódór Árnason 9., 33., Valtýr Már
Michaelsson 24., Kristófer Orri Pétursson
38. – Gauti Gautason 80.
Þór – Keflavík .......................................... 0:0
Staðan:
Þór 8 5 1 2 15:6 16
Fjölnir 8 5 1 2 14:9 16
Keflavík 8 4 2 2 13:7 14
Grótta 8 4 2 2 16:13 14
Fram 8 4 2 2 13:10 14
Víkingur Ó. 8 4 1 3 9:6 13
Leiknir R. 8 4 0 4 13:14 12
Þróttur R. 8 3 1 4 15:13 10
Afturelding 8 3 0 5 12:18 9
Njarðvík 8 2 1 5 7:12 7
Haukar 8 1 3 4 8:14 6
Magni 8 1 2 5 10:23 5
2. deild karla
Fjarðabyggð – Víðir................................ 3:1
Marinó Máni Atlason 9., Ruben Ayuso 75.,
Gonzalo Bernaldo 85. – Atli Freyr Ottesen
Pálsson 66.
Völsungur – Leiknir F. ........................... 0:1
Daniel Garcia 38.
Vestri – Dalvík/Reynir ........................... 1:0
Pétur Bjarnason 30.
Staðan:
Leiknir F. 8 5 3 0 15:7 18
Selfoss 8 5 1 2 19:8 16
Vestri 8 5 0 3 11:10 15
Víðir 8 4 1 3 16:13 13
Völsungur 8 4 1 3 11:12 13
Fjarðabyggð 8 4 0 4 13:11 12
ÍR 8 3 2 3 10:9 11
Dalvík/Reynir 8 2 4 2 10:10 10
Þróttur V. 8 2 3 3 9:12 9
KFG 8 3 0 5 11:18 9
Kári 8 2 2 4 15:16 8
Tindastóll 8 0 1 7 8:22 1
3. deild karla
KV – Sindri ............................................... 3:0
Höttur/Huginn – Skallagrímur............... 4:3
Kórdrengir – KF ...................................... 1:2
KNATTSPYRNA
0:1 Bjarni Gunnarsson 10.
0:2 Valgeir Valgeirsson 54.
I Gul spjöldMarcus Johansson, Óttar
Bjarni Guðmundsson, Árni Snær
Ólafsson, Stefán Teitur Þórðarson og
Þórður Þ. Þórðarson (ÍA), Ásgeir
Börkur Ásgeirsson, Leifur Andri
Leifsson og Arnþór Ari Atlason (HK).
I Rauð spjöldÞórður Þ. Þórðarson (ÍA).
MM
Bjarni Gunnarsson (HK)
ÍA – HK 0:2
M
Marcus Johannsson (ÍA)
Arnar Már Guðjónsson (ÍA)
Arnar Freyr Ólafsson (HK)
Hörður Árnason (HK)
Birkir Valur Jónsson (HK)
Leifur Andri Leifsson (HK)
Björn Berg Bryde (HK)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
Valgeir Valgeirsson (HK)
Dómari: Sigurður H. Þrastarson, 8.
Áhorfendur: Óuppgefið.
1:0 Andri Adolphsson 67.
I Gul spjöldEiður Aron Sigurbjörnsson og
Kristinn Ingi Halldórsson (Val), Aron
Jóhannsson og Alexander Veigar
Þórarinsson (Grindavík).
M
Andri Adolphsson (Val)
VALUR – GRINDAVÍK 1:0
Eiður Aron Sigurbjörnsson (Val)
Haukur Páll Sigurðsson (Val)
Ólafur Karl Finsen (Val)
Gunnar Þorsteinsson (Grindavík)
Marc Mcausland (Grindavík)
Rodrigo Gomes (Grindavík)
Dómari: Erlendur Eiríksson, 8.
Áhorfendur: 756.
0:1 Guðmundur Andri Tryggvas. 8.
1:1 Elfar Árni Aðalsteinsson 10.
1:2 Erlingur Agnarsson 38.
2:2 Alexander Groven 52.
2:3 Sölvi Geir Ottesen 63.
2:4 Ágúst E. Hlynsson 69. (víti)
3:4 Elvar Árni Aðalsteinsson 89.
I Gul spjöldHrannar Björn Steingrímsson
og Hallgrímur Jónasson (KA), Guð-
mundur Andri Tryggvason (Víkingi R.).
KA – VÍKINGUR R. 3:4
M
Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Hallgrímur Mar Steingríms. (KA)
Atli Hrafn Haraldsson (Víkingi R.)
Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi R.)
Davíð Örn Atlason (Víkingi R.)
Guðmundur Andri Tryggvas. (Vík.)
Örvar Eggertsson (Víkingi R.)
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson, 5.
Áhorfendur: 876.