Morgunblaðið - 24.06.2019, Page 28

Morgunblaðið - 24.06.2019, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 2019 OFNÆMI Í NEFI? Cetirizin STADA filmhúðaðar töflur innihalda cetirizin tvíhýdróklóríð, 10 mg, og er lyfið notað til að draga úr einkennum í nefi og augum vegna árstíðabundins eða stöðugs ofnæmiskvefs og til að draga úr einkennum langvinns ofsakláða af óþekktum orsökum. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. OFNÆMI Í AUGUM? Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Þegar svo margir flóttamenn komu til Þýskalands árið 2015 fór ég að velta fyrir mér myndinni sem er dregin upp af þeim í fjölmiðlum bæði þar og annars staðar,“ segir Rann- veig Einarsdóttir ljósmyndari sem myndaði flóttamenn í Berlín og hef- ur nú gefið út ljósmyndabókina Provisional Life, sem þýða má sem Bráðabirgðalíf, með afrakstrinum. „Það er alltaf fjallað um þá eins og þeir séu einsleitur hópur og það eru þeir ekki,“ segir hún. Rannveig hafði samband við flóttamannaheimili til þess að fá að taka myndir og segir það ekki hafa verið auðvelt. „Það var ekki sjálfsagt að ég fengi að gera það sem ég vildi, sum flóttamannaheimilin vildu fylgj- ast með mér og því sem ég var að gera. Á heimilinu þar sem myndir- nar eru teknar fékk ég alveg að ráða mér sjálf, ég var eins og einn af starfsmönnunum, kom og fór eins og ég vildi.“ Sýnir daglegt líf flóttamanna Markmiðið var að sýna daglegt líf flóttamannanna, hvernig fólkið býr og hvað það er að gera. „Þótt venjur og hefðir séu ólíkar þá erum við ekki svo frábrugðin hvert öðru, sama hvaðan við komum,“ segir Rannveig. Sem dæmi er mynd af lítilli stelpu að máta hælaskó móður sinnar en það gera stelpur alls staðar. „Öll börn líta eins út þegar þau sofa. Krakkar eru alltaf eins, þau leika sér. Sam- bönd fólks, umhyggjan og ástin er alls staðar eins.“ Fólkið kemur ekki með neitt með sér inn á flóttamannaheimilin en Rannveig segir það samt leitast við að skreyta þessi tímabundnu heimili með meiri litagleði en við þekkjum hér á landi. „Þau reyna að gera allt fallegt með því litla sem þau hafa.“ Fólkið býr þröngt og vildi Rannveig ná fram dýnamíkinni í rýminu. Rannveig heimsótti flóttamanna- heimilið vikulega í þrjú ár og hitti sömu fjölskyldurnar aftur og aftur. Hún segir það hafa verið markmið sitt að kynnast þeim vel. „Þetta snerist um að byggja upp traust og það tókst mjög vel. Myndirnar sem ég tók fyrsta hálfa árið voru einskis virði af því þá var ég ekki búin að byggja upp þessi tengsl. Þær voru ekki nógu sterkar. Fyrir mér snýst ljósmyndun ekki bara um að ná góð- um myndum heldur snýst hún líka um samskipti. Það var mikilvægast að ná til þeirra. Þetta tók tíma og var mikil vinna en þetta var mjög gefandi.“ Hefur áhuga á sjálfsmynd Rannveig er félagssálfræðingur og segist hafa áhuga á því hvernig sjálfsmynd verður til. „Flóttafólkið hefur verið rifið úr því samhengi sem það bjó í þar sem það hafði ákveðið hlutverk og ákveðna þýð- ingu fyrir samfélagið, átti vini og vandamenn sem það umgekkst. Þeg- ar það kemur til Þýskalands, gegnir það ekki sömu hlutverkum og áður. Nú er það flóttafólk. Þetta snýst oft um það að finna hver þau eru í þessu nýja samhengi og það var sér- staklega erfitt fyrir karlmennina. Konurnar fylgdu oft hefðbundinni verkaskiptingu sem tíðkaðist í heimalandinu, að sjá um börn og heimili. Karlmennirnir voru hins vegar oft verkefnalausir og týndir. Það var oft erfitt.“ Rannveig fangar hversdagslífið á heimilinu en ekki síður tilgangsleys- ið og endalausa biðina sem fólkið upplifir. Hún nefnir fleira sem hefur áhrif á flóttamennina. „Þau vita oft lítið um ættingja heima og hafa áhyggjur af ástandinu í heimalandi sínu. Sum eiga von á því að vera send til baka. Það spilar margt inn í.“ Áhersla á styrk og stolt Þrátt fyrir raunalegar aðstæður lagði Rannveig áherslu á að sýna fólkið í styrkleika sínum bæði í myndatökunni og framsetningu myndanna. „Það var mér mikilvægt að ná portrettmyndum sem sýna fólkið ekki sem fórnarlömb. Það er oft dregin upp sú mynd af þeim í fjölmiðlum að þetta sé fólk sem mað- ur á að vorkenna. Fólkið er stolt, það er ekki fórnarlömb,“ segir hún. Heilar opnur í bókinni eru lagðar undir portrettmyndir af fólkinu til þess að leggja áherslu á styrk þess og stolt. „Það krefst hugrekkis, kjarks og þrautseigju að fara af stað, skilja allt eftir og að vita ekki hvað bíður manns að lokum.“ Hollendingurinn Sybren Kuiper (SYB), sem er þekktur og mjög virt- ur sem hönnuður ljósmyndabóka, sá um hönnun bókarinnar. Henni má líkja við harmónikku þar sem hún er í raun langur renningur með mynd- um báðum megin sem er brotinn saman inn í kápuna. „SYB hugsar bók sem eitthvað miklu meira en blaðsíður sem hægt er að fletta. Hann fer mjög óvenjulegar leiðir,“ segir Rannveig og útskýrir: „Hugs- unin hjá honum er að þetta sé sam- hangandi verk, sem ekki er hægt að slíta í sundur. Svo getur maður sett saman myndir eins og maður vill, opnað tvær opnur hlið við hlið og borið saman.“ Ung flóttakona send aftur heim Bókin er sett upp þannig að á fyrstu síðunum kemur maður inn í rýmið, fær nærmyndir af því en sér ekkert fólk. Samt skynjar maður nærveru og fær hugmyndir um hver býr þar. Svo flettir maður áfram og þá birtist fólkið. Rannveig stofnaði eigið útgáfu- félag til þess að gefa bókina út en hún fæst í bókabúðum í Þýskalandi, Hollandi, Belgíu, Englandi og Aust- urríki. Hún er einnig fáanleg hér á landi hjá Pennanum Eymundsson. Ljósmyndarinn hefur þegar hafið vinnu að öðru verkefni, að þessu sinni í Bosníu-Hersegóvínu. Þar myndar hún 25 ára fjögurra barna móður sem hún kynntist á flótta- mannaheimilinu og var send aftur til heimalandsins. „Hún tilheyrir róma- fólki, það fær ekki vinnu og býr við mestu fátækt sem ég hef séð,“ segir Rannveig. Með myndunum rannsaki hún hvað umhverfið geti haft mikil áhrif á fólk. „Það er alveg sláandi munur á konunni á myndum frá dvölinni í Þýskalandi og þegar hún er í heimalandi sínu. Það er eins og þetta sé ekki sama konan.“ Morgunblaði/Arnþór Birkisson Ljósmyndari „Ljósmyndun snýst ekki bara um að ná góðum myndum heldur líka um samskipti,“ segir Rannveig. Vill sýna flóttamenn í styrkleika sínum  Rannveig Einarsdóttir gefur út ljósmyndabókina Provisional Life  Myndaði fólk á flóttamanna- heimili í Berlín vikulega í þrjú ár  Sambönd fólks, umhyggja og ást eins alls staðar í heiminum Flóttamenn Rannveig myndaði bæði heimilislíf flóttamanna og tók portrettmyndir af þeim á öllum aldri. Fjör Á kvöldin var oft glatt á hjalla hjá börnunum, dansað, sungið og hlegið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.