Morgunblaðið - 24.06.2019, Side 32

Morgunblaðið - 24.06.2019, Side 32
Íslandsdeild Ung nordisk musik (UNM) og Kamm- ersveitin Elja standa fyrir tónleikum ann- að kvöld kl. 20 í Iðnó. Bera þeir yfirskrift- ina Tvinna og eru sagðir angi af samvinnuhátíð ungra tónhöfunda á Norðurlöndum, UNM, sem fer fram í lok sumars í Piteå í Sví- þjóð. Árlega eru sjö íslensk verk- efni valin til þátttöku á hátíðinni sem aðildarlöndin skiptast á að halda. Á Tvinnu eru höfundar ís- lensku verkanna á UNM 2019 í brennidepli en þeirra á meðal er Bára Gísladóttir. Íslenskir höfundar í brennidepli á Tvinnu MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 175. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Útsláttarkeppni heimsmeistara- móts kvenna í knattspyrnu hófst um helgina. Það eru Þýskaland, Noregur, England og Frakkland sem hafa fyrst tryggt sæti sín áfram. Ein viðureign í átta liða úrslitum er klár, en María Þórisdóttir og lið Noregs mæta Englandi. Eins og fyrr í keppninni stal dómgæslan sen- unni um helgina. »24 María mætir Englandi í átta liða úrslitum HM ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM KR-ingar undirstrikuðu það í gær- kvöldi með útisigri í stórleiknum gegn FH í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu að þeir ætla sér stóra hluti í sumar. Þeir hafa nú unnið sex leiki í röð í deildinni. Heil umferð fór fram um helgina og eru KR og Breiðablik komin með forskot á önn- ur lið, en þau mætast einmitt í næstu umferð. Valsmenn sluppu með sigur og Víkingar eru að hrökkva í gang. Staðan er hins vegar áfram erfið hjá HK og ÍBV. »26-27 KR-ingar á toppnum eftir sex sigra í röð Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þáttagerðarmaðurinn Gunnlaugur Jónsson og Ragnar Hansson kvik- myndagerðarmaður eru að leggja lokahönd á fimm íþróttatengda heim- ildaþætti fyrir Saga Film sem ráð- gert er að byrja að sýna í Sjónvarpi Símans öðruhvorumegin við næstu áramót. „Þetta eru fimm ólíkar sögur,“ seg- ir Gunnlaugur. Til nánari skýringar segir hann að einn þátturinn fjalli um feril Elísabetar Gunnarsdóttur, knattspyrnuþjálfara með meiru. Ann- ar spanni eitt ár í lífi Guðmundar Þórðar Guðmundssonar, landsliðs- þjálfara í handbolta. „Tímabilið þegar hann hætti þjálfun og fór að vinna hjá Kaupþingi, en var síðan dreginn á flot aftur þegar enginn vildi taka við landsliðinu og fór með það á Ólympíu- leikana með glæsilegum árangri,“ út- skýrir Gunnlaugur. Þáttur sé um hópfimleikalið Gerplu í fimleikum, sem varð til úr sterkri blöndu og náði hæstu hæðum. Ennfremur um körfu- boltarisann Tryggva Snæ Hlinason frá Svartárkoti í Bárðardal, sem kynntist körfubolta. „Á ótrúlega skömmum tíma hefur hann náð fram- förum sem fá fordæmi eru fyrir.“ Auk þess er þáttur um Inga Þór Jónsson, sundmann á Akranesi, sem keppti á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984. „Hann er samkynhneigður og við förum yfir stormasama ævi hans,“ segir Gunnlaugur. Fjölmiðlabakterían Fjölmiðlabakterían hefur lengi blundað í Gunnlaugi, sem gerði garð- inn frægan í knattspyrnunni, bæði sem leikmaður til 2009 og síðar þjálf- ari í áratug. Hann hætti í boltanum vegna anna við þáttagerðina í febrúar sem leið. Í tilefni 30 ára afmælis Rásar 2 2013 gerði hann með dyggri aðstoð Ásgeirs Eyþórssonar vinsæla tónlist- arþætti, sem báru nafnið „Árið er“, og spönnuðu tónlistarsöguna í 30 ár. Hverju ári voru gerð skil í einum þætti nema frá 2002 voru tveir þættir um hvert ár. Þeir gerðu jafnframt sjónvarpsþátt um Eurovision-þátt- töku Íslendinga. Hann var valinn skemmtiþáttur ársins 2013 og upp- skar Edduna. Í fyrra var Gunnlaugur með viðtalsþætti í hlaðvarpi, „Í ná- vígi“, sem hlusta mátti á á fotbolti.- net. Þættirnir vöktu athygli og umtal og má í því sambandi benda á viðtöl við Ólaf Þórðarson, fyrrverandi fót- boltaþjálfara, og Ólaf Jóhannesson, þjálfara Vals. „Á þessum tíma var ekki mikið um svona hlaðvarpsþætti og því má segja að þeir hafi átt þátt í að koma þeirri bylgju af stað,“ segir Gunnlaugur. Hugmyndin að yfirstandandi verk- efni varð til fyrir um ári. Gunnlaugur segir að fyrri störf í fjölmiðlum hafi haldið sér við efnið, hún hafi mallað yfir sumarið og þegar hann hafi feng- ið grænt ljós á framleiðsluna í nóvem- ber hafi þeir hafist handa. „Ég finn mig vel í þessu og vil láta á það reyna hvort ég geti ekki haslað mér völl á þessu sviði,“ segir hann. Í Svíþjóð Gunnlaugur Jónsson, Elísabet Gunnarsdóttir og Ragnar Hansson fóru yfir málin í febrúar sem leið. Á bak við tjöldin  Gunnlaugur Jónsson og Ragnar Hansson gera íþrótta- tengda heimildaþætti  Eru sýndir í Sjónvarpi Símans

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.