Morgunblaðið - 19.06.2019, Side 1
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta
BREYTINGAR SKAPATÆKIFÆRISPOTIFY OPNAR LEIÐIR
ucati hefur kynnt enn eitt tryllitækið til sögunnar. 4
Lítt þekktir íslenskir tónlistarmenn fá
óvænt tækifæri gegnum hlustunarlista
tónlistarveitunnar Spotify. 14
VIÐSKIPTA
4
D
Hraðar tæknibreytingar í fjármálaheiminum skapa mikil
tækifæri fyrir minni fyrirtæki að sögn Jóhanns M.
Ólafssonar hjá Íslenskum verðbréfum.
Tugþúsundir nýta sér Apple Pay
Viðskiptavinir Arion banka og Landsbankans
hafa tekið afar vel í Apple Pay. Fjöldi skráðra
korta í rafrænum veskjum er í kringum 40
þúsund. Ekki er liðinn nema mánuður frá því
að viðskiptavinum Landsbankans og Arion
banka bauðst að nýta sér þjónustu tæknirisans
og hafa viðtökurnar ekki látið á sér standa.
Helgi Teitur Helgason, framkvæmdastjóri
Einstaklingssviðs hjá Landsbankanum, segir
að upptakan hafi verið mjög góð og í takt við
áætlanir bankans. Á einum mánuði hafa nú ríf-
lega 13 þúsund viðskiptavinir Landsbankans
sótt Apple Pay, en samtals gera það um 20
þúsund debet- og kreditkort. „Þetta er feikna-
góð upptaka og byrjaði af gríðarlegum krafti.
Til að byrja með voru um 700 einstaklingar á
dag að sækja sér Apple Pay en síðan þá hefur
þetta róast aðeins. Upptakan er áfram góð en
talsvert jafnari,“ segir Helgi Teitur sem
kveðst mjög ánægður með viðtökurnar.
Arion banki hefur engar tölur gefið út, en
gera má ráð fyrir að notendurnir séu álíka
margir og hjá Landsbankanum. Að sögn
Helga kemur notkun Apple Pay í veg fyrir
ákveðna tegund svindls auk þess sem kerfið er
afar öruggt. „Við erum mjög ánægð með að
fólk skuli vera að færa sig yfir í Apple Pay sök-
um þess hversu öruggt og notendavænt kerfið
er. Þess utan kemur þetta í veg fyrir ákveðna
tegund svika þar sem þjófar komast yfir pin-
númer einstaklinga. Við þekkjum dæmi þess
að pinninu hafi verið stolið og heimildin í kjöl-
farið hámörkuð. Í þessu kerfi þarf andlits-
greiningu eða fingrafar til þess að hægt sé að
greiða fyrir vörur,“ segir Helgi og bætir við að
rafræn veski standi ekki einungis við-
skiptavinum Apple til boða. Í snjallforriti
Landsbankans er að finna lausn sem nýtist
einstaklingum með Samsung-síma. Nú þegar
hafa ríflega 5.000 viðskiptavinir bankans skráð
kort í rafræn veski Samsung-síma.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Ekki er liðinn nema mánuður frá
því að Apple Pay kom til landsins.
Fjölmargir viðskiptavinir hafa nýtt
sér þjónustuna það sem af er.
AFP
Apple Pay hefur notið mikilla vinsælda frá því að þjónustan bauðst fyrst fyrir einum mánuði.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
2.100
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
19.12.‘18
19.12.‘18
18.6.‘19
18.6.‘19
1.628,64
2.024,95
145
140
135
130
125
138,85
141,35
Talsverðar breytingar eru í vændum
hjá hinu gamalgróna GA Smíðajárni
við Skútuvog 4 í Reykjavík, sem er
umsvifamikið í innflutningi og sölu á
járni og stáli. Til stendur að sameina
fyrirtækið á einn stað, en auk þess
að vera með skrifstofu og birgðastöð
í Skútuvoginum er fyrirtækið með
birgðastöð að Rauðhellu 2, í Hafnar-
firði.
Anna Jóhanna Guðmundsdóttir,
forstjóri fyrirtækisins, segir í sam-
tali við ViðskiptaMoggann að GA
Smíðajárn sé búið að sprengja utan
af sér húsnæðið í Skútuvoginum, og
hyggist nú flytja sig alfarið í Hafn-
arfjörðinn. Anna segir til útskýr-
ingar að búið sé að stækka birgða-
stöðina í Rauðhellu í tvígang síðan
það hús hafi verið keypt árið 2000.
Þar verði lagerinn með svarta efninu
til húsa en ryðfríi lagerinn verði all-
ur í Íshellu 10, steinsnar frá Rauð-
hellunni. Það húsnæði leigir fyrir-
tækið af Héðinshurðum. Því megi
segja að eftir flutninginn verði fyrir-
tækið nánast á sama blettinum.
,,Megnið af sölu okkar er svart
járn eða svo kallað smíðajárn svo
sem vinklar, flatjárn, plötujárn
o.s.frv. en við flytjum líka inn stálþil
til hafnargerðar og ýmissa annarra
framkvæmda. Einnig flytjum við inn
efni í stálgrindarhús og svokallaða
hlaupaketti eða brúkrana, hring-
stiga og ristargrindur. Mest seljum
við til verktaka og þeirra sem þjón-
usta stóriðjuna,“ segir Anna.
Nýverið endurnýjaði félagið
tveggja ára samning sinn við Marel
um að halda birgðir fyrir
fyrirtækið í ryðfríu stáli.
Öll starfsemi til Hafnarfjarðar
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Anna Jóhanna segir að GA Smíða-
járn selji mikið til verktaka.
GA Smíðajárn, sem hefur
verið í Skútuvoginum frá
árinu 1985, fer með allt sitt
til Hafnarfjarðar.
8
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019