Morgunblaðið - 19.06.2019, Side 2

Morgunblaðið - 19.06.2019, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019FRÉTTIR SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU Mesta lækkun Mesta hækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) MAREL -1,82% 540 EIM +0,80% 188,5 S&P 500 NASDAQ +1,61% 7.963,283 +0,97% 2.919,71 +1,01% 7.443,04 FTSE 100 NIKKEI 225 19.12.‘18 19.12.‘1818.6.‘19 1.700 80 1.781,0 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 62,06 -0,28% 20.972,71 56,26 40 2.100 18.6.‘19 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 1.925,0 FASTEIGNIR Fasteignafélagið Heimavellir hefur ákveðið að taka úr söluferli dóttur- félag sitt, Heimavelli 900 ehf., sem tilkynnt var um að til stæði að selja í janúar síðastliðnum. Heimildir Við- skiptaMoggans herma að fall WOW air hafi haft neikvæð áhrif á ferlið og að ekkert tilboð hafi borist í félagið í heild sinni. Heimavellir 900 ehf. á níu fjöl- býlishús að Ásbrú í Reykjanesbæ og í þeim eru 154 íbúðir. Samkvæmt upplýsingum sem teknar voru sam- an við upphaf söluferlisins eru eignir félagsins metnar á um 3,8 milljarða króna. Tekjur félagsins í ár verða að líkindum 272 milljónir króna og árið 2021 er gert ráð fyrir að þær verði 319 milljónir króna. Heimildir Við- skiptaMoggans herma að enn liggi ekki fyrir hvað stjórn Heimavalla muni gera með dótturfélagið í kjöl- far þess að söluferlið sigldi í strand. ses@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Heimavellir 900 eiga margar fast- eignir á Ásbrú í Reykjanesbæ. Fall WOW hafði áhrif á söluferlið Óðum styttist nú í að Garðbæingar eignist sinn fjórða veitingastað, en ekki eru mörg ár síðan eini matsölu- staðurinn sem íbúar í bænum gátu sótt var veitingastaður IKEA við Kauptún. Nýjasta viðbótin í veitinga- húsaflóru bæjarins er staður sem er að rísa við Arnarnesvog, nánar til- tekið við Ránargötu 4, skammt frá Sjálandsskóla. Stendur veitingastað- urinn á 4.000 fermetra sjávarlóð. Rekstraraðili nýja veitingastaðar- ins, Stefán Magnússon, sem rekur Mathús Garðabæjar og opnaði nýlega steikhúsið Reykjavík MEAT, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að stefnt sé að því að opna staðinn fyrir næstu jól. „Þetta er mestmegnis veislusalur sem getur tekið á móti 3- 400 manns í árshátíðir t.d., en einnig er þarna einkafundaherbergi fyrir minni hópa. Svo verður veitingahús sem tekur um 100 manns í sæti. Við munum einnig starfrækja hágæða kaffihús yfir daginn og bjóða upp á mat í hádeginu og á kvöldin,“ segir Stefán. Upphaflega átti veitingahúsið að vera 500 fermetrar að stærð, en fljót- lega var staðurinn stækkaður upp í 700 fermetra, að sögn Stefáns. Tónlist og viðburðir Stefán segir að Garðbæingar eigi í dag engan alvöru tónlistarsal og horft sé til þess að nýta staðinn til tónleika- halds meðal annars. „Ég er með teymi með mér í að gera loftið og gólfið þannig úr garði að hljómburður verði sem bestur.“ Hann segir að nú þegar sé búið að bóka þónokkuð af brúðkaupum, fermingum og árshátíðum í húsinu. „Staðurinn býður upp á margskonar notkun og til dæmis er hægt að opna rennihurðir beint út á svalir. Þarna verður dásamlegt að vera á sumrin til dæmis í góðu veðri. Og um jólin verð- ur jólahlaðborð og hægt að virða fyrir sér norðurljósin.“ Ekki er tjaldað til einnar nætur í rekstrinum, en Stefán segir að- spurður að samið sé um veitinga- reksturinn í húsinu til tíu ára. „Mig langar að gera þarna aðstöðu til að halda flottar veislur og tónleika og tengja bátamenningu þarna inn. Ég vil fá inn útivistarfólk sem er kannski að fara í sjósund eða sigla á kajak og skútum, sem og hjólafólk. Þá hafa áhugasamir jógakennarar sett sig í samband við mig. Þeir kolféllu fyrir staðnum og hafa mikinn áhuga á að bjóða upp á jógaæfingar þarna. Þetta verður einskonar menningarsetur.“ Sérbruggaður bjór Stefán segir að ekki sé nóg með að boðið verði upp á nýjungar í mat og menningu á staðnum, heldur megi Garðbæingar og aðrir gestir eiga von á því að fá að smakka nýjan bjór sem bruggaður verður í bænum. „Það eru aðilar í Garðabæ að þróa hina full- komnu bjóruppskrift og við munum kynna nýjan Garðabæjarbjór til sög- unnar um jólin, um leið og við opnum veitingahúsið fyrir gestum. Ég held að Garðbæingum eigi eftir að hugn- ast það vel að fá bjór beint frá býli, ef svo má að orði komast,“ segir Stefán og brosir. Opna veitingastað við Arn- arnesvog fyrir næstu jól Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Framkvæmdir við nýjan veitingastað við Arnarnes- vog í Garðabæ standa nú sem hæst, en stefnt er að því að opna staðinn fyrir næstu jól. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Orri Árnason hjá Zeppelin arkitektum teiknaði húsið sem verður klætt að utan með lerki. Á þaki er torfklæðing. UPPLÝSINGATÆKNI Ekkert verður af kaupum Advania á Wise lausnum af norska félaginu Akva Group, en tilkynnt var um þau í september í fyrra. Var þá upplýst að kaup- verðið næmi um 800 milljónum króna. Í tilkynn- ingu frá Advania segir að ástæða þess að fallið hafi verið frá kaupunum sé sú afstaða sem komið hafi fram af hálfu Samkeppniseftirlitsins til viðskiptanna. Advania segir að kaupin hafi verið hugsuð til að styrkja fyrir- tækin í síðharðnandi alþjóðlegri samkeppni um viðskiptahugbúnað. Þannig hafi Advania litið svo á að fyrirtækin starfi bæði á alþjóð- legum markaði, enda séu þau með viðskiptavini í nokkrum löndum. Hins vegar hafi Samkeppniseft- irlitið litið svo á að samkeppnis- umhverfi Advania og Wise ein- skorðist við íslenskan markað og að auki starfi fyrirtækin á sér- stökum undirmarkaði með þjón- ustu og ráðgjöf á sviði fjárhags- kerfa. Í kjölfar upphaflegrar samruna- tilkynningar vegna kaupanna fóru viðræður fram milli Advania og Samkeppniseftirlitsins um hvaða aðgerða þyrfti að grípa til svo að samruni fyrirtækjanna tveggja hefði ekki neikvæð samkeppnis- hamlandi áhrif hér á landi. Þær viðræður sigldu hins vegar í strand með fyrrgreindum afleið- ingum. Heimildir ViðskiptaMogg- ans herma að Samkeppniseftirlitið hafi aldrei í ferlinu gefið út end- anlegar hugmyndir af sinni hálfu um hvaða aðgerðir myndu duga til svo að hleypa mætti samrunanum í gegn. Í tilkynningu frá Advania segir Ægir Már Þórisson, forstjóri fyrirtækisins, að niðurstaðan sé vonbrigði. Upplýsingatæknin virði engin landamæri og samkeppnin á því sviði sé í eðli sínu alþjóðleg, ólíkt því sem Samkeppniseftirlitið hafi haldið fram í samskiptum við fyrirtækið. Ekkert verður af kaupunum á Wise Ægir Már Þórisson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.