Morgunblaðið - 19.06.2019, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019FRÉTTIR
Fyrr í sumar var gengið endanlega frá
kaupum Íslenskra verðbréfa á Við-
skiptahúsinu. Var rekstur fyrir-
tækjanna sameinaður undir merkjum
Íslenskra verðbréfa og státar félagið af
samtals 20 starfsmönnum með mikla
reynslu af ýmsum sviðum fjárfestinga,
eignastýringar og miðlunar. Við sam-
eininguna tók Jóhann Ólafsson við for-
stjórahlutverkinu
Hverjar eru helstu áskoranirnar í
rekstrinum þessi misserin?
Helsta áskorunin er að sameina
menningu Viðskiptahússins og Ís-
lenskra verðbréfa og tengja saman
starfsstöðvarnar tvær. Það er mikill
hugur í okkar fólki og þarf að viðhalda
og virkja þennan eldmóð.
Hvaða hugsuður hefur haft mest
áhrif á hvernig þú starfar?
Aðferðafræði Warrens Buffetts hef-
ur alltaf heillað mig og virkað vel. Hef
lesið nokkrar af hans bókum, þó ekki
allar, enda er hann búinn að vera dug-
legur í að stinga niður penna.
Hvert væri draumastarfið ef þú
þyrftir að finna þér nýjan starfa?
Þjálfun og ræktun hrossa er mikil
ástríða hjá mér. Það þarf góðan tíma og
aðhald til að ala upp góðan hest. Einnig
gæti ég hugsað mér að vera skipstjóri á
nótaskipi. Það er fátt sem jafnast á við
sýnilegan árangur af góðu dagsverki.
Hvað myndirðu læra ef þú fengir að
bæta við þig nýrri gráðu?
Myndi líklega bæta við mig meistara-
gráðu í fjármálum. Hef ekki fundið tím-
ann til þess, kannski sem betur fer. Það
er alltaf hægt að dýpka þekkingu sína á
fjármálasviðinu.
Hvaða kosti og galla sérðu við
rekstrarumhverfið?
Hraðar tæknibreytingar í fjár-
málaumhverfinu munu skapa mikil
tækifæri í framtíðinni. Þetta býr til
svigrúm fyrir smærri fyrirtæki til að
veita t.d. fjármálaþjónustu í gegnum
netið. Það má því ætla að bankar muni
þróast meira í þá átt að verða heildsalar
á fjármagni á meðan smærri fyrirtæki
munu í auknum mæli geta veitt sínum
viðskiptavinum breiðari fjármála-
þjónustu.
Áskorunin sem fjármálafyrirtæki
standa m.a. frammi fyrir er að aðlaga
sig að þessari breyttu framtíðarsýn.
Helsti galli núverandi bankakerfis er
hversu einsleitt það er. Framboð fjár-
festinga til fjárfesta hefur ráðist af því
sem bankakerfið býður upp á og því
takmarkað hvaða tækifæri fjárfestum
bjóðast.
Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú
værir einráður í einn dag?
Ég myndi koma á einfaldara og skil-
virkara fiskveiðistjórnunarkerfi.
SVIPMYND Jóhann M. Ólafsson, forstjóri Íslenskra verðbréfa
Hrifinn af aðferðafræði
Warrens Buffetts
Morgunblaðið/Hari
Jóhann spáir því að í framtíðinni verði hlutverk banka að bjóða einkum upp á n.k. heildsölu á fjármagni.
NÁM: Stúdent af viðskiptabraut frá Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti (1987); rekstrar- og útgerðartæknir frá Tækni-
skóla Íslands (1991); löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og
skipasali (2002); nám í viðskiptafræði við Háskólann á Bif-
röst ásamt námi í verðbréfamiðlun (2002).
STÖRF: Framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Kaldbaks
hf./Sænes ehf. (1991-1994); framkvæmdastjóri Jökuls hf.
og Fiskiðju Raufarhafnar ehf. (1994-1999); framkvæmda-
stjóri verðbréfamiðlunar Burnham International (1999-
2001); stofnaði Viðskiptahúsið ehf. árið 2001 og er eigandi
þess.
ÁHUGAMÁL: Hestamennska hefur verið mitt helsta
áhugamál um árabil auk þess að æfa blak.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Lífsförunautur minn er Þorbjörg
Stefánsdóttir og eigum við tvö uppkomin börn og eitt
barnabarn.
HIN HLIÐIN
FARARTÆKIÐ
Ducati afréð að nota Broadmoor
Pikes kappaksturinn til að svipta
hulunni af frumgerð nýs ofurmót-
orhjóls: Streetfighter V4. Þykir
nokkuð ljóst að ítalski mótor-
hjólasmiðlurinn hyggst gera eitt-
hvað stórmerkilegt í kappakstrinum
síðar í mánuðinum en þar ætlar Car-
lin Dunne að setjast á hnakkinn – sá
sami og hefur unnið kappaksturinn í
fjórgang.
Nýja hjólið er á margan hátt svip-
að Panigale V4-hjólinu, með sína
214 hestafla V4-vél, en ökumaður
situr töluvert hærra og innvolsið
fær að njóta sín í stað þess að vera
falið. Útkoman er mjög svo víga-
legur fararskjóti.
ai@mbl.is
Ítalskt villi-
dýr lítur
dagsins ljós
ÁHUGAMÁLIÐ
Kínverska fyirrtækið DJI er þekkt-
ast fyrir drónasmíði, en hefur að
undanförnu útvíkkað vöruframboðið
töluvert. Nýjasta viðbótin er þessi
sniðugi róbóti, RoboMaster S1, sem
á m.a. að hjálpa börnum að átta sig á
möguleikum róbótatækninnar og
æfa sig í forritun.
Notandinn þarf að púsla róbót-
anum sjálfur saman, og getur síðan
fjarstýrt honum með snjallsíma.
RoboMaster m.a. er útbúinn mynda-
vél, fjölda skynjara og lítilli plast-
kúlubyssu.
Leikfangið kostar 500 dali hjá
DJI.com. ai@mbl.is
Vopnaður
róbóti DJI
Palli var ekki einn
í heiminum, hann var
með
Byltingarkenndar inn-í-eyra
heyrnahlífar
FOSSBERG
Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600
SNR:
32 dB
NRR:
27 dB
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum