Morgunblaðið - 19.06.2019, Page 10

Morgunblaðið - 19.06.2019, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019 AF 200 MÍLUM Á MBL.IS Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu um ógildingu ákvörðunar Matvælastofnunar frá 22. desember 2017 um að veita Arctic Sea Farm hf. rekstrarleyfi fyrir 4.000 tonna ársfram- leiðslu á laxi eða regnbogasilungi í sjókvíum í Dýrafirði. Kröfu um ógildingu gerðu m.a. Náttúruverndarsamtök Íslands, náttúruverndarfélagið Laxinn lifi og veiðiréttarhafar í Haffjarðará og Laxá á Ásum, en þessir aðilar voru ekki taldir eiga aðild að málinu. Aðrir kærendur, sem voru einstaklingar og veiðiréttarhafar á Vest- fjörðum, voru hins vegar taldir eiga aðild á grundvelli laga um úr- skurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Í niðurstöðu nefndarinnar segir að útgáfa leyfisins fari ekki gegn markmiðsákvæðum laga um fiskeldi eða ákvæðum náttúruverndarlaga. Málsmeðferð stofnunar- innar við útgáfu leyfisins hafi verið í samræmi við lög. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Náttúruverndarsamtök Íslands gerðu m.a. kröfu um ógildingu. Halda rekstrarleyfi fyrir 4.000 tonna eldi Helst er um að ræða fyrirtækin Grieg Seafood, Lerøy Seafood Group, Salmar, Bremnes og Mowi, sem áður bar heitið Mar- ine Harvest, auk útflytjandans Ocean Quality. Lögsóknin sem fyllti tuginn var lögð fram af einstaklingi fyrir héraðsdómstólinn í Maine-ríki 11. júní, en meðal annarra stefnenda eru dreifingaraðilar og veitinga- staðir í Flórída, Massachusetts, New York, Ohio, Washington D.C. og Pennsylvaníu. Réðust til inngöngu í febrúar Stefnendurnir sækjast eftir greiðslu skaðabóta úr hendi fyrir- tækjanna og vísa þeir allir til yfirstandandi verðsamráðsrann- sóknar á vegum framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, en fyrstu fregnir af henni voru flutt- ar í febrúar síðastliðnum á vef- miðlinum Undercurrent News. Hafa hafnað ásökunum Fulltrúar framkvæmda- stjórnarinnar höfðu þá þegar ráð- ist til inngöngu í húsakynni fyr- irtækjanna, þar á meðal fiskvinnslu Mowi í Rosyth í Bret- landi. Áður hafði framkvæmdastjórnin sent fyrirtækjunum bréf þar sem varað var við því að henni hefðu borist upplýsingar um meint verð- samráð norskra laxeldisfyrirtækja og að þau hefðu gert með sér samkomulag sem gengi gegn sjón- armiðum um samkeppni. Mowi og Grieg Seafood hafa þegar hafnað þeim ásökunum sem felast í rannsókn framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins. Norsku eldisrisarnir lögsóttir fyrir meint verðsamráð Skúli Halldórsson sh@mbl.is Tíu lögsóknir vofa nú yfir nokkrum af stærstu lax- eldisfyrirtækjum Noregs og dótturfyrirtækjum þeirra, þar sem þau eru sökuð um verðsamráð. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Lax tekinn til slátrunar í Arnarfirði. Norsk eldisfyrirtæki hafa hafnað öllum ásökunum um ólöglegt verðsamráð. ÚTGERÐ Hagnaður fiskvinnslu- og útgerðar- félagsins Odda á Patreksfirði dróst verulega saman á síðasta uppgjörsári og nam 22,9 milljónum króna saman- borið við 152,7 milljónir ári fyrr. Reikningsár fyrirtækisins stendur frá 1. september ár hvert og til loka ágústmánaðar næstkomandi árs. Nýjasta uppgjör félagsins nær því yf- ir tímabilið frá 1. september 2017 til 31. ágúst 2018. Rekstrartekjur fé- lagsins af fiskvinnslu jukust nokkuð eða um 37,4 milljónum og námu 1,7 milljörðum króna. Rekstrartekjur út- gerðarinnar jukust hins vegar um 182,5 milljónir og námu 761,4 millj- ónum. Rekstrargjöld fiskvinnslu juk- ust um 71,4 milljónir og námu 1,6 milljörðum króna. Rekstrargjöld út- gerðarstarfseminnar námu hins veg- ar 648,2 milljónum og hækkuðu um 188,1 milljón króna. Fjármagnsgjöld félagsins jukust um tæpar 15 millj- ónir milli ára og námu 85,7 milljónum. Gengismunur langtímalána var hins vegar mun óhagstæðari en fyrra ár og var jákvæður um 20,5 milljónir í stað 66,5 milljóna árið áður. Eigið fé Odda var 1,4 milljarðar króna í lok rekstrarársins síðasta og hafði dregist saman um tæpar 11 milljónir króna frá fyrra ári. Eignir námu tæpum 3,6 milljörðum en skuldir tæpum 2,2 milljörðum. Mbl.is/Sigurður Bogi Núpur er annað tveggja skipa sem Oddi gerir út. Hitt er Patrekur BA. Hagnaður Odda 22,9 milljónir Norsku laxeldisfyrirtækin eru í lögsóknunum tíu sökuð um að hafa stjórnað verðlagi á laxi með því að samhæfa söluverð og að hafa skipst á viðskiptalega við- kvæmum upplýsingum. Enn fremur eru þau sögð hafa samið sín á milli um að kaupa vörur keppinauta þegar þeir myndu selja lax á lægra verði. Þar að auki fullyrða stefnend- urnir að fyrirtækin hafi samið áætlun um að hækka stundarverð á laxi til að tryggja sér hærra verð í langtímasamningum við kaup- endur varanna. Stundarverð hafi verið hækkað fyrir langtímasamninga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.