Morgunblaðið - 19.06.2019, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019 13FRÉTTIR
SANDBLÁSTUR
Sundaborg 3
104Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
Ráðgjöf
Tilboð
Hönnun
Uppsetning
BÓKIN
Víða um heim þykir það
áhyggjuefni að löggjöf
sé ekki nægilega vönd-
uð, eða allt of mörg boð
og bönn sem stýra lífi
borgaranna. Útkoman
er sú að erfitt er fyrir
fólk að vita með vissu
hvar mörkin liggja á milli þess að
vera löghlýðinn og vera lög-
brjótur, og jafnvel besta fólk getur
óvart setið uppi með háa sekt eða
langan fangelsisdóm. Mike Chase
segir það jafnvel enn al-
varlegra, að þegar lögin
taka að afmyndast með
þessum hætti þá fari geð-
þótti embættismanna og
pólitíkusa að ráða hver er
sóttur til saka og hver
ekki. Viljirðu gera ein-
hverjum grikk þá einfald-
lega finnurðu einhverja
klausu djúpt í lagasafninu sem
hægt er að snúa á haus, oftúlka og
rangtúlka, og beitir gegn viðkom-
andi. Chase er höfundur bók-
arinnar How to Become a Federal
Criminal: An Illustrated Handbo-
ok for the Aspiring Offender.
Chase starfar sem lögfræðingur
og hefur um langt skeið haldið úti
Twitter-reikningnum A Crime a
Day þar sem hann safnar saman
völdum bútum úr laga- og reglu-
gerðasafni Bandaríkjanna til að
sýna fram á hve stórskrítnar og úr
sér gengnar reglurnar eru orðnar.
Bendir hann á að það kunni vel að
vera að þorri Bandaríkjamanna
hafi nú þegar óafvitandi gerst
brotlegur við alríkislög landsins.
ai@mbl.is
Þegar lögin fara úr böndunum
FLUG
Bandaríski flugvélaframleiðandinn
Boeing er talinn hafa unnið mik-
ilvægan varnarsigur á Flugsýning-
unni í París sem nú stendur yfir, þeg-
ar International Airlines Group
(IAG), sem m.a. á British Airways,
Iberia, Vueling og Aer Lingus, und-
irritaði viljayfirlýsingu þess efnis að
það kaupi 200 vélar af gerðinni Bo-
eing 737 MAX úr verksmiðjum fyrir-
tækisins.
Eru þetta fyrstu pantanirnar sem
berast í þessa tegund véla í kjölfar
þess að allar 737 MAX vélar heimsins
voru kyrrsettar í mars síðastliðnum í
kjölfar tveggja hörmulegra flugslysa
þar sem slíkar vélar áttu í hlut.
En það er ekki aðeins pöntunin
sem slík sem er talin mikilvæg fyrir
Boeing, sem hefur átt mjög í vök að
verjast vegna fyrrnefndrar kyrrsetn-
ingar, heldur einnig sú staðreynd að
IAG hefur lengi verið einn dyggasti
viðskiptavinur Airbus, eina raunveru-
lega keppinautar Boeing á mark-
aðnum með farþegaþotur yfir 100
sætum.Willie Walsh, forstjóri IAG,
sagði í yfirlýsingu í tengslum við
viljayfirlýsinguna að hann hefði fulla
trú á því að Boeing 737 MAX vél-
arnar yrðu teknar í notkun á kom-
andi mánuðum í kjölfar þess að yf-
irvöld hefðu lagt blessun sína yfir
notkun vélanna.
AFP
Boeing hefur átt erfitt uppdráttar vegna 737 MAX línunnar sem kyrrsett var í
mars síðastliðnum í kjölfar tveggja hræðilegra slysa þar sem 346 týndu lífi.
Vill kaupa allt að 200
Boeing MAX 8 vélar