Morgunblaðið - 19.06.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 19.06.2019, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019FRÉTTIR Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is Upptökutæki Þér er í lófa lagið að taka upp ! Það var svosem ekkert leyndarmál að Facebook hefði í hyggju að setja eigin rafmynt á laggirnar. Enda blasir við að ekki yrði mikill vandi fyrir samfélagsmiðilinn að láta nýja rafmynt ná ágætis útbreiðslu á heimsvísu, þökk sé þeim 2,3 millj- örðum manna sem nota Facebook reglulega. Flestir ættu að geta gert sér í hugarlund að bæta mætti raf- rænu veski við skilaboðaforrit Face- book og ekki skortir fyrirtækið tækniþekkinguna og fjármagnið til að leysa svona risaverkefni af hendi með glæsibrag. Nú hefur hulunni verið svipt af nýju rafmyntinni: Á þriðjudag greindi Facebook frá því að stefnt væri að því að setja rafmyntina í loftið á fyrri helmingi ársins 2020, og að hún muni kallast libra. Facebook ætlar ekki að standa eitt að verkefn- inu heldur hefur fengið til liðs við sig 28 samstarfsaðila af ýmsum stærð- um og gerðum, sem allir eiga aðild að nýju félagi – Libra Association – sem er með höfuðstöðvar sínar í Genf. Á meðal bakhjarla líbrunnar má finna kortarisana Mastercard og Visa, greiðslumiðlunina PayPal, uppboðsvefinn eBay, tónlistarveit- una Spotify, skutlmiðlunina Uber og fjarskiptaveldið Vodafone. Einnig má nefna net-tískuverslunina Far- fetch, rafmyntamarkaðinn Coin- base, góðgerðarsamtökin Mercy Corps og vogunarsjóði á borð við Union Square Ventures og Andrees- sen Horowitz. Ætlunin er að fjölga í hópnum og hafa um 100 meðlimi í libra- samstarfinu áður en rafmyntin fer í loftið. Eiga allir sem að verkefninu koma að sitja við sama borð, með jafnan atkvæðisrétt, og þurfa flestir að reiða fram að lágmarki 10 millj- óna dala fjárfestingu til að fá að standa undir stofn- og rekstrar- kostnaði. Reuters segir Facebook ekki ætla sér að leiða verkefnið nema fyrsta spölinn. Á þriðjudag upplýsti Facebook jafnframt um stofnun nýs dóttur- félags, Calibra, sem mun þróa staf- ræn veski sem geta tengst skila- boðaforritunum Messenger og WhatsApp svo senda megi líbrur í gegnum þau. Að sögn FT ákváðu stóru bank- arnir að sitja á hliðarlínunni í bili, m.a. vegna óvissu um þá lagalegu umgjörð sem verður í kringum líb- runa. Er ekki alveg víst hvort t.d. líbruverkefnið á að heyra undir vald- svið Eftirlitsnefndar með fram- virkum samningum með hrávörur (CFTC), eða hvort þurfi starfsleyfi hjá bandaríska fjármálaeftirlitinu (SEC). Þá er nánast óhjákvæmilegt að í mörgum löndum þurfi líbru- hópurinn að sækja um skráningu áð- ur en byrja má að miðla greiðslum og gæti skráningarferlið í sumum tilvikum tekið nokkur ár. Lausn fyrir þá sem ekki eiga bankareikning Í kynningarefni Facebook skín í gegn að markmiðið með líbrunni á ekki síst að vera að bæta fjármála- þjónustu við þá sem í dag geta ekki nýtt sér hefðbundna bankaþjónustu og greiðslumiðlun sem skyldi. Líkt og með aðrar rafmyntir á færslu- kostnaður að vera í algjöru lágmarki og hægt að senda greiðslur milliliða- laust hvort heldur til að borga fyrir hveitið á markaði í Gana eða senda peninga til vina og ættingja heima í Bangladess. Á að verða jafn auðvelt að senda fólki pening og að senda því broskarl. Ekki er alveg ljóst hvort réttara væri að kalla líbruna rafmynt (cryptocurrency) eða rafeyri (e- money). Af umfjöllun Bloomberg má ráða að líbran muni nota körfu hefð- bundinna gjaldmiðla og skuldabréfa sem fót til að reyna að ná sem stöð- ugustu gengi. Þessi forði mun jafn- framt bera vexti sem má nota til að halda innviðum líbrunnar gangandi og greiða aðilum Libra Association arð ef svo ber undir. Verður þessum eignum dreift um allan heim og gengi líbrunnar ekki fest við neinn tiltekinn gjaldmiðil eins og evru eða bandaríkjadal. Færslur munu fara fram yfir bálkakeðju og ættu því að vera jafn öruggar og greiðslur með t.d. bit- coin, en tæknin verður jafnframt galopin svo að frumkvöðlar munu geta þróað nýjar lausnir og þjónustu fyrir gjaldmiðilinn. Facebook segir bálkakeðju líbrunnar mjög skjót- virka og þurfa miklu minni orku en t.d. blockchain. Spurning um traust Jafnvel með liðsinni fjármálarisa eins og Visa og Mastercard er samt ekki ljóst hversu vel mun ganga að gera líbruna að veruleika. Víða um heim hafa stjórnvöld sniðið rafmynt- um mjög þröngan stakk og jafnvel bannað þær með öllu. Þá hafa ýmsir fjármálaspekingar lýst áhyggjum sínum af því að rafmyntir sem stjórnað er af fyrirtækjum geti ógn- að stöðugleika fjármálakerfa og kannski að seðlabönkum heimsins þyki að sér vegið með þessu útspili. Svo þarf að fá fólk til að nota raf- myntina. Jafnvel með rösklega tvo milljarða jarðarbúa á Facebook er ekki víst að notendur séu ólmir í að treysta fyrirtæki Zuckerbergs fyrir sparifé sínu og matarpeningum. Og það er ekki eins og Facebook hafi aldrei brugðist trausti notenda og farið ógætilega með viðkvæm gögn. Munu gagnrýnendur Facebook og annarra tæknirisa líka óttast að ver- ið sé að færa Kísildal of mikið vald með því að leyfa þeim að stýra al- þjóðlegum gjaldmiðli og greiðslu- miðlunarkerfi. Verður kannski hætta á að líbru-eigendur verði sett- ir í straff ef þeir hegða sér ekki rétt, eins og á í dag við um ólátabelgi á Facebook? Nýr gjaldmiðill fyrir allan heiminn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Ekki skortir metnaðinn hjá hópnum á bak við raf- myntina líbru. En jafnvel með Facebook í broddi fylkingar er það meira en að segja það að ætla að umbylta banka- og pen- ingakerfi heimsins. AFP Facebook er í góðri aðstöðu til að koma líbrunni í almenna notkun. En fyrst þarf að fullnægja flóknum reglum og fá fólk til að treysta nýjum gjaldmiðli. „Libra“ er fjarri því nýtt nafn á gjald- miðli. Um latneskt orð er að ræða sem á tímum Rómverja var mæli- eining fyrir þyngd, en varð síð- ar notað sem grunmæliein- ing rómverska mynt- kerfisins. Í gegnum söguna hafa mörg lönd notað líbrur, eða lírur, fyrir gjaldmiðil, en stundum farið lengri leiðina með því að þýða orðið yfir á eigið tungumál og síðan nota sem heitið á peningum, eins og á t.d. við um breska pundið. Frakkar notuðu lívru fram til 1794, og ísraelski gjaldmiðillinn kallaðist líra fram til 1980 þegar shekellinn tók við. Gjald- miðlar Sýrlands og Líbanon eru í daglegu tali kallaðir lírur, og bæði Egyptar og Ottómanar notuðu lírur sömuleiðis, og halda Tyrk- irnir enn í þetta fallega nafn á gjaldmiðli. Lesendur muna örugglega flestir eftir ítölsku lír- unni, sem vék endanlega fyrir evr- unni í ársbyrjun 2002. Nafn sem á sér langa sögu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.