Morgunblaðið - 26.06.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.06.2019, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019FRÉTTIR HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í Mesta lækkun Mesta hækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) ORIGO -1,53% 25,7 HAGA +4,17% 43,75 S&P 500 NASDAQ -1,14% 7.959,271 -0,60% 2.936,59 -0,03% 7.422,43 FTSE 100 NIKKEI 225 27.12.‘18 26.12.‘1825.6.‘19 1.700 80 1.814,0 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 65,19 -1,25% 21.193,81 54,47 40 2.100 25.6.‘19 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 1.851,5 VEITINGAGEIRINN Tveir aðilar koma til greina sem nýir rekstraraðilar að nýbyggingunni við Klapparstíg þar sem Skelfiskmark- aðurinn var áður til húsa. Þetta stað- festir Pálmar Harðarson, eigandi og framkvæmdastjóri Þingvangs. Klásúla var í leigusamningi Þing- vangs og Skelfiskmarkaðarins um að Vífilfell gæti tekið við sem rekstr- araðili ef svo bæri undir. Nú er orðið ljóst að ekkert verður af því. „Þeir koma ekki til með að leigja rýmið til frambúðar þannig að fram undan er að klára samninga við nýja aðila um leigu á húsnæðinu,“ segir Pálmar. Líkt og áður hefur komið fram var Skelfiskmarkaðurinn opnaður í ný- byggingunni við Klapparstíg í ágúst fyrir ári. Fyrr á þessu ári var stað- urinn tekinn til gjaldþrotaskipta og því ljóst að nýr aðili myndi koma í þeirra stað. Morgunblaðið/Valli Nýir aðilar koma í stað Skel- fiskmarkaðarins von bráðar. Ganga frá samningi von bráðar Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, telur ljóst að siglt sé hrað- byri inn í umhverfi þar sem fram- kvæmd og gagnsæi stefnu um sam- félagsábyrgð getur skipt sköpum varðandi aðgengi fyrirtækja að fjár- magni. Þetta kom fram í ræðu Páls við afhendingu viðurkenningar fyrir samfélags- skýrslu ársins ár- ið 2019. Viðurkenn- inguna veitir Festa - miðstöð um samfélags- ábyrgð, Stjórn- vísi og Við- skiptaráð. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru veitt og hlaut Isavia viðurkenninguna í ár. Páll vék í erindi sínu að góðum ár- angri bandarískra fyrirtækja í gerð samfélagsskýrslna. „Væri löggjöf eða þrýstingur frá stjórnvöldum að- aldrifkraftur aukinnar upplýsinga- gjafar fyrirtækja um umhverfismál, samfélagsmál og stjórnarhætti mætti búast við að evrópsk fyrirtæki stæðu bandarískum mun framar í birtingu samfélagsskýrslna. Sú virð- ist þó ekki raunin. Um 90% fyrir- tækja í S&P 500 vísitölunni birta nú samfélagsskýrslu, en hlutfallið var innan við fimmtungur árið 2011,“ sagði Páll í ræðu sinni. Bresk fyrirtæki fremst Hann sagði að nýleg greining meðal þúsunda stórra fyrirtækja í 23 löndum sýndi að bresk fyrirtæki stæðu fremst meðal evrópskra fyr- irtækja þegar kæmi að birtingu upp- lýsinga um umhverfis- og samfélags- mál. Þá sýnir greiningin jafnframt að bandarísk fyrirtæki standa þeim bresku jafnfætis. Þá vék Páll frekar að árangri bandarískra fyrirtækja og sagðist hafa hlýtt nýlega á mál bandarískra sérfræðinga sem hafi haldið því fram að framúrskarandi samfélags- skýrslur væru ein forsenda þess að bandaríski hlutabréfamarkaðurinn héldi leiðandi stöðu sinni á heims- vísu. „Ef þetta er staðan sem Banda- ríkin standa frammi fyrir getum við rétt ímyndað okkur þýðingu þess fyrir íslensk fyrirtæki að þau sinni þessari upplýsingagjöf með sóma.“ Páll sagði að vöxtur fjárfestingar sem tekur mið af umhverfis- og sam- félagslegum þáttum og stjórn- arháttum styðji þetta viðhorf. Þann- ig hafi slík fjárfesting numið 30 þúsund milljörðum bandaríkjadala á heimsvísu á árinu 2018 og hafði vax- ið um þriðjung frá árinu 2016. Þá vísaði Páll til fréttar breska dag- blaðsins Financial Times þar sem fram kom að meira en helmingur forsvarsmanna eignastýringa og líf- eyrissjóða, sem sóttu alþjóðlega fjárfestaráðstefnu í London í síðast- liðnum mánuði, hefði talið að hlut- deild fjárfestinga sem byggjast á samfélagsviðmiðum myndi meira en tvöfaldast á heimsvísu á næstu fimm árum, úr 25 prósentum í 50 prósent eða meira. Vitundarvakning hér á landi Vel unnar samfélagsskýrslur sem endurspegla á skýran hátt stöðu og stefnu fyrirtækis geta verið virð- isaukandi fyrir hluthafa, að sögn Páls. Hann sagði að hérlendis hefði orðið vitundarvakning á undan- förnum árum. Allflest skráð fyrir- tæki á hlutabréfamarkaði og nokkrir stærri útgefendur á skuldabréfa- markaði gæfu nú út samfélags- skýrslur, sem margar hverjar styðj- ast að nokkru leyti við ESG-leiðbeiningar Nasdaq. „Of snemmt er að meta áhrif þeirra á af- stöðu fjárfesta en ég er í litlum vafa um hver áhrifin verða þegar fram í sækir.“ Aðgangur að fjármagni verði háður samfélagsábyrgð Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Framúrskarandi sam- félagsskýrslur eru taldar vera ein forsenda þess að bandaríski hlutabréfamark- aðurinn haldi leiðandi stöðu sinni á heimsvísu. Nasdaq gefur út ESG-leiðbeiningar um samfélagsábyrgð sem byggjast á leiðbeiningum Alheimssamtaka kauphalla, World Federation of Exchanges. HÖNNUN Hönnunarverslunin Epal, sem er með höfuðstöðvar í Skeifunni 6 og útibú í Hörpunni, Kringlunni og á Laugavegi, hagnaðist í fyrra um 92 milljónir króna. Það er 11% aukning frá fyrra ári, þegar hagnaður fyrir- tækisins nam rúmum 83 milljónum. Eignir Epals námu í lok árs 2018 rúmum 600 milljónum króna og juk- ust á milli ára um rúm fimm pró- sent, en þær voru tæpar 570 millj- ónir króna í lok árs 2017. Eigið fé verslunarinnar nam í lok síðasta árs 399 milljónum króna, og jókst um 18% milli ára, en árið á undan nam eigið féð 338 milljónum. Eiginfjárhlutfall Epals nam í lok árs 2018 66%. Tekjur félagsins árið 2018 námu 1.478 milljónum króna og jukust þær lítillega milli ára, en tekjurnar árið 2017 voru 1.425 milljónir. 53 starfsmenn Eins og fram kemur í nýbirtum ársreikningi fyrirtækisins þá störf- uðu 53 hjá félaginu á árinu 2018, og námu launagreiðslur til þeirra 251 milljón króna. Hluthafar félagsins eru fimm talsins. Þeir sem eiga 10% eða meira í fyrirtækinu eru stofnandinn Eyjólfur Pálsson, með 51,91%, og Guðmundur Hannesson, sem á 23,36%. Félagið sjálft á 9,45% hluta- fjárins. Epal fagnar á þessu ári 44 ára af- mæli, en Eyjólfur stofnaði félagið þegar hann kom heim frá Kaup- mannahöfn að loknu námi í hús- gagnahönnun. Framkvæmdastjóri Epal er Kjartan Páll Eyjólfsson. tobj@mbl.is Epal hagnaðist um 92 milljónir króna 2018 Morgunblaðið/Styrmir Kári Kjartan Páll Eyjólfsson fram- kvæmdastjóri og Eyjólfur Pálsson. Páll Harðarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.