Morgunblaðið - 07.06.2019, Page 2

Morgunblaðið - 07.06.2019, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@mbl.is, Snæfríður Ingadóttir snaeja@gmail.com, Auglýsingar Berglind Guðrún Bergmann berglindb@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók RAX Þ egar ég var að alast upp þótti mikið stöðutákn að eiga stórt hús, stóran bíl, stórt vídeótæki og Soda Stream með mörgum bragðtegundum. Stórlaxar voru líka í tísku en til þess að sýna hvað þeir væru flottir kepptust þeir við að byggja risahús hvort sem þeir höfðu efni á þeim eða ekki. Ef þeir höfðu ekki alveg efni á risahúsunum unnu þeir jafnvel tvær aukavinnur til að lifa drauminn. Það þótti fínt í þá daga að hafa brjálað að gera og enn í dag erum við nútímafólkið að ströggla við þessar úreltu hugmyndir um lífið. Stórlaxarnir í risahúsunum spöruðu á öðrum sviðum til að eiga fyrir salti í grautinn. Þeir borðuðu til dæmis ógrynni af unnum kjötvörum, helst oft í viku, eins og kjötbollum í brúnni sósu, bjúgum með uppstúfi og grænum baunum, brauði með kjötfarsi sem var steikt upp úr smjörlíki á pönnu og á tyllidögum var svikinn héri með kartöflumús og sósu með miklum matarlit. Þess á milli sjússuðu þeir sig á Naustinu og þá voru engar búbblur í boði eins og hjá fína fólki dagsins í dag heldur heiðar- legur vodki í kók. En ekkert varir að eilífu og hægt og rólega dó draumurinn um risa- húsið út, eða allavega hjá stærsta hópnum. Mögulega eru nokkrar eftir- legukindur í eftirpartíinu en þeim fer fækkandi enda er partíið orðið dálít- ið þunnt og ólekkert. Í dag vill fólk minna húsnæði og meiri upplifun og þess vegna má gleðjast yfir því að þétting byggðar sé að aukast í Reykjavík og á höfuð- borgarsvæðinu sé hægt er að kaupa litlar splunkunýjar íbúðir sem fylgja öllum nútímastöðlum þar sem pláss er vel skipulagt. Í vikunni var ég stödd á Democratic Design Days IKEA sem haldnir voru í Almhult í Svíþjóð. Þar voru samankomnir samstarfsaðilar IKEA og sérfræðingar til að ræða framtíðarsýn í heimilisgeiranum. Framtíðarheim- ilið er allt öðruvísi en fortíðarheimilið. Risahúsið víkur fyrir minni íbúð og inn á heimilið fer helst ekki neitt nema vera umhverfisvænt og lífrænt. Svona í stuttu máli þá er framtíðarheimilið ekki villa á Arnarnesi heldur kannski bara 50 fm íbúð sem er breytileg. Aðalmubla rýmisins er fær- anleg en í henni er eldhús, rúm, skápar og allt sem venjuleg nútíma manneskja þarf til að geta dregið andann og verið til. Minna húsnæði kallar á minna dót og því þarf að velja dótið sem fer inn á heimilið mun betur. Fyrir safnara sem kann best að meta glansandi hluti virðist þetta í fyrstu vera mjög flókið og kannski óyfirstíganlegt. En svo kom í ljós að það er alveg hægt að vera lífrænn stórlax eða glanspía en um leið um- hverfisvænn. Þessi nýju efni sem eru búin til úr endurunnu plasti til dæmis eru ekki eins og óbleikt bómull. Tæknin er orðin svo mikil að það er í raun hægt að gera hvað sem er þótt varan sé umhverfisvæn og unnin úr lífrænum efnum. Útlitið geldur ekki fyrir betri framleiðsluhætti. Svo þýðir ekkert fyrir okkur að hundsa þetta umhverfisástand og taka ekki þátt því við erum öll á sama báti. Ef við tökum ekki höndum sam- an mun báturinn sökkva. Þegar eitthvað nýtt er á dagskrá segja gamlir hundar að þeir geti ekki tekið þátt en það á ekki við núna. Við getum ekki ætlast til þess að hinir séu bara um- hverfisvænir og smart heldur þurfum við að leggja okkar af mörkum líka. Alveg sama hvort þú ert stórlax sem ferð á milli staða í þyrlu (sem er mjög óumhverfisvænt) eða bara venjuleg Dúdda majónes. Stórlaxinn og Dúdda majónes Marta María Jónasdóttir H vað gerir þú til að dekra við þig? „Ég vakna snemma, þurrbursta á mér húðina, ber á hana olíu og fer svo í langa sturtu. Svo er lokahnykkurinn að hugleiða í algjörri kyrrð áður en strákarnir vakna. Að ná að gera þetta er samt alltof sjaldgæft.“ Hvert er upáhalds fatamerkið þitt? „Íslenska merkið USEE STUDIO og að sjálfsögðu AD.“ Hvaða hönnuð heldur þú upp á? „Þá sem hugsa frá A-Ö en ekki bara A-B.“ Hvað þýðir tíska fyrir þig? „Verandi fatahönnuður þá mundi maður halda að ég hefði sterkar skoðanir á tísku og hvað það þýðir en satt best að segja þá tengi ég voðalega lítið við það orð og hef eiginlega aldrei gert. Eða jú, ég tengi það kannski helst við ofneyslu. Auðvitað litast allir af tíðarandanum og ég er ekki undanskilin því en mér finnst meira heillandi að vera sáttur í sínu hvað svo sem það kann að vera. Að vera í tísku er einhvernveginn andstæðan við það… er það ekki?“ Hver er uppáhalds liturinn þinn? „Hvítur á sér stóran sess hjá mér, en hvítur stækkar áruna okkar. Svo finnst mér dökkblár í mörgum tónum alltaf flottur.“ Hvaða óþarfa keyptirðu þér síðast? „Ég kaupi mjög sjaldan óþarfa, ég reyni að hugsa öll kaup fram og tilbaka. Hvort ég þurfi þetta nú alveg örugglega o.s.frv. Stundum hugsa ég of mikið, ég til dæmis ofhugsaði stofuborðskaup svo mikið að við vorum ekki með neitt borð á heimilinu að ég held í heilt ár.“ Hver er uppáhalds íþróttafatnaðurinn þinn? „Ef það er fyrir jóga, þá eru það hvít föt frá toppi til táar og túrban á höfuðið. Annars bara föt sem þægilegt er að hreyfa sig í.“ Hvaða hlutur er ómissandi? „Tannbursti.“ Hver er mest notaða snyrtivaran í snyrtitöskunni? „Ég var að eignast krem frá alkemistanum og jóga- kennaranum Evu Dögg Rúnarsdóttir. Kremið heitir Allra meina bót og stendur svo sannarlega undir nafni. Þetta krem er eins og himnasending fyrir svefnlausa tætta móður. Ég er búin að vera að nota það á andlitið og fæturna, það er lífræn eiturefnalaus B.O.B.A. sem ilmar dásamlega vel af kjarnaolíum. Ég mæli heilshugar með því.“ Hver er uppáhalds verslunin þín? „Allar búðir sem selja gott súkkulaði.“ Hver er uppáhalds borgin til að versla í? „Ég reyni að hugsa sem minnst um að versla þegar ég ferðast, nema þá góðan mat.“ Áttu þér uppáhalds flík? „Síður prjónakjóll frá merkinu mínu AD. Hann er ávanabindandi í íslenskum vetri.“ Hver er besti veitingastaðurinn á Íslandi að þínu mati? „Norð Austur á Seyðisfirði og Austur-Indíafélagið á höfuðborgarsvæðinu.“ Uppáhalds morgunmaturinn? „Súkkulaði-croissant og te.“ Uppáhalds smáforrit? „Instagram.“ Hvað er á óskalistanum? „Ég læt mig dreyma um rúm frá Coco mat en það ku vera jafn dásamlegt að sofa í því rúmi eins og að leggja sig í guðsgrænni náttúrunni.“ Fagurkeri sem elskar súkkulaði Sigrún Halla Unnarsdóttir er fatahönnuður og mikill fagurkeri. Hún hannar undir merkinu AD og gerir fallegar prjónaflíkur í alls konar litum. Hún er mikið náttúrubarn og lætur sig dreyma um rúm frá Coco mat. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Sigrún Halla er einstak- lega smart kona sem er mikið í ljósum fatnaði. Hér er hún í fatnaði sem hún hannaði sjálf. Sigrún Halla er einnig kundalini-jógakennari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.