Morgunblaðið - 07.06.2019, Síða 12
Þ
að fylgir Kristínu Sólveigu áhuga-
verð orka sem erfitt er að festa fing-
ur á hvaðan kemur. Þegar maður
kynnist sögu hennar hins vegar
skýrist myndin. Kristín var eitt
sinn skátastelpa og seinna fjallaleið-
sögukona. Hún er hjúkrunarfræð-
ingur og líka læknir. Hún er
frjáls, flínk í samskiptum, svolít-
ill pönkari en mest af öllu þá
fer hún sýnar eigin leiðir í líf-
inu.
Elti drauminn og
fór í læknanám
Fyrir sjö árum var hún
hjúkrunarfræðingur á slysavarðstofu
en ákvað að venda kvæði sínu í kross og
fara í læknanám til Danmerkur þar sem hún
býr ennþá.
Hvar lærðirðu?
„Ég lærði í Óðinsvéum við Syd-
dansk-háskólann. Ég get mælt með því námi við
alla, þar sem mikið skipulag er í náminu og
áherslan er á samskiptafærni og þverfaglega
samvinnu ofar öllu hinu fræðilega.“
Hvað kom til að þú ákvaðst að verða læknir?
„Mig langaði bara að læra meira og fá þennan
möguleika á að velja sérgrein og að starfa
kannsi sjálfstætt sem mér þykir heillandi.“
Fólkið skiptir meira
máli en staðurinn
Hvernig er að búa á erlendri grundu?
„Það er frábært, annars væri ég ekki hér. Ég
hef búið víða, í Bandaríkjunum, Hollandi, Sviss
og Noregi. Mín skoðun er sú að það er ekki
landið sem skiptir höfuðmáli heldur sú stað-
reynd að ég hef verið svo lánsöm að hitta gott
fólk sama hvar í veröldinni ég er.
Svo finn ég hamingju við að læra eða vinna í
verkefnum sem mér finnst skipta máli.“
Kristín trúir af öllu hjarta á að ferðast létt.
„Ef ég er að fara á milli landa þá finnst mér
allar ferðir undir 10 dögum þýða að ég tek bara
lítinn bakpoka með mér.
Þegar ég flutti hingað tók ég bara lítinn bak-
poka og eina ferðatösku. Síðan pökkuðum við,
ég og börnin mín tvö, á eitt bretti sem var sett í
skip. Á þessum tíma vissi ég ekki hvar ég myndi
búa eða hversu mikið pláss væri á staðnum. Svo
að á brettið fór: Minn heittelskaði „Stokke“
stóll. Sonur minn sem var þá 10 ára vildi fá sinn
skrifborðsstól með líka. Ég tók stóran Verner
Panton stól, Kitchen Aid-hrærivélina og kistil
sem var með útvöldum leikföngum. Ég pakkaði
almennilegum hnífum fyrir eldhúsið. Bara það
allra mikilvægasta fékk að fara með sem
tveggja barna móðir á námslánum myndi aldrei
kaupa sér úti. Þegar við fluttum til Danmerkur
fór 17 ára dóttir mín beint í íþróttaskólann í
Ollerup þar sem dans og fimleikar eru á hæsta
plani. Hún var þar í eitt ár og fór að heiman með
tvær töskur. Kistillinn hefur verið í ýmsum hlut-
verkum. Sem stofuborð, bekkur á gangi, hirsla á
baðinu. Hann er frábært fjölnota húsgagn sem
ég held mikið upp á.“
Minna drasl þýðir minna vesen
Mottó Kristínar Sólveigar er minna drasl og
minna vesen. „Það hefur margborgað sig fyrir
mig.“
Er öðruvísi að standsetja íbúð í Danmörku?
„Síðastliðin sjö ár hef ég búið í þremur íbúð-
um. Húsnæðið þar sem ég er, er um margt
öðruvísi en við þekkjum til á Íslandi. Húsin eru
gömul, sem dæmi, 120 ára hús með trégólfum
og múrsteinum, sem mér finnst hlýlegt.“
Kristín segir hins vegar kalt í rakanum á vet-
urna í Danmörku. „Þá fer kona á flóamarkað og
kaupir stór persnesk teppi, óskar sér Álafoss-
teppis í afmælisgjöf og finnur þykkar gardínur.
Hér áður hélt ég alltaf að Danir væru svo
mikið að hafa það huggulegt, þegar maður las
dönsku hönnunarblöðin þar sem algengt er að
sjá fólk með kerti, tebolla, vafið inn í smart
teppi.
Núna veit ég að það er vegna þess að þeim er
svo kalt.
Rafmagn og hiti hér er svo brjálæðislega
dýrt. Svo það er mikil hagsýni fólgin í að eiga
„Hún er fullkomin fyrir hjón með tvö börn en
er of stór fyrir mig og köttinn minn.
Dóttir mín býr núna í Kaupmannahöfn með
sinni fjölskyldu og yngra barnið mitt er að klára
stúdentspróf um þessar mundir og stefnir á há-
skólanám í Danmörku. Það hefur verið heil-
mikið verk að taka íbúðina í Mosfellsbænum í
gegn, en nú er hún eins og ný og býður eftir
fólki sem langar í fallegt útsýni og gott hverfi. “
Heimili ekki hlutir og pjatt
Hvað er það við Ísland sem heillar?
„Ísland er aðlaðandi í mínum huga þar sem
ég á dásamlega fjölskyldu og vini í landinu sem
ég sakna.
Eins finnst mér sundlaugarnar aðlaðandi,
vatnið gott og fjöllin eru einnig eitthvað sem ég
sakna frá Íslandi og mér finnst Dana sárvanta.“
Hvað er gott heimili að þínu mati?
„Mér finnst gott heimili sá staður sem er op-
inn og afslappaður á þann hátt að fólk dettur inn
um dyrnar – eins og hjá mömmu og pabba – þar
sem er endalaust hjartarúm og húsrúm með ást
og góðum mat.
Heimili fyrir mér er ekki hlutir og pjatt. Það
er andrúmsloftið og ástúðin. Ég gæti búið í snjó-
húsi uppi á jökli með rétta fólkinu.
Gott heimili er því þegar allt kemur til alls
griðastaður með þínu fólki sama hvort það er
blóðskylt þér eða ekki.“
Farðu út að leika!
Hverju mælir þú með fyrir fólk til að halda í
heilsuna?
„Farðu út að leika þér og svo mæli ég með
tengslum og tilgangi í lífinu. Að vera úti er best.
Að synda í hagléli, að þvælast í fjöruferð, að
vera með öndina í hálsinum á fjallaskíðum, að
fetta sig í jóga með kettinum. Ég mæli með að
fólk finni bara það sem er gaman og hluti af
hversdagsleikanum. Minna vesen –
minna stress.“
Hvað tengsl varðar segir
Kristín Sólveig mikilvægt að
forgangsraða félagsskap og
því sem maður tekur sér
fyrir hendur.
„Einmanaleiki er eitt af
stóru heilbrigðisvandamál-
unum í Danmörku um þess-
ar mundir.
Afleiðingar einmanaleika eru
hrikalegar, bæði fyrir líkama og
sál.
Hamingja að mínu mati er ekki
hlutbundin og það að vera vansæll
er hreint út sagt óhollt.
Að sinna einhverju af alúð er
hollt fyrir alla. Langamma Lóa sagði alltaf að
það væri gott að geta glaðst yfir litlu.
Ég er að verða meira og meira sammála
henni. Lífið er einfaldlega skemmtilegra með
þeirri hugsun.“
Útsýnið getur verið lúxus líka
Hvernig er draumaeignin þín?
„Íbúðin hennar Dóru Sifjar Tynes vinkonu
minnar er algjör draumur en hún vill endilega
búa þar sjálf. Hún á yndislegt heimili með pláss
fyrir gleði og gesti.
Það er auka herbergi fyrir farfugla og svalir
sem passa jafnt fyrir morgunkaffi og kampa-
vínsglas í góðum selskap.
Það að sjá hafið og fjöllin er klárlega lúxuslíf.“
„Gott heimili þar sem fólk
dettur inn um dyrnar“
Kristín Sólveig Kristjánsdóttir er
læknir að mennt. Hún er ákaf-
lega fær í samskiptum og segir
að gott heimili sé sá staður þar
sem fólk dettur inn um dyrnar og
þar sem er gott hjartarúm. Hún
hefur búið erlendis í nokkur ár en
stefnir á sérnám í bráðalækn-
ingum, jafnvel á Íslandi.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Kristín með vinkonum sínum
Ingu Dagmar hér til vinstri og
Katrínu Maríu Káradóttur til
hægri á myndinni.
stóra tebolla og að slökkva ljósin,“
segir Kristín Sólveig og brosir.
„Heima á Íslandi eru hús mun
betur einangruð og síðan er frá-
gangur allur betri að mínu mati í
húsum.
Mér finnst persónulega betra að biðja pabba
að koma frá Íslandi en að bíða eftir iðn-
aðarmanni hér í sex mánuði.
En ég á nú örugglega heimsins handlagnasta
og besta pabba.“
Sérnám í bráðalækningum
Hvað er á döfinni?
„Ég er að velta fyrir mér sérnámi og kem
kannski heim þar sem bráðalækningar á Íslandi
eru á heimsmælikvarða. Eins sakna ég þess
dásamlega fólks sem vinnur á bráðadeild Há-
skólasjúkrahúss.“
Kristín á íbúð í Mosfellsbænum sem hún hef-
ur ákveðið að setja á sölu.
Kristín Sólveig er á því að lúxus sé í
smáatriðunum. Falleg blóm, góð
rúm og sniðugt útsýni er sem dæmi
lúxus að hennar mati.
Kristín Sólveig segir gjörólíkt
að innrétta í dönskum hús-
næðum þar sem húsin eru
mörg hver upprunaleg.
Hönnuðurinn Verner
Panton er í uppáhaldi
hjá Kristínu Sólveigu.
Fyrir sjö árum var hún
hjúkrunarfræðingur á
slysavarðstofu en ákvað að
venda kvæði sínu í kross og
fara í læknanám til Dan-
merkur þar sem hún býr
ennþá.
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019