Morgunblaðið - 07.06.2019, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.06.2019, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 MORGUNBLAÐIÐ 21 og það sé óheppilegt ef að tekur t.d. tíu ár frá því stigin eru allrafyrstu skrefin í átt að fram- kvæmdum og þar til afhenda má fyrstu íbúð- irnar. „Lausnin er ekki að húsnæði sé byggt í hvelli og að fá mikið magn húsnæðis á mark- aðinn á skömmum tíma gæti valdið vandræðum, enda offramboð ekki af hinu góða. En það er heldur ekki gott ef byggingaaðilar þurfa að glíma við mjög íþyngjandi stjórnsýslu- og reglu- umhverfi. Ef skipulagsvinna og stefnumótun ákveðinna svæða gengur hratt og vel fyrir sig verður það markaðarins að ákveða hvenær er rétti tíminn til uppbyggingar. Getur verið kostnaðaraukandi fyrir markaðinn að vera með stórt verkefni lengi í skipulagsferli.“ Vöntun á einfaldara húsnæði Bendir Gunnar á að víða megi einfalda og flýta fyrir. „Í dag er svo komið að töluverð skrif- finnska fylgir öllum húsbyggingaverkefnum og nýja byggingareglugerðin setur húsbyggj- endum mjög þröngar skorður. Þannig þýðir t.d. krafan um algilda hönnun, þ.e. að fólk með skerta hreyfigetu geti nýtt allar íbúðir í húsi með sama hætti og aðrir, að erfiðara er að koma til móts við þann hóp sem myndi vilja einfaldara og hagkvæmara húsnæði, s.s. 3-4 hæða stigahús líkt og við þekkjum úr Háaleitinu, Álfheimum og víðar, þar sameignir eru takmarkaðar, ekki stórir bílakjallarar undir húsum og bílastæðin höfð ofanjarðar.“ Hugmynd að götumynd Héðinsreits úr smiðju Jvantspijker og Teikn arkitektaþjónustu. Þó að byggt sé hátt og þétt virka hús- in ekki fyrirferðarmikil og hleypa birtu niður að götunni. Í þessum nýju íbúðahverf- um, hvort sem þau eru stór eða smá, má greina nýjar áherslur í hönnun og skipu- lagi sem endurspegla breyttar óskir almennings. Gunnar segir Vogabyggð mjög gott dæmi um þessa þróun. Vogabyggð gæti varla ver- ið meira miðsvæðis. Samt er hverfið mannvænt og í mikilli nánd við náttúruna. Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn Ríkiskaupa í síma 530 1400 eða í gegnum netfangið fasteignir@rikiskaup.isRÍKISKAUP Borgartúni 7C, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is Nánari upplýsingar um ofangreindar eignir má finna á fasteignavef mbl.is Steinsteypt þriggja hæða bygging ásamt kjallara undir hluta hússins. Húsið var byggt árið 1937 og var lengst af notað sem skólahúsnæði en var síðan tekið undir læknastofur. Íþróttasalur sem er áfastur húsinu til vest- urs hefur verið nýttur sem geymsla síðustu ár og hefur ekki verið upphitaður. Skráð stærð hússins er 885,7 m2. Fyrir utan íþróttasalinn er stærð hússins 645,1 m2. Vel staðsett eign sem býður uppá mikla möguleika en þarfnast lagfæringa og endurbóta. Verð 145 millj. Um er að ræða fimm herbergja 116,3 fm. íbúðarhús í Grímsey, fyrst byggt árið 1942 en viðbygging var byggð árið 1971. Húsið stendur á fallegum stað við aðalgötuna í Grímsey og rétt ofan við Stertuvík. Húsið er á einni hæð og er selt á sér afmarkaðri 1.500 fm leigulóð. Verð 5,5 millj. LAUST STRAX. Jörðin Bakkakot 1, ásamt íbúðarhúsi og fleiri bygging- um. Stærð hennar er 458 hektarar, þar af er ræktað land skráð 55,4 hektarar. Um er að ræða bújörð en ekki hefur verið stundaður þar hefðbundinn búskapur um árabil. Jörðin er flatlend og talin henta vel til ræktunar og akuryrkju. Jörðinni fylgja 226,5 ærgildi. Verð: TILBOÐ. Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á góðum útsýnisstað í Ólafsvík. Íbúðin sem er á annarri hæð er skráð alls 119,1 fm með sameign. Húsið er byggt árið 1959, klætt að utan með steni og stutt er í alla þjónustu. Verð 8 millj. LÆKKAÐ VERÐ. Hjarðartún 7, 355 ÓlafsvíkBakkakot, Vestur-SkaftafellsýsluSveintún 2, 611 GrímseySuðurgata 44, 220 Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.