Morgunblaðið - 22.07.2019, Side 1
M Á N U D A G U R 2 2. J Ú L Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 170. tölublað 107. árgangur
ÍSLAND ER
EINSTAKT EINS
OG TUNGLIÐ
NÝJAR
TEGUNDIR
FUNDUST
GEFUR ÚT
SÍNA FYRSTU
SKÁLDSÖGU
LEIÐANGUR VÍSINDAMANNA 2 EIRÍKUR STEPHENSEN 28NÝR SENDIHERRA 6
Nokkrir lögðu um helgina leið sína á Gömlueyri við
Löngufjörur á Snæfellsnesi þar sem grindhvalavaða
gekk á land nýlega. Rotnandi hræ liggja í sandinum og
engin áform eru um að fjarlægja þau. Hægt er að komast
á staðinn af Mýrum, en fara þarf rétta slóð sem aðeins er
fær á fjöru. Best er því að sjá hvalina úr lofti, eins og ljós-
myndari Morgunblaðsins gerði. „Þegar öldur Atlants-
hafsins berja á verða skepnurnar fljótar að grafast niður
eða þeim skolar út,“ segir Gunnar Gylfason, einn land-
eigenda. Vísindamenn Hafró stefna á staðinn í vikunni
og þá hafa forsvarsmenn Reðasafnsins óskað eftir því að
mega sækja lim af grindhval og gera að safngrip.
Morgunblaðið/RAX
Grindhvalirnir senn orpnir sandi
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Gjá er á milli þingflokks Sjálfstæð-
isflokksins og annarra sjálfstæðis-
manna. Þetta segir Elliði Vignisson,
bæjarstjóri í Ölfusi, en samkvæmt
nýjustu könnun MMR um fylgi
flokka er Sjálfstæðisflokkinn með
19% fylgi og er umræðan um orku-
pakka þrjú sögð eiga þar stóran
þátt.
Elliði segir í samtali við Morgun-
blaðið að könnunin sé til marks um
að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fengið
„gula spjaldið“. „Mín skoðun er sú
að það sé gjá á milli þingflokksins og
fjölmargra annarra sjálfstæðis-
manna í grasrótinni. Verkefnið núna
er að brúa þetta bil, en þetta er
verkefni sem við sjálfstæðismenn
stöndum reglulega frammi fyrir. Ég
trúi því og treysti að bæði formað-
urinn og utanríkisráðherra haldi vel
utan um þetta mál og finni leiðina.
Þeir eru hæfastir til þess,“ segir El-
liði. Hann segir að af samtölum sín-
um við þingmenn að dæma trúi hann
ekki öðru en að málið verði skoðað
betur áður en það fari í gegnum
þingið. „Það er gríðarlega mikilvægt
að forystan, þingflokkurinn og ráð-
herrarnir bregðist við þegar þeir
skynja að þeir hafi ekki hópinn á bak
við sig. Það er eðlilegt að slík staða
komi upp, en það er jafn eðlilegt að
brugðist sé við,“ segir Elliði.
Geti reynst þingmönnum erfitt
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi
ritstjóri Morgunblaðsins, segir að
efasemdir séu uppi meðal margra
stjórnarþingmanna um orkupakk-
ann, í það minnsta í Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokki. Hann mælist til
þess að knúið verði á um kosningu
um málið innan Sjálfstæðisflokks
með undirskriftasöfnun fimm þús-
und flokksmanna. Styrmir kveðst
hafa orðið var við mikla óánægju í
grasrót Sjálfstæðisflokksins vegna
málsins og að afstaða þingmanna
muni geta reynst þeim skaðleg í
prófkjörum.
Gjá milli þingflokks og grasrótar
Gangi ekki í takt við aðra flokksmenn Elliði segir eðlilegt að brugðist verði við
MÁ skjön við vilja grasrótarinnar »4
Eftir átta sigurleiki í röð í Pepsi
Max-deild karla í fótbolta urðu KR-
ingar að sætta sig við jafntefli í gær-
kvöld þegar þeir tóku á móti Stjörn-
unni á Meistaravöllum. Allt stefndi
þó í níunda sigurinn í röð en í upp-
bótartíma leiksins náði Hilmar Árni
Halldórsson að jafna metin fyrir
Stjörnuna, 2:2.
Fyrir vikið náðu KR-ingar ekki
tíu stiga forskoti í deildinni eins og
útlit var fyrir en þar sem Skaga-
menn urðu að sætta sig við jafntefli
gegn KA á Akureyri, 1:1, er Vestur-
bæjarliðið átta stigum á undan
næstu tveimur liðum, Breiðabliki og
ÍA. Breiðablik fær í kvöld tækifæri
til að minnka forskot KR-inga niður
í fimm stig þegar Kópavogsliðið tek-
ur á móti Grindavík.
Íslandsmeistarar Vals nýttu ekki
gott tækifæri til að komast nær
efstu liðum deildarinnar þegar þeir
misstu niður tveggja marka forskot
gegn Víkingum í nágrannaslag í
Fossvogi. Víkingar náðu að jafna
metin í 2:2 undir lokin með marki
Loga Tómassonar og þeir komust
þar með úr fallsæti, þar sem þeir
höfðu setið í stutta stund eftir jafn-
teflið sem KA gerði gegn ÍA.
Staða Eyjamanna virðist vera
orðin vonlítil á botni deildarinnar
eftir enn einn ósigurinn, nú gegn
Fylki í Árbænum, 3:0. »26-27
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vesturbærinn KR og Stjarnan
skildu jöfn í fjörugum leik.
Stjarnan
rauf sigur-
göngu KR
Stjarnan jafnaði
í uppbótartíma, 2:2
Íbúar í Sveitar-
félaginu Árborg
eru nú 9.691 og
hefur fjölgað um
501 á einu ári,
eða um 6,3%.
„Í raun hefur
fjölgun síðustu
ár verið for-
dæmalaus,“ segir
Gísli Halldór
Halldórsson
bæjarstjóri. Allt íbúðarhúsnæði
sem fer á markað selst nánast strax
og bæjaryfirvöld þurfa að halda vel
á spöðunum við að skipuleggja og
brjóta ný lönd undir byggingar-
svæði. Fjölgun íbúa kallar svo á
margvísleg verkefni af hálfu sveit-
arfélagsins. Bygging nýrra grunn-
og leikskóla er að hefjast og reisa á
íþróttahöll sem þjóna skal bæði fót-
bolta og frjálsum íþróttum. »6
Gísli Halldór
Halldórsson
Mikil fjölgun íbúa
og uppbygging
Verulegra
breytinga sér nú
stað í gos-
drykkjaneyslu
landsmanna þar
sem sykurinn er
á undanhaldi. Nú
er svo komið að
60% af því gosi
sem Ölgerðin sel-
ur eru ósykraðir
drykkir en árið
2012 var hlutfallið 40%. Gunnar B.
Sigurgeirsson, aðstoðarforstjóri
fyrirtækisins, segir að hér komi til
að almennt sé fólk meðvitaðra nú
en áður var um hollustu og þar með
talið skaðsemi sykurs. Það hagi
neyslu samkvæmt því. Hugmyndir
stjórnvalda um að leggja skatt á
alla drykki, óháð því hvort sykraðir
séu eða ekki, gangi því ekki upp. Í
raun sé verið að leggja á sérstakan
gosdrykkjaskatt. »10
Skattur án sykurs
Gunnar B.
Sigurgeirsson
Athugun forsætisráðuneytisins
leiddi í ljós að verulegt magn efnis
hefði verið tekið úr malarnámu í
Bolaöldum við Vífilsfell á svæði
sem fellur utan mats á umhverfis-
áhrifum. Náman er á þjóðlendu og
ráðuneytið hefur til skoðunar
hvernig brugðist verði við. Ákveðið
var á síðasta ári að loka námunni í
lok þess árs. „Þetta fyrirtæki hefur
brugðist okkur,“ segir Tryggvi Fel-
ixson, stjórnarformaður Land-
verndar, en Magnús Ólason, for-
svarsmaður Fossvéla sem standa að
námuvinnslunni, segir að um
klaufaskap hafi verið að ræða. »14
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Malarnáma Verulegt magn efnis hefur
verið tekið úr Bolaöldum við Vífilfell.
Tóku í óleyfi efni af
svæði við Vífilsfell